Morgunblaðið - 07.06.2003, Page 48
FÓLK Í FRÉTTUM
48 LAUGARDAGUR 7. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Í SUMAR geta landsmenn hugsað
sér gott til glóðarinnar því Brimkló
mun ganga í endurnýjun lífdaga.
„Við ætlum að fara af stað í enda
júní, koma fram víðsvegar um land-
ið í röskan mánuð,“ sagði Björgvin
Halldórsson, forkólfur bandsins,
þegar blaðamaður sló á þráðinn.
Endurkoman verður stutt en
snörp, en lítið hefur heyrst frá
bandinu um langt árabil. Síðast kom
bandið saman undir þessu nafni á
Sveitaballi á Mölinni, dagskrá sem
haldin var á Hótel Íslandi 1994.
Brimkló varð til upp úr hljómsveit-
inni Ævintýri í kringum 1976 og
voru stofnendur, auk Björgvins,
þeir Arnar Sigurbjörnsson, Ragnar
Sigurjónsson, Hannes Jón Hann-
esson og Sigurjón Sighvatsson.
Á gjöfulum ferli hljómsveit-
arinnar, sem markaði upphaf
kántrítónlistar á Íslandi, urðu til
ódauðlegir smellir á borð við Ég las
það í Samúel, Glímt við þjóðveginn,
Skólaball, og Sagan af Nínu og
Geira.
Björgvin segir bandið muni spila
þessi lög og fleiri af þeim fjölda-
mörgu sem prýða fimm plötur er
komu út í nafni Brimklóar. Bandið
tók þó nokkrum mannabreytingum
í gegnum tíðina en sú útgáfa sem
spila mun í sumar verður: Björgvin
Halldórsson, Arnar Sigurbjörnsson
á gítar, Ragnar Sigurjónsson á
trommur, Haraldur Þorsteinsson á
bassa og Guðmundur Benediktsson
á gítar, en þessi samsetning bands-
ins lét frá sér tvær plötur á sínum
tíma. Björgvin segir einnig líklegt
að Þórir Baldursson bætist við sem
sjötti meðlimur og leiki á hammond-
orgel.
„Það getur ýmislegt gerst,“ segir
Björgvin. „Sjálfur Sigurjón Sig-
hvatsson verður á landinu um þetta
leyti og aldrei að vita nema hann
taki í bassann.“ Margir aðrir stöns-
uðu við í Brimkló, í lengri eða
skemmri tíma. Þannig söng Ragn-
hildur Gísla. með eitt sinn og Magn-
ús Kjartansson, Kristinn Svav-
arsson og Jónas R. Jónasson áttu
líka stóran þátt í sögu Brimklóar.
Björgvin, sem um þessar mundir
er að leggja lokahönd á plötuna Ís-
landslög nr. 6 segir endurkomuna
vera ekki síst fyrir tilstilli Óla Palla
á Rás 2: „Fólk hefur í gegnum árin
verið að biðja okkur að koma saman
aftur. Hann Óli Palli fór að eggja
okkur til að gera eitthvað svona.
Við ákváðum að slá til og höfum
verið á æfingum síðan.“
Björgvin segir endurkomu hljóm-
sveitarinnar verða mjög takmark-
aða og hvetur því áhugasama til að
tryggja sér í tíma pláss á þeim
skemmtunum þar sem bandið mun
spila. Nánari dagskrá hljómsveitar-
innar skýrist þegar líður á sumar.
Frumkvöðlar kántrítónlistarinnar á Íslandi aftur á stjá
Brimkló
brunar
um landið
í sumar
Þessi útgáfa af Brimkló kemst næst þeirri sem spilar saman í sumar. Efst
frá vinstri: Haraldur Þorsteinsson, Guðmundur Benediktsson og Björgvin
Halldórsson. Ágúst Ágústsson rótari (Gústi rót), Arnar Sigurbjörnsson og
Ragnar Sigurjónsson, en þeir Ágúst og Ragnar verða fjarri góðu gamni.
Kvikmyndagerðarmaðurinn Hrafn
Gunnlaugsson er þekktur fyrir að
fjalla tæpitungulaust um hlutina og
heimildarmynd hans um nútíð og
framtíð höfuðborgarinnar vakti mikla
athygli á síðasta ári. Ekki síst fyrir
nýstárlegar hugmyndir og skemmti-
lega notkun tölvugerðra mynda. Það
kveður við svipaðan tón í Ísland í nýju
ljósi, þar sem kvikmyndasmiðurinn,
náttúrubarnið og -unnandinn Hrafn
geysist um tíma, rúm og Íslandskort-
ið – með tölvuna góðu í farangrinum.
Hrafn skoðar þróunarsögu lands-
ins síðustu tíu þúsund árin, eða frá
lokum síðustu Ísaldar og spáir í fram-
tíðina eins og honum er einum lagið.
Sýnir á athyglisverðan hátt með að-
stoð tölvugrafíkur hvernig landið tek-
ur breytingum, útfærslu strandlín-
unnar, hop jökla ofl. áhugavert.
Hvernig náttúruöflin hafa mótað út-
litið, svo kemur manneskjan til sög-
unnar og byrjar á Öxarárfoss.
Þessi aðferð að sýna með grafík
hvernig landið leit út og getur hugs-
anlega þróast er einföld en áhrifarík
og vekur áhorfandann til umhugsun-
ar um hvað er að gerast í kringum
hann. Hrafn spyr einnig fjölmargra
áleitinna spurninga: Hví ekki að opna
Almannagjá fyrir fjölskylduvænar
skoðunarferðir á heimilisbílnum?
Getur manngert, áburðarfrekt og
röndótt graslendi á heiðum uppi kom-
ið í stað náttúrulegs gróðurs hrúta-
berjalyngs og blágresis? Er lúpínan
til bölvunar eða blessunar? Er rétt-
lætanlegt að markaðssetja af ofur-
kappi viðkvæm náttúruvætti? Vita
menn í raun um hugsanleg framtíð-
aráhrif uppistöðulónanna á skrauf-
þurrum öræfunum á Norðurlandi
Eystra? Því ekki að halda hrossum og
sauðfé í ræktunarhólfum á láglendi?
Er ekki nær að girða búfénaðinn af
frekar en blikkbeljur landsmanna?
Allt eru þetta umhugsunarverðar
og þarfar spurningar sem eiga rétt á
að dokað sé við þær.
Okkur eru sýnd nokkur slæm mis-
tök eins og vegsummerkin eftir mis-
lukkað loðdýraræktunarævintýri,
þ.e. þau sjáanlegu, óhóflegt og til-
gangslaust jarðrask og umhverfis-
áhrif þeirra. Orkumálin og virkjana-
gerðir eru ofarlega á blaði og þrátt
fyir allt getum við þakkað okkar sæla
fyrir að ekkert varð af martröðinni
„Lang stærsta draumnum“, sem
kynntur var til sögunnar á öndverð-
um sjöunda áratugnum og gekk út á
að steypa saman jökulfljótunum
þrem á NA.-horninu. Sá draumur
hefði hugsanlega orðið okkar versta
martröð.
Ferðamannaiðnaðurinn básúnar
ótæpilega ósnortna og hreina náttúru
landsins og virðist trúa því og við Ís-
lendingar almennt viljum trúa því. Ef
við horfum í kringum okkur blasir
annað við. Því miður eru alltof fáir
jafnkjarkaðir og Hrafn, ef menn lyfta
tökuvélum blasir einatt við okkur
dýrðlegt póstkortalandslag, enda nóg
af því á okkar fagra landi. En við
megum ekki snúa blinda auganu að
þeirri staðreynd að í engu landi Evr-
ópu hefur gróðri verið jafn gjörspillt
af mannavöldum. Oft af illri nauðsyn,
oft af gáleysi.
Hugmyndir Hrafns um Háborg Ís-
lands, upphitaða vegi á hálkublettum
og vegskála á snjóþungum köflum á
hálendisvegum framtíðarinnar er
ágætur vísindaskáldskapur. Ísland í
nýju ljósi er skemmtileg og athygl-
isverð blanda slíkra skáldamála, mar-
traða og veruleika um fjöregg þjóð-
arinnar.
Bölvun og bless-
un í náttúrunni
SJÓNVARP
Sjónvarpið
Íslensk heimildarmynd. Höfundur og leik-
stjóri: Hrafn Gunnlaugsson. Aðstoð við
handrit: Ari Kristinsson og Trausti Vals-
son. Stjórn tölvu og myndvinnslu: Ari
Kristinsson. Tölvubrellur: Egill Vignisson
ofl. Hljóð: Kjartan Kjartansson. Tónlist-
arval og klipping: Hrafn Gunnlaugsson.
F.I.L.M. 2003. RUV. 2003.
ÍSLAND Í NÝJU LJÓSI
Sæbjörn Valdimarsson
Heimildarmyndin verður endursýnd
í Sjónvarpinu á morgun kl. 12.05.
Stóra svið
Miðasalan er opin frá kl. 13-18 og fram að sýningu sýningardaga. Sími miðasölu opnaður kl. 10 virka daga.
Fax 568 0383 - midasala@borgarleikhus.is
Miðasala 568 8000
Nýja svið
NAPÓLÍ 23 - ÚTGÁFUTÓNLEIKAR
Hilmar Jensson, Skúli Sverrisson,
Matthias Hemstock, Eyvind Kang
Lau 14/6 kl. 15.15
15:15 TÓNLEIKAR - FERÐALÖG
Bergmál Finnlands: Poulenc hópurinn
Lau 14/6 kl. 15:15
Litla svið
RÓMEÓ OG JÚLÍA
e. Shakespeare í samstarfi við VESTURPORT
Lau 21/6 kl. 20 - AUKASÝNING
Sun 22/6 kl. 20 - AUKASÝNING
ATHUGIÐ SÍÐUSTU SÝNINGAR
NÚLLSJÖ NÚLLSEX 2003
Dansleikhúskeppni LR og ÍD
Níu verk keppa til úrslita
Áhorfenda verðlaun - DJ Daddi diskó
Í kvöld kl. 20 - Miðaverð kr. 2.000.
AÐEINS ÞETTA EINA SINN.
ÖFUGU MEGIN UPPÍ e. Derek Benfield
Fö 13/6 kl. 20
SÍÐASTA SÝNING Í VOR
DON GIOVANNI EFTIR W. A. MOZART
ÓPERUSTÚDÍÓ AUSTURLANDS
Su 15/6 kl. 17
Má 16/6 kl. 20
ALLIR Í LEIKHÚSIÐ - ENGINN HEIMA!
Borgarleikhúsið er fjölskylduvænt leikhús: Börn, 12 ára og yngri, fá frítt
í leikhúsið í fylgd með forráðamönnum.
Gildir á ÖFUGU MEGIN UPPÍ
lau 7. júní kl. 21, Félagsheimilið Blöndósi
sun 15. júní kl. 21, Hótel Borgarnes
fim 19. júní kl. 21, Félagsh. Valhöll Eskifirði
lau 19. júní kl. 21, Félagsh. Herðubreið Seyðisf.
Forsala á Blöndósi í Byggingav. KH, Húnabraut
Forsala í Borgarnesi í versluninni Fínu fólki,
Borgarbraut
www.sellofon.is
Fjölbreyttur sérréttamatseðill
Sérsalur fyrir hópa leitið tilboða
Eldhúsið er opið 11.30 til 23.00
Borðapantanir í síma 568-0878
LAUGARDAGURINN 7. JÚNÍ
Kl. 18.15 Barokktónleikar
Gloria eftir Vivaldi
Hvítasunnukantatan Erschallet, ihr Lieder,
BWV 172 eftir Bach.
Einsöngvarar: Rannveig Sif Sigurðardóttir sópran,
Guðrún Edda Gunnarsdóttir alt, Þorbjörn Rúnars-
son tenór og Davíð Ólafsson bassi. Kammerkór-
inn Schola cantorum. Barokkhljómsveitin Das
Neue Orchester frá Köln.
Stjórnandi: Hörður Áskelsson. Kr. 2.000.
SUNNUDAGURINN 8. JÚNÍ
Kl. 20.00 Orgeltónleikar:
Olivier Latry frá Notre Dame í París, einn frægasti
organisti heims, leikur tónlist eftir Bach, Franck,
Vierne, Dupré o.fl. auk þess að spinna á Klais-
orgel Hallgrímskirkju. Kr. 2.000.
MÁNUDAGURINN 9. JÚNÍ
Kl. 20.00 Lokatónleikar Kirkjulista-
hátíðar Mótettur meistara Bachs, BWV 225 -
230. Einar Jóhannesson klarinettuleikari frumflyt-
ur Bachbrýr eftir Atla Heimi Sveinsson á milli
mótettanna. Mótettukór Hallgrímskirkju Das Neue
Orchester frá Köln Stjórnandi: Hörður Áskelsson.
Kr. 2500.
HALLGRÍMSKIRKJA
Miðasölusími 510 1000
Kirkjulistahátíð 2003
29. maí - 9. júní
HARMUR PATREKS
eftir Auði Haralds
Frumsýning lau. 7. júní kl. 20
2. sýn. sun. 8. júní kl. 20
3. sýn. fös. 13. júní kl. 20
4. sýn. lau. 14. júní kl. 20
Dansleikhús með ekka frumsýnir
LÍNEIK OG LAUFEY
lau. 14. júní kl. 14
lau. 14. júní kl. 16
sun. 15. júní kl. 14
Miðaverð kr. 500