Morgunblaðið - 07.06.2003, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 07.06.2003, Blaðsíða 23
Íþróttamaður Þórs í Þorlákshöfn, Finnur Andrésson, fyrir miðri mynd í aftari röð, aðrir á myndinni, aftari röð frá vinstri: Júlíana Ármannsdóttir, Elísabet Ásta Bjarkadóttir, Hjörtur Sigurður Ragnarsson og Jóhanna Hjartardóttir, formaður fimleikadeildar. Fremri röð frá vinstri: Karen Ýr Sæmundsdóttir, Hanna Guðrún Gestsdóttir, Sigurður Fannar Vilhelmsson og Hekla Þöll Stefánsdóttir. Morgunblaðið/Jón H. Sigurmundsson Á AÐALFUNDI Ungmennafélagsins Þórs í Þorlákshöfn var Finnur Andrésson valinn íþróttamaður félagsins fyrir síðast- liðið ár. Finnur sem er nítján ára var einn þeirra sem skilaði körfuknattleiksliði félagsins upp í úrvalsdeildina í vor. Finnur hefur verið valinn í unglingalandsliðið í sínum aldursflokki og ætlar sér stóra hluti í framtíðinni. Deildir félagsins velja úr sín- um hópi íþróttamann deildarinnar og eins efnilegan íþrótta- mann. Úr þessum hópi er síðan valinn íþróttamaður félagsins og efnilegur íþróttamaður. Að þessu sinni var Hjörtur Sigurður Ragnarsson valinn efnilegur íþróttamaður. Hann er einnig körfuknattleiksmaður. Fimleikamaður var valinn Júlíana Ár- mannsdóttir og efnileg fimleikastúlka var Hanna Guðrún Gests- dóttir, badmintonmaður var Karen Ýr Sæmundsdóttir og Sig- urður Fannar Vilhelmsson var valinn efnilegur badminton- spilari. Elísabet Ásta Bjarkadóttir var valin frjálsíþróttamaður og Hekla Þöll Stefánsdóttir efnileg frjálsíþróttakona. Fimleika- deildin fékk viðurkenningu fyrir öflugt starf. Finnur Andrésson körfuknattleiksmaður er íþróttamaður Þórs Ætlar sér stóra hluti í framtíðinni Þorlákshöfn SÉRA Bára Friðriksdóttir hefur þjónað Hveragerðis- og Kotstrand- arsókn sl. níu mánuði í námsleyfi séra Jóns Ragnarssonar. Síðasta messa séra Báru fór haldin fyrir skömmu og breytti hún út af van- anum og bauð kirkjugestum með sér í gönguferð um bæinn. Á völdum stöðum var stansað og þar las hún úr biblíunni þar sem talað er um gróð- ur, tré og ávöxt ræktunar. Líkinga- mál sem Jesús notaði til að útskýra ýmis mál. Veðrið var ekki mjög gott, það var nánast slagveður, en Bára lét það ekki aftra sér frá því að ganga um bæinn. Göngu- messa séra Báru Hveragerði Morgunblaðið/Margrét Ísaksdóttir Séra Bára Friðriksdóttir kvaddi sóknarbörn sín með göngumessu í slagveðri. Með henni er formaður sóknarnefndar sem hélt á regnhlíf yfir prestinum. ÁRBORGARSVÆÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. JÚNÍ 2003 23 BARNASKÓLANUM á Eyrar- bakka og Stokkseyri verður slitið í dag, laugardaginn 7. júní kl. 16, í Hólmarastarhúsinu á Stokkseyri. Sá stórviðburður verður að við það tækifæri mun Sinfóníuhljómsveit Ís- lands halda almenna tónleika í Hólmaröst kl. 15. Nemendur 1.–5. bekkjar skólans munu syngja 2 lög við undirleik Sinfóníunnar og Krist- ína Guðnadóttir nemandi í 10. bekk syngur einsöng með kórnum og sveitinni. Þannig setur skólinn punktinn yfir i-ið við lok glæsilegra hátíðahalda vegna 150 ára afmælisárs skólans. Vonast er til að sem flestir sjái sér fært að koma og njóta stundarinnar og gamlir og nýir nemendur Barna- skólans eru sérstaklega boðnir vel- komnir. Húsrúm í Hólmaröst er nóg þrátt fyrir 65 manna sinfóníuhljóm- sveit. Auk sinfóníutónleikanna verða myndlistasýningar hússins og lista- smiðjur opnar ef að líkum lætur og foreldrafélag skólans verður með kaffisölu til fjáröflunar í hléi. Lok hátíðar vegna 150 ára afmælis skólans Skólaslit og sinfónía Eyrarbakki SEX kvenfélög úr Rangárþingi eystra afhentu nýlega Heilbrigðis- stofnuninni á Selfossi æðadoppler að gjöf. Félögin sem um ræðir eru Kvenfélagið Fjallkonan, Eygló, Eining, Bergþóra, Freyja og Kven- félag Fljótshlíðar. Gjöfinni var vel tekið af stjórn- endum stofnunarinnar og minnt á þekkta samstöðu kvenfélaganna á Suðurlandi gagnvart Sjúkrahúsi Suðurlands. Æðadoppler er að sögn hjúkrunarfólks gagnlegt tæki sem hjálpar til við greiningu á réttri meðferð gagnvart sárum og á þátt í að stytta meðferðartíma. „Við þökkum innilega góða gjöf kvenfélaganna. Gjöfin er stofnun- inni mikils virði og tryggir enn bet- ur örugga og góða þjónustu við sjúklinga og ómetanlegur er sá hlý- hugur sem fylgir slíkri gjöf sem er einnig styrkur og hvatning starfs- fólki stofnunarinnar í störfum þess,“ sagði Esther Óskarsdóttir framkvæmdastjóri. Í máli hennar kom einnig fram að fyrirhugað er að byggingaframkvæmdir við Sjúkrahús Suðurlands hefjist í júlí en í nýrri viðbyggingu verður heilsugæsla á fyrstu hæð og 26 rúma hjúkrunardeild á annarri hæð, auk þess sem ýmis önnur að- staða batnar. Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Fulltrúar kvenfélaganna ásamt starfsfólki og framkvæmdastjóra Heil- brigðisstofnunarinnar á Selfossi. Sex kvenfélög gáfu æðadoppler Selfoss HJÁ Norræna húsinu starfar kennslu- ráðgjafi og eitt af verkefnum hans er að taka á móti skólahópum, til að vekja og viðhalda áhuga nemenda á Norð- urlöndunum, veita fræðslu um þau, norræna samvinnu og norræn tungu- mál. Hingað til hafa eingöngu skólar á höfuðborgarsvæðinu nýtt sér þessi til- boð og því var brugðið á það ráð að bjóða skólum utan þess svæðis að fá kennsluráðgjafana í heimsókn. Grunn- skólinn í Hveragerði þáði þetta boð og komu þær Kristín Jóhannesdóttir og Arnbjörg Eiðsdóttir föstudaginn 16. maí í heimsókn. Það voru 3. og 4. bekk- ur sem fengu fræðslu um Norðurlönd- in, fána þeirra og skyldleika tungumál- anna. Síðan unnu nemendur verkefni með þrautalausnum þar sem þeir fræðast um Norðurlöndin, fánana og norræn tungumál. Í 6. bekk voru krakkarnir fræddir um Norðurlöndin og norræna samvinnu. Nemendurnir hlustuðu á stuttan fyrirlestur og leystu ýmis verkefni sem tengdust Norður- löndum og norrænni samvinnu. Heim- sókninni lauk með spurningakeppni. Morgunblaðið/Margrét Ísaksdóttir Nemendur 6. bekkjar ásamt kennurum sínum, þeim Ásu Pálsdóttur og Sig- ríði Sigurðardóttur. Með þeim eru Kristín Jóhannesdóttir, önnur frá vinstri, og Arnbjörg Eiðsdóttir, önnur frá hægri. Gestir frá Norræna húsinu Hveragerði Á NÝAFSTÖÐNUM menningardög- um í Árborg, „Vor í Árborg“, var meðal annars veitt viðurkenning fyrir framlag til menningarmála. Þau hlaut myndlistamaðurinn Elfar Guðni Þórðarson á Stokkseyri. Af því tilefni brá fréttaritari sér í heimsókn á vinnustofu hans í Hólmarastarhúsinu þar sem hann rekur einnig galleríið Svartaklett. Er hann var spurður út í þessa við- urkenningu þá sagðist hann ekki vera dómbær á það hvort sér bæri hún frekar en öðrum en jafnframt væri hann mjög þakklátur fyrir að hljóta þessa viðurkenningu þar sem hann hefði bara verk sín sér til stuðnings en enga menntun á sviði myndlistar. Elfar byrjaði að mála um 1970 og málar hann mest myndir af sjónum og samspili hans við fjöruna. Jafn- framt skipar veðurfar stóran sess í myndum hans og er óhætt að segja að hann hafi náð góðum tökum á þessu myndefni því eins og hann segir sjálf- ur frá, má segja að hann hafi alist upp undir brimsköflunum á Stokkseyri. Meðfram myndlistinni hefur hann stundað kennslu við Barnaskólann þar sem hann hefur kennt smíðar og myndmennt í rúm tuttugu ár. Nú stendur yfir 40. einkasýning Elfars í Galleríi Svartikletti. Hún opnaði 22. maí og stendur til 9. júní og til þessa hafa vel yfir eittþúsund manns mætt á sýninguna. Morgunblaðið/Gísli Gíslason Elfar Guðni Þórðarson á vinnustofu sinni í Hólmarastarhúsinu þar sem hann rekur einnig galleríið Svartaklett. Meistari brimsins Stokkseyri TÍU sveinar voru útskrifaðir 27. mars og fengu afhent sveinsbréf hjá Sunniðn. Þetta er annað árið í röð sem Sunn- lendingar eru með hæstu ein- kunn í fagþætti prófsins. Nýsveinarnir fengu öryggis- hjálm að loknu prófi sem gjöf frá félaginu og að auki voru þeir minntir á mikilvægi þess að nota persónuhlífar við störf sín. Einnig fengu þeir blóm- vönd afhentan við þetta tæki- færi. Sveinarnir sem voru við- staddir afhendinguna heita Ari Páll Pálsson, Bjarni Valur Ás- grímsson, Garðar Már Garð- arsson, Gunnar Sveinn Krist- insson, Ívar Áki Hauksson, Lárus Gumundsson, Ólafur Tage Bjarnason og Ólafur Már Ólafsson. Tíu sveinar útskrif- aðir Selfoss
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.