Morgunblaðið - 07.06.2003, Page 56
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 LAUGARDAGUR 7. JÚNÍ 2003 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
– leiðandi í lausnum
Skeifunni 17AcoTæknival Sími 550 4000 Fax 550 4001
Áskriftarsími 881 2060
Í FORMI
NÚ er skólaárinu lokið og nemendur halda út í
sumarið. Skóla Ísaks Jónssonar var slitið í gær en
þar er venja að kveðja skólann með söng.
Nemendur í átta ára bekk hafa lokið sínu síðasta
ári við skólann og báru af því tilefni sérstaka út-
skriftarhatta eins og sjá má á myndinni. Útskrift-
araðallinn dró ekki af sér í lokalaginu, „Þótt þú
langförull legðir“.
Morgunblaðið/Sverrir
Skólinn kvaddur með söng
„EINELTIÐ byrjaði um fjögurra
eða fimm ára aldur. Ég ólst upp
hjá stjúpmóður minni sem ég á
mikið að gjalda, hún var ekta fín
kona. En sá var gallinn á henni að
hún var smámælt og þaðan kom
eineltið. Það var verið að herma
eftir henni og skella því á mig. Af
því að ég heiti Nikolaj, þá var allt-
af hrópað „Fúþi hæ Nikolæ!“ Hún
kallaði mig nefnilega alltaf Fúsa,
því henni var illa við Nikolaj-
nafnið.“
Þetta segir Sófus Bertelsson,
tæplega níræður Hafnfirðingur
sem hefur ritað sögu byggða á ein-
elti sem hann varð fyrir í æsku.
Sófus segir nafnið Nikolaj vekja
svo slæmar tilfinningar að hann
hafi reynt alla sína ævi að láta það
hverfa.
„Í barnaskóla var alltaf, bæði á
göngunum og úti á leikvanginum,
verið að uppnefna mig með hróp-
um. Þetta fór mjög illa í mig, og
ekki nóg með að þarna væru börn
að uppnefna mig, heldur var líka
fullorðið fólk að herma eftir fóstru
minni. Kennararnir hlógu bara að
þessu og fannst ekkert að því. Á
unglingsárunum leiddi ég margoft
hugann að því að segja skilið við
þennan heim og eineltið.“
Glataði æskuást
vegna eineltis
Sófus hefur gefið út ljóðabækur
og skáldsögu um kreppuárin í
Hafnarfirði.
„Ég ákvað það þegar ég var í
barnaskóla að ég ætlaði að verða
ljóðskáld og rithöfundur þegar ég
yrði stór,“ segir Sófus.
Eineltið olli afar djúpri vanlíðan
hjá Sófusi. „Ég var sendur sjö, átta
ára í sveit og þar var lítil telpa
sem ég gætti og gerði mjög vel
við. En svo tíu árum seinna kom
ég aftur á bæinn. Þá var þessi
stúlka orðin sautján ára og ég
varð ofsalega hrifinn af henni, en
ég vildi ekki fara í samband við
hana, því ég vildi ekki láta eineltið
mitt bitna á henni. Ég hélt henni
því alltaf frá mér. Um það snýst
sagan sem ég skrifaði. Ég missti af
þessari fallegu stúlku út af einelt-
inu.
Svo fór ég til Danmerkur 1937
og náði þar smásambandi við sjálf-
an mig og fékk að vera í friði. Ég
kynntist konunni minni þegar ég
kom heim aftur og hef lifað ágætu
lífi síðan.“
Sófus var mikill íþróttamaður
og myndarlegur ungur maður og
er stofnmeðlimur í Haukum. Hann
ber því skýrt vitni að það þarf ekki
að vera frábrugðinn eða skrýtinn
til að verða fórnarlamb eineltis.
En eineltið lifir lengi og fyrir
átta árum flutti gamall skólafélagi
Sófusar í þjónustuíbúð í sömu
blokk og Sófus. „Og þá hitti ég
hann aldrei svo á göngunum að
hann hrópaði ekki „Fúþi hæ
Nikolæ!“ á eftir mér, áttræður
maðurinn.“
88 ára gamall Hafnfirðingur skrifar bók um einelti sem hann hefur orðið fyrir á lífsleiðinni
„Vildi skilja við þennan heim og eineltið“
Morgunblaðið/Golli
Sófus Bertelsson lenti ungur í einelti sem særði hann djúpt. Hann vonar
að frásögn sín veki fólk til umhugsunar og gagnist Regnbogabörnum.
ALDREI hafa borist jafnmargar umsóknir
um nám við Kennaraháskóla Íslands og nú í
vor en vegna fjárhagsramma skólans getur
hann aðeins tekið við þriðjungi hópsins.
Nemendum við Kennaraháskóla Íslands
hefur fjölgað verulega á undanförnum
þremur árum og eru þeir nú um 2.200. Sam-
kvæmt upplýsingum frá skólanum bárust
samtals 1.517 umsóknir frá 1.350 einstak-
lingum um nám í grunndeild, en miðað við
fjárhagsramma skólans er gert ráð fyrir að
um 480 þeirra fái skólavist. 263 sóttu um
nám í framhaldsdeild og var 173 umsækj-
endum boðið nám en hafna varð 90 manns.
Umsóknir um nám í grunndeild skólans
skiptast þannig að 708 sóttu um grunn-
skólakennaranám, 327 um kennsluréttinda-
nám, 270 um leikskólakennaranám, 100 um
þroskaþjálfanám, 76 um íþróttafræðinám
og 36 um tómstundafræðinám.
Metaðsókn að Kennara-
háskóla Íslands
Hafna verður
um 1.000 um-
sækjendum
ÞRÁTT fyrir að verð á ýsu hafi
lækkað frá um fimmtungi og upp í
helming á fiskmörkuðum hefur
það ekki lækkað í búðum. Fisksal-
ar segjast meðal annars verða að
bæta sér upp mögur ár með því að
lækka ekki verðið en segja einnig
að ýmis kostnaður, einkum
flutningskostnaður, hafi aukist
mikið.
Verð á stórri línuýsu, slægðri, er
22,4% lægra nú en á sama tíma í
fyrra. Meðalverð slægðrar ýsu (all-
ir stærðarflokkar) í maí 2002 var
gildi. „Frá um miðju ári 2001 fram
til áramóta 2002 hafði aldrei verið
eins hátt fiskverð í sögu fiskmark-
aðanna og þá fengum við stundum
lítið sem ekkert fyrir okkar flök út
úr versluninni á sama tíma og
kjúklingar og svínakjöt voru gef-
ins,“ segir Eiríkur, „þannig að það
var mjög erfitt tímabil og það er í
góðu lagi þótt verð hafi ekki lækk-
að alveg í samræmi við það sem
ætti að geta verið í dag.“
skýringarinnar á mismun inn-
kaupsverðs og útsöluverðs,“ segir
Helgi Helgason, einn eigenda
Fiskbúðar Hafliða, „og ég tel þessa
álagningu eðlilega.“
Eiríkur Auðunn Auðunsson hjá
Fiskbúðinni Vör segir að búðin
hafi lækkað verð sinnar vöru um
100–400 krónur kílóið í október í
fyrra og að sú lækkun sé enn í
185 krónur en er nú 97 krónur, sem
þýðir 48% lækkun.
Gengismunur og offramboð
Að sögn Gunnars Bergmanns,
sölustjóra hjá Fiskmarkaði Ís-
lands, hefur verð stórrar ýsu lækk-
að um 30% í samræmi við gengið í
maí í fyrra og svo núna.
„Mögur ár í rekstri eru hluti
Fisksalar segjast vera að
bæta sér upp mögru árin
Verð á ýsu út úr búð lækkar ekki
þrátt fyrir lækkun á fiskmörkuðum
Verðlækkun/13
ÓLAFUR Elíasson myndlistarmað-
ur tekur þátt í tvíæringnum í Fen-
eyjum fyrir Danmerkur hönd nú
þegar hann verður opnaður að viku
liðinni, en hann er nú haldinn í fimm-
tugasta sinn. Nokkur hugmynda-
fræðileg umskipti hafa verið boðuð,
þar sem nýr sýningarstjóri, Franc-
esco Bonami, er nú við stjórnvölinn í
fyrsta sinn, en hann hefur beint sjón-
um sínum að því hvernig áhorfand-
inn er virkjaður til meðvitaðrar af-
stöðu og/eða þátttöku í sýningunni.
Ólafur segir í viðtali við Morgun-
blaðið að þema tvíæringsins í ár,
„Draumur og árekstrar, alræðisvald
áhorfandans“, hafi vissulega haft
mótandi áhrif á verk sitt, „Blinda
skálann“. „Ekki síst vegna þess að í
þemanu felst ekki sú hugsun að sýn-
ingin sjálf og virkni hennar út á við
sé þungamiðjan heldur er sjónum
beint að áhorfandanum sjálfum sem
því virka afli sem mótar sýninguna.
Þetta eru eiginlega umskipti á því
sem við eigum að venjast á
myndlistarsýningum.“
„Alræðis-
vald áhorf-
andans“ í
Feneyjum
Skynhrif/Lesbók 4–5
FYRSTA ferðahelgi sumarsins er gengin í
garð en að sögn lögreglu var umferðin út úr
Reykjavík nokkuð þung í gær. Hún gekk
ekki áfallalaust fyrir sig því fimm bíla
árekstur varð á Suðurlandsvegi á móts við
Rauðhóla um kvöldmatarleytið. Árekst-
urinn var harður og voru tveir fluttir á
slysadeild. Að sögn lögreglunnar var ívið
meiri umferð um Vesturlandsveginn en
Suðurlandsveginn. Þeir sem fara vestur
munu sennilega hreppa besta veðrið því þar
gæti hitinn farið í 16 til 17 stig, samkvæmt
upplýsingum frá Veðurstofunni. Annars er
ekki spáð bjartviðri um helgina, heldur súld
eða rigningu norðan- og austanlands og
skúrum sunnan- og vestanlands en gæti þó
rofað til.
Morgunblaðið/Golli
Fyrsta ferða-
helgi sumarsins