Morgunblaðið - 20.03.2003, Page 41
MINNINGAR
40 FIMMTUDAGUR 20. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Móðir okkar,
FRIÐÞÓRA STEFÁNSDÓTTIR,
frá Nöf
við Hofsós,
er látin.
Sigríður Jóhannsdóttir
Þorvaldur Jóhannsson,
Stefanía Jóhannsdóttir,
Indriði Jóhannsson,
Freysteinn Jóhannsson.
✝ Þorsteinn Dav-íðsson fæddist á
Þórshöfn á Langa-
nesi 12. febrúar 1918.
Hann lést í Landspít-
alanum í Fossvogi 12.
mars síðastliðinn.
Foreldrar hans voru
Halldóra Arnljóts-
dóttir, Ólafssonar
prests og alþingis-
manns á Sauðanesi
og Davíð Kristjáns-
son, Jónssonar hótel-
haldara á Seyðisfirði.
Davíð var verslunar-
stjóri á Þórshöfn en
rak síðar verslun á Skólavörðustíg
13 í Reykjavík. Systkini Þorsteins
voru Margrét Arnljóts, f. 1900, Val-
Balfour. Þau skildu. Börn þeirra
eru Áslaug, f. 1972, og á hún eina
dóttur, Brynja, f. 1975, og á hún tvö
börn, og Þorsteinn, f. 1980. 3) Hall-
dóra, bókasafnsfræðingur, f. 1949,
maki Guðmundur E. Sigvaldason.
Dóttir þeirra er Guðný Þóra, f.
1981.
Þorsteinn ólst upp á Þórshöfn en
fluttist árið 1931 ásamt fjölskyldu
sinni til Reykjavíkur. Hann lauk
prófi frá Verslunarskóla Íslands ár-
ið 1936 og starfaði lengst af við
verslunarstörf. Hann var um árabil
verslunastjóri í gleraugna- og ljós-
myndavöruversluninni Týli og
Oculus sem verslaði með vefnaðar-
og snyrtivörur. Hann rak versl-
unina Mirru frá 1965 til 1981 og
vann hjá Olíuverslun Íslands um
skeið. Frá 1981 til 1988 starfaði
hann hjá Innheimtustofnun sveitar-
félaga.
Útför Þorsteins verður gerð frá
Dómkirkjunni í dag og hefst at-
höfnin klukkan 13.30.
gerður Sigríður, f.
1908, Arnljótur, f.
1909, Hólmfríður, f.
1911, Kristjana Bryn-
dís, f. 1913, og Snæfríð
Jóhanna, f. 1915, og
eru þau öll látin.
Þorsteinn kvæntist
árið 1939 Guðnýju
Árnadóttur, f. 1917, d.
1992, Pálssonar pró-
fessors og Finnbjargar
Kristófersdóttur. Börn
þeirra eru: 1) Björg,
myndlistarmaður, f.
1940, maki Ragnar
Árnason. Þau skildu.
Dóttir þeirra er Guðný, f. 1963, og á
hún einn son. 2) Davíð, mennta-
skólakennari, f. 1948, maki Janice
Aldurhnigin kynslóð safnast nú óð-
um í hóp horfinna feðra og mæðra.
Hún fæddist inn í heim að flestu ólík-
an veröldinni sem hún kveður, heim
sem hún leiddi til efnalegra og tækni-
legra framfara langt umfram allar
fyrri kynslóðir. Með nokkrum rétti er
óhætt að segja að á 20. öld hafi árið
1918 markað þáttaskil bæði í sögu
Vesturlanda, þegar endi var bundinn
á fyrri heimsstyrjöld, en ekki síður í
sögu sem stendur okkur nær og
markast af endurheimt fullveldis Ís-
lands. Á þessu tímamótaári fæddist
Þorsteinn Davíðsson á Þórshöfn á
Langanesi um miðjan vetur mikilla
frosta. Árið 1931, þrettán ára að aldri,
flutti hann með foreldrum sínum til
Reykjavíkur, en þar varð vettvangur
lífs og starfs allt til æviloka. Þor-
steinn lauk námi í Verslunarskóla Ís-
lands árið 1936. Í kjölfar kreppunnar
miklu ríkti atvinnuleysi og húsnæð-
isskortur í borg, sem óx að fólksfjölda
án samhliða aukningar atvinnutæki-
færa og húsbygginga. Eftir að námi
lauk starfaði Þorsteinn um skamma
hríð hjá Fræðslumálaskrifstofu
Reykjavíkur, en örlögin réðu að hann
fékk starf í versluninni Týli í Austur-
stræti. Þar var fyrir ung og falleg
stúlka, Guðný Árnadóttir, og ekki
þarf að orðlengja hver útkoman varð
úr því samstarfi. Þorsteinn og Guðný
voru gefin saman árið 1939. Eigendur
verslunarinnar Týli ráku á þeim tíma
fleiri verslanir við aðalgötu bæjarins
og ekki leið á löngu uns Þorsteinn var
gerður að verslunarstjóra fyrir þau
umsvif öll, starf sem hann gegndi allt
til ársins 1965. Húsnæðismál fjöl-
skyldunnar voru leyst á hefðbundinn
hátt með því að sækja um bygging-
arlóð og leyfi fékkst fyrir lóð við
Faxaskjól, sem þá var nánast utan við
bæinn. Árið 1965 stofnaði Þorsteinn
verslunina Mirru, sem var staðsett í
nýju verslunarhúsnæði Silla og Valda
í Austurstræti. Mirra flutti rúmum
áratug síðar yfir í Hafnarstræti. Þor-
steinn hætti verslunarrekstri árið
1981.
Varla hefi ég verið nema átta eða
níu ára þegar ég hóf fyrstu tilraunir
til tekjuöflunar með því að selja dag-
blöð í miðbænum þar sem margir
voru á ferli. Örfá andlit vöktu eftir-
tekt, en skýrast geymdist í minni
andlit manns sem var oft á þönum í
Austurstræti og skar sig úr vegna
sérlega vel mótaðs andlitsfalls og
augljósrar góðmennsku í hreinum
svip. Það varð því dálítið undrunar-
efni að að standa augliti til auglitis við
Þorstein Davíðsson og vera kynntur
fyrir tilvonandi tengdaföður. Senni-
lega hefur mér flogið í hug við þetta
tækifæri að ekki væri að undra að svo
minnisstæður og gjörvilegur maður
ætti fagrar dætur, þó að hlutur hans í
þeim efnum væri aðeins hálfur.
Guðný Árnadóttir var yndisleg kona
og saman mótuðu þau umhverfi stöð-
ugleika, hógværðar og mannúðar
mitt í tætingslegu straumkasti nú-
tímans. Það var barnabörnum Þor-
steins og Guðnýjar mikil gæfa að eiga
skjól hjá afa og ömmu meðan foreldr-
arnir æddu út og suður að sinna dag-
legu vinnuþrasi. Sorgin kvaddi dyra
við andlát Guðnýjar árið 1992. Þrátt
fyrir mikinn missi hélt heimilið við
Faxaskjól áfram að vera miðpunktur
og griðastaður sívaxandi fjölskyldu
þar sem uppvaxandi smáfólk gat
fundið stundarfrið frá áreiti samtím-
ans. Þangað sóttu þau fyrirmynd
strangasta heiðarleika, jafnaðargeðs
og kærleika sem einkenndi allt líf
Þorsteins Davíðssonar.
Hann kom í heiminn á kaldasta
vetri síðustu aldar. Hann kveður á
mildasta vetri í manna minnum. Vetri
svo mildum að tré laufgast og blóm
spretta, vísbending um vor og sumar,
huggun þeim sem syrgja og sakna.
Guðmundur E. Sigvaldason.
,,Sælir eru hógværir…“ Þessi orð
úr Fjallræðunni komu mér í hug er
ég leit í sjónhending yfir farinn veg
Þorsteins Davíðssonar eða Steina
frænda eins og við systkinin kölluð-
um hann. Hann lést eftir skamma
legu, réttum mánuði eftir að við höfð-
um fagnað 85 ára afmæli hans á
heimilinu við Faxaskjól, síðasta víg-
inu frá bernsku okkar sem enn stóð
óhreyft eftir sviptivinda síðustu ára-
tuga.
Steini frændi var lítt gefinn fyrir
mælgi og orðskrúð en vildi fremur
láta verkin tala. Að því leyti líktist
hann Davíð föður sínum sem sjaldan
féll verk úr hendi. Hann átti líka í rík-
um mæli heiðríkju hugans eins og
Halldóra móðir hans, rólyndi og jafn-
aðargeð þannig að öllum leið vel í ná-
vist hans. Þannig sameinaði hann
kosti þeirra afa og ömmu og var ef-
laust eftirlæti þeirra beggja enda
yngstur af barnahópnum. En að sjálf-
sögðu var það Stella sem gerði mest-
an gæfumun. Það var táknrænt að
gælunöfnin mynduðu fallega stuðla
því að Steini og Stella stóðu saman
eins og traust bjarg þar til hún lést
um aldur fram. Samt var ævinlega
sem hún væri ekki langt undan hvar
sem hann fór. Slíkur var samhljómur
þeirra og gagnkvæm virðing.
ÞORSTEINN
DAVÍÐSSON
Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug
vegna andláts og jarðarfarar móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
GUÐRÚNAR EGILSDÓTTUR,
Hæðargarði 35,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki líknar-
deildar Landspítalans Landakoti fyrir hlýhug
og góða umönnun.
Guðrún J. Óskarsdóttir, Magnús S. Magnússon,
Svanborg E. Óskarsdóttir, Guðjón Antonsson,
Ragna S. Óskarsdóttir, Bergsveinn Jóhannsson,
barnabörn og barnabarnabarn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
KRISTJANA MAGNÚSDÓTTIR
frá Hnjóti við Örlygshöfn,
áður Suðurgötu 50,
Keflavík,
sem lést á hjúkrunarheimilinu Garðvangi
mánudaginn 10. mars, verður jarðsungin frá
Keflavíkurkirkju föstudaginn 21. mars kl. 14.
Höskuldur Þórðarson, Hafdís Guðmundsdóttir,
Dallý Þórðardóttir,
Brynjar Þórðarson, Jóhanna Valtýsdóttir,
Þóra Þórðardóttir, Melvin Gyle,
Jóhanna Sigurþórsdóttir, Theodor Lewis,
Guðfinna Sigurþórsdóttir, Sævar Sörensson,
barnabörn og langömmubörn.
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
JÓNA SVANFRÍÐUR INGIBERGSDÓTTIR
Svana,
Freyjugötu 45,
Reykjavík,
lést á Hjúkrunarheimilinu Eir miðvikudaginn
19. mars.
Ingibjörg Hafliðadóttir, Einar Guðmundsson,
Jóhann Jón Hafliðason, Eyja Sigríður Viggósdóttir,
Erla Hafliðadóttir, Tryggvi Hjörvar,
barnabörn og barnabarnabörn. Sími 562 0200
Erfisdrykkjur
SIGURÐUR JÓNSSON,
Ystafelli,
Þingeyjarsýslu,
verður jarðsunginn frá Þóroddsstaðarkirkju
laugardaginn 22. mars kl. 14.00.
Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Krabba-
meinsfélag Íslands.
Kolbrún Bjarnadóttir
og fjölskylda.
Ástkær faðir okkar og vinur,
ÞORGEIR JÓNSSON
læknir,
Sunnubraut 29,
Kópavogi,
verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju mánu-
daginn 24. mars kl. 13.30.
Fyrir hönd ættingja,
María Þorgeirsdóttir,
Guðrún Þorgeirsdóttir,
Jón Aðalsteinn Þorgeirsson,
Margrét Sigurðardóttir.
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
SIGRÍÐUR JEPPESEN,
sem lést miðvikudaginn 12. mars sl., verður
jarðsungin frá Fríkirkjunni í Reykjavík föstu-
daginn 21. mars kl. 13.30.
Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á
minningarsjóð Sjómannadagsins.
Anna Jeppesen, Grímur Leifsson,
Karl Jeppesen, Sigríður Hlíðar,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegi sonur okkar og bróðir.
HAUKUR BÖÐVARSSON,
Baldursbrekku 6,
Húsavík,
sem lést af slysförum 16. mars síðastliðinn,
verður jarðsunginn frá Húsavíkurkirkju laugar-
daginn 22. mars kl. 14.
Böðvar Bjarnason, Íris Víglundsdóttir,
Bjarni Böðvarsson,
Símon Böðvarsson.