Morgunblaðið - 20.03.2003, Síða 25
Morgunblaðið/Garðar P. Vignisson
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir flytur erindi á fjölmennum fundi á sjó-
mannastofunni Vör í fyrradag þar sem kvótamál voru m.a. til umræðu.
INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir,
Samfylkingunni, var ásamt föruneyti
í Grindavík í fyrradag til að kynna
málefni flokksins. Fulltrúar hans
fóru á milli vinnustaða og hafði Mar-
grét Sæunn Frímannsdóttir, Sam-
fylkingunni, m.a. þetta að segja um
síðasta fundinn. „Þetta er búinn að
vera fínn dagur, fjörugar umræður
eins og á netagerðaverkstæðinu hjá
Krosshúsum. Þar var m.a. mikið
rætt um kvótakerfið. Þar kom fram
óánægja með núverandi kerfi en
jafnframt hræðsla við breytingar.
Það er skiljanlegt að fólk sé hrætt
því þeir sem eiga hagsmuna að gæta
eru búnir að vera með hræðsluáróð-
ur í ansi langan tíma og hann er að
virka,“ sagði Margrét.
Á sjómannastofunni Vör var fjöl-
mennur kvöldfundur hjá forystu-
mönnum Samfylkingarinnar. Frum-
mælendur voru Ingibjörg Sólrún og
Össur Skarphéðinsson, formaður
Samfylkingarinnar. Ingibjörg talaði
eins og hún orðaði það „um hin póli-
tísku aðalatriði“ og taldi stjórnmála-
umræðuna á villigötum að einhverju
leyti og sagði að það væri nauðsyn-
legt að breyta henni og gefa stjórn-
málaumræðunni nýtt inntak. Þá
sagðist hún vilja sjá breytingar í
skatta- og velferðarmálum. Þá var
umræðan um sjávarútvegsmálin
áberandi en frummælendur töluðu
fyrir fyrningarleið Samfylkingarinn-
ar. Þá var einnig töluverð umræða
um stöðu heilsugæslunnar á Suður-
nesjum og hafði Margrét Sæunn
Frímannsdóttir þetta að segja um
stöðuna í læknamálum. „Það má
segja að það sé hvergi eins slæmt og
hérna á Suðurnesjum. Það er brotið
á íbúum Suðurnesja þar sem ákvæði
laga um heilbrigðisþjónustu eru ekki
virt. Þessu verður að breyta.“ Í loka-
orðum sínum notaði Ingibjörg
þekktan frasa úr Grindavík til að
lýsa tilfinningu sinni á því að breyt-
ingar væru í nánd í landspólitíkinni.
„Það liggur í loftinu að breytingar
verða,“ sagði hún.
Fundarferð Samfylkingarinnar
Fjörugar umræð-
ur á vinnustöðum
Grindavík
SUÐURNES
24 FIMMTUDAGUR 20. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ
AÐALFUNDUR Sparisjóðsins í
Keflavík var haldinn í Stapanum á
dögunum. Alls sóttu 174 stofnfjár-
aðilar fundinn og hafa aðalfundir
sparisjóðsins aldrei verið fjöl-
mennari. Dagskrá fundarins var í
lengra lagi vegna breytinga á sam-
þykktum. Einnig tóku kosning
stjórnar nokkurn tíma og stóð því
fundurinn í rúma fjóra tíma.
Benedikt Sigurðsson stjórnar-
maður flutti skýrslu stjórnar
Sparisjóðs Keflavíkur og fjallaði
m.a. um undirbúning að hluta-
félagavæðingu SPKEF sem unnið
var að á síðasta ári en hefur verið
slegið á frest.
Einnig gerði hann að umtalsefni
þær hugmyndir um að allir stjórn-
armenn yrðu kjörnir á aðalfundi af
stofnfjáraðilum svo að um tilnefn-
ingu á stjórnarmönnum af hálfu
sveitarstjórna á starfssvæðinu yrði
ekki lengur að ræða. Benedikt
mælti ekki með þessari leið og
taldi óbreytta stjórnarsamsetningu
þjóna hagsmunum sparisjóðsins
best að svo stöddu. Bergur Vern-
harðsson flutti tillögu þess að efnis
að stofnfjáraðilar kysu alla stjórn-
armenn og felldi fundurinn þá til-
lögu.
Geirmundur Kristinsson spari-
sjóðsstjóri greindi í ræðu sinni frá
þeim hræringum sem hafa verið á
íslenskum fjármálamarkaði og
sparisjóðirnir hafa ekki farið var-
hluta af.
Geirmundur sagði í samtali við
Morgunblaðið að áhugi bankanna á
sparisjóðunum hefði ekki leynt sér
og þeir hafi bæði beint og óbeint
verið í sambandi við sparisjóði
víðsvegar um samvinnu og í sum-
um tilfellum jafnvel hugsanlega yf-
irtöku eins og fram hefði komið.
Á aðalfundinum talaði Geir-
mundur um nauðsyn þess að
treysta þá góðu stöðu sem spari-
sjóðirnir hafi í huga viðskiptavina
sinna. Það hafi m.a. komið glögg-
lega fram í niðurstöðum íslensku
ánægjuvogarinnar sem birtar voru
í nýliðinni viku og voru sparisjóð-
irnir í efsta sæti í flokki fjármála
fyrirtækja.
Viðunandi afkoma
Því næst fór hann yfir afkomu
Sparisjóðsins í Keflavík sem var
viðunandi þótt markmiðum um
arðsemi hafi ekki verið náð.
Breytingar á samþykktum
Sparisjóðsins í Keflavík voru tald-
ar nauðsynlegar í ljósi nýrrar laga-
setningar um fjármálafyrirtæki og
voru þær samþykktar einróma af
fundarmönnum.
Ellert Eiríksson, fyrrum bæjar-
stjóri Reykjanesbæjar, bauð sig
fram til stjórnarsetu í sparisjóðn-
um en sitjandi stjórnarmenn héldu
velli. Stjórn Sparisjóðsins í Kefla-
vík er því skipuð Benedikt Sig-
urðssyni, Eðvard Júlíussyni og
Karli Njálssyni sem kosnir voru á
fundinum. Þorsteinn Erlingsson er
síðan fulltrúi Reykjanesbæjar og
Ómar Jónsson fyrir Grindavík-
urbæ.
Aðalfundur Sparisjóðsins í Keflavík
Fjölmennasti aðal-
fundur frá upphafi
Reykjanesbær
VANDA heilsugæslunnar á
Suðurnesum bar á góma á bæj-
arstjórnarfundi í Reykjanesbæ
fyrr í vikunni. Í bókun bæjar-
stjórnar frá fundinum segir m.a.
að hún sætti sig ekki við að
heilsugæslan verði bitbein í
ágreiningi um rekstur heilsu-
gæslunnar í landinu.
„Við sem fulltrúar almenn-
ings á Suðurnesjum sættum
okkur ekki við slíkt og krefj-
umst þess að heilbrigðisráð-
herra láti þessa deilu til sín taka.
Það er heilbrigðisráðuneytið
sem ber ábyrgð á því að íbúar á
Suðurnesjum njóti þeirrar
læknisþjónustu sem þeir eiga
rétt á,“ segir þar meðal annars.
Í bókuninni er á það bent að
stjórnendur Heilbrigðisstofnun-
ar Suðurnesja hafi leitað ann-
arra leiða til að veita nauðsyn-
lega læknisþjónustu. Á síðustu
vikum og mánuðum hafi komið
til starfa m.a. hjartalæknir, inn-
kirtlasérfræðingur, barnalækn-
ir og þrír aðrir læknar í hluta-
störfum, næringarráðgjafi og
hjúkrunarfræðingar. Í bókun-
inni er ítrekað að bæjarstjórn
beri fullt traust til starfsfólks
HSS í þeirri vinnu sem það inni
af höndum við erfiðar aðstæður.
Bókun um
vanda HSS
Bitbein
ágrein-
ings
Reykjanesbær
Tilbo›in gilda í verslunum Símans út apríl e›a á me›an birg›ir endast.
1.000 kr. á mánu›i í
12 mánu›i vaxtalaust
motorola c330
tilbo›sver›: 12.001 kr.
WAP, FJÖLTÓNA HRINGING o.fl.
léttkaupútkr.1 flú sparar allt a›6.179 kr.*
1.000 kr. á mánu›i í
12 mánu›i vaxtalaust
tilbo›sver›: 13.980 kr.
WAP, GPRS o.fl.
sony ericsson t200
léttkaupútkr.1.980
flú sparar allt a›6.200 kr.*
fla› kostarekkert a›senda mms-skeyti fyrstum sinn!
me› mmsgetur›u sentmyndir og hljó›úr gsm-símanumflínum í annansíma
N
O
N
N
I O
G
M
A
N
N
I I Y
D
D
A
•
N
M
0
8
9
2
4
/ sia
.is