Morgunblaðið - 20.03.2003, Qupperneq 8
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. MARS 2003 7
FERJAN Lagarfljótsormurinn hef-
ur verið seld á lokauppboði sem
fram fór um borð í skipinu við
bryggju á Egilsstöðum. Ferða-
málasjóður, sem átti veð í ferjunni á
öðrum veðrétti á um 3 milljónir
króna, keypti ferjuna á 7,3 milljónir
króna. Yfirbauð sjóðurinn Lands-
bankann, sem átti rúmlega 7 millj-
óna króna veðrétt á fyrsta veðrétti.
Lagarfljótsormurinn var fluttur
frá Svíþjóð vorið 1999. Hann tekur
110 farþega og er um 100 tonn að
þyngd. Honum var skipað upp á
Reyðarfirði og ekið á stórum flutn-
ingavagni til Egilsstaða, þar sem
hann var sjósettur skammt frá Lag-
arfljótsbrúnni. Hófust fljótlega
reglubundnar siglingar milli Egils-
staða og Atlavíkur. Reksturinn
gekk vel framan af og flutti ferjan
8.000 farþega fyrsta sumarið. Seig
smám saman á ógæfuhliðina og eru
ástæður þess m.a. taldar að illa
gekk að fá erlenda ferðamenn í
siglingar og ferðaskrifstofur sýndu
því lítinn áhuga að setja siglingu
með ferjunni inn í dagskrá ferða-
hópa á þeirra vegum.
Tapa milljónum
Ferðamálasjóður hefur nú sem
fyrr segir eignast Lagarfljótsorm-
inn og mun þurfa að selja ferjuna
fyrir allt að 13 milljónir til að kom-
ast hjá fjárhagstjóni vegna kaup-
anna. Þá lítur út fyrir að Byggða-
stofnun muni tapa um 13 milljónum
króna og Landsbankinn 7 milljón-
um vegna ferjunnar.
Óvissa ríkir nú um framtíð
Lagarfljótsormsins og hafnargerð
sem fyrirhuguð var á Lagarfljóti í
tengslum við siglingarnar.
Óvissa ríkir nú um framtíð siglinga og hafnargerð sem fyrirhuguð var á Lagarfljóti
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Óvissa ríkir um framtíð ferjunnar Lagarfljótsormsins sem siglt hefur sumarlangt milli Egilsstaða og Atlavíkur.
Ferðamálasjóður
kaupir Lagarfljóts-
orminn á uppboði
Egilsstöðum. Morgunblaðið.
FJÖRUTÍU rannsóknarviðtöl
hafa verið tekin við börn í
Barnahúsi það sem af er árinu.
Það er fjölgun um 19 miðað við
sama tíma og í fyrra. Þetta
kemur fram á heimasíðu
Barnaverndarstofu.
Af þeim 40 börnum sem hafa
komið í ár, hafa 15 þeirra komið
í skýrslutöku fyrir dómi, sem er
7 fleiri en á sama tíma og í
fyrra. Alls hafa 25 komið í
könnunarviðtöl fyrir barna-
verndarnefndir.
Aldrei hafa fleiri börn komið
í Barnahús á einu ári en árið
2002, en þá komu 167 börn í
rannsóknarviðtal, þar af 60
börn í skýrslutöku fyrir dómi.
Að auki hefur sérfræðingur frá
Barnahúsi verið kallaður til að
taka skýrslur af fjórum börnum
í dómhúsi það sem af er þessu
ári en á árinu 2002 tóku sér-
fræðingar hússins alls sjö
skýrslur í dómhúsum. Auk við-
tala sinnir Barnahús greiningu
og meðferð fyrir þolendur kyn-
ferðisafbrota á landinu öllu en
nú fá 90 börn þá þjónustu.
Fjölgun
viðtala í
Barnahúsi
Bómullar-satín
og
silki-damask
rúmföt
Skólavörðustíg 21,
sími 551 4050