Morgunblaðið - 07.06.2003, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 07.06.2003, Blaðsíða 19
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. JÚNÍ 2003 19 Garðyrkjumeistarinn ehf. sími 552 6824 og 896 6824. Netfang kriarn@ismennt.is Alhliða garðyrkjuhandbók ÞAÐ voru átta ára börn úr Öldu- selsskóla sem komu fyrst í hús með líkan af umferðarljósum, en líkanið er hluti af hönnunarverkefni á veg- um Eldflugunnar. Að sögn Önnu Fr. Kristjáns- dóttur, framkvæmdastjóra Íslenska lögregluforlagsins, er Eldflugan rafrænt verkefni ætlað til umferð- arfræðslu átta ára barna á Íslandi, en það samanstendur af átta verk- efnapökkum og inniheldur hver pakki sex verkefni. Hönnuð hefur verið fígúran Elli eldfluga sem stendur sem tákn fyr- ir verkefnið, en Eldflugur lýsa í myrkri og vísa því til endurskins- merkja. „Við erum í samstarfi við alla grunnskóla á Ís- landi. Þeir kennarar, sem vilja taka þátt, prenta út verkefnin og láta börnin leysa þau. Síðan er sam- keppni milli skólanna um besta hönnunarverkefnið og sá bekkur sem skilar besta verkefninu að mati dóm- nefndar fær í verðlaun PC-tölvu með stafrænni myndavél,“ segir hún. Hún bendir á að sá bekkur sem vinni tölvuna flytji hana með sér á milli ára, hún eigi að vera það vönduð að hún dugi í nokkur ár. Anna segir að í júní verði verk- efnin tekin út af síðunni og hún þróuð áfram. „Síðan koma þau inn á ný næsta vetur, aftur fyrir átta ára bekk og þá byrjar þetta allt saman upp á nýtt. Verkefnin verða þróuð og það koma inn nýjar persónur, til dæmis Jómbi járnsmiður og Frikka fiðrildi.“ Að hennar sögn er allt efnið sam- ið af kennara sem heitir Unnur María Sólmundsdóttir og flokkast verkefnið undir lífsleikni. Kári Gunnarsson teiknar Ella Eldflugu og hinar væntanlegu fígúrur. Verkefnið hefur fengið mjög góða dóma „Verkefnið hefur fengið mjög góða dóma og við höfum heyrt í mjög mörgum aðilum sem telja þetta verkefni vera best sinnar teg- undar og að efnið sé nálgast á allt annan hátt en verið hefur,“ segir hún. Hún bætir við að Íslenska lög- regluforlagið gefi verkefnið út og hafi umsjón með því. Hönnun umferðarljósa hluti af fræðslu átta ára barna Reykjavík Morgunblaðið/Arnaldur 8 ára börn úr Ölduselsskóla með líkanið sem er hluti af umferðarverkefni. BÆJARRÁÐ Garðabæjar sam- þykkti á fundi sínum þann 3. júní síð- astliðinn að skrifa undir verksamn- ing við Íslenska aðalverktaka um frávikstilboð þeirra um byggingu stærri gerðar íþróttahúss í Hofs- staðamýri í Garðabæ. Í fréttatil- kynningu frá Garðabæ segir að í út- boðs- og verklýsingu fyrir húsið hafi annars vegar verið óskað eftir til- boðum miðað við eiginframkvæmd og hins vegar einkaframkvæmd. Einnig var óskað eftir frávikstilboð- um í stærri gerð af húsi. Tilboð ÍAV var miðað við eiginframkvæmd og var tilboð þeirra innan kostnaðar- áætlunar sem hljóðaði upp á um 515 milljónir króna fyrir minni gerð hússins. Bygging hússins er stór áfangi í íþróttamálum í Garðabæ, segir í til- kynningunni, þar sem aðstaða til innanhússíþrótta aukist verulega með tilkomu þess. Í íþróttahúsinu verður meðal annars tvöfaldur hand- boltavöllur. Einnig verður í húsinu kennslusundlaug með heitum potti, sex búningsklefar og hlaupabraut. Öll íþróttakennsla Hofsstaðaskóla flyst í húsið og einnig mun Fjöl- brautaskólinn í Garðabæ fá afnot af húsinu. Þá segir að öll aðstaða íþróttafélagsins Stjörnunnar til æf- inga innanhúss batni mjög með til- komu hússins en brýn þörf er á slíkri viðbót hjá félaginu. Önnur íþrótta- félög og samtök munu einnig geta nýtt húsið. Úti og Inni arkitektar teiknuðu húsið, en verkfræðivinnu annaðist VSÓ Ráðgjöf og Landslag ehf. teikn- aði lóðina. Stefnt er að því að fram- kvæmdir hefjist í júní og að húsið verði tekið í notkun haustið 2004. Samið við ÍAV um byggingu íþróttahúss Garðabær FYRSTA skóflustungan var tekin að nýjum grunnskóla í Grafarholti í gær, Ingunnarskóla. Skólinn, sem er fyrir nemendur í 1.–10. bekk, hef- ur þegar hafið störf í bráðabirgða- húsnæði en nýja húsnæðið verður 5.700 fermetrar að meðtöldum íþróttasal og rými fyrir tónlistar- skóla. Ráðgert er að taka nýja hús- næðið í notkun að hluta haustið 2004 og að skólinn verði fullbúinn haustið 2005. Ingunnarskóli er um margt frá- brugðinn eldri skólabyggingum í Reykjavík og fyrsta nýja skólabygg- ingin sem Reykjavíkurborg reisir á 21. öldinni. Í skólanum verða fimm meginvinnusvæði nemenda. Í miðri byggingunni verður stórt miðrými sem rúmar sal, veitingaaðstöðu og skólasafn. Skólastjóri Ingunnar- skóla er Guðlaug Sturlaugsdóttir. Morgunblaðið/Árni Torfason Þórólfur Árnason borgarstjóri aðstoðar nemanda við skólann við fyrstu skóflustunguna í gær. Nýja húsnæðið verður að hluta tekið í notkun 2004. Ingunnarskóli full- búinn haustið 2005 Grafarholt LINDASKÓLI fékk á dögunum af- hentan Grænfánann sem Land- vernd veitir fyrir framúrskarandi starf að umhverfisvernd og um- hverfis- og náttúrufræðslu í skól- um. Síðastliðinn mánudag fékk Þykkvabæjarskóli afhenta sams- konar viðurkenningu. Fánann fá skólar í kjölfar þess að hafa leyst fjölþætt verkefni sem efla vitund nemendanna, kennara og annarra starfsmanna skólans um umhverfismál. Verkefnin eru bæði til kennslu og til að bæta dag- legan rekstur skóla. Í tilkynningu frá Landvernd segir að reynslan í Evrópu sýni að skólar sem taki þátt í verkefninu geti sparað talsvert í rekstrinum. Sex aðrir skólar á Íslandi hafa áður fengið Grænfánann en þeir eru Selásskóli og Fossvogsskóli í Reykjavík, Andakílsskóli í Borg- arfirði, Engidalsskóli og leikskól- inn Norðurberg í Hafnarfirði og Lýsuhólsskóli á Snæfellsnesi. Tólf skólar vinna nú að því að fá Græn- fánann. Lindaskóli fékk Grænfánann Kópavogur Morgunblaðið/Jim Smart Grænfáninn sem forsvarsaðilar Lindaskóla veittu viðtöku á dögunum fyrir framúrskarandi starf að umhverfisvernd og umhverfis- og náttúrufræðslu. SJÖ af ellefu sölustöðum mynd- banda í Hafnarfirði leigðu börnum bannaðar myndir, að því er fram kemur í könnun sem forvarnarnefnd Hafnarfjarðar stóð nýverið fyrir. Tólf ára gamalt barn fór ásamt starfsmanni á myndbandaleigurnar og reyndi að leigja mynd sem er bönnuð innan 16 ára. Fjórir aðilar neituðu að leigja barninu bannaðar myndir. Í tilkynningu frá Hafnar- fjarðarbæ segir að forvarnanefnd muni halda áfram að gera slíkar kannanir þar til allir aðilar sem leigi myndbönd framfylgi settum reglum. Leigðu út bannmyndir Hafnarfjörður
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.