Morgunblaðið - 07.06.2003, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 07.06.2003, Blaðsíða 39
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. JÚNÍ 2003 39 ✝ Valdimar Jóns-son fæddist í Árbæ í Reykhóla- sveit 19. ágúst 1950. Hann lést af slysför- um 30. maí síðastlið- inn. Foreldrar hans voru Jón Þórðarson, f. 2. júní 1911, d. 24. september 1995, og Elísabet I. Guð- mundsdóttir, f. 30. júlí 1912, d. 12. nóv- ember 1998. Systk- ini Valdimars eru Guðlaug, f. 1. sept- ember 1946, og Þórður Magnús, f. 29. september 1947. Valdimar kvæntist 31. janúar 1977 eftirlifandi eiginkonu sinni, Steinunni Erlu Þorsteins- dóttur, f. 8. júlí 1954. Börn þeirra eru: 1) Óskar, f. 4. febrúar 1976, maki Silja Guðrún Sig- valdadóttir, f. 12. desember 1978, sonur hans er Kristinn Þór, f. 23. nóvember 1996. 2) Hrönn, f. 1. septem- ber 1977, maki Arn- grímur Kristjáns- son, f. 22. ágúst 1975. 3) Hallfríður, f. 28. júlí 1980, maki Eggert Ólafs- son, f. 1. apríl 1980, sonur þeirra er Ólafur Stefán, f. 24. janúar 2002. 4) El- ísabet Ingibjörg, f. 23. október 1991. 5) Valdís Kristín, f. 20. maí 1993. Útför Valdimars fer fram frá Reykhólakirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Elsku pabbi minn. Nú ertu far- inn frá okkur og þín er sárt saknað. Ég ætla að skrifa nokkur minning- arorð til þín. Þú varst mér alltaf svo góður og vildir allt fyrir börnin þín gera til að okkur liði sem best. Þegar við vorum lítil var alltaf hægt að fá þig til að leika við okk- ur, sérstaklega man ég eftir löggu- og bófaleiknum okkar þar sem við áttum að fela okkur og þú að finna okkur og reyna að ná, það var allt- af mikil spenna hvort þér mundi takast það. Og allar sundferðirnar þar sem þú varst hákarl og fórst í kaf og greipst um fæturna okkar svo við hrópuðum og hlógum. Alltaf þegar ég átti erfitt með að sofna komst þú til mín og straukst um hárið mitt og tókst utan um mig þangað til ég sofnaði. Alltaf var gaman og gott að tala við þig, þú hafðir þínar skoðanir á vissum hlutum, stundum kom fyrir að við vorum ekki alveg sammála og þá fórum við að þræta og hvorugt okkar vildi gefast upp. Reyndar höfðum við lúmskt gaman af því. Þú hafðir breiðan tónlistarsmekk og ég lærði að meta ýmsa tónlist sem þú hlustaðir á. Þú hafðir mik- inn áhuga á landafræði, maður gat alltaf spurt þig um eitthvert land eða borg og þú vissir svarið nánast strax. Jæja, elsku hjartans pabbi minn, ég á eftir að sakna þín sárt en ég veit að þú ert á góðum stað núna og ert hjá okkur. Við munum hitt- ast aftur einhvern tímann og þá verða miklir fagnaðarfundir. Mig langar að lokum að kveðja þig með lagi sem þér líkar. Mér finnst ég varla heill né hálfur maður og heldur ósjálfbjarga, því er verr. Ef værir þú hjá mér vildi ég glaður verða betri en ég er. Eitt sinn verða allir menn að deyja. Eftir bjartan daginn kemur nótt. Ég harma það en samt ég verð að segja, að sumarið líður allt of fljótt. (Vilhjálmur Vilhjálmsson.) Hrönn. Elsku pabbi minn, nú ertu farinn mér frá og eftir sit ég með sár í minni sál. Allar minningarnar um þig hrannast upp í huga mér. Mér er minnisstæðast þegar ég var að flytja á milli Ísafjarðar, Reykjavík- ur og Reykhóla, þá varst þú alltaf tilbúinn að koma og hjálpa mér. Svo núna síðastliðinn vetur komst þú á hverjum morgni eftir að þú varst búinn að keyra börnin í skól- ann, og sóttir mig og Ólaf og keyrðir okkur heim til ykkar mömmu. Hann Ólafur sem er eins árs var alltaf að tala um „afa burra“. Alltaf þótti mér gaman að horfa á handbolta með þér, þú varst alltaf svo stressaður, að ef það gekk vel þá gekkst þú um gólf af stressi yfir að eitthvað færi úr- skeiðis. Svo fékk borðið að finna fyrir því ef eitthvað gekk illa. Elsku pabbi, ég læt hér fylgja smásálm sem þér hefur eflaust þótt fallegur. Við sjáumst seinna. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. (V. Briem.) Þín elskandi dóttir, Hallfríður. Elsku tengdafaðir, nú ertu farinn frá okkur, minnisstæðastar eru all- ar sögurnar sem þú varst alltaf að segja okkur sem voru alltaf jafn skemmtilegar, það var líka alltaf gaman að fá að tala við þig um allt og ekkert. Þú varst líka svo góður faðir, tengdafaðir og afi. En núna ertu farinn frá okkur öllum og ætl- um við að kveðja þig með nokkrum orðum úr Jóhannesarguðspjalli. Hjarta yðar skelfist ekki; trúið á Guð og trúið á mig. Frið læt ég eftir hjá yður, minn frið gef ég yður. (Jóhannes 14, 1 og 27.) Arngrímur og Eggert. Kynni mín af Valdimar Jónssyni voru ekki löng. Þau hófust fyrir átta mánuðum þegar ég tók við starfi sveitarstjóra í Reykhóla- hreppi. Sá sem tekur við slíku starfi í fá- mennu sveitarfélagi kynnist mörg- um eða flestum íbúanna nokkuð fljótt. Valdimar var þar að auki verktaki hjá hreppnum, annaðist skólaakstur í Gufudalssveit og sá um viðhald sundlaugar á Reykhól- um. Við Valdimar ræddum talsvert saman; hann kom á minn fund og við fórum yfir ýmis mál eins og gengur. Valdimar var hægur og ró- legur og það var gott að spjalla við hann. Störf sín fyrir hreppinn leysti hann með prýði og ég minn- ist hans með hlýhug. Eins og aðrir hef ég þurft að þola fráfall nákominna ættingja. En það er hins vegar nýtt fyrir mér borgarbarninu að upplifa það þegar lítið þorp eins og Reykhólar verður fyrir svona missi. Allt þorp- ið hefur orðið fyrir höggi og sorgin grúfir yfir Reykhólum vegna þessa óskiljanlega slyss. Ég færi ekkju Valdimars Jóns- sonar, Steinunni Þorsteinsdóttur, og fimm börnum þeirra mínar inni- legustu samúðarkveðjur. Einar Örn Thorlacius. Upp rann uppstigningardagur 29. maí, bjartur og fagur. Við fjöl- skyldan lögðum í ferðalag frá Hafnarfirði til Reykhóla að heim- sækja fólkið sem er okkur orðið svo kært eftir þann stutta tíma sem við deildum með því kjörum. Heima- sætan á leiðinni í sveitina eftir prófin lét lengingu skólaársins ekki aftra sér og fékk frí um leið og síð- ustu prófin voru búin. Í Bröttu- brekku áttuðum við okkur á því, of seint til að heilsa, að á móti okkur kom akandi bifreið úr Reykhóla- sveit. Rétt í sviphendingu sáum við Steinunni hans Valda við stýrið á þeirri sömu bifreið sem Valdi lán- aði mér svo fúslega þegar konan mín velti jeppanum á Laxárdals- heiðinni um árið, með fimm stráka innanborðs, og þurfti að sækja þau á heilsugæsluna í Búðardal, til allr- ar blessunar ósködduð. Brátt blöstu Reykhólar við í sinni fegurstu mynd, enda veðrið frábært. Gróðurilmur í lofti eftir kærkomið úrhelli nóttina áður. Dagurinn leið hratt og á stuttum tíma var heilsað upp á menn og málleysingja og fengnar fréttir af gangi mála í sveitinni. Sérstaklega var mér hugleikið að fá fréttir af Þörungaverksmiðjunni og gangi nýrrar þangvertíðar, enda hafði ég starfað þar síðustu þrjár vertíðir á undan. Samgladdist fólki yfir góðri byrjun vertíðar og góðri stöðu sölu- mála. Við ókum heim í Hafnarfjörð- inn um kvöldið með rómantískar hugsanir um sveitina í hjarta, þó ef til vill minnug þess að náttúra þessarar sveitar er ekki bara gjöf- ul, hún á það líka til að taka. Að kvöldi 30. maí dimmdi yfir. Dóttir okkar hringdi heim, gjör- samlega miður sín, og sagði okkur að hann Valdi væri dáinn, hefði lent í slysi við þangslátt. Hún átti erfitt með að átta sig á þessum staðreyndum og kenndi svo til með Elísabetu og Valdísi vinkonum sín- um, sem misstu svo mikið í einni sjónhendingu. Mín viðbrögð við fréttunum voru á sömu lund, en til viðbótar við innilega hluttekningu með eiginkonu, börnunum fimm, barnabörnum og öðrum aðstand- endum kemur efi og sjálfskoðun sem ávallt hlýtur að koma upp á yf- irborðið þegar örlögum hagar á þennan veg; var eitthvað hægt að gera til að koma í veg fyrir að svona færi? Enda þótt þangsláttur í Breiðafirði hafi fram að þessu verið stundaður í 28 ár án stórra slysa, þá er missir þessa manns óbætanlegur með öllu og spurning- arnar knýja á. Kynni okkar Valdimars Jónsson- ar hófust þegar ég tók við stöðu framkvæmdastjóra Þörungaverk- smiðjunnar vorið 2000. Valdi kom mér fyrir sjónir sem fremur hlé- drægur maður, jafnlyndur og stefnufastur. Hann ók skólabíl á veturna en stundaði þangslátt á sumrin og hafði svo verið um ára- bil. Fyrr á árum var hann m.a. verksmiðjustjóri Þörungaverk- smiðjunnar og því öllum hnútum kunnugur í rekstri hennar. Áttum við allnokkra fundi um málefni þangsláttumanna og Þörungaverk- smiðjunnar og var þessi rekstur Valda mjög hugleikinn. Að mínu frumkvæði gekk hann til samstarfs um þangslátt við Jón Atla Játvarð- arson og var núverandi þangvertíð sú þriðja sem það fyrirkomulag var við lýði. Höfðu þeir félagar áður gjarnan verið einir með sláttu- pramma og þótti mér það óhæft út frá öryggissjónarmiðum, betra væri að tveir væru saman ef eitt- hvað bæri út af. Því miður dugði þessi ráðstöfun ekki þegar slysið hörmulega átti sér stað. Við fjölskyldan sendum þér Steinunn, börnum, barnabörnum og öllum aðstandendum okkar inni- legustu samúðarkveðjur og vonum að þið öðlist styrk í sorg ykkar. Genginn er góður maður sem mun lifa í hjörtum allra sem þekktu hann. Halldór Halldórsson. Óvænt hefur sláttumaðurinn slyngi borið ljá sinn í okkar hóp. Skarðið sem þar myndaðist fyllist seint. Ég vil minnast, fátæklegum orð- um, Valdimars Jónssonar, sem hrif- inn var á brott öllum að óvörum. Veturinn 1975–1976 sá Valdimar um skólaaksturinn. Undirritaður var þá að stíga sín fyrstu skref út í lífið. Snjóþungt var þennan vetur og oft leiðindaveður. Eitt sinn á heimleiðinni var þæfingsskafrenn- ingur og ekki árennilegt fyrir mig að hlaupa yfir skaflinn og inn. Ég hef sjálfsagt verið brattur og talið þetta lítið mál að koma mér þessa fáu metra. Nei! sagði Valdimar, komdu, ég skal leiða þig, svo þú komist nú öruggur heim. Þessi vinnubrögð einkenndu Valdimar. Í nokkur ár vann ég svo með hléum undir stjórn Valda í Þör- ungaverksmiðjunni. Oft var slegið á létta strengi og gerðum við oft grín hver að öðrum. Aðeins einu sinni sá ég hann skipta skapi og áttum við það fyllilega skilið. Garðurinn, eða öllu heldur sælu- reitur þeirra Valdimars og Stein- unnar, ber vott um samheldni þeirra og samvinnu og til fyrir- myndar er hversu smekklega er gengið frá öllu. Genginn er góður drengur og gæðasál. Fjölskyldu og ættingjum Valdi- mars votta ég mína innilegustu samúð. Þrymur Sveinsson frá Miðhúsum. VALDIMAR JÓNSSON Ég átti því láni að fagna að kynnast Hall- dóri E. Sigurðssyni vel á síðustu árum starfsævi hans sem voru hjá Búnaðarbanka Ís- lands. Ég var þá nýbyrjaður að starfa hjá bankanum og var Hall- dóri til aðstoðar við milliinnheimtu hjá bankanum. Óhætt er að segja að samskiptin við Halldór voru lærdómsrík og góður skóli í mannlegum samskipt- um. Ég hélt sem ókunnugur að Hall- dór væri þurr á manninn, hafði ein- ungis séð hann í sjónvarpi, alvar- HALLDÓR E. SIGURÐSSON ✝ Halldór EggertSigurðsson fæddist á Hauka- brekku í Fróðár- hreppi á Snæfells- nesi 9. september 1915. Hann lést á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ 25. maí síðastliðinn og var útför hans gerð frá Borgarneskirkju 2. júní. legan að tala um landsmálin. Reynslan varð önn- ur. Halldór var ein- staklega hlýr maður og hafði ótrúlega gott lag á því að kynnast nýju fólki og vildi hjálpa því í ölduróti þeirra erfiðleika sem það var komið í þegar mál voru illa komin. Hann var afar kurteis og ávarpaði konurnar jafnan sem frúr og tal- aði við alla sem jafn- ingja. Ég kann mörg dæmi þess að mál skipuðust þannig að fólk hringdi sem hafði lofað Halldóri því að greiða á ákveðnum tíma, miður sín, því það vildi ekki bregðast trausti Halldórs. Halldór var ávallt virðulegur maður, hægur í fasi með mikinn persónuleika og hafði þann eigin- leika að geta hlustað á fólk. Hann var íhugull og grandvar maður sem fór ekkert í flaustri og var um leið afar tryggur skjólstæðingum sínum og átthögum. Vesturlandskjördæmið og ekki síst Borgarnes og Dalir áttu hug hans og hann fylgdist vel með því sem þar var að gerast. Margrét og fjölskyldan voru þó að sjálfsögðu númer eitt og hann hafði yndi af barnabörnunum og hann hafði sérstaklega gaman af því þegar nafni hans kom í heim- sóknir til hans á skrifstofuna og talaði þá við hann eins og fullorðinn mann. Halldór kunni kynstrin öll af kímisögum og hafði ríka frásagn- argáfu, og gerði þá ekkert síður góðlátlegt grín að sjálfum sér. Hann var ekki efnishyggjumað- ur, einkar laginn og yfirlætislaus en afar drjúgur og fastur fyrir í sínum störfum eins og sannast hef- ur og hafa þessir eðlisþættir ekki spillt fyrir í framgangi hugðarefn- anna hjá honum. Nú þegar Halldór E. Sigurðsson er allur er mér efst í huga þakklæti til manns sem mér þótti vænt um og gerði mig að betri manni. Þakklæti til manns sem gat miðl- að því jákvæða á sanngjarnan og yfirlætislausan hátt. Margréti, Gísla, Sigurbjörgu, Sigurði börnum þeirra og fjölskyld- um votta ég dýpstu samúð. Blessuð sé minning Halldórs E. Sigurðssonar. Kristján B. Snorrason. Kveðja frá bæjarstjórn Borgarbyggðar Það er með virðingu og þakklæti sem Borgarnesingar minnast Hall- dórs E. Sigurðssonar sem nú er fallinn frá. Halldór E. Sigurðsson réðst sem sveitarstjóri í Borgarnes árið 1955 og næsta aldarfjórðunginn var Halldór í fararbroddi í ýmsum framfaramálum byggðarlagsins. Halldór starfaði sem sveitarstjóri fram til ársins 1969, hann sat í sveitarstjórn frá árinu 1962 til árs- ins 1970. Hann var alþingismaður Mýrarmanna frá 1956 og síðar Vesturlandskjördæmis, allt til árs- ins 1979. Auk þessa voru Halldóri falin ýmis önnur trúnaðarstörf fyrir Borgnesinga og Borgfirðinga. Á þeim árum sem Halldór gegndi starfi sveitarstjóra í Borg- arnesi var mikill uppgangur í sveit- arfélaginu og þá voru stigin fram- faraspor sem enn þann dag í dag setja mark sitt á bæinn. Halldór bar vöxt og viðgang sveitarfé- lagsins fyrir brjósti og var ötull baráttumaður fyrir sitt byggðarlag, ekki síst á vettvangi alþingis. Í tíð Halldórs sem samgönguráðherra var ráðist í byggingu Borgarfjarð- arbrúarinnar sem er einhver mesta samgöngubót síðari tíma á Vest- urlandi. Bæjarstjórn Borgarbyggðar sendir eftirlifandi eiginkonu Hall- dórs, Margréti Gísladóttur, börnum þeirra og öðrum aðstandendum sín- ar innilegustu samúðarkveðjur. Mig langar að minnast þess sem ég gleymi aldrei þegar Halldór kom fram í Efri-Langey í Klofn- ingshreppi vorið 1943 til að sækja mig sem vinnumann til sín að Stað- arfelli í Dölum. Hann var með þrjá hesta, einn handa mér og annan undir farangur, sem var nú fremur lítill. Ég var þá tæplega 17 ára. Þetta átti eftir að verða mér gæfu- spor, því ég kom frá fátæku heimili og átti hvorki eitt né neitt, en hjá Halldóri og Margréti fékk ég gott viðurværi, félagsskap og nóg að gera. Halldór var einstakur maður, félagslyndur og skemmtilegur og stutt í húmorinn, mjög gott að um- gangast hann. Þarna var ég í þrjú ár og leið ákaflega vel. Hann eggj- aði mig til að fara í Reykholtsskóla einn vetur og hafði ég mjög gott af því. Eftir þetta hafði ég alltaf sam- band við Halldór og Margréti í gegnum árin, þau reyndust mér ákaflega vel. Við hjónin vottum Margréti og börnum þeirra samúð á þessum erfiðu tímamótum. Einar Guðmundsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.