Morgunblaðið - 07.06.2003, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 07.06.2003, Blaðsíða 21
SUÐURNES MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. JÚNÍ 2003 21 FYRIR GARÐEIGENDUR SEM VILJA GÓÐ VERKFÆRI SLÁTTUORF GARÐSLÁTTUVÉLAR GARÐSLÁTTUVÉLARSLÁTTUORF HEKK KLIPPUR HANDSLÁTTUVÉLAR REYKJAVÍK: Ármúla 11 - Sími 568-1500 AKUREYRI: Lónsbakka, Glæsibæjarhreppi - Sími 461-1070 ÞAR SEM GÓÐU GARÐVERKFÆRIN FÁST Létt og lipur. Fyrir sumar- bústaðinn og heimilið Sú græna góða. 4,75 hp - 6,5 hp Sú mest selda. 3,5 hp - 6 hp Fyrir þá sem vilja „alvöru“ hekkklippur „Bumbubaninn“ sem bregst ekki Hörkuorf fyrir alla sláttumenn HJALTI Guðmundsson ehf. átti lægsta tilboð í nýbyggingu Fjölbrautaskóla Suðurnesja en tilboð voru opnuð í gær. Jafnframt kom í ljós að matsnefnd taldi tillögu fyrirtækisins þá bestu. Mun bygginganefnd ganga til samn- inga við fyrirtækið um byggingu hússins. Sveitarfélögin á Suðurnesjum og ríkið náðu á dögunum samkomulagi um byggingu 2.800 fermetra húss við Fjölbrautaskóla Suðurnesja í Keflavík. Ríkið greiðir ákveð- inn hluta kostnaðar á nokkrum árum en sveitarfélögin standa fyrir framkvæmdinni og fjármögnun hennar. Fimm fyrirtækjum var gefinn kostur á að bjóða í verkið í alútboði. Skiluðu þau til- boðum í tvennu lagi, annars vegar hönnun og útfærslu byggingarinnar og hins vegar verði. Matsnefnd hefur farið yfir hönnun hússins og gerði grein fyrir niðurstöðum sínum í gær, áður en verðtilboðin voru opn- uð. Nefndin gaf tillögu byggingaverktakans Hjalta Guðmundssonar ehf. í Keflavík hæstu einkunn, 1,18, en hæst var hægt að gefa 1,20. Arkitekar Skógarhlíð teiknuðu bygg- inguna. Hugmyndin fær mjög góða umsögn eins og þetta bendir til, sérstaklega er tekið fram að aðkoma sé glæsileg en aðalinn- gangur skólans á að vera um þessa nýbygg- ingu og hefur byggingarnefnd lagt áherslu á að hún yrði vegleg. Hugmynd Íslenskra aðalverktaka fékk einkunnina 1,12 en tillögur Húsagerð- arinnar, Ístaks og Keflavíkurverktaka fengu lægri einkunnir. Þegar verðtilboð voru opnuð kom í ljós að tilboð Hjalta Guðmundssonar var lægst, rúmar 369 milljónir kr. Hin tilboðin voru á bilinu 397 til 567 milljónir kr. Kostnaðar- áætlun var um 356 milljónir. Hjálmar Árnason, formaður bygging- arnefndar, lýsti því yfir að gengið yrði til samninga við Hjalta Guðmundsson ehf. um byggingu hússins. „Ég get ekki verið annað en sáttur. Tillagan sem fékk fyrstu einkunn hjá okkur í dómnefndinni er ódýrust,“ sagði Ólafur Jón Arnbjörnsson skólameistari að athöfn lokinni. Samið verður við Hjalta Guðmundsson ehf. um byggingu húss fyrir Fjölbrautaskóla Suðurnesja Besta tillagan reyndist ódýrust Aðalinngangur fjölbrautaskólans verður í nýja húsinu sem Arkitektar Skógarhlíð hanna. Keflavík TÓFTIR fimm húsa virðast vera við landnámsskálann í Vogi í Höfnum. Til þess benda niðurstöður jarðsjármælinga sem breskur vísindamaður gerði í vor. Bjarni F. Einarsson fornleifafræðingur fann landnámsskál- ann í túni við Kirkjuvogskirkju í Höfnum á liðnum vetri þegar hann vann að fornleifaskráningu vegna skipulagsmála fyrir Reykjanesbæ. Niðurstöður aldursgreiningar á viðarkolasýn- um sem fundust við uppgröft benda til að skálinn sé frá níundu öld eða eldri. Bjarni taldi að fleiri byggingar eða aðrar mannvistarleifar væru í nágrenni skálans og var Tim Horsley jarðeðlisfræð- ingur sem er í doktorsnámi við háskólann í Bradford á Eng- landi fenginn til að gera viðnáms- og segulmælingar á svæðinu. Niðurstöður hans benda til að þrjú lítil hús séu austan við skál- ann og tvær ógreinilegar rústir vestan og norðvestan við hann. Vegna mælinganna var tekið hálfs metra lag ofan af svæð- inu. Þegar tyrft var aftur yfir svæðið var hlaðið nokkrum lög- um af torfi þar sem útveggir hans eru undir auk þess sem hraunhellur voru settar í miðjuna til að líkja eftir langeldi og bæjarhella við hugsanlegan inngang. Samkvæmt upplýsingum Sigrúnar Ástu Jónsdóttur, forstöðumanns Byggðasafns Reykjanesbæjar, er þetta gert til þess að gestir og gangandi geti virt fyrir sér hvernig skálinn getur hafa litið út. Niðurstöður viðnámsmælinga á landnámsbænum í Vogi Útlínur skálans eins og viðnámsmælingar sýna hann eru teiknaðar inn á myndina með grænum lit. Austan við skálann (neðan við hann á mynd- inni) eru leifar af torfi og grjóti og þar hafa lík- lega verið þrjú minni hús. Vestan og norðvestan við skálann (ofan við hann) eru tvær ógreinilegri rústir merktar með rauðu. Fimm hús í kringum land- námsskálann Hafnir UMBOÐSMAÐUR Alþingis telur ekki forsendu til að gera athuga- semd við þá niðurstöður heilbrigð- isráðherra að Sigríður Snæbjörns- dóttir skyldi skipuð í starf framkvæmdastjóra Heilbrigðis- stofnunar Suðurnesja þar sem hún teldist hæfust umsækjenda. Skúli Thoroddsen lögfræðingur sem var meðal umsækjenda um embættið kvartaði til umboðsmanns í lok síðasta árs yfir þeirri ákvörðun ráðherra að skipa Sigríði. Óskaði hann eftir því að umboðsmaður léti í ljós álit sitt á því hvort ákvörðunin stangaðist á við lög eða hvort brotið hefði verið gegn venjum, almennum trúnaði og/eða vönduðum stjórn- sýsluháttum. Fram kom á sínum tíma að sér- stök hæfnisnefnd raðaði Sigríði og Skúla í fyrsta sæti umsækjenda og stjórn Heilbrigðisstofnunar Suður- nesja mælti með ráðningu Skúla. Jón Kristjánsson heilbrigðisráð- herra ákvað að skipa Sigríði í emb- ættið á þeirri forsendu að fram- kvæmdastjórar þyrftu að hafa sérþekkingu á rekstri sjúkrahúsa en lét þess einnig getið í frétta- tilkynningu að mið hefði verið tekið af ákvæðum jafnréttislaga. Í rökstuðningi heilbrigðisráðu- neytisins er ítrekað það mat ráð- herra að Sigríður hafi verið hæfust umsækjenda. Umboðsmaður telur að þau sjónarmið sem fram koma í rökstuðningi ráðuneytisins verði að teljast málefnaleg. „Þegar á heild- ina er litið og að teknu tilliti til þess að ályktun handhafa veitingarvalds um starfshæfni umsækjenda er ávallt að ákveðnu marki háð óvissu sem ekki verður undan vikist tel ég ekki forsendu til að gera athuga- semd við þá niðurstöðu að Sigríður skyldi skipuð í starfið þar sem hún teldist hæfust umsækjenda,“ segir í álitinu sem sent hefur verið máls- aðilum. Umboðsmaður Alþingis um HSS Mun ekki gera athugasemd við ráðningu Sigríðar Keflavík
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.