Morgunblaðið - 20.03.2003, Side 13
FRÉTTIR
12 FIMMTUDAGUR 20. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ
TVEIR menn björguðust er 30 tonna trilla, Röst
SH-134 frá Stykkishólmi, sökk um eina sjómílu
suðvestur af Svörtuloftum á Snæfellsnesi á sjötta
tímanum í gær. Áhöfn grænlensk-íslenska loðnu-
skipsins Siku bjargaði mönnunum um borð úr
öðrum af tveimur björgunarbátum sem þeir höfðu
náð á flot þegar trillan fylltist af sjó á svipstundu
og sökk. Loðnuskipið Sighvatur Bjarnason var á
svipuðum slóðum í loðnuleit og tók hinn björg-
unarbátinn upp.
Björgunarskipið Björg frá Rifi kom til móts við
Sighvat og Siku og sigldi með mennina og björg-
unarbátana til hafnar á Rifi. Mennina sakaði ekki
en þeir eru frændur; Gestur Már Gunnarsson,
rúmlega fimmtugur, og Bergsveinn Gestsson,
móðurbróðir hans á sjötugsaldri, báðir búsettir í
Stykkishólmi. Er þeir komu í land sögðu þeir
fréttaritara Morgunblaðsins að þeir hefðu verið á
leið með trilluna til nýrra eigenda í Reykjavík þar
sem búið var að selja hana. Vildu þeir að öðru
leyti ekki tjá sig þá.
Er klukkuna vantaði átta mínútur í fimm í gær
heyrði flugvél í neyðarsendi við Snæfellsnes og
eftir athugun Tilkynningarskyldunnar kom í ljós
að einn bátur hafði ekki tilkynnt sig á þessu
svæði. Skömmu síðar voru kallaðar út björgunar-
sveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Snæ-
fellsnesi ásamt björgunarskipi frá Rifi, þyrlu
Landhelgisgæslunnar og flugvél Flugmálastjórn-
ar. Björgunarskip frá Sandgerði var einnig til
taks þar sem staðsetning neyðarsendingar var
óljós í fyrstu. Flugvél Flugmálastjórnar staðsetti
svo tvo gúmbjörgunarbáta við Svörtuloft kl. 17.50
og tólf mínútum síðar voru mennirnir komnir úr
öðrum bátnum um borð í Siku, heilir á húfi. Var
Gæsluþyrlunni, TF-LÍF, þá snúið til Reykjavík-
ur.
Helgi Jóhannsson, skipstjóri á Siku, sagði við
Morgunblaðið að mjög vel hefði gengið að koma
mönnunum um borð. Hann hefði séð til neyð-
arblysa og ekki ætlað í fyrstu að trúa þeirri sjón
sökum þess að vel hefði viðrað á þessum slóðum í
gær. „Við settum stefnuna strax á þann stað sem
við sáum blysin fara á loft og sáum fljótlega til
björgunarbátanna,“ sagði Helgi og taldi sjó hafa
verið frekar þungan fyrir smærri báta eins og
Röstina. „Þetta er minn stærsti dagur á loðnu-
vertíðinni og er ég búinn að vera í þessu frá árinu
1966,“ sagði Helgi, glaður í bragði yfir því að hafa
bjargað mönnunum heilum á húfi. Fengu þeir að
borða hjá kokkinum á Siku áður en björgunar-
skipið Björg sótti þá og kom þeim í land á Rifi.
Samkvæmt því sem bátsverjarnir sögðu Helga
fylltist Röstin af sjó á svipstundu, svo snöggt að
þeir hefðu ekki náð í stýrishúsið til að kveikja á
neyðarsendinum. Hins vegar hefðu björgunarbát-
arnir skotist út og þeir náð að komast um borð í
annan þeirra og kveikt þar á neyðarsendi og skot-
ið upp blysum.
Röst SH var sem fyrr segir 30 tonna trilla,
smíðuð á Skagaströnd fyrir þrjátíu árum og
breytt lítillega þremur árum síðar. Báturinn hét
áður Grímsey ST og þar áður Engilráð ÍS.
Jón Eyfjörð, skipstjóri um borð í Sighvati
Bjarnasyni, sagðist í samtali við Morgunblaðið
ekki hafa séð tangur né tetur af Röst er þeir
komu að björgunarbátunum tveimur. Ekkert
brak hefði verið að sjá á sjónum en björgunarbát-
ana hefði verið farið að reka að landi. „Mestu
skiptir að allt fór á besta veg,“ sagði Jón.
Vélbáturinn Röst SH frá Stykkishólmi sökk vestur af Snæfellsnesi
Morgunblaðið/Alfons Finnsson
Björgunarsveitarmenn á Björgu frá Rifi koma með bátsverjana tvo af Röst SH til heimahafnar í gærkvöldi á slöngubátnum Salla.
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Röst SH sem sökk suðvestur af Snæfellsnesi síð-
degis í gær en báturinn hét áður Grímsey ST2.
Tveir björguðust er trillan
fylltist af sjó á svipstundu
TILKYNNT var um úthlutun úr
Menningarborgarsjóði fyrir árið
2003 í gær og hlutu 57 verkefni
styrk, en alls bárust sjóðnum 259
umsóknir. Til úthlutunar þessu
sinni voru 32 milljónir og er upp-
hæðin 7 milljónum hærri en í fyrra.
Hlutverk sjóðsins er að stuðla að
fjölbreytilegu menningarstarfi um
allt land í framhaldi af menning-
arborgarárinu og er þetta í þriðja
sinn sem úthlutað er úr sjóðnum. Í
ár bættist við nýr flokkur sem eru
verkefni á sviði menningartengdr-
ar ferðaþjónustu og lagði mennta-
málaráðherra sérstakt framlag til
þess flokks.
Alls hlutu þrjú verkefni 1,2 millj-
ónir, tvö verkefni 1 milljón, tólf
verkefni 800.000, 18 verkefni
600.000, 19 verkefni 400.000 og 8
verkefni 300.000 kr.
1.200.000 Eiðar ehf. – Högg-
myndastefna að Eiðum sumarið
2003 – 10 listamenn frá Japan,
Norðurlöndum og Íslandi vinna
verk í umhverfislistagarð að Eið-
um. Listasafnið á Akureyri – Meist-
arar formsins: Frá Arp til Trockels
– sýning í tilefni 10 ára afmælis
safnsins í samvinnu við Nýja þjóð-
listasafnið í Berlín. Smekkleysa –
Humar eða frægð – Smekkleysa í
16 ár – söguleg ljósmyndasýning
með hljóðdæmum, myndræmum,
tónleikum og kvikmyndasýningum
í Spitz Gallery, London og Lista-
safni Reykjavíkur
1.000.000 Annað svið – Úlfhams-
saga leikverk – María Ellingsen,
Benedikt Erlingsson og norrænir
listamenn. Heimilisiðnaðarsafnið
Blönduósi – Uppsetning nokkurra
mismunandi sýninga í nýju safn-
húsi.
800.000Arkitektafélag Íslands –
Samnorræn sýning er fjallar um
vistvænar byggingar. GL-útgáfan –
Náttúrulífsmyndir um íslenska
hestinn. Kirkjulistahátíð Hallgríms-
kirkju – Listavaka ungs fólks. Páll
Baldvin Baldvinsson og fleiri –
Mynd- og hljóðsýning á náttúru Ís-
57 verkefni hlutu styrki þegar úthlutað var úr Menningarborgarsjóði fyrir árið 2003
Þrjú verk
fengu 1,2
milljónir
Morgunblaðið/Jim Smart
Úthlutað var úr Menningarborgarsjóði í þriðja sinn í gær. Til úthlutunar voru 32 milljónir. Frá vinstri: Karitas H.
Gunnarsdóttir, Anna Kristín Ólafsdóttir, Þórólfur Árnason, Tómas Ingi Olrich og Þórunn Sigurðardóttir.
lands. Pétur Jónasson og Guðrún
Birgisdóttir – Tónlistarhátíð og
námskeið á Ísafirði og Bolungarvík.
Snorrastofa, Birna Bjarnadóttir –
Málþing í samvinnu við Listahá-
skóla Íslands, Nýlistasafnið og Hug-
vísindastofnun Háskóla Íslands. Til-
raunaeldhúsið, Jóhann Jóhannsson
og Erna Ómarsdóttir – IBM 1401 /
Notendahandbók, dansverk.
600.000 Bæjarútgerðin ehf. –
nýtt leikrit á ensku fyrir ferða-
menn. Ferðaþjónustan Lónkot –
Uppbygging á Höggmyndasetri
Skagafjarðar. Galleri i8 – Sýning á
verki Roni Horn. Guðrún Kristjáns-
dóttir og Dagur Kári Pétursson –
hreyfi- og hljóðmyndverk. Íslenski
dansflokkurinn – hátíðasýning í til-
efni 30 ára starfsafmælis dans-
flokksins. Kammersveit Reykjavík-
ur – nýtt tónverk eftir Hauk
Tómasson. Kór Langholtskirkju –
nýtt tónverk eftir Hildigunni Rún-
arsdóttur. Listasafn Austur-
Skaftafellssýslu – uppsetning sýn-
inga með listaverkum eftir Svavar
Guðnason. Minjasafn Reykjavíkur –
hönnun og uppsetning upplýs-
ingaskilta í Viðey. Njálssaga ehf. –
tónlist eftir Hilmar Örn Hilmarsson
og hljóðvinnsla í sjónvarpsþáttaröð
um Njáls sögu. Nýlistasafnið – Af-
mælissýning. Safnasvæðið á Akra-
nesi – Viðburðaveisla á Akranesi.
Samtök um leikminjasafn – Sýning
á vegum Leikminjasafns Íslands í
Safnahúsinu á Sauðárkróki. Skrif-
stofa ferða- og menningarmála,
Seyðisfirði – Aldamótabærinn
Seyðisfjörður – ýmsir listviðburðir.
SPARK kvikmyndagerð – Kynning-
armynd um sögu Listahátíðar í
Reykjavík. Strengjaleikhúsið, Mess-
íana Tómasdóttir – Ópera fyrir
börn og unglinga, tónlist eftir
Kjartan Ólafsson. Sumarópera
Reykjavíkur – uppsetning á óp-
erunni Krýning Poppeu e. Monte-
verdi. Vestmannaeyjabær – Menn-
ingardagskrá til að minnast þess að
30 ár eru liðin frá gosi í Heimaey.
ÞRJÁR konur og tveir karlar á aldr-
inum 20-25 ára voru dæmd í fjög-
urra til tólf mánaða fangelsi í Hér-
aðsdómi Reykjavíkur í gær fyrir að
svíkja út vörur úr nokkrum fyrir-
tækjum og verslunum á Suðvestur-
landi í fyrra og fjársvik og skjala-
fals.
Jafnframt var fólkið sakfellt fyrir
að beita blekkingum við að reyna að
millifæra peninga af nokkrum
bankareikningum og skuldfæra
heimildarlaust af reikningum, fyrir
að svíkja út bensín og fleiri vörur á
bensínstöð og svíkjast um að greiða
fyrir hótelgistingu.
Ennfremur stálu viðkomandi
tösku í anddyri hótels, fartölvu í
verslun BT, tveimur fartölvum í Há-
skóla Reykjavíkur, brutust inn í
verslun Hans Petersen, fölsuðu
happaþrennumiða og reyndu að
selja þá, sviku út sjónvarpstæki í
verslun og farsíma, auk þess að stela
bifreið í Reykjavík.
Brotin frömdu viðkomandi ýmist
nokkur eða öll saman. Sá elsti hlaut
12 mánaða fangelsi og hann var jafn-
framt dæmdur til að borga á áttunda
hundrað þúsunda í skaðabætur. Ein
kvennanna í hópnum fékk 8 mánaða
fangelsi. Einn maður og tvær konur
fengu 4 mánaða dóma hvert og er
dómur annarrar konunnar skilorðs-
bundinn til þriggja ára.
Valtýr Sigurðsson héraðsdómari
kvað upp dóminn. Guðjón Magnús-
son fulltrúi lögreglustjórans í
Reykjavík sótti málið.
4 til 12 mán-
aða fangelsi
fyrir þjófn-
aði og svik
RAFORKUNOTKUN á Íslandi hef-
ur vaxið um nær 70% frá árinu 1995
og er aukningin fyrst og fremst til
komin vegna eflingar orkufreks iðn-
aðar en almenn raforkunotkun hefur
vaxið töluvert hægar. Raforku-
vinnsla í fyrra jókst um 4,8% frá
árinu áður og fór í 8.411 gígavatts-
stundir, þar af var raforkunotkun
stóriðjuveranna 5.221 gígavatts-
stund en almenn notkun 2.919 gíga-
vattsstundir.
Vaxandi raf-
orkunotkun
♦ ♦ ♦