Morgunblaðið - 07.06.2003, Síða 35
FERMINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. JÚNÍ 2003 35
Grenilundi 3.
Birna Bolladóttir,
Þórunnarstræti 83.
Björn Páll Pálsson,
Bjarkarstíg 3.
Elín Rún Birgisdóttir,
Stapasíðu 7.
Eyþór Snær Eyþórsson,
Akurgerði 2.
Guðbjörg Lilja Hallgrímsdóttir,
Vanabyggð 1.
Helga Birgisdóttir,
Furulundi 4h.
Hólmfríður Þorgeirsdóttir,
Ásvegi 25.
Jón Þór Sigurðsson,
Munkaþverárstræti 1.
Linda Björk Rögnvaldsdóttir,
Sólvöllum 1.
Oddur Aðalgeirsson,
Hindarlundi 7.
Ragnhildur Árnadóttir,
Bjarkarstíg 4.
Silfá Huld Bjarmadóttir,
Ásabyggð 16.
Silja Dögg Sævarsdóttir,
Víðivöllum 22.
Steinar Halldórsson,
Espilundi 3.
Ferming í Laufáskirkju á hvítasunnu-
dag, 8. júní, kl. 11. Prestur sr. Pétur
Þórarinsson. Fermd verða:
Lilja Sólveig Kro,
Lómatjörn.
Sigurður Gauti Benediktsson,
Ártúni.
Ferming í Húsavíkurkirkju á hvíta-
sunnudag, 8. júní, kl. 10.30. Prestur:
sr. Sighvatur Karlsson. Fermdir verða:
Einar Páll Þórisson,
Héðinsbraut 5.
Aron Bjarki Jósepsson,
Uppsalavegi 29.
Alexander Hermannsson,
Brúnagerði 11.
Ferming í Garðskirkju í Kelduhverfi á
hvítasunnudag, 8. júní, kl. 17. Prestur
sr. Jón Ármann Gíslason. Fermd verða:
Bjarki Þór Kristinsson,
Hóli, Kelduhverfi.
Salbjörg Matthíasdóttir,
Árdal, Kelduhverfi.
Ferming í Hraunskirkju í Keldudal laug-
ardaginn 7. júní kl. 16. Prestur sr. Guð-
rún Edda Gunnarsdóttir. Fermd verða:
Elías Míkael Vagn Siggeirsson,
Langanesvegi 26, 680 Þórshöfn.
bt. að Hlíðargötu 38, Þingeyri.
Elísa Ósk Línadóttir,
Aðalstræti 49, Þingeyri.
Ferming í Vallaneskirkju á hvítasunnu-
dag, 8. júní, kl. 14. Prestur: Sr. Vigfús
Ingvar Ingvarsson.
Fermd verður:
Thelma Björk Stefánsdóttir,
frá Útnyrðingsstöðum á Völlum.
Lögheimili: Eichenweg 25,
72172 Sulz am Neckar,
Þýskalandi.
Ferming í Eiðakirkju á hvítasunnudag,
8. júní, kl. 14. Prestur sr. Jóhanna Sig-
marsdóttir. Fermd verða:
Berglind Helga Víðisdóttir,
Vallnaholti 4, Eiðum.
Helga Rún Jóhannsdóttir,
Breiðavaði 1.
Ferming í Áskirkju í Fellum á hvíta-
sunnudag, 8. júní, kl. 14. Prestur Lára
G. Oddsdóttir. Fermd verða:
Aðalheiður Rós Baldursdóttir,
Hléskógum 1–5, Egilsstöðum.
Árni Jón Þórðarson,
Háafelli 6, Fellabæ.
Benný Rós Björnsdóttir,
Reynihvammi 8, Fellabæ.
Guðmundur Harðarson,
Refsmýri, Fellahreppi.
Leif Kristján Gjerde,
Sunnufelli 10, Fellabæ.
Nína Guðrún Baldursdóttir,
Sunnufelli 4, Fellabæ.
Sigurveig Stefánsdóttir,
Hofi II, Fellahreppi.
Theódór Sigurðsson,
Ásbrún 4, Fellabæ.
Ferming í Hofteigskirkju á annan í
hvítasunnu, 9. júní, kl. 14. Prestur:
Lára G. Oddsdóttir. Fermdir verða:
Páll Snorrason,
Teigaseli 2, Jökuldal.
Ævar Þorgeir Aðalsteinsson,
Klausturseli, Jökuldal.
Ferming í Villingaholtskirkju á hvíta-
sunnudag, 8. júní, kl. 13.30. Prestur sr.
Kristinn Ág. Friðfinnsson. Fermd verða:
Ágúst Ingi Kjartansson,
Hróarsholti, Villingaholtshreppi.
Guðjón Sigurliði Sigurðsson,
Kolsholti II, Villingaholtshreppi.
Guðmunda Ólafsdóttir,
Hurðarbaki, Villingaholtshreppi.
Laufey Einarsdóttir,
Egilsstaðakoti, Villingaholtshr.
Ferming í Hraungerðiskirkju á annan
hvítasunnudag, 9. júní, kl. 13.30.
Prestur sr. Kristinn Ág. Friðfinnsson.
Fermd verða:
Brynjar Þór Þormóðsson,
Hjálmholti, Hraungerðishreppi.
Sandra Dögg Garðarsdóttir,
Langholti II, Hraungerðishreppi.
Sigmundur Þórir Jónsson,
Glóru II, Hraungerðishreppi.
Sólrún María Baldursdóttir,
Litla-Ármóti, Hraungerðishreppi.
Ferming í Stóra-Núpskirkju á hvíta-
sunnudag, 8. júní, kl. 11. Prestur sr.
Axel Arnarson. Fermd verða:
Gylfi Sigríðarson,
Steinsholti.
Jón Marteinn Andreasen
Finnbogason,
Minni-Mástungu.
Sóley Hrund Viðarsdóttir,
Ártúni.
Viðar Stefánsson,
Ásaskóla.
Ferming í Ólafsvallakirkju á hvítasunnu-
dag, 8. júní, kl. 14. Prestur sr. Axel Arn-
arson. Fermdur verður:
Hannes Ólafur Gestsson,
Kálfhóli 2a.
Ferming í Gaulverjabæjarkirkju á hvíta-
sunnudag, 8. júní, kl. 13. Prestur sr.
Úlfar Guðmundsson. Fermd verða:
Andrea Ýr Bragadóttir,
Efri-Gegnishólum.
Hugi Þór Hauksson,
Seljatungu.
Hörður Másson,
Dalbæ.
Linda Mjöll Gunnarsdóttir,
Hólshúsum.
Tinna Dögg Tryggvadóttir,
Galtastöðum.
Ferming í Hrunakirkju á hvítasunnudag,
8. júní, kl. 13. Prestur Eiríkur Jóhanns-
son. Fermdir verða:
Baldur Helgi Þorkelsson,
Högnastíg 52, Flúðum.
Bergsteinn Björn Bjarnason,
Skipholti 3.
Hjálmur Hjálmsson,
Borgarási.
Hörður Már Bjarnason,
Högnastíg 4, Flúðum.
Ívar Ásgeir Agnarsson,
Högnastíg 17a, Flúðum.
Jón Þorgeir Aðalsteinsson,
Hrafnkelsstöðum 3.
Ferming í Skálholtsdómkirkju á hvíta-
sunnudag, 8. júní, kl. 14. Prestur sr.
Egill Hallgrímsson. Fermd verða:
Alexandra Guttormsdóttir,
Skálholti, Biskupstungum.
Hugrún Heiða Hreggviðsdóttir,
Grashaga 9, Selfossi.
Jakop Trausti Þórðarson,
Akri, Biskupstungum.
Sóley Linda Egilsdóttir,
Skálholti, Biskupstungum.
Tómas Helgi Tómasson,
Auðsholti II, Hrunamannahreppi.
Ferming í Selfosskirkju á hvítasunnu-
dag, 8. júní, kl. 11. Prestur sr. Gunnar
Björnsson. Fermdur verður.
Ástgeir Rúnar Sigmarsson,
Bakkatjörn 5.
Ferming í Þóroddsstaðarkirkju á hvíta-
sunnudag, 8. júní, kl. 11. Fermdur verð-
ur:
Friðgeir Andri Sverrisson,
Lækjarfelli.
Ferming í Hálskirkju á hvítasunnudag,
8. júní, kl. 14. Fermd verða
Arney Ásvaldsdóttir,
Stórutjörnum.
Berglind Ýr Gunnarsdóttir,
Nesi.
Þórhalla Friðriksdóttir,
Stórutjarnaskóla hús 3.
Áður fermd 1. júní í Illugastaðakirkju:
Elva Rún Gunnarsdóttir,
Steinkirkju.
Ferming í Holti í Landeyjum á hvíta-
sunnudag, 8. júní. Fermdur verður:
Vigfús Ægir Vigfússon,
Vallargötu 20a, Sandgerði.
Ferming í Þingvallakirkju á hvítasunnu-
dag, 8. júní, kl. 14. Prestur Rúnar Eg-
ilsson. Fermdar verða:
Ragnheiður Pálsdóttir,
Írafossi.
Sesselja Björg Elvarsdóttir,
Sólheimum, Grímsnesi.
Ferming í Sankti-Pálskirkju, Kaup-
mannahöfn, á hvítasunnudag. Prestur
sr. Þórir Jökull Þorsteinsson. Fermd
verða:
Dóra Kristín Fransdóttir,
Patronvej 27, 2730 Herlev.
Guðmundur Heimir Jónasson,
Brunevang 15,
2700 Brønshøj, Danmark.
Helga Grønvold,
Biskop Svanesvej 19b,
3460 Birkerød, Danmark.
Ilmur Eir Sæmundsdóttir,
Rasmus Rasksvej 10,
2500 Valby, Danmark.
FJÖLBREYTT dagskrá verður í
Neskirkju um hvítasunnuhátíðina.
Listamenn bera fram úr sjóðum
sínum bæði gamalt og nýtt, klass-
ísk verk og gospel, bæði ljúf og af
kröftugra taginu. Fræðsluprédik-
unum um Postulasöguna verður
haldið áfram á sunnudögum fram
til 6. júlí. Hver prédikun er sjálf-
stætt framhald þeirrar fyrri.
Áhugasömu fólki er bent á að
kynna sér Postulasöguna í Nýja
testamentinu og fræðast um til-
urð kirkjunnar og starf hennar á
fyrstu áratugum kristninnar hér í
heimi.
Norskur kór í heimsókn
MESSA kl. 11 hvítasunnudag. Há-
tíðarsöngvar séra Bjarna Þor-
steinssonar sungnir. Kór Nes-
kirkju syngur undir stjórn
Steingríms Þórhallssonar org-
anista. Låvekoret eða Hlöðukór-
inn frá Notodden, sem er bær í
um 120 km fjarlægð frá Osló,
mun syngja nokkur lög. Um er að
ræða blandaðan kór með um 50
meðlimum. Í ferðinni til Íslands
er 31 meðlimur auk nokkurra
annarra. Kórinn dregur nafn sitt
af hlöðu sem er búið að breyta í
kirkju og safnaðarheimili. Þar æf-
ir hann vikulega, tekur þátt í
nokkrum messum yfir árið og
heldur árlega söngkvöld og tón-
leika. Séra Örn Bárður Jónsson
prédikar og þjónar fyrir altari.
GIG-hópurinn
syngur í Neskirkju
Á ANNAN í hvítasunnu verður
lofgjörðarsamkoma í kirkjunni kl.
20. Þar mun GIG-hópurinn flytja
lofgjörðartónlist en heiti hans er
skammstöfun á ensku orðunum
Gospel Invation Group. Hópurinn
kemur úr Krossinum í Kópavogi
og hefur hann sungið í nokkrum
kirkjum borgarinnar á liðnum
misserum og hyggur á tónleika-
ferð til Bandaríkjanna síðar á
árinu. Hópurinn flytur líflega lof-
gjörðartónlist með hljómsveit þar
sem leikið er á gítar, bassa og
trommur. Séra Örn Bárður Jóns-
son leiðir stundina, prédikar og
fræðir um hvítasunnuna og
kirkjudeildir sem kenna sig við
hana eins og t.d. Krossinn og
fleiri söfnuði hér á landi.
Biber-tónleikar
ÞRIÐJU Biber-tónleikarnir verða
haldnir í Neskirkju þriðjudaginn
10. júní kl. 20.30. Heinrich Biber
(1644–1704) var bæheimskur
fiðlusnillingur og tónskáld er
dvaldi síðustu 24 ár ævi sinnar
við hirð erkibiskupsins í Salz-
burg. Hann samdi m.a. 15 svo-
nefndar Rósakranssónötur og
fjalla hinar fyrstu fimm um fæð-
ingu frelsarans og uppvöxt.
Næstu fimm fjalla um líf hans og
starf, en hinar síðustu um upprisu
hans og uppstigningu, úthellingu
heilags anda, himnaför Maríu og
krýningu. Hér er á ferðinni klass-
ískt verk í anda rómversku kirkj-
unnar sem heldur mikið upp á
Maríu móður Jesú, en hún er
einnig í miklum metum hjá mót-
mælendum enda móðir Guðs á
jörðu. Flytjendur eru Martin
Frewer á fiðlu, Dean Richard
Ferrell á bassa og Steingrímur
Þórhallsson á orgel. Séra Örn
Bárður Jónsson les ritning-
arlestra og flytur stuttar hug-
vekjur á milli sónata.
Hvítasunnan í
Hallgrímskirkju
HVÍTASUNNAN er ein af að-
alhátíðum kristninnar, hátíð Heil-
ags anda. Kirkjulistahátíð er ann-
að hvert ár í Hallgrímskirkju
einmitt á tímabilinu frá uppstign-
ingardegi og stendur fram yfir
hvítasunnu.
Hvítasunnuhátíðin verður
hringd inn kl. 18.00 í dag, laug-
ardag, en kl. 18.15 hefjast Bar-
okktónleikar, en þar verður flutt
hvítasunnukantata J.S. Bach og
Gloria eftir A.Vivaldi. Flytjendur
verða Schola cantorum og Das
Neue Orchester frá Köln. Ein-
söngvarar verða Rannveig Sif
Sigurðardóttir, Guðrún Edda
Gunnarsdóttir, Þorbjörn Rún-
arsson og Davíð Ólafsson, stjórn-
andi Hörður Áskelsson.
Á hvítasunnudag verður hátíð-
arguðsþjónusta kl. 11.00 Biskup
Íslands, Karl Sigurbjörnsson, pré-
dikar. Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson
og sr. Sigurður Pálsson þjóna fyr-
ir altari. Schola cantorum syngur
við messuna og flytur ásamt Das
Neue Orchester frá Köln hvíta-
sunnukantötuna Erschallet, ihr
Lieder eftir J.S. Bach. Organisti
og stjórnandi verður Hörður Ás-
kelsson.
Kl. 20.00 verða orgeltónleikar
með Olivier Latry frá Notre
Dame í París, sem er einn fræg-
asti organisti í heimi.
Á annan dag hvítasunnu verður
hátíðarmessa kl. 11.00. Sr. Sig-
urður Pálsson prédikar og þjónar
fyrir altari ásamt sr. Jakobi
Ágústi Hjálmarssyni, sóknarpresti
Dómkirkjunnar, og sr. Jóni D.
Hróbjartssyni. Dómkórinn syngur
í messunni undir stjórn Marteins
H. Friðrikssonar, sem jafnframt
verður organisti. Kórinn flytur
hvítasunnutónlist og sálma sem
sérstaklega hafa verið samdir
fyrir Dómkórinn.
Lokatónleikar Kirkjulistahátíð-
ar verða þennan dag kl. 20.00, en
þá mun Mótettukór Hallgríms-
kirkju flytja sex mótettur eftir
J.S. Bach, einhverjar dýrlegustu
perlur kórbókmenntanna, fluttar í
barokkstíl. Das Neue Orchester
leikur með kórnum undir stjórn
Harðar Áskelssonar.
Fjölskylduhátíð
Víðistaðakirkju
FJÖLSKYLDUHÁTÍÐ verður
haldin á hvítasunnudag, 8. júní
nk., á Víðistaðatúni. Hátíðin hefst
kl. 14:00 með útiguðsþjónustu á
túninu. Skömmu áður kemur
hestafólk ríðandi til messu frá
Álftanesi. Við guðsþjónustuna
mun Kirkjukór Víðistaðasóknar
syngja undir stjórn Úlriks Ólason-
ar og Eiríkur Örn Pálsson leika á
trompet. Einnig verður sungið
sérstaklega með börnunum.
Eftir messu verður öllum boðið
upp á grillaðar pylsur. Þá kemur
trúðurinn Geiri gleðigaur í heim-
sókn og spjallar við börnin, farið
verður í leiki á túninu og einnig
stendur börnunum til boða að
fara á hestbak. Uppblásinn hopp-
kastali verður á staðnum og hægt
verður að fara í tennis á vell-
inum.
Það er óskandi að sem flestir
leggi leið sína á Víðistaðatún á
fjölskylduhátíð á hvítasunnu.
Dagskráin er miðuð við það að
allir geti notið þess sem fram fer
og átt gleðilega og gefandi stund
á þessum hátíðisdegi.
Hvítasunna í Hafnar-
fjarðarkirkju
Á HVÍTASUNNUDAG verður
mikið um að vera í Hafnarfjarð-
arkirkju eins og venjan er á þess-
um hátíðisdegi.
Um morguninn fer fram hátíð-
arguðsþjónusta er hefst kl. 11.
Prestur í guðsþjónustunni er sr.
Þórhallur Heimisson en Antonia
Hevesi stjórnar kirkjukór og leik-
ur undir almennum safnaðarsöng.
Kl. 20.00 hefst síðan tónleikaröð á
vegum kirkjunnar sem hlotið hef-
ur nafnið „syngjandi sumar“.
Þetta kvöld og tvö hin næstu
býður Hafnarfjarðarkirkja til tón-
listarveislu af ýmsum toga. Að
kveldi hvítasunnudags syngur
Sigurður Skagfjörð íslensk ein-
söngslög við undirleik Antoniu
Hevesi. Tónleikarnir hefjast með
stuttri helgistund sem sr. Þórhall-
ur Heimisson annast. Allir eru
hjartanlega velkomnir.
Hvítasunna í
Dómkirkjunni
Á HVÍTASUNNUDAG er hátíð-
armessa kl. 11. Þar syngur kór
frá Stovner í Noregi undir stjórn
Thorkil Baden. Kórinn syngur á
undan messu og undir altaris-
göngu. Dómkórinn syngur undir
stjórn Marteins H. Friðrikssonar
hátíðarsöngva sr. Bjarna Þor-
steinssonar. Prestur er sr. Jakob
Ágúst Hjálmarsson.
Sumarguðsþjónustur
eldri borgara í
Reykjavíkurprófasts-
dæmum
NÆSTA guðsþjónusta verður í
Fella- og Hólakirkju miðvikudag-
inn 11. júní kl. 14.
Sr. Guðmundur Karl Ágústsson,
sóknarprestur í Hólabrekkusókn,
predikar og þjónar fyrir altari
ásamt Lilju G. Hallgrímsdóttur
djákna. Sönghópur úr kór kirkj-
unnar leiðir safnaðarsöng undir
stjórn Lenku Mátéová organista.
Ólafía Lindberg Jensdóttir syng-
ur einsöng.
Eftir guðsþjónustuna eru kaffi-
veitingar í boði Fella- og Hóla-
sókna.
Hvítasunnuhá-
tíðin í Neskirkju
Morgunblaðið/Jim SmartNeskirkja
KIRKJUSTARF