Morgunblaðið - 20.03.2003, Side 7
FRÉTTIR
6 FIMMTUDAGUR 20. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ
SLÓVENAR fagna fyrstu opin-
beru heimsókn forseta Íslands,
Ólafs Ragnars Grímssonar, til
landsins, en Íslendingar voru með-
al fyrstu þjóða heims til að við-
urkenna sjálfstæði Slóveníu árið
1991.
Þjóðirnar tvær eiga sitt hvað
sameiginlegt, þar á meðal jarðhita,
og eru fulltrúar frá íslenskum
orkufyrirtækjum með í för til að
kynna Slóvenum hvernig Íslend-
ingar nýta jarðhita og sagði forseti
Íslands í ávarpi sínu við hátíð-
arkvöldverð forseta Slóveníu, Jan-
ez Drnovšek, að hann vonaðist til
þess að viðræður orkufyrirtækj-
anna og slóvenskra stjórnvalda
myndu skapa grundvöll að sam-
vinnu í framtíðinni. Þá eiga ríkin
það bæði sameiginlegt að vera
smáríki í Evrópu, en með forset-
anum í för er Baldur Þórhallsson,
formaður stjórnar Rannsóknarset-
urs um smáríki við Háskóla Ís-
lands.
„Á undraskömmum tíma hefur
Slóvenía fest í sessi lýðræði og
frelsi sem sumar hinar stærri
þjóðir glímdu við í áratugi og jafn-
vel aldir,“ sagði Ólafur Ragnar
Grímsson í ávarpi sínu í gær-
kvöldi. „Meðan ófriður og hat-
römm átök réðu för í nágrenninu
var Slóvenía heimkynni friðar og
sáttar þar sem sameiginlegur vilji
þjóðarinnar var drifkrafur fram-
fara og efnahagslegrar nýsköpun-
ar.“ Íbúar Slóveníu eru um tvær
milljónir og höfuðborgarbúar eru
innan við 400 þúsund.
Kosning um inngöngu
í ESB og NATO
Slóvenía klauf sig út úr Júgó-
slavíu árið 1991 og fékk þá sjálf-
stæði í fyrsta sinn. Um næstu
helgi verður þjóðaratkvæða-
greiðsla í landinu varðandi inn-
göngu í Atlantshafsbandalagið og
Evrópusambandið. Forseti lands-
ins sagði á blaðamannafundi í höf-
uðborginni Ljúbljana í gær, að
skoðanakannanir sýndu að mikill
meirihluti landsmanna væri
hlynntur aðild að ESB en inn-
ganga í NATO væri umdeildari.
Kosningin er ekki bindandi. Sagði
hann margt mega læra af reynslu
Íslendinga af aðild að NATO og
Evrópska efnahagssvæðinu og
hvernig smáríki getur haft gagn af
slíku samstarfi og áhrif á alþjóða-
vettvangi.
Auk þess að eiga fundi með for-
seta Slóveníu ræddi Ólafur Ragnar
við forsætisráðherra landsins,
borgarstýru Ljúbljana og forseta
og þingmenn slóvenska þingsins.
Þá gekk hann um miðborgina í
fylgd heilbrigðisráðherra landsins.
Í dag mun forsetinn og föru-
neyti hans heimsækja þjóðgarðinn
í Bled og eiga viðræður við við-
skipta- og iðnaðarráðherra Slóven-
íu. Opinberri heimsókn forseta Ís-
lands til Slóveníu lýkur á morgun,
föstudag.
Opinber heimsókn Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands, til Slóveníu hófst í gær
Reuters
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, og Janez Drnovšek, forseti Slóveníu, hlusta á þjóðsöng landanna við upp-
haf fyrstu opinberu heimsóknar forseta Íslands til Slóveníu. Heimsókn forseta til Slóveníu lýkur á morgun.
Ljúbljana. Morgunblaðið.
Slóvenía
heimkynni
friðar og
sáttar
Keikó fagnaði frelsi í kjölfar heimsóknar
Janez Drnovšeks forseta Slóveníu til Íslands
FORSETI Slóveníu, Janez
Drnovšek, kom í heimsókn til Ís-
lands í fyrrasumar, en hann
gegndi þá embætti forsætisráð-
herra. Gegndi hann því starfi frá
upphafi sjálfstæðis landsins og
þar til í desember á síðasta ári.
Í ávarpi sínu við hátíðar-
kvöldverð í gærkvöldi í tilefni
heimsóknar forseta Íslands til
Slóveníu sagðist forsetinn hafa
orðið þeirrar ánægju aðnjótandi
að heilsa upp á þekkta kvik-
myndastjörnu á Íslandi, sjálfan
Keikó. Sagði forsetinn ævi Keikó
æði merkilega, sérstaklega að
því leyti að hann vildi ekki deila
lífi sínu með villtum háhyrn-
ingum þrátt fyrir fjölda áskor-
ana frá mannfólkinu.
Synti til móts við frelsið
„En 7. júlí 2002 heimsótti slóv-
enska sendinefndin, sem var í
opinberri heimsókn á Íslandi,
Keikó“ sagði forsetinn. „Eftir
meira en þrjátíu ár í prísund og
eftir margar árangurslausar til-
raunir til að frelsa hann, ákvað
Willy [Keikó] að synda til móts
við frelsið eftir að slóvenska
sendinefndin heimsótti hann
einn sólríkan júlídag. Hvaðan
hann fékk innblástur til þess er
óvíst, þið verðið auðvitað að
spyrja hann. Þannig tengjast
sögurnar af ferð okkar til Ís-
lands og för Willys til frelsis,“
sagði Drnovšek.
SVEINN Andri Sveinsson hrl., sem er verj-
andi manns sem var í héraðsdómi dæmdur
fyrir að valda af gáleysi dauða níu mánaða
gamals drengs, gagnrýndi við málflutning í
Hæstarétti í gær réttarmeinafræðing og
læknaráð fyrir að geta þess ekki í umfjöllun
sinni um dánarorsök drengsins að meðal
sérfræðinga væri djúpstæður ágreiningur
um einkenni og ástæður fyrir svonefndu
„shaken-baby syndrome“.
Þá væri ekki sannað að drengurinn hefði
misst meðvitund um leið og hann hlaut
áverkana og því væri ekki útilokað að aðrir
en skjólstæðingur hans hefðu framið verkn-
aðinn, hefði drengurinn á annað borð látist
vegna hristings.
Í mars í fyrra dæmdi Héraðsdómur
Reykjaness Sigurð Guðmundsson í þriggja
ára fangelsi fyrir að vera valdur að dauða
drengsins með því að hrista hann harkalega.
Hann hefur ávallt neitað sök og áfrýjaði
málinu til Hæstaréttar. Þetta mun vera í
fyrsta skipti sem ákært er fyrir slíkt mál á
Norðurlöndunum.
Í haust lagði Sveinn m.a. fram álitsgerðir
fjögurra erlendra sérfræðinga, sem fengu
niðurstöður krufningarskýrslunnar sendar,
þar sem fram kemur að þeir telja að ekki sé
hægt að útiloka aðrar dánarorsakir en af
völdum hristings.
Læknaráð tekur undir
með réttarmeinafræðingi
Bogi Nilsson, ríkissaksóknari, krafðist
þess að niðurstaða héraðsdóms um sakfell-
ingu og refsingu yrði staðfest. Hann mót-
mælti því að álitsgerðir erlendu sérfræðing-
anna yrðu notaðar sem sönnunargögn í
málinu og benti á að ákæruvaldinu hefði
ekki gefist kostur á að spyrja sérfræðingana
fyrir dómi. Á hinn bóginn gæti Hæstiréttur
notað álitsgerðirnar sem tilvísunargögn.
Eftir að álit erlendu sérfræðinganna voru
lögð fram aflaði Hæstiréttur álits læknaráðs
á tíu atriðum. Meðal þeirra spurninga sem
læknaráð svaraði var hvort ráðið teldi koma
til greina að bráður ungbarnaskyrbjúgur,
ofnæmisheilabólga, blæðingasjúkdómur eða
krónísk heilablæðing hefðu getað valdið
dauða drengsins eða verið meðvirkandi
ástæður. Bogi sagði að læknaráð hefði hafn-
að öllum þessum möguleikum og jafnframt
talið að aðrir möguleikar en „shaken-baby
syndrome“ hefðu verið útilokaðir með full-
nægjandi hætti. Bogi minnti á að réttar-
meinafræðingur taldi víst að drengurinn
hefði misst meðvitund um leið og hann hlaut
áverkana sem drógu hann til dauða. Ákærði
hefði síðast annast piltinn meðan hann var
með meðvitund og því kæmi ekki annar til
greina en hann.
Engar sannanir
fyrir heilkennunum
Sveinn Andri Sveinsson byggir sýknu-
kröfu sína á því að drengurinn hafi ekki ver-
ið hristur þannig að það hafi valdið blæð-
ingum í heila. Það væri í öllu falli fullkominn
læknisfræðilegur vafi um dánarorsökina, al-
gjörlega ósannað væri að um „shaken-baby
syndrome“ væri að ræða, auk þess sem
sterkar líkur hefðu verið leiddar að öðrum
orsökum. Hvað sem því liði væri algjörlega
ósannað að ákærði hefði verið valdur að
dauða drengsins.
Sveinn gagnrýndi Þóru Steffensen rétt-
armeinafræðing harðlega fyrir að hafa ekki í
greinagerð sinni gert grein fyrir þeim djúp-
stæða ágreiningi sem væri meðal lækna um
„shaken-baby syndrome“. Sveinn sagði að
við lestur ýmissa fræðigreina um málið
kæmi fram að hinn fræðilegi ágreiningur
snýst aðallega um eftirfarandi þætti: Hvort
hristingur einn og sér geti valdið banvænum
áverkum, um einstök einkenni, hvort rekja
megi áverka sem tengdir eru hristingi til
annarra orsaka og hversu langur tími líði
þar til afleiðingar áverkanna komi fram. Það
væri verulega ámælisvert af hálfu Þóru að
hún hafi ekki gert héraðsdómi grein fyrir
þessum mikla ágreiningi. Sveinn benti á að í
raun væri skilgreining á „shaken-baby
syndrome“ mjög á reiki og vísaði hann til
leiðara í hinu virta læknisfræðitímariti The
Lancet frá 1998, máli sínu til stuðnings. Þar
segir m.a. að í ljósi svo óljósrar skilgrein-
ingar þurfi ekki að koma á óvart að heil-
kennið hafi verið ranglega greint og að börn
með blæðingar innan ytri heilahimnu, sem
stafað hafi af öðrum orsökum, hafi verið tal-
in hafa sætt hristingi og foreldri eða gæslu-
aðili ranglega kærður fyrir árás.
Héraðsdómur Reykjaness komst að þeirri
niðurstöðu að eingöngu hristingur hefði
valdið áverkunum en ósannað væri að
drengurinn hefði orðið fyrir höggi. Lækna-
ráð taldi einnig að hristingur væri nægj-
anlegur til að valda banvænum áverkum. Að
sögn Sveins hafa nýjar rannsóknir á hinn
bóginn sýnt fram á að harkalegur hristingur
dugi ekki til. Sveinn spurði hvort læknaráð
vissi hreinlega ekki af þessum ágreiningi. Ef
ekki, þá væri út í hött að leggja álit þess til
grundvallar dóms. Hefði ráðið á hinn bóginn
vitað af ágreiningnum væri óviðunandi að
það hefði ekki vakið athygli Hæstaréttar á
að skiptar skoðanir væru um þetta atriði.
Skipti þá engu hvort ráðið hallaðist að einni
skoðun frekar en annarri.
Segir fullkominn vafa um dánarorsök
Sveinn benti á að í álitsgerðum erlendu
sérfræðinganna kæmi fram að aðrar ástæð-
ur gætu verið fyrir áverkunum en hristingur
en fullnægjandi rannsóknir hefðu á hinn
bóginn ekki farið fram. Fullkominn vafi ríkti
því um dánarorsökina. Þar að auki væri alls
ekki ljóst að afleiðingarnar hefðu komið
fram strax, aðrir, þ.m.t. foreldrar drengsins
og sambýliskona ákærða, gætu því hafa
valdið áverkunum, viljandi eða óviljandi. Sá
möguleiki hefði á hinn bóginn ekki verið
rannsakaður með fullnægjandi hætti. Að-
spurður af dómara sagði Sveinn að því mið-
ur hefði sáralítið verið hreyft við álitamálum
um einkenni „shaken-baby syndrome“ í hér-
aði. Spurður hvers vegna erlendu sérfræð-
ingarnir hefðu ekki verið kvaddir fyrir dóm
til að bera vitni sagði hann að slíkt frum-
kvæði hefði átt að koma frá ákæruvaldinu.
Málflutningur í Hæstarétti í máli manns sem dæmdur var í héraði vegna dauðsfalls barns
Fyrsta mál sinn-
ar tegundar á
Norðurlöndum