Morgunblaðið - 07.06.2003, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 07.06.2003, Blaðsíða 20
AKUREYRI 20 LAUGARDAGUR 7. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ Innritun í dagskóla stendur yfir og lýkur fimmtudaginn 12. júní Í VMA er hægt að stunda nám á: • Iðnnámsbrautum • Ýmsum starfsnámsbrautum • Vélstjórnarbraut, 1.-4. stig • Bóknámsbrautum til stúdentsprófs • Listnámsbraut • Almennri námsbraut Við vekjum sérstaka athygli á fjölbreyttu verknámi sem hægt er að stunda við skólann. Næsta vetur er stefnt að því að bjóða upp á nám í stálsmíði og málaraiðn ef næg þátttaka fæst. Námsráðgjafar skólans verða til viðtals síðustu innritunar- daga. Umsækjendur eru hvattir til að nýta sér þjónustu þeirra. Innritun í fjarnám fer fram í ágúst og verður auglýst sérstaklega þegar þar að kemur. Verkmenntaskólinn er leiðandi á sviði fjarnáms og býður þar m.a. upp á meistaranám iðnsveina. Verkmenntaskólinn býður nú í fyrsta sinn upp á heimavistarrými í hinum nýju og glæsilegu nemendagörðum Lundar. Umsóknarfrestur er til 12. júní. Leitaðu nánari upplýsinga á netinu. Veffang skólans er: http://vma.is Síminn á skrifstofu skólans er 464 0300. TÖLUVERT hefur lifnað yfir andapollinum við Sundlaug Ak- ureyrar en þar eru nú fjölmargir andarungar að spóka sig, auk þess sem þar eru álftarhjón með unga sína. Þá liggja þar nokkrar endur á eggjum. Starfsfólk Sundlaugar Akureyrar, með Gísla Kristin Lórenzson for- stöðumann í broddi fylkingar, ungaði út fjölmörgum and- areggjum nú í vor í sérstökum útungunarkassa. Að sögn Gísla Kristins hafa yfir 20 ungar verið settir út á svæðið við andapollinn undanfarnir vikur. Minnstu ung- arnir eru enn í búri en hinir eldri geta valsað um svæðið. Sundæf- ingar hafa því verið stundaðar af krafti á andapollinum og hinum megin við sundlaugarvegginn stundar yngsta mannfólkið sínar sundæfingar í innilauginni. Útungunin hefur farið fram í kjallara sundlaugarinnar og þar er nú verið að gera tilraun með að unga út heiðagæsareggjum. Gísli Kristinn sagði að varpið hjá pekingöndunum á andapollinum hefði verið í hálfgerðu rugli í vor. „Það fóru að sjást þarna egg strax í apríl, sem endurnar sýndu lítinn áhuga en hrafninn aftur meiri áhuga. Við tókum þessi egg og settum í útung- unarkassann og hugmyndin var að sleppa ungum lausum í fjöl- skyldugarð sundlaugarinnar. Vegna framkvæmda hefur ekki verið hægt að opna garðinn en við stefnum að því að opna hluta hans á næstunni og vonandi get- um við þá verið með unga þar til sýnis.“ Í innilauginni í kjallaranum hefur boðið upp á ungbarnasund í vetur en nú er þar í gangi sundnámskeið fyrir börn sem eru að komast á grunnskólaaldur og sem fyrr segir gengur því mikið á bæði innan og utandyra. Það þykir vel við hæfi að Gísli Kristinn standi fyrir þessu and- arungafári, því hann hefur stund- um verið kallaður andapabbi. Sú nafnbót tengist starfi Gísla Kristins við Andrésar andar- leikana á skíðum, þar sem hann hefur verið í forsvari frá upphafi. Sundtökin æfð úti og inni Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Börn sem eru að komast á skólaaldur á sundnámskeiði í Sundlaug Ak- ureyrar, gömlu innilauginni, fyrr í þessari viku. Hinum megin við vegg- inn er fjöldi unga á andapollinum svokallaða. Morgunblaðið/Kristján Andarungarnir í mestu makindum við andapollinn. Morgunblaðið/Kristján Gísli Kristinn Lórenzson, for- stöðumaður Sundlaugar Akureyr- ar, vökvar heiðagæsareggin í út- ungunarkassanum en einnig þarf að velta eggjunum reglulega við. VALGERÐUR H. Bjarnadóttir for- maður stjórnar Leikfélags Akureyr- ar er bjartsýn á að skrifað verði undir rekstrarsamning við Akureyr- arbæ á næstu dögum. Hún sagðist sannfærð um að þetta væri ekki lengur spurning um hvort af samn- ingum yrði heldur frekar hvernig samning skrifað yrði undir. Miklir erfiðleikar hafa verið í rekstri LA og í vetur var öllu starfsfólki félags- ins, 15 manns, sagt upp störfum og kom hluti uppsagnanna til fram- kvæmda um síðustu mánaðamót. „Það er unnið að því að ná rekstr- arsamningi við bæinn fyrir þetta ár og það næsta en þó með fyrirvara um hvað gerist í samningum bæj- arins og menntamálaráðuneytisins, sem hafa aðeins gert samning um þetta ár. Það er líka orðið tímabært að huga að því hvað við ætlum að gera þegar menningarhús er risið í bænum.“ Valgerður sagði ljóst að einhverj- ir af þeim 15 starfsmönnum félags- ins sem fengu uppsagnarbréf mundu hætta. „Ég held þó að flestir vilji starfa þarna áfram og að við þá verði gerðir nýir samningir þegar þar að kemur. Jafnvel að verka- skiptingu og hlutverkaskipan innan- húss verði þá hugsanlega eitthvað breytt.“ Valgerður sagði mjög mik- ilvægt að leiða samningamálin til lykta sem allra fyrst, þannig að fólk þyrfti ekki að bíða lengur í óvissu. Þessa dagana standa yfir miklar framkvæmdir við Samkomuhúsið og nánasta umhverfi þess. Unnið er við hefðbundið viðhald hússins, auk þess sem verið er að byggja nýja búningaaðstöðu baka til, sem Val- gerður sagði að væri mikið þjóð- þrifamál. Þá er verið að vinna að endurbótum á götunni framan við Samkomuhúsið og bílastæðum. Val- gerður sagði ráðgert að fram- kvæmdum yrði lokið fyrir næstu áramót og því myndi starfsemi LA fara fram annars staðar í bænum, frá hausti og til áramóta. Það mið- ast þó við að samningar náist um áframhaldandi rekstur félagsins. Samningur við LA í burðarliðnum Morgunblaðið/Kristján Unnið er við viðhald á Samkomuhúsinu þessa dagana, auk þess sem verið er að byggja nýja búningsklefa fyrir starfsfólkið baka til. KEPPNI er nýlokið á milli fastanefnda Akureyrarbæjar og Hafnarfjarðarbæjar í að minnka brennslu á eldsneyti, þ.e. notk- un á einkabílum þegar farið er á nefnda- fundi. Keppnin stóð yfir í apríl og maí. Þátttaka var mjög góð, 97% í Hafnarfirði og 85% á Akureyri. Á Akureyri fóru 40% nefndarmanna öðruvísi en einir í bíl á nefndarfundi þessa tvo mánuði, en í Hafn- arfirði 34% nefndarmanna. Greinilegt var að keppnin ýtti við mörg- um að ganga eða hjóla og má segja að að- gerðirnar hafi ekki eingöngu verið góðar fyrir umhverfið heldur heilsuna líka, en hversu mörgum hitaeiningum hefur verið brennt skal ósagt látið. Þrátt fyrir að Hafnarfjarðarbær hafi lotið í lægra haldi er munurinn lítill og í tilefni þessa verkefnis og umhverfisdags Sameinuðu þjóðanna keypti bærinn tvö reiðhjól til tilrauna fyrir starfsmenn á bæjarskrifstofum að Strandgötu 4–10 sem þeir geta notað í vinnuferðum á vegum bæjarins. Ætla má að keppnin hafi hlíft lofthjúpi jarðar við a.m.k. 200 kg af koldíoxíði (CO2), sem er talið er hafa mest áhrif á þær loftslagsbreytingar af mannavöldum á jörðinni sem orðnar eru og munu hafa ófyrirsjáanlegar afleiðingar fyrir mann- kynið verði ekki gerðar viðeigandi ráðstaf- anir í tíma, segir í fréttatilkynningu. Keppni Akureyringa og Hafnfirðinga um minnkandi brennslu á eldsneyti Hlífðu loft- hjúpi jarðar við 200 kg koldíoxíðs Hvítasunnudagur. Missagt var í fimmtudagsblaði Morgunblaðsins að söguganga um Nonnaslóð sem verð- ur á vegum Minjasafnsins og Nonnahúss hæfist kl. 10, það rétta er að hún hefst kl. 14. Á MORGUN VAGLASKÓGUR í Fnjóskadal kemur ágætlega undan vetri þetta árið að sögn Sigurðar Skúlasonar, skógarvarðar. „Reyndar kom kuldakast sem hægði á laufgun en segja má að núna sé hann að fullu útsprunginn. Nú er verið að vinna við hin hefðbundnu vorverk eins og að laga göngustíga og fara yfir all- ar merkingar í skóginum en í fyrra voru sett upp gönguleiðakort,“ sagði Sigurður. Það er Ferðaþjónustan í Vagla- skógi sem sér um verslunina og tjaldsvæðin sem eru á svæðinu. Um síðustu helgi var opnað og það var þó nokkuð að gera að sögn Hörpu Þráinsdóttur, verslunarstjóra í Vaglaskógi. „Við rukkuðum ekkert fyrir gistingu um síðustu helgi og það var þó nokkuð af tjaldvögnum og tjöldum á svæðinu. Um helgar í sumar er ætlunin brydda upp á ein- hverjum nýjungum eins og að bjóða upp á vöfflur og eitthvert góðgæti, ef veður leyfir,“ sagði Harpa. Vorverk í Vaglaskógi ELDUR kom upp í gömlum fólksbíl á bílastæði við skrifstofu Morgun- blaðsins á Akureyri upp úr hádeginu í gær. Bensínslanga fór í sundur við vél bílsins og gaus upp mikil eldur undir vélarhlífinni. Eiganda bílsins tókst að ráða niðurlögum eldsins með slökkvitækjum sem hann fékk að láni í næstu húsum, áður en Slökkvilið Akureyrar kom á staðinn. Nokkrar skemmdir urðu í vélarrúmi bílsins, sem er af gerðinni Volvo Amazon árgerð 1965, auk þess sem lakkið á vélarhlífinni bólgnaði upp. Morgunblaðið/Kristján Eldur í fólksbíl
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.