Morgunblaðið - 07.06.2003, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 07.06.2003, Blaðsíða 24
NEYTENDUR 24 LAUGARDAGUR 7. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ INNFLYTJENDUR vítamínbættra matvæla og innlendir framleið- endur sem hyggjast setja slíka vöru á markað þurfa að sækja um leyfi til þess hjá Umhverfisstofnun, segir Steinar B. Aðalbjörnsson næringarfræðingur og fagsviðs- stjóri hjá stofnuninni. Hann segir jafnframt að Umhverfisstofnun þurfi að láta til sín taka á þessu sviði, þar sem ákveðið ósamræmi hafi skapast milli vörutegunda. Hefð sé orðin fyrir tilteknum víta- mín- og steinefnabættum vöruteg- undum á markaði, svo sem morg- unkorni, sem ekki hafi þurft að sækja um leyfi fyrir á sínum tíma. Þeir sem byrja framleiðslu eða innflutning slíkra matvæla nú þurfa hins vegar að fá leyfi, sem fyrr segir. Vítamínum og steinefnum hefur verið blandað í matvæli í áranna rás og segir Steinar það ýmist gert til þess að endurheimta magn sömu efna sem tapast hafi við vinnslu, meðhöndlun eða geymslu, eða til þess að búa til vöru sem jafngildi annarri sambærilegri matvöru á markaði. Þriðji möguleikinn er svokölluð íblöndun sem eykur nær- ingargildi matvöru neytendum til góða. Steinar segir ekkert launung- armál að mikið sé af vítamín- og steinefnabættri matvöru á boð- stólum hér á landi, til dæmis mun meira en þekkist á hinum Norð- urlöndunum. Innflutt morgunkorn er þekktasta dæmið. Morgunkorn er meðal annars blandað B-víta- mínum, járni og sinki. Brauð er kalkbætt. Ávaxtasafar eru einnig kalkbættir og við þá er blandað C-vítamíni, E- og A-vítamíni. Í mjólkurvörur er sett A- og D-víta- mín, hið sama gildir um smjör og smörlíki, sojamjólk er blönduð kalki og B-vítamíni og svo mætti lengi telja. Blöndun vítamína og steinefna í matvæli er söluhvetjandi auk þess sem þau eru talin bæta heilsu þeirra sem fá ekki nægilega mikið af tilteknum efnum í sínu mat- aræði. Almennur áhugi er á heilsu- rækt og hollu mataræði og finnst sumum að bætiefnablönduð mat- væli passi vel inn í þennan lífsstíl, segir Steinar ennfremur. Könnun á mataræði góð heimild Drög að reglugerð um blöndun vítamína og steinefna í matvæli hafa verið í vinnslu frá 1993. En þar sem reglugerðin hefur ekki verið fullunnin og gefin út hefur Umhverfisstofnun stuðst við bráða- birgðaákvæði í 19. grein reglu- gerðar um aukefni í matvælum nr. 285/2002, þar sem segir að stofn- unin geti veitt leyfi til notkunar bætiefna í matvæli. Með bætiefnum er átt við vítamín, steinefni og lífs- nauðsynlegar fitu- og amínósýrur. Við mat á vöru er stuðst við nýj- ustu vísindalegar upplýsingar hverju sinni er varða skaðsemi eða skaðleysi tiltekinna efna og mið jafnframt tekið af þörf almennings eða tiltekinna þjóðfélagshópa fyrir viðbótarvítamín og steinefni. „Niðurstöður nýjustu landskönn- unar Manneldisráðs á mataræði Ís- lendinga hafa vakið athygli okkar. Þar kemur fram að vissir hópar samfélagsins fá ekki jafn mikið af sumum vítamínum og steinefnum og æskilegt getur talist. Þá er spurningin hvort einhver eigi að grípa inn í. Niðurstöður sem þessar eru mikilvægar þegar fjallað er um bætiefnabætta vöru,“ segir hann. Sem fyrr segir eru engar reglu- gerðir fyrir hendi sem taka ná- kvæmlega til matvæla með við- bættum vítamínum eða steinefnum og gildir það jafnt um hvaða efnum má bæta við mat og í hvaða magni. Slík reglugerð hefur verið yfir- vofandi frá Evrópusambandinu og hafa drög að henni verið fyrirliggj- andi frá árinu 2000. Í henni yrðu ákvæði um vítamín og steinefni, en ekki lífsnauðsynlegar amínósýrur eða fitusýrur. Einnig stendur til að í reglugerðinni verði viðauki með lista yfir efni sem eru undir smásjá ESB, efni með tiltekin hámarks- gildi í 100 ml eða 100 g, svo sem koffín, sem og listi yfir bönnuð efni, hugsanlega efedrín og kava kava. Þar sem um reglugerð frá ESB er að ræða en ekki ekki tilskipun, munum við þurfa að innleiða hana án breytinga og segir Steinar að í henni felist meðal annars að heim- ilt verði að banna markaðssetningu á tiltekinni vöru komi fram vís- indalegar upplýsingar um skað- semi bætiefna í henni. Einnig megi taka vöru af markaði óttist heilbrigðisyfirvöld ofneyslu á til- teknu bætiefni hjá þjóðinni yrði viðkomandi vara leyfð. Þegar búið er að samræma reglur um hámark vítamína og steinefna í matvöru á Evrópska efnahagssvæðinu verður flæði slíkrar vöru milli landa frjálst og einungis hægt að taka hana af markaði með fyrrgreindum rök- um. Slíka ákvörðun þarf jafnframt að styðja með vísindalegum gögn- um sem tekin verður afstaða til innan sex mánaða hjá Evrópusam- bandinu. Ekki mun þurfa að sækja um leyfi til innflutnings hjá Umhverf- isstofnun og í besta falli verða ný bætiefnabætt matvæli tilkynnt til yfirvalda. Munu fyrirtæki geta til- kynnt vöru sem leyfð hefur verið á markaði innan EES, svo fremi að hún falli að ákvæðum reglugerð- arinnar. Blöndun bætiefna verður óheimil í ávexti, grænmeti, kjöt og fisk, sem og drykki þar sem áfeng- ismagn fer yfir 1,2 prósent. Vítamínbætt gos? Ekki verður hins vegar tekin af- staða til bætiefna í matvælum með miklu fitu- og sykurinnihaldi í fyr- irhugaðri reglugerð Evrópusam- bandsins, en blöndun bætiefna í vöru sem almennt er ekki talin hluti af hollu mataræði er óheimil meðal annars í Kanada og á Nýja Sjálandi, segir Steinar. Telur hann að slíkt ákvæði væri heppilegt og er möguleikinn á því að slíkt ákvæði fari inn í fyrirhugaða reglugerð ESB enn fyrir hendi. Steinar kveður margar ástæður vera fyrir því að íslensk reglugerð um vítamín og steinefni sé ekki tilbúin. „Hún hefði þurft að vera opin á ákveðinn hátt þar sem ekki er búið að skilgreina hámark víta- mína og steinefna í matvælum og hvert land með sínar reglur í þeim efnum. Vandamálið er líka hvað á að gera við vörur sem þegar eru á markaði en reynast hugsanlega óleyfilegar þegar reglugerð Evr- ópusambandsins liggur fyrir. Í sumum gerðum morgunkorns er járninnihald 27 mg í 100 g. Hvað gerist ef ESB ákveður að efri mörk fyrir járn í morgunkorni verði til að mynda 20 g í 100 g? Yrði þá ætl- ast til þess að við myndum fjar- lægja Cheerios af markaði? Þetta á hins vegar allt eftir að koma í ljós,“ segir Steinar B. Aðalbjörnsson að síðustu. Mikið af bætiefna- blandaðri matvöru á markaði hér Morgunblaðið/Kristinn Margar vörutegundir eru vítamínbættar hér á landi en sækja þarf um sér- stakt leyfi fyrir innflutningi þeirra. Meira er af matvöru sem blandað hefur verið við vítamínum og steinefnum hérlendis en ann- ars staðar, skrifar Helga Kristín Einarsdóttir. Beðið er eftir reglugerð ESB um bætiefni í mat sem gæti hugsanlega valdið breytingum við morgunverðarborð margra. hke@mbl.is ÍSLENSKAR gulrætur eru komn- ar á markað, nokkru fyrr en búist var við vegna góðrar tíðar að und- anförnu,“ segir í frétt frá garð- yrkjubændum. „Þær gulrætur sem koma nú fyrst á markað eru ræktaðar af Degi Andréssyni bónda í Sólbyrgi í Borgarfirði. Þær þykja sérlega bragðgóðar, og ekki þarf að hafa mörg orð um hollustuna. Gulræt- urnar eiga það sammerkt með öðru íslensku grænmeti sem nú streym- ir á markað, að þær eru komnar í verslanir daginn eftir að þær eru teknar upp og þannig næst að tryggja ferskleika og bragðgæði,“ segir ennfremur. Gulrætur eru góðar einar og sér og þægilegar að grípa til milli mála. Þær eru einnig heppilegar í salat, benda garð- yrkjubændur jafnframt á og láta þessa uppskrift að einföldu og fljót- legu salati fylgja. Fljótlegt gulrótarsalat Rifnar gulrætur Rúsínur Ristuð sesamfræ Lime safi Ólífuolía Salt og pipar Ljósmynd/Haraldur Jónasson Gulrætur eru bragðgóðar og hollar. Þær eru líka tilvaldar í ýmsa rétti. Íslenskar gulrætur komnar á markað
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.