Morgunblaðið - 07.06.2003, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 07.06.2003, Blaðsíða 6
FRÉTTIR 6 LAUGARDAGUR 7. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ Tangarhöfða 1 • 110 Reykjavík • Símar 567 2357 og 893 9957 Opið laugardag og sunnudag frá kl. 13-16 Benimar húsbílarnir eru sannkallaðir glæsivagnar með vönduðum innréttingum, örbylgjuofni, sólarrafhlöðu, tengingu f. sjónvarp o.fl. Einn með öllu. Húsbílasýning í Vestmannaeyjum Laugardag, sunnudag og mánudag Umboð á Akureyri Sigurður Valdimarsson Óseyri 5 - Sími 462 2520 VILHJÁLMUR Þ. Vilhjálmsson, nýr oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn, segir að samkvæmt lögum beri sveitarfélögum ekki skylda til að greiða 40% af stofn- kostnaði framhaldsskóla. Hann fagnar grunni að samkomulagi milli ríkis og Reykjavíkurborgar, eftir ágreining sem uppi hefur verið, og borgin fallist á að borga á næstu ár- um 300 milljónir króna í stofnkostn- að framhaldsskóla. Þórólfur Árnason borgarstjóri fagnaði þessari afstöðu sem kom fram í ræðu Vilhjálms á borgar- stjórnarfundi á fimmtudag. „Þar var staðfestur sá skilningur, sem borg- aryfirvöld hafa haft, að sveitarfélög hafa fullan rétt á að hafna 40% þátt- töku í stofnkostnaði framhaldsskól- anna.“ Þórólfur sagði Reykjavíkurborg hafa góða stöðu í málinu. Lagðir hafi verið til hliðar umtalsverðir fjár- munir í þriggja ára áætlun borgar- innar, alls 300 milljónir, sem verði lagðir til grundvallar í því sam- komulagi sem gert verði við menntamálaráðuneytið fljótlega. „Það er mjög mikilvægt að borg- arfulltrúar standi saman í þessu mikla hagsmunamáli um bættan framhaldsskóla í Reykjavíkurborg,“ sagði Þórólfur. Vilhjálmur sagði að setja ætti fyr- irvara við þessar greiðslur ef um semjist að ríkisvaldið taki þennan kostnað alfarið á sig eins og borgin taki á sig allan stofnkostnað grunn- skóla. „Ég er fylgjandi verkaskipt- ingu.“ Með skólana í gíslingu Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarfulltrúi þakkaði oddvita sjálf- stæðismanna fyrir að taka þetta fram. Afstaða hans ætti samt ekki að koma á óvart þar sem þetta hefði verið skoðun meirihlutans í stjórn- artíð Davíðs Oddssonar. Álitsgerðir borgarlögmanns og Sigurðar Líndal lagaprófessors renni einnig stoðum undir þessa skoðun. „Í rauninni skellti ríkisvaldið skollaeyrum við þessu og má segja að það hafi tekið gömlu mennta- skólana, þá vil ég sérstaklega nefna MR, í gíslingu.“ Ingibjörg sagði fjármuni til, sem voru teknir til hliðar á fjárlögum og áttu að fara að fara í endurbætur á MR. Nefnd um opinberar fram- kvæmdir á vegum ríkisins hafi hins vegar bannað að framlagið færi í framkvæmdir við MR nema til kæmi 40% framlag Reykjavíkur- borgar. Þetta sé ekkert annað en að taka nemendur í gíslingu þangað til Reykjavíkurborg reiði fram greiðslu. „Þetta er auðvitað óviðun- andi fyrir sveitarfélag, að búa við þetta í samskiptum við ríkisvaldið.“ Hún sagði sveitarstjórnarmenn sammála um þetta og ganga eigi frá samningum þannig, hvort sem er um ræða eldri eða nýja framhalds- skóla, að stofnkostnaður verði allur á ábyrgð ríkisvaldsins. „Það er lang- eðlilegast og best. Þá þurfa menn ekkert að fjalla um þetta á milli sín eða deila um þetta.“ Oddviti sjálfstæðismanna sammála fulltrúum R-listans Ríkið standi undir stofn- kostnaði framhaldsskóla BJÖRN Bjarnason dómsmálaráð- herra segist fagna efnislegri niður- stöðu Persónuverndar í nýlegum úr- skurði hennar varðandi gerð skráa yfir félagsmenn í Falun Gong-hreyf- ingunni og notkun skráanna. Í úr- skurðinum segir m.a. að gerð slíkra skráa og frekari notkun þeirra geti verið lögleg. „Við teljum að hin efn- islega niðurstaða varðandi réttar- stöðu borgaranna sé í samræmi við það sem var gert og sýni fram á að í því efni hafi ekki verið brotið á rétti þeirra einstaklinga sem um var að ræða með þeim aðgerðum sem lög- reglan greip til,“ segir Björn. Fjallað um stjórnsýslumál án þess að lög feli nefndinni slíkt Persónuvernd segir á hinn bóginn að dómsmálaráðuneytinu hafi verið óheimilt að miðla upplýsingum um einn meðlim í Falun Gong til Flug- leiða og sendiráða Íslands í því skyni að hindra komu hans til landsins í fyrra. Björn telur, að Persónuvernd sé þarna að fjalla um stjórnsýslumál- efni, án þess að lög feli henni slíkt hlutverk. Þann þátt málsins muni hann athuga nánar. Nánar tiltekið segir í úrskurðinum að lögreglu sé heimilt að dreifa upplýsingum í ör- yggisskyni, en slíkt sé hins vegar ekki á valdi dómsmálaráðherra, enda sé hann ekki handhafi lögreglu- valds. Því hafi ráðuneytinu ekki ver- ið heimilt að dreifa upplýsingunum eins og gert var. „Ég tel að stjórn Persónuverndar eigi að einbeita sér að verkefnum, sem varða réttarstöðu borgaranna í samræmi við lögbundið hlutverk sitt. Stjórnsýsluleg álitaefni um réttar- stöðu ríkislögreglustjóra gagnvart dómsmálaráðuneytinu eru annars eðlis.“ Björn Bjarnason dómsmálaráðherra Fagnar efnislegri niðurstöðu Persónuverndar HAFNARFJÖRÐUR fékk kaupstaðarréttindi 1. júní 1908 og í tilefni 95 ára afmælisins hefur bærinn komið eftirlíkingu af Hafnarfjarðarvitanum fyrir á hringtorgi við Strandgötu. Agnar Egilsson og Örn Arnarsson, starfsmenn þjónustumiðstöðvar Hafnarfjarðar, komu vitanum fyrir. Morgunblaðið/Kristinn Hafnfirskur viti á hringtorginu LÖGREGLAN á Ísafirði rannsakar nú hvort brotin hafa verið ákvæði reglugerðar um flutning á hættuleg- um efnum í kjölfar þess að flutninga- bifreið frá Íslenska gámafélaginu stóð næturlangt á bifreiðastæði í miðbæ Ísafjarðar með sóttmengað- an úrgang í opnum gámi. Í bifreið- inni var úrgangur af rannsóknastof- um, s.s. sprautunálar, glös, pappa- umbúðir og slíkt. Gámurinn var opinn sökum þess að efri hluti hler- ans hafði fallið af og segir Jón Frantzson, framkvæmdastjóri Ís- lenska gámafélagsins, að vanrækslu bílstjórans í umrætt skipti sé um að kenna. Úrgangurinn var á leið í sorp- eyðingarstöðina Funa á Ísafirði og var hafist handa við að afferma bif- reiðina í gær. „Það verður farið yfir stöðluð vinnubrögð starfsmanna til að koma í veg fyrir að þetta end- urtaki sig,“ segir Jón. Segir hann fé- lagið hafa réttindi sem veiti leyfi til að flytja allar tegundir úrgangs. Mengaður úrgangur í opnum gámi NÍTJÁN ára gamall piltur hefur játað á sig bankaránið í útibúi Landsbankans í Grindavík á fimmtudag og var hann úrskurðaður í sólar- hringsgæsluvarðhald. Þýfið fannst í gær í svartri tösku í vegkantinum nærri Reykjanes- vita, en það voru erlendir ferðamenn á gangi sem fundu töskuna og fyrir tilviljun og komu henni tafarlaust til lögreglunnar. Pilturinn mun hafa hent töskunni frá sér út úr bíl sem hann ók, þegar hann sá til aðgerða lögreglunnar í ná- grenni Grindavíkur. Henti frá sér ránsfengnum og samfestingi Við yfirheyrslur vísaði hann á stað þar sem hann henti frá sér bláum samfestingi, grænni lambhúshettu og skóm sem hann var klæddur þegar hann framdi ránið og eldhúshnífi með um 20 cm löngu blaði sem hann notaði til að ógna starfsfólki bankans með. Um er að ræða sama mann og sætti gæsluvarðhaldi fyrir vopnað bankarán í Sparisjóði Hafnarfjarðar í apríl sl. Í ráninu í fyrradag stökk pilturinn yfir afgreiðslu- borð og ógnaði þar með hnífi gjaldkera sem forðaði sér út úr bankanum ásamt öðrum starfs- manni og tilkynnti um ránið. Pilturinn fór í gjaldkerakassa og tók þaðan peninga sem hann bar út í plastpoka. Lögreglan vill ekki upplýsa hve mikla fjármuni um ræðir. Undankomuleiðum frá Grindavík lokað Lögreglan lokaði á skömmum tíma öllum und- ankomuleiðum frá Grindavík og skömmu síðar eða kl. 13.12 stöðvaði hún fólksbifreið á Reykja- nesi á veginum til Hafna og handtók þar 19 ára gamlan mann sem gat passað við lýsingu á brotamanninum. Hann var þó ekki klæddur þeim fatnaði sem ránsmaðurinn hafði verið í. Lögreglan segir að pilturinn muni hafa klætt sig úr samfestingnum og ekkert þýfi fannst í bílnum. Góðar myndir fengust úr eftirlits- myndavélum í Landsbankanum og segir lög- regla að þær hafi hjálpað til við rannsókn máls- ins. Lögreglan hóf leit að þýfinu með leitarhund- um og björgunarsveitum sem kallaðar voru til aðstoðar. Sporhundur rakti slóð ræningjans frá bankanum að bifreiðaplani skammt frá þar sem ætla má að hann hafi farið upp í bifreið. Sporhundur rakti slóð bankaræningja Landsbankans í Grindavík 19 ára piltur játar á sig ránið Ljósmynd/Hilmar Bragi Bárðarson Fötin sem bankaræninginn klæddist ásamt vopn- inu sem hann bar til að ógna starfsfólki bankans.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.