Morgunblaðið - 07.06.2003, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 07.06.2003, Blaðsíða 2
FRÉTTIR 2 LAUGARDAGUR 7. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ 2003  LAUGARDAGUR 7. JÚNÍ BLAÐ B B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A EINN SIGUR DUGÐI TIL BRONSVERÐLAUNA Á MÖLTU / B7 JULIAN Johnsson, einn reyndasti landsliðsmaður Færeyinga í knattspyrnu, gekk í gær til liðs við Skagamenn. Að sögn Gunnars Sigurðssonar, for- manns meistaraflokksráðs ÍA, verður hann til reynslu hjá félaginu fram í júlí. Hann má byrja að spila strax, þar sem hann er skilgreindur sem áhugamaður í Færeyjum, Gunnar sagði að ef Jul- ian stæði undir væntingum, yrði samið við hann um miðjan júlí. Julian Johnsson er 28 ára miðju- maður og spilar í dag sinn 50. landsleik, á Laugardalsvellinum. Hann lék um árabil með Sogndal í Noregi og einnig með Hull í Englandi, en hann er nú leikmaður með B36. Julian er vænt- anlegur til ÍA strax eftir leik Færeyja og Þýska- lands á miðvikudag og kvaðst Gunnar reikna með því að hann kæmi með Norrænu til Seyðisfjarðar á föstudag, en þá um kvöldið leikur ÍA þar við Hugin í 32-liða úrslitum bikarkeppninnar. Julian Johnsson til liðs við ÍA Morgunblaðið náði tali af Ólafi ígær en hann er staddur í Portúgal ásamt Björgvini Sigur- bergssyni en þeir eru að undirbúa sig fyrir næsta mót sem hefst á þriðjudaginn. „Það gekk mjög vel á Europro- golfmótinu og ég var að slá betur en á undanförnum mótum. Stutta spilið hefur verið mjög gott hjá mér á árinu, en löngu höggin hafa ekki verið nægilega góð en þau hafa verið að lagast og þau voru góð á Euro- pro-golfmótinu.“ Aðspurður um hvort það væri ekki samkeppni hjá honum og Björgvini sagði Ólafur að hún væri nú ekki mikil. „Við erum mjög góðir félagar og óskum hvor öðrum góðs gengis en vissulega er ég að keppa við hann ásamt öllum öðrum kepp- endunum á mótaröðinni. Ég og Björgvin erum saman í herbergi og ferðumst saman og það er miklu betra að vera saman en að vera bara einn. Við erum góðir saman.“ Ólafur hefur sett stefnuna hátt fyrir þriðjudaginn en þá keppir hann á Palmares-golfvellinum á Alg- arve. „Mótið leggst mjög vel í mig og ég ætla að halda áfram á sömu braut. Ég er ánægður með spila- mennskuna hjá mér að undanförnu og ætla að reyna að standa mig vel. Það verða um 160 keppendur á mótinu og fyrsta markmiðið er að komast í gegnum niðurskurðinn en það eru 50 kylfingar sem komast í gegnum hann. En ég set stefnuna hærra og vil lenda í einu af efstu 10 sætunum en þá verð ég að leika mjög vel. Maður verður alltaf að setja sér hærra markmið en maður setti sér í síðasta móti og það geri ég.“ Ef Ólafur lendir í einu af 10 efstu sætunum á hann von á að fá um 200 þúsund krónur í verðlaunafé. Ólafur Már spilaði vel í Portúgal Morgunblaðið/Golli Félagarnir Björgvin Sigurbergsson og Ólafur Már Sigurðsson. „STRÁKARNIR eru tilbúnir í slag- inn, ég sé ekki annað,“ sagði Ás- geir Sigurvinsson, landsliðsþjálfari í knattspyrnu, eftir að hann hafði tilkynnt sínum mönnum hvernig landsliðið verður skipað sem byrj- ar leikinn gegn Færeyingum á Laugardalsvellinum í dag kl. 16. Ásgeir sagði að liðið muni leika leikaðferðina 3-5-2. Árni Gautur Arason, Rosenborg, verður í markinu. Öftustu menn verða Lár- us Orri Sigurðsson, WBA, Guðni Bergsson, Bolton og Hermann Arnar Grétarsson, Lokeren, hef- ur verið með hitavellu og Arnar Gunnlaugsson, KR, meiddur. Þá læstist Tryggvi Guðmundsson, Sta- bæk, í baki á æfingu í gær. Ásgeir og Logi Ólafsson, aðstoð- armaður hans, voru með þrjá fundi með leikmönnum í gær, áður en þeir héldu fund með öllum landsliðshópnum. Þeir voru með sérfundi með varnarmönnum, mið- vallarleikmönnum og þá sókn- armönnum, þar sem farið var yfir leikskipulag og annað. Hreiðarsson, Charlton. Á miðjunni verða Þórður Guðjónsson, Boch- um, Jóhannes Karl Guðjónsson, Aston Villa, Rúnar Kristinsson, Lokeren, Arnar Þór Viðarsson, Lokeren og Indriði Sigurðsson, Lilleström. Í fremstu víglínu leika þeir Eið- ur Smári Guðjohnsen, fyrirliði, Chelsea og Helgi Sigurðsson, Lyn, en þeir þekkja hvor annað mjög vel þar sem þeir léku saman í fremstu víglínu í ungmennaliði Ís- lands á árum áður. Helgi Sigurðsson leikur við hlið Eiðs Smára „ÉG ræddi einslega við Eið Smára Guðjohnsen og spurði hann hvort hann væri búinn að hugsa um næstu skref sín á knattspyrnuferl- inum – hvort hann væri tilbúinn að taka við fyrirliðabandi Íslands og vera í forsvari fyrir leikmenn í landsliðshópnum. Hann sagðist vera tilbúinn og ég er ánægður með þau svör sem ég fékk. Eiður Smári mun því gegna ábyrgð- armiklu hlutverki í landsliðinu og bera fyrirliðabandið í fyrsta skiptileiknum gegn Færeyingum,“ sagði Ásgeir Sigurvinsson, þjálfari landsliðsins. Morgunblaðið/Golli Eiður Smári Guðjohnsen tekur við fyrirliðabandinu af Rúnari Kristinssyni fyrir leikinn gegn Fær- eyjum. Hér eru þeir félagar saman á æfingu með landsliðinu á Laugardalsvellinum. Eiður Smári tekur við fyrirliðabandinu ÓLAFUR Már Sigurðsson hafnaði í 20. sæti í Europro-golfmótinu sem lauk í Portúgal í fyrradag. Fyrir þennan góða árangur fékk Ólaf- ur um 90 þúsund krónur í sinn hlut af verðlaunafé mótsins en hann lék á tveimur höggum undir pari. L a u g a r d a g u r 7. j ú n í ˜ 2 0 0 3 Yf ir l i t Í dag Sigmund 8 Viðhorf 32 Viðskipti 12//13 Umræðan 32/33 Erlent 16/18 Kirkjustarf 34/36 Höfuðborgin 19 Minningar 3742 Akureyri 20 Myndasögur 64 Suðurnes 21 Skák 45 Landið 22 Dagbók 66/67 Árborg 23 Leikhús 48 Neytendur 24 Fólk 48/53 Heilsa 25 Bíó 50/53 Listir 26/27 Ljósvakamiðlar 54 Forystugrein 28 Veður 55 * * * BJÖRN Ingólfsson eigandi viðgerð- arverkstæðisins Hjólsins á Eiðis- torgi segir algengt að hárfínir hálf- mánar, sem eru brot úr nöglum nagladekkja, sprengi dekk á hjólum og barnavögnum. Hann segir bíla aka um á nagla- dekkjum á auðum götum allan vet- urinn. Á vorin þegar byrjað er að sópa götur og gangstéttir dreifast brot úr nöglum út um allt. „Ég hef tínt allt að 15 stálörður úr einu dekki.“ Brotin ganga inn í dekkin og sprengja slönguna. „Þetta eru hár- fínar flísar,“ segir Björn og bætti við að það spryngi nánast ekki á annan hátt á reiðhjóladekkjum. „Þetta gerist líka á barnavögnum með loftdekkjum,“ segir hann og bætir við að viðgerðum á slíkum göt- um hafi fjölgað mjög síðustu tvö til þrjú árin. Auðar götur og almenn notkun nagladekkja á veturna eru orsökin fyrir þessu, að mati Björns. Enginn snjór sé á götunum á vet- urna og saltað um leið og frost kem- ur. „Það á enginn að vera á nagla- dekkjum.“ Naglabrot sprengja reiðhjóladekk Morgunblaðið/Ómar Á ÞINGI íbúa á Blönduósi nýlega samþykktu bæjarbúar yfirlýsingu um framtíðarsýn í atvinnumálum bæjarins. Hin nýja framtíðarsýn fel- ur meðal annars í sér það markmið að Blönduósbær hafi í náinni framtíð forystu um rannsóknir, eftirlit og frumkvöðlastarf í matvælaiðnaði á Ís- landi. Ennfremur stefnir bæjarfélag- ið að því að skapa fyrirtækjum í hvers kyns matvælastarfsemi gott starfs- umhverfi og sérhæfðan stuðning. Ályktun var samþykkt á fundinum, þar sem skorað var á stjórnvöld að sýna þessu framtaki stuðning. Að skilgreina sérstöðu Jóna Fanney Friðriksdóttir bæjar- stjóri sagði á fundinum segir að stefnumótunin snerist um að setja samfélaginu markmið til að vinna öt- ullega að á komandi misserum. Sam- starf og samstaða íbúa, fyrirtækja og sveitarfélags eru lykilatriði að mati Jónu Fanneyjar. „Markmiðið með þessari vinnu var að skilgreina og draga fram sérstöðuna og að marka stefnu sveitarfélagsins um hvernig það ætlar að byggja upp atvinnulíf og snúa vörn í sókn. Hér eru öflug mat- vælafyrirtæki í sjávarútvegi og land- búnaði og fjöldi smáiðnaðarfyrir- tækja. Það þarf að hlúa að þessu starfsumhverfi en jafnframt að kanna þá möguleika sem eru fyrir hendi til að byggja enn frekar upp. Þá erum við að tala um rannsóknir, eftirlit og frumkvöðlastarf á sviði matvælaiðn- aðar.“ Jóna er ekki hrifin af hugmyndum um hraðbraut yfir hálendið. „Ein af auðlindum okkar er nálægðin við þjóðveginn og það er mikilvægt að nýta það og bjóða fólki sem á leið í gegn upp á áningarstað og skemmti- lega upplifun. Markmiðið er að Blönduós verði áningarstaður Norð- urlands vestra. Umræðan um að færa þjóðveginn er bagaleg, því ekkert slíkt stendur til og er hvergi að finna í vegaáætlun næstu ára.“ Blönduós verði mið- stöð matvælaþróunar Blönduósbær framtíðarinnar? Draumabærinn í anda hugmynda þingsins. ÞESSI þrastamóðir á sér hreiður í blátoppsrunna í garði einum á Suðurlandi og færir þar matbráðum ungum sínum eitthvað gott í gogginn. Þeir verða brátt flognir úr hreiðrinu og hver sína leið. Flestir skógar- þrestir ferðast á suðlægar slóðir á haustin en þó eru alltaf einhverjir sem láta það ferðalag eiga sig og dvelja hér árið um kring. Veturinn er oft erfiður fyrir smáfugla sem þurfa í mestu kuldunum að treysta á matargjafir fólks en ætli það sé ekki gleymt um leið og sumarið kemur með birtu og yl. Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Hvað er í matinn, mamma? „ÞAÐ hefur verið ágætisveiði hérna og gott veður,“ segir Gísli Runólfsson, skipstjóri á Bjarna Ólafssyni AK, sem er á síldveiðum í norsk-íslenska stofninum skammt sunnan við lögsögu Svalbarða. Um 20 íslensk skip hafa verið á síldveiðum nálægt 70. breidd- argráðu, meira en 200 mílur fyrir sunnan Svalbarða, en Gísli segir að nótabátarnir séu flestir á landleið með síld í bræðslu. Síldin er fryst um borð í Bjarna Ólafssyni og segir Gísli að þeir frysti um 40 tonn af flökum á sólarhring. „Þetta er svona millisíld,“ segir hann og gerir ráð fyrir að vera að minnsta kosti viku á miðunum. Guðmundur Jónsson, skip- stjóri á Vilhelm Þorsteinssyni EA, segir að sér sýnist sem síldin sé frekar á leið inn í lög- sögu Svalbarða en í átt til Ís- lands. „Það er einhver síld að fara þarna inn og þá er spurn- ingin hvað eigi að gera,“ segir hann. Góð síld- veiði við Svalbarða MIKIL eftirspurn hefur verið eftir tjaldvögnum á fyrstu vik- um sumars. Að sögn Arnars Barðdal, aðstoðarframkvæmda- stjóra Seglagerðarinnar Ægis, hefur sala tjaldvagna aukist mikið frá síðasta ári. „Allir okk- ar vagnar eru uppseldir en við eigum von á stórri sendingu eft- ir þrjár vikur. Til að anna mestu eftirspurninni fáum við 10 felli- hýsi send með flugi en þetta er í fyrsta sinn sem við notum þá leið,“ segir Arnar. Fellihýsin sem koma með flugi eru öll frá- tekin en auk þess eru komnir kaupendur fyrir hluta þeirra vagna sem koma eftir þrjár vik- ur. 10 fellihýsi með flugi SJÚKLINGUM sem bíða eftir aðgerð eða annarri þjónustu Landspítalans – háskólasjúkra- húss (LSH) hefur fækkað, ef miðað er við sama tíma í fyrra. Þetta kemur fram í stjórnunar- upplýsingum frá LSH fyrir tímabilið janúar til apríl á þessu ári. Ennfremur kemur fram að í mörgum sérgreinum sé ekki um biðlista að ræða. Hins vegar hefur þeim fjölgað sem bíða eft- ir augnaðgerð. Biðlistar LSH styttast ÁBURÐUR INNKALLAÐUR Guðni Ágústsson, landbúnaðar- ráðherra, hefur með bréfi til forráða- manna Kjötmjöls ehf. í Hraungerð- ishreppi á Suðurlandi fyrirskipað innköllun á öllu kjötmjöli undir heit- inu Brumi og gert fyrirtækinu að hætta sölu á því þegar í stað, en tæp tvö tonn af Bruma hafa verið seld síðustu vikur. Fisksalar lækka ekki verðið Þrátt fyrir að verð á ýsu hafi lækkað frá um fimmtungi og upp í helming á fiskmörkuðum, hefur það ekki lækkað í búðum. Fisksalar segj- ast meðal annars verða að bæta sér upp mögur ár með því að lækka ekki verðið en segja einnig að ýmis kostn- aður, einkum flutningskostnaður, hafi aukist mikið. Uppsagnir dregnar til baka Jökull ehf. á Raufarhöfn hefur dregið uppsagnir 50 starfsmanna til baka, en afturköllunin mun að lík- indum ekki hafa áhrif á endanlega niðurstöðu um framtíð rekstrarins á Raufarhöfn. Guðný Hrund Karls- dóttir, sveitarstjóri, telur þó að þessi aðgerð kunni að gefa málsaðilum lengri frest til þess að leita úrræða. Hamas slítur viðræðum Hin róttæku Hamas-heittrúar- samtök meðal Palestínumanna sögð- ust í gær hafa slitið viðræðum við Mahmud Abbas, forsætisráðherra Palestínustjórnar, um að stöðva vopnaðar árásir á Ísraela. Tölvuormur herjar á banka Nýr tölvuormur, kallaður W32/ Bugbear.B@mm, hefur náð gífur- legri útbreiðslu undanfarna daga. Höfundur ormsins virðist hafa sér- stakan áhuga á bankastofnunum og er ormurinn með lista yfir lén hjá bankastofnunum um allan heim, þar á meðal hjá tveimur íslenskum bönk- um, Íslandsbanka og Búnaðarbanka. Fulltrúi SÞ til Burma Sendifulltrúi Sameinuðu þjóð- anna, Razali Ismail, kom í gær til Rangoon í Burma í þeim tilgangi að tryggja að Aung San Suu Kyi, for- ingi stjórnarandstöðunnar í Burma og friðarverðlaunahafi Nóbels, yrði látin laus úr haldi herforingjastjórn- arinnar í landinu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.