Morgunblaðið - 29.05.2003, Blaðsíða 21
Morgunblaðið/Rax
„Ströndin, með öllum sínum margbreytileika,
hefur alltaf heillað mig og Hraunin eru einn fárra
staða á höfuðborgarsvæðinu þar sem hún er
ósnortin,“ segir Lovísa Ásbjörnsdóttir jarðfræð-
ingur.
„Þaðan er stórfenglegt útsýni yfir allan Faxa-
flóa. Hraunin hafa að geyma einstakar nátt-
úruperlur eins og ferskvatnstjarnirnar sem í
gætir flóðs og fjöru, fjölskrúðugt lífríki og
fjöldann allan af skjólgóðum hraunbollum. Þar
að auki eru ótal ummerki eftir forna búsetu, svo
sem tóftir, hlaðnir garðar, varir, vörður og gaml-
ar götur. Síðast en ekki síst á ég þaðan margar
góðar minningar með fjölskyldu og vinum.“
Hraunin í
Straumsvík
JÚNÍ
31. maí–1. júní. Sjómannadagshátíðarhöld
víða um Vestfirði
15. Göngudagur í Tungusveit
Fjallganga fyrir fjölskylduna og kaffiveitingar
í Sævangi.
17. Þjóðhátíðardagur í Sauðfjársetrinu á
Ströndum.
Kaffi í Sævangi
19.–23. Tónlistarhátíðin Við Djúpið
Tónlistarhátíð og námskeið undir nafninu
„Við Djúpið“ verður á Ísafirði og í Bolung-
arvík. Landsþekktir og reyndir tónlistarmenn
munu kenna í báðum bæjarfélögunum.
Einnig verða fernir stórtónleikar auk þess
sem haldnir verða minni tónleikar og nem-
endatónleikar. Auk þessa verða aðrar uppá-
komur og skemmtanir. Farið í göngu- og
bátsferðir. Nánari upplýsingr á slóðinni
www.viddjupid.is
27.–29. Bíldudals-grænar
Sumarhátíð á Bíldudal.
28. Óshlíðarhlaup
28. Saltfiskveisla í Neðstakaupstað
Í sumar verður boðið upp á sjávarrétt-
aveislur í Tjöruhúsinu í Neðstakaupstað á
vegum Byggðasafns Vestfjarða. Í fyrrasumar
hélt safnið stóra saltfiskveislu í tilefni þess
að 150 ár voru liðin frá stofnun Ásgeirs-
verslunar, sem á sínum tíma var lang-
stærsti útflytjandi saltfisks frá Íslandi. Á að
aðendurtaka leikinn í sumar. Í fyrstu veisl-
unni fá nokkrir alþýðukokkar á Ísafirði að
spreyta sig við matseldina.
Allur saltfiskur sem notaður er í þessum
veislum er sólþurrkaður á fiskreitum
Byggðasafns Vestfjarða.
Þrjár aðrar veislur eru ráðgerðar 12. júlí,
26. júlí og 9. ágúst en reiknað er með að
þar fái atvinnumenn að spreyta sig við
matseldina.
Dægradvöl