Morgunblaðið - 07.06.2003, Page 44

Morgunblaðið - 07.06.2003, Page 44
44 LAUGARDAGUR 7. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ                                     !!! BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329  Netfang bref@mbl.is Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. HEFUR eitthvað breyst eftir alþing- iskosningarnar? Fáir hafa tekið eftir því að fjórflokkakerfið er komið á knén. Fáir sjá það „afrek“ vinstri grænna að opna gullna hliðið fyrir Sjálfstæðisflokknum enn einu sinni. Þetta eru sorgleg örlög fólks sem hvorki skilur veruleikann né sagn- fræðina. Davíð og Halldór fengu um- boð til að skipta gífurlegum fjármun- um sem renna gegnum ríkissjóð á næstu 5–10 árum. – Eða hvað? Fram- sókn er ekki lengur bandingi Sjálf- stæðisflokksins. Verkefni Samfylk- ingarinnar er að sækja Framsókn úr heiðnabergi íhaldsins með trúverð- ugri framkomu og vináttu bestu manna í báðum flokkum. Einnig þarf Samfylkingin að sækja inn í það tómarúm sem fer ört stækkandi af utanflokkskjósendum. Og ungu glæsilegu þingmennirnir eiga strax eftir kosningaglamrið að tala saman og vinna saman. Í kosningabaráttunni kom fljótt upp hin hefðbundna þreyta sem flokkarnir skapa. Flokksfólki er smalað saman en hver flokkur hefur kjarna af „tryggum“ flokksmönnum sem annaðhvort eru með ættarskoð- un eða meinlausir sakleysingjar sem einn þekktur borgari lýsti á þennan hátt forðum tíð: „Ég er alveg ópóli- tískur og kýs bara Sjálfstæðisflokk- inn!“ Kjósendur urðu núna fljótt leið- ir og pirraðir á síbyljunni í stjórn- málamönnunum og þegar lokahrinan byrjaði þraut þolinmæðina hjá mörg- um. Algengustu svör voru, ef stjórn- mál bar á góma: „Sami rassinn undir öllum“ og „Þeir stela allir.“ Þetta þýðir á venjulegu máli að allt félagslíf og flokksáhugi er dauður hversdags- lega. Því fyrr sem Samfylkingin skil- ur þetta, því betra. Hér þarf að koma til nýtt heilarok eins tekið er dæmi um hér í greininni. Ég ætla að gagnrýna Samfylk- inguna málefnalega, grundvallarat- riðin, en ég ætla ekki að tína spörð. Ég álít að málflutningur og tillögu- flutningur Samfylkingarinnar á al- þingi eigi að benda á það raunsæja og framkvæmanlega, en ekki yfirboð eða gaspur. Þjóðin mun svara kallinu ef mál eru rökrædd og skilgreind inn- an ramma veruleikans. Og ég mun gagnrýna flokkinn ef kosningaloforð verða ekki nefnd öðruvísi en í áróð- ursskyni. Tökum dæmi um kosningaloforð: 60+ var „kosningaloforð“. Hér var verið að sá í nýjan og frjóan svörð sem legið hefur í órækt hjá flokknum um áratugi. Ef framhald 60+ verður það eitt að fyrir næstu kosningar verður fyrst annar fundur, þá missir fólkið traustið á flokknum: „Sami rass!“ Og ef hinir 20 þingmenn Sam- fylkingarinnar binda ekki enda á þá kolsvörtu sögu Íslendinga að níðast á eldra fólki og skapa því í þess stað ytri skilyrði til að lifa með sjálfsvirð- ingu og deyja með reisn þá missir fólk trú á flokknum. Það hefur enginn tíma til að bíða. Á þeim grunni sem nú er fyrir hendi er það skylda Samfylkingarinnar að ganga alla leið og endurnýja og bæta velferðarþjóðfélagið og sýna pólitískt hugrekki þegar höggva þarf á hnúta. Með þeim pólitíska liðsauka sem Samfylkingunni hefur nú bæst er hægt að breyta nýju öldinni í nýtt æv- intýri, en það má engan tíma missa. HRAFN SÆMUNDSSON, Gullsmára 9, 201 Kópavogi. Ég styð Samfylkinguna en er óflokksbundinn Frá Hrafni Sæmundssyni, fv. at- vinnumálafulltrúa í Kópavogi NÝLEGA hafa á þessum vettvangi birst mismunandi viðhorf til bifreiða- aksturs eldri borgara, sem er enn ein sönnun þess að við eftirlaunaþegar erum ekki einsleitur hópur. Flestum er okkur mikils virði að geta nýtt okkur hagræði einkabíls sem lengst. Þó var réttilega bent á að við ættum ekki að láta okkur vaxa í augum kostnað við notkun leigubíla, því að kostnaður við eign og rekstur einkabíls er mjög mikill. Sjálf erum við oft illa dómbær á eigið ágæti sem bílstjórar og kenn- um gjarna öðrum um ef við lendum í umferðaróhöppum. Þegar aðstand- endur fara að hafa áhyggjur af okkur í umferðinni getur það valdið tog- streitu eða ósætti innan fjölskyld- unnar um hvort við megum áfram aka. Ýmsar breytingar geta orðið á hæfni okkar með hækkandi aldri, svo sem lakari sjón eða heyrn, stirðari hreyfingar eða minni viðbragðsflýt- ir. Á maður sem fengið hefur heila- blóðfall eða heilaskaða af áverka eða maður með vitglöp að hafa ökuleyfi? Eldra fólk bjargar sér oft með því að velja sér akstursleiðir sem það þekk- ir vel og með því að aka hægar, sem aðrir ökumenn kunna oft illa að meta og getur aukið slysahættu. Ég óska eftir ákveðnari reglum um ökuleyfi aldraðra. Mér þykir vægi læknisvottorða of mikið við endurnýjun ökuskírteina, því að á þeim er aðeins vottað um sjón og heyrn, hvort útlimir og limaburður sé eðlilegur og hvort viðkomandi hætti til aðsvifa eða krampa. Meta þyrfti einnig hæfni til að spjara sig í umferðinni. Mér þætti til bóta að skylda lækna til að mæla með prófun á ökuhæfni þeirra sem þeir efast um að séu nægilega öruggir bílstjórar. Lögregluyfirvöld myndu síðan ákveða ökuleyfið eftir vottorðum læknis og ökukennara. Öllum í um- ferðinni væri líka til aukins öryggis að þeir sem endurtekið lenda í um- ferðaróhöppum væru skyldaðir til að undirgangast slíka prófun á öku- hæfni. HALLDÓR HALLDÓRSSON, lauk starfsævi sem öldrunarlæknir 2001, Grundargerði 7a, 600 Akureyri. Akstursöryggi aldraðra Frá Halldóri Halldórssyni lækni

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.