Morgunblaðið - 20.03.2003, Síða 37
UMRÆÐAN
36 FIMMTUDAGUR 20. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ
LJÓÐLÍNAN að ofan úr kvæð-
inu Ísland eftir Jónas Hallgrímsson
minnir okkur á, að Ísland er yfir-
leitt gjöfult börnum sínum til lands
og sjávar, þó að harðæri dynji
stundum yfir. Verri eru þó móðu-
harðindi af manna völdum, en þau
dynja yfir landslýð, þegar stjórn-
arfarið er slæmt. Slíkt getur hæg-
lega gerzt, ef þjóðin velur meiri-
hluta til Alþingis, sem ekki áttar
sig á mikilvægustu undirstöðu hag-
sældarinnar, hagvextinum. Það er
margsannað, að almannahagur á
miklu meira undir því að stækka
kökuna, sem til skiptanna er, en að
færa sneiðarnar á milli með við-
komu í ríkissjóði. Aukin skattlagn-
ing á einstaklinga og fyrirtæki
dregur að jafnaði úr hagvexti, og
góðir stjórnmálamenn hafa að leið-
arljósi við efnahagsstjórnina, að
aðgerðir þeirra efli hagvöxtinn
fremur en hitt. Hagfelldast er efna-
hagslífinu, að samneyzlan sé í lág-
marki og einkaframtak í sam-
keppni sjái um sem flesta þætti í
þjóðfélaginu. Þó verða stór þjón-
ustusvið væntanlega lengi kostuð
af ríkinu hér á landi, enda samstaða
í þjóðfélaginu um jafna aðstöðu
allra til grunnþátta, eins og sjúkra-
hússþjónustu og menntunar. Hins
vegar er engan veginn sama,
hvernig fjár er aflað til að standa
straum af kostnaði við ríkisrekst-
urinn. Er í því sambandi aðalatriði,
að allir standi jafnir gagnvart
skattheimtunni og að hún virki sem
minnst hamlandi á framtak ein-
staklinga og fyrirtækja. Þessu má
ná með einu skattþrepi á einstak-
linga til að draga sem minnst úr
hvatanum til að leggja sig fram.
Umsamin lágmarkslaun, bætur og
lífeyrir, ættu hins vegar að njóta
skattfrelsis. Tekjutengingar bóta
virka í raun sem sérstakur jaðar-
skattur á hærri laun, og er nóg að
gert í þeim efnum.
Hagvöxtur
Þrjár eru forsendur hagvaxtar,
þ.e. sparnaður, fjárfestingar og
framleiðniaukning.
Á kjörtímabilinu, sem nú er að
ljúka, hefur sparnaður aukizt mik-
ið. Munar þar mest um aukinn líf-
eyrissparnað og aukið framboð á
verðbréfum hvers konar. Sparnað-
ur dregur úr verðbólgu og eykur
framboð á fjármagni til fjárfest-
inga. Sparnaður hefur áhrif til
lækkunar vaxta, sem er hagvaxt-
arhvetjandi. Lág verðbólga og
miklar fjárfestingar eru nauðsyn-
leg fyrir langtíma hagvöxt. Að for-
göngu núverandi ríkisstjórnar hef-
ur Alþingi á þessu kjörtímabili
samþykkt mestu framkvæmdir Ís-
landssögunnar. Til þess hefur þurft
að standa í ístaðinu. Andstæðingar
ríkisstjórnarinnar hafa raunar
nokkrir stutt þær heilshugar, en
aðrir með semingi, og sumir jafnvel
dregið lappirnar fram á síðustu
stundu. Úrtölufólkið, sem jafnvel
gegnir lykilhlutverki hjá stjórnar-
andstöðuflokkunum, er afar ólík-
legt til, svo að ekki sé fastara að
orði kveðið, að hafa forystu um
stórvirki né nokkuð það, sem um
munar fyrir hagvöxtinn. Fái það
völdin, mun ríkisstjórn þess koma á
koppinn nokkrum gæluverkefnum
á kostnað ríkisins, en þó vart duga
til annars en að auka álögur á þá
þjóðfélagshópa, sem ekki eru þeim
þóknanlegir. Afturhald, sem sér
fjandann í hverju horni, skortir
þrek til að stjórna í anda öflugs
hagvaxtar, sem gerir kleift að
lækka skattbyrðina í framtíðinni.
Með hagvextinum aukast tekjur
ríkissjóðs, þrátt fyrir að almenn-
ingur haldi eftir stærra hlutfalli af
tekjum sínum.
Undirstaða framleiðniaukningar,
sem er ein af undirstöðum hagvaxt-
ar, eru tækniframfarir og aukin
vélvæðing á öllum sviðum. Tækni-
framfarir eru reistar á góðri grunn-
þekkingu og getu og vilja til að til-
einka sér nýjustu þekkingu á sviði
tækni og viðskipta. Öflugt mennta-
kerfi með tengsli við atvinnulífið er
framleiðniaukningu nauðsyn ásamt
fjárfestingum í búnaði, sem skilar
hámarks afköstum á hverjum tíma.
Evrópusambandið
Það kann að þykja óviðeigandi að
nefna ESB, þegar umræðuefnið er
hagsæld. Það er staðreynd, að í
sjálfstæði þjóðar er gríðarlegur
kraftur fólginn, sem virkja má á öll-
um sviðum þjóðfélagsins. Órækur
vitnisburður um þetta er Íslands-
saga síðustu aldar. Með fyrsta inn-
lenda ráðherranum tók þjóðin
stökk fram á við. Hún var þá langt á
eftir þjóðum V-Evrópu og N-Am-
eríku í lífskjörum. Beztu lífskjör í
heimi eru Íslendingum nú innan
seilingar, ef landsfeðurnir lág-
marka afskipti sín af efnahagslífinu
og miða aðgerðir sínar almennt við
að hámarka hagvöxtinn. Í ESB er
hagvöxtur hins vegar sáralítill.
Evrópubankinn í Frankfurt mundi
taka lítið sem ekkert mið af efna-
hagsástandinu á Íslandi við vaxta-
ákvarðanir sínar, þó að Ísland
gengi í ESB og tæki upp evru. Hér
gæti því geisað stjórnlaus verð-
bólga eða samdráttur eftir árferði.
Seðlabanki Íslands hefur þá einu
stefnu að varðveita stöðugleikann á
Íslandi. Í ESB er víða landlægt
hræðilegt atvinnuleysi, og íslenzk
stjórnvöld hefðu lítið svigrúm til að
sporna við því hér eftir inngöngu.
Í Bandaríkjunum hefur verið og
mun áfram verða mun meiri hag-
vöxtur og þar af leiðandi minna at-
vinnuleysi en í „gömlu Evrópu“.
Þar liggja og öryggishagsmunir Ís-
lands, og þangað er unnt að sækja
mikil viðskipti. Allt bendir til, að
hagvextinum á Íslandi sé hollara að
efnahagslífið dragi dám af Banda-
ríkjunum en af Evrópusamband-
inu.
„…og hag-
sælda hrím-
hvíta móðir…“
Eftir Bjarna
Jónsson
„Allt bendir
til, að hag-
vextinum á
Íslandi sé
hollara að
efnahagslífið dragi dám
af Bandaríkjunum en af
Evrópusambandinu.“
Höfundur er verkfræðingur.
FRIÐRIK Arngrímsson, fram-
kvæmdastjóri LÍÚ, skrifaði nýlega
grein „Samtök iðnaðarins og Sam-
fylkingin“ í Morgunblaðið þar sem
hann gerir að umtalsefni grein und-
irritaðs ,,Aðgát skal höfð í nærveru
sjávar“ í Fréttablaðinu 4. mars, þar
sem fjallað er um tillögu Samfylk-
ingarinnar um breytingar á stjórn-
kerfi fiskveiða (sjá www.si.is). Já-
kvætt er að Friðrik viðrar
hugleiðingar sínar um þessi mál þótt
af þeim megi ráða að útskýra megi
betur af hverju iðnaðurinn tekur
þátt í umræðu um breytingar á
stjórnkerfi fiskveiða. Í framhaldi af
því má einnig vekja athygli á meg-
ininntaki greinarinnar sem hann
horfði alfarið fram hjá í grein sinni.
Rekja má þátttöku SI í Evrópu-
umræðunni aftur til sjöunda áratug-
arins þegar iðnaðurinn var fylgjandi
aðild Íslands að EFTA. Á fyrri hluta
tíunda áratugarins studdi iðnaður-
inn aðild Íslands að EES-samningn-
um, sem hefur leitt til mikilla og já-
kvæðra breytinga á íslensku
þjóðfélagi og starfsskilyrðum iðnfyr-
irtækja. Samt er enn langt í land
með að starfsskilyrðin í samkeppn-
isgreinum séu jafngóð og erlendra
keppinauta. Mestu munar að við not-
umst enn við litla mynt sem fylgir
mikill kostnaður. Eftir reynslu und-
angenginna ára af krónu fljótandi á
gjaldeyrismarkaði telja fleiri og
fleiri að krónan sé til óþurftar og
sjálfstæð peningastjórn ekki sú
töfralausn sem margir trúðu. Krón-
unni fylgja háir vextir og óvissa um
gengisþróun og afkomu. Flest fyr-
irtæki í samkeppnisgreinum vilja því
að evran verði tekin upp sem lög-
eyrir á Íslandi.
Evrópuumræða Samtaka iðnaðar-
ins hefur því verið að færast í þá átt
að kanna forsendur og afleiðingar
ESB-aðildar og upptöku evrunnar.
Stefna SI hefur verið að hvetja til
vandaðrar og fordómalausrar um-
ræðu um alla þætti málsins. Skipu-
lag stjórnkerfis fiskveiða er þar eng-
in undantekning, sérstaklega þar
sem margir telja núverandi fyrir-
komulag stærsta ásteytingarstein
ESB-aðildar. Forsætisráðherra hef-
ur áréttað þá skoðun sína margoft að
við getum ekki gengið í ESB nema
yfirráð okkar yfir auðlindinni séu
tryggð. Hann og útvegurinn hafa tal-
ið að til þess að ESB-aðild komi til
greina verði ESB að breyta fisk-
veiðistjórnunarkerfi sínu. Skoðun
þeirra er að alls ekki megi hrófla við
núverandi fyrirkomulagi okkar.
Ekki eru allir sammála því.
Iðnaðurinn getur ekki til lang-
frama staðið undir þeim mikla fórn-
arkostnaði sem núverandi ástand
skapar samkeppnisgreinunum. Iðn-
aðurinn styður því að stjórnkerfi
fiskveiða verði endurskoðað ef það
gerir þjóðinni kleift að ganga í sam-
bandið þannig að allir geti við unað.
Árið 1997 lagði hagvaxtarnefnd SI
fram tillögu um breytingu á stjórn-
kerfi fiskveiða. Samfylkingin hefur
nú lagt fram svipaðar tillögur í sinni
stefnuskrá og ber að fagna því að
stjórnmálahreyfing taki undir með
sjónarmiðum iðnaðarins.
Grein mín benti á að umræðan
þarf líka að snúast um hagsmuni
sjávarútvegsins. Af því tilefni var
lagt til að útgerðum, sem flestar hafa
keypt sinn kvóta, yrði bættur skað-
inn. Þótt það sé lagalegt álitaefni
hvort útgerðir eigi bótarétt ef þær
eru sviptar kvótaeign má réttlæta
slíkt á grundvelli kenningar Hern-
ando deSoto um áhrif veðhæfra
eigna á hagvöxt. Á þetta atriði minn-
ist Friðrik ekki einu orði í umfjöllun
sinni og slítur setningar jafnvel í
sundur í tilvitnunum þannig að það
grundvallaratriði kom ekki fram í
umfjöllun hans.
Þá er til í velferðarhagfræði fræg
hugmynd Vilfreds Pareto um að
hver breyting á skiptingu gæðanna,
sem hafi það markmið að hámarka
velferð þjóðfélagsins, verði ekki á
þann veg að hagur heildarinnar sé
aukinn á kostnað einstakra hópa.
Tryggja þarf að breytingar til að
auka þjóðarhag verði ekki á kostnað
tiltekins hóps eða hópa. Í anda þessa
var bent á mögulega neikvæða af-
leiðingu þess að svipta útgerðir
kvóta og að athuga þyrfti að bætur
kæmu í staðinn, t.d. í formi skattaaf-
sláttar á móti fyrningu ef sú leið
verður fyrir valinu. Hóflegar skatt-
greiðslur í sjávarútveg voru nefndar
til að sýna að fórnarkostnaður þjóð-
arinnar yrði ekki mikill ef tíma-
rammi fyrninga er langur.
Útvegsmenn þurfa að sýna skiln-
ing á að SI veki máls á atriðum er
varða starfsskilyrði þeirra beggja.
Iðnaðurinn, sem stendur undir fjórð-
ungi af verðmætasköpun í landinu,
hefur of lengi mátt þola að vera oln-
bogabarn og búa við léleg starfsskil-
yrði. Fyrir það hefur vöxtur og við-
gangur iðnaðarins liðið sem
endurspeglar fórnarkostnað fyrir-
tækja í greininni. Útvegurinn og
sumir stjórnmálamenn hafa vanrækt
að sinna eðlilegum kröfum forystu-
manna iðnfyrirtækja um nauðsyn
þess að skapa þeim sambærileg
starfsskilyrði og keppinautunum,
sem mun líka gagnast útveginum.
Í upplýstu samfélagi er mikilvægt
að hvetja til uppbyggilegrar um-
ræðu. Að bregðast við slíku með
ásökunum er ekki ábyrg afstaða. Að-
eins með opinskárri umræðu getum
við átt möguleika á að sættast á
skynsamlegar lausnir sem tryggja
hag einstakra hópa í þeirri sjálf-
sögðu viðleitni að bæta hann fyrir
heildina.
Hagsmunir
sjávarútvegs
og iðnaðar
Eftir Þorstein
Þorgeirsson
Höfundur er hagfræðingur SI.
„Skyn-
samlegar
lausnir
tryggja hag
einstakra
hópa og bæta hann fyrir
heildina.“
Bikiní - BCD skálar
Sundbolir
Strandpils
COS
Undirfataverslun • Glæsibæ • S: 588 5575
HÓTEL BORGARNES
Sími 437 1119
hotelbo@centrum.is
Árshátíðir
Ráðstefnur
Fundir