Morgunblaðið - 20.03.2003, Síða 48
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. MARS 2003 47
DAGBÓK
20% afsláttur
Sængur, koddar og
bómullarsatín rúmfatnaður
Ný munstur
Njálsgötu 86 - sími 552 0978
Nú þarft þú ekki lengur að liggja á sólarströnd til þess
að húðin fái fallegan og hraustlegan lit.
Með því að bera á þig HONEY GLOW SELF TANNING
öðlast húðin fallegan hunangsgullinn lit.
H o n e y B r o n z e
The Lifestyle company
Austurstræti
Í dag, fimmtudag, og á föstudag mun
sérfræðingur Kanebo veita faglega ráðgjöf
í Lyf og heilsu, Austurstræti. Kynntir
verða vor- og sumarlitirnir ásamt öðrum
nýjungum. Freistandi kynningartilboð.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson
ÁRNAÐ HEILLA STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
FISKAR
Afmælisbörn dagsins:
Þið hafið hæfileika á mörg-
um sviðum og eigið því oft
erfitt með að velja ykkur
starfsvettvang.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú hefur heilbrigða þörf fyrir
að setja sjálfa þig í fyrsta sæt-
ið næstu fjórar vikurnar. Þú
þarft að hlaða batteríin fyrir
síðari hluta ársins.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þótt það sé mikið um að vera
og mikið að gera í vinnunni
þarftu að gefa þér tíma til
hvíldar. Reyndu að minnsta
kosti að vinna í þægilegu um-
hverfi.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú munt njóta mikilla vin-
sælda næsta mánuðinn. Þér
berast mörg boð og ættir að
þiggja sem flest þeirra. Þetta
er góður tími til að sinna fé-
lagslífinu.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þið verðið hugsanlega beðin
um að taka á ykkur aukna
ábyrgð. Hikið ekki við að taka
hana á ykkur. Þið munið
standa undir henni.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þig langar til að flýja hvers-
dagsleikann, læra eitthvað
nýtt og víkka sjóndeilarhring-
inn. Gerðu eitthvað óvenjulegt
til að brjóta upp hversdaginn.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Á næstu vikum þarftu að huga
að skuldum þínum, sköttum,
sameiginlegum eignum og
tekjum þínum og maka þíns.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Í dag fer sólin í hrútsmerkið
sem er beint á móti voginni.
Þar sem sólin er eins langt frá
merki þínu og hugsast getur
er hætt við að þú finnir fyrir
þreytu og magnleysi.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Stjörnumerki þitt er svo mátt-
ugt að þú getur næstum flutt
fjöll þegar þannig liggur á
þér. Þig langar til að skipu-
leggja þig á heimilinu og í
vinnunni.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Það eru miklar líkur á að þið
lendið í ástarævintýri á næstu
vikum. Það liggur vel á ykkur
og þið eruð því opin fyrir alls
kyns skemmtunum.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þið þurfið að sinna fjölskyld-
unni og heimilinu. Talið við
maka ykkar, gangið frá fjár-
málunum og óleystum deilu-
málum.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Það er að færast meiri hraði í
líf þitt og þú munt því hafa
nóg að gera bæði heima við og
í vinnunni. Láttu berast með
straumnum. Ekki fela þig
heima.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þú finnur til stolts yfir ein-
hverju og þig langar til að
sýna það öðrum. Þetta gæti
átt við um eitthvað sem þú
hefur lengi látið þig dreyma
um að eignast.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
80 ÁRA afmæli. Í dag,fimmtudaginn 20.
mars, er áttræð Oddfríður
B. Magnúsdóttir, Skúlagötu
68. Hún tekur á móti gest-
um á heimili sínu laugardag-
inn 22. mars milli kl. 15 og
17.
HULDUFÓLKIÐ
Nú hef ég gleymt, hver fyrst mjer frá því sagði,
og fráleitt hef jeg verið gamall þá;
það var í hverju horni bænum á
og stal oft því, sem fólkið frá sjer lagði.
En þó var annað margfalt meiri skaðinn
því mart eitt barn, sem frítt og gáfað var,
það huldufólkið burtu með sér bar
og lagði annað ljótt og heimskt í staðinn.
Það kýtti svona kararfauskum sínum
og klæddi menskum hömum til að blekkja;
það var mjer sagt, um sannleik ei jeg veit;
en síðan fjölga fór á vegi mínum,
mjer finst jeg stundum skiftíngs augun þekkja –
nú getur hver einn skygnst um sína sveit.
Þorsteinn Erlingsson
LJÓÐABROT
Rxa5 24. Dxc7 Rxb3 25.
Bxb7 Rd2 26. Hfa1 Dxf5 27.
Hxa6
Staðan kom upp á Meist-
aramóti Tafl-
félagsins Hellis
sem stendur yfir
þessa dagana.
Meistari félags-
ins, Björn Þor-
finnsson (2315),
hafði svart gegn
Vigfúsi Vigfús-
syni (1905). 27 …
Rb1! sker á varn-
arhlutverk hróks-
ins á a1 og opnar
línu fyrir hrók
svarts á d8 sem
leiðir til þess að
hvítur getur ekki
varist fjölmörg-
um hótunum svarts. 28. h3
Hd7! 29. Db6 He1+ 30. Kh2
De5+ 31. g3 Hd2+ 32. Bg2
Hxg2+! 33. Kxg2 De4+ og
hvítur gafst upp. 5. umferð
Meistaramóts Taflfélagsins
Hellis hefst kl. 19.30 í
kvöld. Teflt verður í húsa-
kynnum félagsins, Álfa-
bakka 14a og eru áhorf-
endur velkomnir.
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Svartur á leik.
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. d4
exd4 4. Rxd4 Bc5 5. Rb3
Bb6 6. a4 a6 7. Rc3 Rf6 8.
a5 Ba7 9. Bd3 d6 10. De2
Be6 11. Be3 Bxb3 12. cxb3
Bxe3 13. Dxe3 0–0 14. 0–0
He8 15. f4 d5 16. e5 d4 17.
Dh3 dxc3 18. exf6 g6 19.
bxc3 Dxf6 20. f5 g5 21. Dg3
Had8 22. Ha4 h6 23. Be4
MEÐ MORGUNKAFFINU
Taktu tvær verkjapillur, farðu í rúmið og hringdu aftur í
mig á morgun … Taktu tvær verkjapillur, farðu í rúmið og
hringdu aftur í mig á morgun … Taktu …
MORGUNBLAÐIÐ
birtir tilkynningar um
afmæli, brúðkaup,
ættarmót og fleira les-
endum sínum að
kostnaðarlausu. Til-
kynningar þurfa að
berast með tveggja
daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga
fyrirvara fyrir sunnu-
dagsblað. Samþykki
afmælisbarns þarf að
fylgja afmælistilkynn-
ingum og/eða nafn
ábyrgðarmanns og
símanúmer. Fólk get-
ur hringt í síma 569-
1100, sent í bréfsíma
569-1329, eða sent á
netfangið ritstj
@mbl.is. Einnig er
hægt að skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1,
103 Reykjavík
FRANSKA tímaritið Le
Bridgeur kemur út mán-
aðarlega og þar á bæ hafa
menn það fyrir sið að velja
„spil mánaðarins“. Við skul-
um líta á eitt slíkt:
Vestur gefur; allir á
hættu.
Norður
♠ D43
♥ ÁG8432
♦ K94
♣6
Suður
♠ G98762
♥ 5
♦ Á105
♣ÁD10
Vestur Norður Austur Suður
1 lauf 1 hjarta Pass 1 spaði
Pass 2 spaðar Pass 4 spaðar
Pass Pass Pass
Vestur finnur þá skað-
ræðisvörn að taka tvo fyrstu
slagina á ÁK í spaða. Austur
fylgir lit, svo trompið er
komið, en nú er ekki hægt
að stinga nema eitt lauf í
borði. Vestur spilar hjarta-
níunni í þriðja slag. Hvernig
á að ná í tíunda slaginn?
Það er alltaf álitamál
hversu vel eigi að treysta
vörninni, en ef vestur á tví-
spil í hjarta, eins og nían
bendir til, þýðir ekkert að
reyna að fría litinn. Hitt er
betri möguleiki að spila laufi
á tíuna í þeirri von að austur
sé með gosann. Þá má síðar
henda tígli í laufás og
trompa tígul.
En þetta dugir ekki ef
vestur er með KG í laufi:
Norður
♠ D43
♥ ÁG8432
♦ K94
♣6
Vestur Austur
♠ ÁK ♠ 105
♥ 96 ♥ KD107
♦ D763 ♦ G82
♣KG943 ♣875
Suður
♠ G98762
♥ 5
♦ Á105
♣ÁD1
Vestur getur spilað sér út
á hjarta og sagnhafi kemst
ekki hjá því að gefa slag í
viðbót á tígul eða lauf í lokin.
Lausnin er falleg: Sagn-
hafi drepur á hjartaás og
trompar hjarta. Það gerir
hann fyrst og fremst til að
loka útgönguleið vesturs í
þeim lit. Síðan spilar hann
laufdrottningu að heiman!
Vestur fær slaginn, en verð-
ur nú að spila laufi upp í
gaffalinn eða hreyfa tíg-
ulinn. Skást er að spila tígul-
drottningu, en sagnhafi ætti
ekki að láta það blekkja sig.
Hann tekur á tígulkóng og
svínar tíunni. Þar hefur
hann stuðning af líkinda-
fræðinni, auk þess sem hann
undrast hvað drottningin
var „lengi á leiðinni“. Hún
hefði komið í þriðja slag ef
vestur ætti gosann með.
Bridsfélag SÁÁ
Sunnudagskvöldið 9. mars sl. var
spilaður tíu para Howell-tvímenn-
ingur og urðu þessi pör hlutskörpust
(meðalskor 108):
Gunnar Ómarsson – Einar L. Pétursson 127
Unnsteinn Jónsson – Magnús Ingólfsson 123
Leifur Aðalst. – Þórhallur Tryggvas. 123
Sunnudagskvöldið 16. mars
mættu tólf pör til keppni.
Efstu pör (meðalskor 165):
Bergljót Aðalsteins. – Björgvin Kjartans.
200
Gunnar Ómarsson – Einar L. Pétursson 194
Jóna Samsonard. – Kristinn Stefánsson 186
Næsta spilakvöld félagsins er
sunnudaginn 23. mars.
Spilastaður er Lionssalurinn, Sól-
túni 20.
Allir spilarar eru hjartanlega vel-
komnir, umsjónarmaður er Matthías
Þorvaldsson (sími 860-1003) og veitir
hann aðstoð við myndun para, sé
þess óskað.
Bridsfélag
Akraness
Laugardaginn 15. mars sóttu
bridsspilarar frá Hafnarfirði Skaga-
menn heim í árlegri keppni milli
bæjanna. Spilað var í Jónsbúð, húsi
kvennadeildar Landsbjargar á
Akranesi.
Í hálfleik, er spilarar settust að
sannkölluðu veisluborði í boði
kvennadeildarinnar, áttu gestirnir
245 IMPa á móti 244 IMPum heima-
manna, en að lokinni drengilegri
keppni voru það Hafnfirðingar sem
máttu játa sig sigraða. Spilað var á 6
borðum, á fyrsta borði unnu gestirn-
ir 18–12, á öðru borði var heimasig-
ur, 23–7, heimamenn unnu á því
þriðja 17–13, Hafnfirðingar höfðu
betur á fjórða borði, 20–10, og þeir
unnu stórt á fimmta borði, 25–4, en
það dugði skammt gegn 25–0-sigri
heimamanna á sjötta borði. Lokatöl-
ur 91–83, Skagamönnum í vil.
Félag eldri borgara
í Kópavogi
Þriðjudaginn 11. mars mættu 28
pör til keppni og var að venju hörku-
keppni í báðum riðlum. Lokastaða
efstu para í N/S varð þessi:
Jón Stefánss. – Þorsteinn Laufdal 371
Albert Þorsteinss. – Sæmundur Björnss. 370
Bent Jónsson – Garðar Sigurðss. 337
Hæsta skor í A/V:
Anton Sigurðss. – Hannes Ingibergss. 375
Halla Ólafsd. – Magnús Halldórss. 371
Ingibj Halldórsd. – Sigríður Pálsd. 359
Á föstudag mættu „aðeins“ 23 pör
og þá urðu úrslitin þessi í N/S:
Vilhjálmur Sigurðss. – Þórður Jörundss. 251
Jón Stefánss. – Þorsteinn Laufdal 251
Lárus Hermannss. – Sigurður Karlss. 244
Hæsta skorin í A/V:
Bent Jónsson – Garðar Sigurðss. 263
Auðunn Guðmss. – Bragi Björnss. 242
Björgvin Guðmss. – Eysteinn Einarss. 240
Meðalskor á þriðjudag var 312 en
216 á föstudag.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson