Morgunblaðið - 07.06.2003, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 07.06.2003, Blaðsíða 26
LISTIR 26 LAUGARDAGUR 7. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ LÓNKOT í Skagafirði er griða- staður bæði menningar og ferða- manna. Í dag kl. 16 verður afhjúpað þar útilistaverk eftir Katrínu Sig- urðardóttur myndlistarkonu. Ólaf- ur Jónsson staðarhaldari segir að komið hafi verið að máli við Katr- ínu og hún beðin að vera útilista- maður Lónkots í sumar. „Við vor- um ekki að biðja um neitt ákveðið, heldur eitthvað sem hún gæti unnið hér á staðnum, og yrði eftir hér. Þeir listamenn sem hafa verið hér síðustu sumur, hafa allir unnið steinskúlptúra sem standa hér í landslaginu, en verk Katrínar er öðru vísi, og staðsett í bæjarlóninu; minnsta lóninu við bæinn. Þetta er unnið úr rekavið héðan af staðnum, eins konar húslíki sem mynda lítið þorp úti í lóninu. Það er gaman að horfa á þetta frá lónsbakkanum, og eins frá útsýnisturni sem er við lón- ið, en þar er líka feykilega gott út- sýni yfir perlur Skagafjarðar.“ Á sama tíma í dag opnar Pétur Gautur sýningu á verkum sínum í galleríi staðarins, en að sögn Ólafs var Pétur í sveit í Lónkoti í gamla daga. Nýtt verk afhjúpað í lóninu við Lónkot Frá Lónkoti við Málmeyjarsund í Skagafirði. SÝNINGIN Austfirskt lands- lag í íslenskri myndlist verður opnuð á Skriðuklaustri í dag. Sýningin er samstarfsverkefni Gunnarsstofnunar og Menn- ingarmiðstöðvar Hornafjarðar og er styrkt af Menningarráði Austurlands. Á sýningunni eru olíumálverk og vatnslitamyndir eftir 13 listamenn, þ.á m. Þór- arin B. Þorláksson, Ásgrím Jónsson, Jóhannes Kjarval, Finn Jónsson, Svein Þórarins- son, Eirík Smith, Tryggva Ólafsson og Georg Guðna. Sýningin verður á Skriðu- klaustri til 30. júlí en verður þá flutt í Pakkhúsið á Höfn í Hornafirði. Hún er opin alla daga kl. 10–18. Austfirskt landslag í íslenskri myndlist Neue Orchester mótettur meistara Bachs: Komm, Jesu, komm; Lobet den Herrn, alle Heiden; Fürchte dich nicht; Der Geist hilft unser Schwach- heit auf; Jesu, meine Freude og Sing- et dem Herrn ein neues Lied. Einar Jóhannesson klarínettleikari frum- flytur Bachbrýr eftir Atla Heimi Sveinsson á milli mótettnanna. Brjáluð hugmynd en engin helgispjöll Hörður Áskelsson segir í gamni, en þó með alvarlegum undirtón, að það SÍÐASTA helgi Kirkjulistahátíðar er runnin upp, en enn eru þó þrennir tónleikar eftir. Í dag kl. 18 verður leikið á klukkuspil Hallgrímskirkju, en fimmtán mínútum síðar hefjast barokktónleikar, þar sem flutt verða Gloria eftir Antonio Vivaldi fyrir ein- söngvara, kór og hljómsveit og hvíta- sunnukantatan Erschallet, ihr Lied- er, BWV 172, fyrir einsöngvara, kór og hljómsveit eftir Jóhann Sebastian Bach. Kammerkórinn Schola cantor- um, barokkhljómsveitin Das Neue Orchester frá Köln og einsöngvararn- ir Rannveig Sif Sigurðardóttir, sópr- an, Guðrún Edda Gunnarsdóttir, alt, Þorbjörn Rúnarsson, tenór og Davíð Ólafsson, bassi, flytja. Stjórnandi er Hörður Áskelsson. Einn frægasti organisti heims, Olivier Latry frá Notre Dame-kirkj- unni í París leikur á Klais-orgelið á tónleikum annað kvöld kl. 20, verk eftir Jóhann Sebastian Bach, César Franck, Louis Vierne, Marcel Dupré og fleiri, auk þess sem hann spinnur á orgelið stóra. Á lokatónleikum Kirkulistahátíðar á mánudagskvöld kl. 20 flytja Mót- ettukór Hallgrímskirkju og Das taki tuttugu ár að æfa mótettur Bachs. „Þegar Mótettukórinn var stofnaður var eitt af markmiðum mín- um að hann yrði nógu góður til að flytja þessi verk, og það gerðist fljót- ar en ég þorði þá að vona.“ Vafi leikur á því að Lobet den Herrn sé í raun og veru eftir Bach, og telur Hörður það reyndar ólíklegt. „Ég geri það þó fyr- ir kórfélaga okkar Halldór Hauksson að hafa hana með, því honum fannst ekki nægilega öruggt að hún væri ekki eftir Bach, til að hægt væri að sleppa henni. Fyrir mig, eftir öll þessi ár, er ég orðinn alveg óhræddur að ganga til leiks við þetta verkefni. Það er extra „kikk“, að mér finnst ég þekkja verkin út og inn, – en – engu að síður er alltaf eitthvað að koma manni á óvart í verkum Bachs, og verður ábyggilega alltaf, og það er það skemmtilega og stórkostlega við þessa tónlist.“ Hörður segir það hafa verið hug- mynd Halldórs Haukssonar að fá Atla Heimi Sveinsson til að semja verk sem tengdi mótetturnar saman. „Þetta er svolítið brjáluð hugmynd, inspíreruð af einhverju sem Halldór upplifði á Bachhátíðinni í Leipzig fyr- ir nokkrum árum. Þar voru menn að stilla upp þessum andstæðum, Bach og nýrri músík. Atli býr til forspil, millispil og eftirspil að öllum mótett- unum fyrir eitt klarínett. Útgangs- punktur hans er að byrja í þeirri tón- tegund sem verk endar í og hætta í þeirri sem næsta verk hefst í. Ég þori ekkert að fullyrða um þessa tónlist, en hún talar fyrir sig sjálf og með Einar Jóhannesson á klarínettið er víst að þetta verður gott. Þetta er óvenjuleg tilraun og örugglega engin helgispjöll.“ Ekki nægilega öruggt að mótettan sé ekki eftir Bach Morgunblaðið/Jim Smart Schola cantorum á æfingu undir stjórn Harðar Áskelssonar. ELÍSA Sigríður Vilbergsdóttir er einn þeirra fjölmörgu ungu söngv- ara sem hafa verið að hasla sér völl í útlöndum. Elísa hefur undanfarin ár verið við nám í Tónlistarháskól- anum í Lübeck í Þýskalandi, en áður var hún í söngnámi hjá Þuríði Pálsdóttur við Söngskólann í Reykjavík. Þótt námið í skólanum hafi verið yfirgripsmikið og krefjandi hefur Elísa haft gífurlega mikið að gera utan skólans. Í nóvember hélt hún einsöngstónleika í Lübeck og var í framhaldi af því beðin um að syngja víðar. Í annafríum hefur hún verið í starfi, sem margir myndu lík- lega telja draumastarf, við að syngja á skemmtiferðaskipi og sigla um leið um heimsins höf. „Ég komst í þetta gegnum kennarann minn, sem hefur góð sambönd víða. Ég er búin að fara í þrjár stórar ferðir á MS Deutschland, sem er eitt stærsta skip sinnar tegundar, en hef líka verið að syngja á fljótabátum á Dóná,“ segir Elísa. „Þetta hefur auðvitað verið frábært tækifæri mig, að geta unnið sem söngkona og verið í leiðinni að ferðast um heiminn. Það má segja að ég sé að syngja allt mögulegt, óperu- og óperettutónlist, söngleikjamúsík og ljóðasöngva. Ég notaði tækifærið þegar við sigldum milli Noregs, Fær- eyja, Hjaltlandseyja og Íslands að kynna íslenska tónlist og segja sögu íslenskrar tónlistar. Skipið skaffar píanóleikara og hann verður bara að vera fljótur að læra, því það er lítill tími til að æfa. Þetta hefur verið góð æfing í atvinnumennsku.“ Elísa segir að oft séu þekktir söngvarar og stjörnur ráðnar með minna þekktu söngvurunum, og þannig hafi hún kynnst mörgu mjög góðu tónlistarfólki og listamönnum. „Ég kynntist Peter Moss sem stjórn- ar BBC-hljómsveitinni í London og söngkonu sem hann hefur verið að vinna með. Síðan þá hef ég verið að koma fram með þeim nokkrum sinn- um, þar á meðal á áramótatónleikum í Düsseldorf.“ Í náminu hefur Elísa Sigríður þó átt annríkt, og haldið nokkra tón- leika, meðal annars tvenna ljóða- tónleika þar sem hún söng norræna tónlist. Í haust söðlar Elísa Sigríður um og fer til Princeton í Bandaríkj- unum, í mastersnám hjá kennara sem hún kynntist á námskeiði í Þýskalandi. Í framtíðinni er það svo óperusviðið sem heillar. „Það er búið að vera svo mikið að gera hjá mér meðfram náminu hér í Þýskalandi að ég vona að ég fái góðan tíma í haust til að einbeita mér að röddinni minni, læra hlutverk og undirbúa mig fyrir framtíðina.“ Elísa segist vera lýrískur sópran og syngja helst hlutverk á borð við Tatjönu í Évgeníj Onegin, Agötu í Freischütz og Seldu brúðina í sam- nefndri óperu Smetana. Syngjandi um heimsins höf Elísa Sigríður Vilbergsdóttir HULDA Halldórsdóttir myndlistarkona mun opna sína 14. einkasýningu í dag, laugardag, kl. 14. Sýningin verður haldin í 50 fm tjaldi sem tjaldað verður vestan megin við Kjarvalsstaði. „Myndverkin á sýningunni eru unnin úr tré, málmi og gleri og skírskota m.a. til áleitinna spurninga sem hver og einn hugsandi maður spyr sjálfan sig einhvern tímann á lífsleiðinni,“ segir í kynningu. Sýningin verður opin dag- lega frá kl. 10 til kl. 22 dag- ana 7. júní til 10. júní, jafnvel lengur ef veður og aðstæður leyfa. Sýning í tjaldi BRYNJA Dís Björnsdóttir opnar málverkasýningu í Hall- dórskaffi, Vík í Mýrdal, í dag. Þar sýnir hún 11 akrýlmálverk, unnin á þessu ári. Sýningin er opin á sama tíma og veitinga- húsið og stendur til 28. júní. Málverk í Halldórskaffi HIN ÁRLEGA handverkshá- tíð á Hrafnagili, Eyjafjarðar- sveit, verður haldin dagana 7.– 10. ágúst nk. Handverk 2003 er sölusýning handverksfólks sem haldin er á vegum Eyja- fjarðarsveitar og hefur þessi sýning fest sig í sessi sem ár- viss viðburður í sveitarfé- laginu. Framkvæmdaraðili sýningarinnar er Vín ehf. og framkvæmdastjóri hennar er Dögg Árnadóttir. Umsóknarfrestur fyrir sýn- endur er 10. júní nk. og er handverksfólk sem ætlar sér að taka þátt í sýningunni og /eða námskeiðum á vegum sýningarinnar hvatt til þess að hafa samband sem fyrst við Dögg Árnadóttur í síma 823- 3000 eða með tölvupósti á net- fangið handverkshatid@isl.is. Einnig má benda á heimasíðu sýningarinnar sem er www.handverkshatid.is en þar er að finna umsóknareyðublöð og helstu upplýsingar um há- tíðina. Handverks- hátíð á Hrafnagili
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.