Morgunblaðið - 07.06.2003, Page 8
FRÉTTIR
8 LAUGARDAGUR 7. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Byggðamálaráðherra fer létt með að redda þessu, nóg ætti nú að vera eftir af kosninga-
veisluföngunum.
Þjónustumiðstöðin Sjónarhóll
Sameinuð erum
við sterkari
SJÓNARHÓLL ernafnið sem valið hef-ur verið á væntan-
lega þjónustumiðstöð fyrir
börn með sérþarfir og fjöl-
skyldur þeirra. Nafnið vís-
ar til þess að þjónustumið-
stöðin ætlar að veita
fjölskyldum barna með sér-
þarfir yfirsýn yfir réttindi
þeirra og hvernig þær geti
leitað réttar síns. En um
leið vísar nafnið til ævin-
týrahetjunnar Línu Lang-
sokks. Á heimili hennar,
Sjónarhól, gerðist ýmislegt
sem var kraftaverki líkast.
Og þar lyfti söguhetjan
grettistökum þegar nauð-
syn krafði.
Í dag, laugardag, verður
væntanleg starfsemi þjón-
ustumiðstöðvarinnar Sjón-
arhóls kynnt á hátíð í Fjöl-
skyldu- og húsdýragarðinum.
Hátíðin hefst kl. 14 og verður þar
margt skemmtiatriða, auk þess
sem grillað verður ofan í gesti.
Ragna K. Marinósdóttir er for-
maður sjálfseignarstofnunarinnar
Góðra handa, sem ætlar að reka
þjónustumiðstöðina Sjónarhól.
„Sjónarhóll er samstarfsverkefni
fjögurra félaga, Umhyggju, félags
til stuðnings langveikum börnum,
Þroskahjálpar, Styrktarfélags
lamaðra og fatlaðra og Foreldra-
félags barna með AD/HD, sem áð-
ur hét Foreldrafélag misþroska
barna. Þrjú þessara félaga höfðu í
bígerð að setja á laggirnar þjón-
ustumiðstöðvar, en nú höfum við
ákveðið að sameina krafta okkar
og erum sannfærð um að með því
móti getum við boðið mun betri
þjónustu en ella.“
– Hvert verður hlutverk þjón-
ustumiðstöðvarinnar?
„Það er mikið áfall fyrir fjöl-
skyldur þegar í ljós kemur að
barn er með langvinnan og alvar-
legan sjúkdóm, eða á við aðra
sambærilega erfiðleika að etja.
Oft á fólk erfitt með að átta sig á
hvert það getur leitað eftir upp-
lýsingum og hver réttur þess er.
Þar að auki hefur það oft ekki
mikla orku til að leita víða eftir
upplýsingum, það á nóg með sitt
eftir áfallið sem greining barnsins
hefur óhjákvæmilega í för með
sér. Ofan á áhyggjur af barninu
bætast oft áhyggjur af fjárhags-
legu öryggi fjölskyldunnar. Á
Sjónarhóli ætlum við að reyna að
svara öllum þeim spurningum
sem koma upp, veita stuðning,
fræðslu og ráðgjöf og koma á sam-
skiptum milli foreldra sem eiga
við svipaðan vanda að glíma. Sál-
félagslegur stuðningur og ráðgjöf
við fjölskyldur barna með sérþarf-
ir getur haft mikið forvarnargildi.
Erfiðleikar í fjölskyldum sumra
hópa þessara barna geta verið
mjög fjölþættir og miklir. Þetta
mun verða þáttur í starfsemi
þjónustumiðstöðvar, þar sem ljóst
er að þörfin er til staðar.“
– Hve margir eiga aðild að
þessum fjórum félögum?
„Að þessum fjórum
félögum stendur mjög
breiður hópur, því
vandamálin eru afar
mismunandi. Um-
hyggja, Þroskahjálp og
Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra
eru í raun regnhlífarsamtök með
um 40 aðildarfélög, sem öll vinna
að bættum hag barna. Alls nær
starfsemi þessara félaga, auk
Foreldrafélags barna með AD/
HD, til 4–5000 barna hér á landi.“
– Hvar verður þjónustumið-
stöðin til húsa?
„Það er ekki ljóst enn. Í haust,
eða nánar tiltekið laugardaginn 8.
nóvember, njótum við liðsinnis
Ríkisútvarpsins við landssöfnun
og við vonum að þjóðin hjálpi okk-
ur að kaupa húsnæði fyrir þjón-
ustumiðstöðina. Við leitum einnig
til stjórnvalda eftir stuðningi.
Ætlun okkar er að kaupa sameig-
inlegt húsnæði fyrir Umhyggju,
Þroskahjálp, Styrktarfélag lam-
aðra og fatlaðra og AD/HD félagið
og að þjónustumiðstöðin sé snerti-
flögur félaganna. Ég er viss um að
starf félaganna allra verður öfl-
ugra þegar þau hafa stuðning
hvert af öðru. Margir foreldrar
eru í þeim sporum að vera í fleiri
en einu þessara félaga, svo flutn-
ingur starfsemi þeirra á einn stað
er allra hagur.“
– Hvaða viðbrögð hafa félögin
fengið við hugmyndinni um Sjón-
arhól?
„Viðbrögðin hafa bara verið á
einn veg, fólk er mjög ánægt með
þetta framtak okkar. Það á bæði
við um félagsmenn okkar og ýms-
ar þær stofnanir og félagasamtök
sem við eigum samskipti við. Allir
gera sér grein fyrir að sameinuð
erum við sterkari. Við höfum öll
unnið að sama marki, að bæta hag
þessara fjölskyldna, og það mun-
um við gera áfram.“
– Hvað ætlið þið að gera á há-
tíðinni í Fjölskyldu- og húsdýra-
garðinum í dag?
„Við ætlum að ná sem flestum
félagsmönnum okkar saman og
kynna drauminn um Sjónarhól,
sem verður að veruleika ef þjóðin
styður við bakið á okk-
ur í landssöfnuninni í
haust. Þeir félags-
menn, sem ekki hafa
þegar nálgast aðgöngu-
miða á skrifstofu
Þroskahjálpar, geta fengið að-
göngumiða við innganginn í Laug-
ardal. Auk skemmtiatriða og
grillsins fáum við ýmsa góða gesti.
Sigmundur Ernir Rúnarson talar
fyrir hönd foreldra og biskup Ís-
lands, herra Karl Sigurbjörnsson,
ætlar að taka þátt í hátíðinni með
okkur. Ég hvet alla, félagsmenn
sem aðra, til að fjölmenna í Laug-
ardalinn í dag.“
Ragna K. Marinósdóttir
Ragna K. Marinósdóttir er
fædd í Reykjavík 23. mars árið
1955. Hún er leikskólakennari að
mennt. Ragna hefur setið í stjórn
Umhyggju, félags til stuðnings
langveikum börnum, frá 1993 og
hefur verið formaður félagsins í
tæp þrjú ár. Hún er einnig for-
maður sjálfseignarstofnunarinn-
ar Góðra handa, sem hyggst
opna þjónustumiðstöð um mál-
efni langveikra barna. Eiginmað-
ur Rögnu er Bjarni Ragnarsson.
Þau eiga tvö börn á lífi, Ragnar,
27 ára, og Hrönn, 17 ára.
Fjölskyldur
fá yfirsýn af
Sjónarhóli
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
B
LO
2
13
89
06
/2
00
3
28 sm 40 sm 48 sm
990 kr. 1.990 kr. 2.990 kr.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
B
LO
2
13
90
06
/2
00
3
álfar og dvergar
Ótrúlegt verð