Morgunblaðið - 04.07.2003, Blaðsíða 46
ÍÞRÓTTIR
46 FÖSTUDAGUR 4. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
ÚRSLIT
Í HÁDEGINU í gær var dregið í
bikarkeppni karla og kvenna. Hjá
konunum í undanúrslit en í 8-liða
úrslit hjá körlunum. Ljóst er að
krýndur verður nýr bikarmeistari í
bæði karla- og kvennaflokki því
Fylkir, bikarmeistari karla, og KR,
bikarmeistari kvenna, eru bæði
dottin úr leik. Hjá konunum mætast
Breiðablik og ÍBV annars vegar og
Stjarnan og Valur hins vegar. Í
karlaflokki fær 1. deildarlið Vík-
ings KA í heimsókn. Skagamenn
taka á móti Grindavíkingum, Vals-
menn fara í Hafnarfjörð og leika
við FH og Reykjavíkurrisarnir KR
og Fram mætast í Vesturbænum.
Ólafur Þór Guðbjörnsson, þjálfari
Breiðabliks, var sáttur við að fá
ÍBV í undanúrslitum og hlakkar til
leiksins: „Við erum mjög ánægð hjá
Breiðabliki, leikurinn smellpassar
inn í dagskrána á pæjumótinu okk-
ar. Það hefur gengið ágætlega hjá
okkur að undanförnu og stefna liðs-
ins er að sjálfsögðu að vinna bik-
arinn. Ég efast ekki um að þetta
verði skemmtilegur leikur því við
lékum úti í Eyjum fyrir stuttu og
töpuðum í miklum markaleik.“
Undanúrslit kvenna
Stjarnan - Valur
Breiðablik - ÍBV
Leikur Stjörnunnar og Vals fer
fram 17. júlí en leikur Breiðabliks
og ÍBV hinn 18. júlí.
Stórleikur 8-liða úrslita karla fer
fram á Akranesi. Þar mætast
Skagamenn og Grindvíkingar. Fyr-
irliði ÍA, Gunnlaugur Jónsson, var
alsæll með að hafa fengið Grinda-
vík á heimavelli: „Við Skagamenn
eigum góðar minningar úr viður-
eignum okkar við Grindvíkinga í
bikarkeppni því að við sigruðum þá
í fyrra og árið 2000,“ sagði Gunn-
laugur.
8-liða úrslit karla
Víkingur - KA
ÍA - Grindavík
FH - Valur
KR - Fram
Leikirnir fara fram 20. og 21.
júlí.
Skagamenn fá Grindvíkinga
í heimsókn í bikarkeppninni ÍSLENSKA karlalandsliðið í hand-
knattleik mætir Slóvenum í fyrsta
leik sínum á EM í handknattleik
sem fram fer í Slóveníu í byrjun
næsta árs.
Dregið var í riðla á dögunum og
er Ísland með heimamönnum, Ung-
verjum og Tékkum í riðli. Fyrsti
leikur íslenska liðsins verður gegn
heimamönnum 22. janúar en leikir
C-riðils, sem íslenska liðið er í, fara
fram í borginni Celje. Daginn eftir,
föstudaginn 23. janúar, mætir ís-
lenska liðið Ungverjum og á sunnu-
deginum verður leikið við Tékka.
Þrjú efstu liðin í hverjum riðli
komast áfram og taka með sér þau
stig sem þau fengu í riðlinum á móti
þeim þjóðum sem komast einnig
áfram úr viðkomandi riðli.
Heimamenn
í fyrsta leik
Lítið fór fyrir virðingu FH-kvennafyrir Íslands- og bikarmeistur-
um KR þegar þær sóttu meistarana
heim í Vesturbæinn í
gærkvöldi og framan
af var það frekar
KR-inga að verjast
en augnabliks and-
varaleysi kostaði þó FH tvö mörk á
tveimur mínútum. Það náði þó ekki
að slá gestina út af laginu en þeir
áttu samt ekkert svar við seiglu KR-
inga sem unnu 4:2.
Fyrstu 20 mínúturnar gáfu FH-
ingar ekki þumlung eftir og spiluðu
mun betur en gekk lítið að fá færi.
Vesturbæingar sýndu þolinmæði og
á 21. mínútu kom Þórunn KR í 1:0
með skalla eftir hornspyrnu og mín-
útu síðar lék Ásthildur Helgadóttir
það eftir. Hafnfirðingum var brugðið
og KR fékk nokkur færi en FH náði
aftur upp baráttu.
Á 7. mínútu síðari hálfleiks var El-
ínu Svavarsdóttur brugðið inni í teig
svo dæmd var vítaspyrna sem Krist-
ín Sigurðardóttir notaði til að
minnka muninn í 2:1. Það dugði til að
koma KR af stað og Hólmfríður
Magnúsdóttir skoraði með skalla eft-
ir horn en þremur mínútum síðar
minnkaði Elín muninn þegar hún
nýtti varnarmistök KR til að skora í
autt markið af 35 metra færi. Hrefna
Jóhannesdóttir kom KR í 4:2 á 84.
mínútu. Kristín fékk aftur tækifæri
til að skora úr vítaspyrnu eftir að
togað var í Elínu inni í teig en Þóra
B. Helgadóttir varði vítið með tilþrif-
um út við stöng.
„Við vorum óheppnar að taka ekki
stig af þeim,“ sagði Elín eftir leikinn
en hún átti prýðisleik. „Við ætluðum
okkur að taka þær og það var engin
virðing fyrir þeim. Það var örlítið
einbeitingarleysi en við héldum
áfram. Það var gott fyrir okkur að
sýna að við getum staðið í toppliði.“
KNATTSPYRNA
2. deild karla:
Helgafellsvöllur: KFS - Léttir ..................19
3. deild karla:
Ólafsvíkurvöllur: Víkingur Ó. - Númi.......20
Tungubakkavöllur: ÍH - Afríka.................20
Í KVÖLD
Athugasemd
Vegna umfjöllunnar um leik KR og ung-
mennaliðs ÍA í blaðinu í gær hefur Morg-
unblaðið verið beðið um að koma eftirfar-
andi athugsasem á framfæri:
„Aðstoðardómari sá þegar Einar Þór Daní-
elsson skallaði í andlit Þórðar Birgissonar
og upplýsti dómara leiksins um það sem
gerðist. Hins vegar var ekki hægt að gera
neitt frekar í málinu á leikvellinum þar sem
Einari Þór hafði þegar verið vikið af leik-
velli með rautt spjald.“
KNATTSPYRNA
Efsta deild kvenna, Landsbankadeild:
KR – FH .....................................................4:2
Þórunn Helgadóttir (20.), Ásthildur Helga-
dóttir (21.), Hólmfríður Magnúsdóttir (67.),
Hrefna Jóhannesdóttir (84.) – Kristín Sig-
urðardóttir (52.), Elín Svavarsdóttir (70.).
Staðan:
KR 7 6 1 0 31:5 19
Valur 7 5 1 1 21:9 16
ÍBV 7 5 0 2 31:10 15
Breiðablik 7 5 0 2 23:15 15
FH 8 2 0 6 5:25 6
Stjarnan 6 1 0 5 7:18 3
Þróttur/Haukar 5 1 0 4 6:24 3
Þór/KA/KS 7 1 0 6 5:23 3
Markahæstar:
Hrefna Huld Jóhannesdóttir, KR ............14
Ásthildur Helgadóttir, KR .......................10
Olga Færseth, ÍBV ......................................9
Margrét Lára Viðarsdóttir, ÍBV ............... 8
Ólína Guðbjörg Viðarsdóttir, Breiðablik .. 7
Elín Anna Steinarsdóttir, Breiðablik ........ 6
Mhairi Gilmour, ÍBV ...................................6
Laufey Ólafsdóttir, Valur ...........................6
Dóra Stefánsdóttir, Valur........................... 4
2. deild karla
Víðir – Fjölnir ............................................1:2
KS – Tindastóll ..........................................1:2
ÍR – Selfoss................................................2:0
Völsungur – Sindri ....................................4:3
Staðan:
Völsungur 8 8 0 0 32:10 24
Fjölnir 8 6 0 2 24:13 18
Selfoss 8 4 1 3 15:9 13
ÍR 8 4 1 3 15:12 13
KS 8 4 1 3 14:13 13
Víðir 8 4 0 4 10:11 12
Tindastóll 8 2 1 5 13:19 7
KFS 7 2 0 5 13:24 6
Léttir 7 1 1 5 6:23 4
Sindri 8 0 3 5 9:17 3
3. deild, A-riðill:
Deiglan – Drangur ....................................5:4
Staðan:
Víkingur Ó 6 6 0 0 19:3 18
Skallagr. 6 4 0 2 18:10 12
Númi 6 3 2 1 19:15 11
BÍ 6 3 1 2 13:15 10
Bolungarvík 5 2 0 3 11:12 6
Deiglan 7 2 0 5 13:25 6
Grótta 7 1 2 4 10:12 5
Drangur 7 1 1 5 12:23 4
3. deild, B-riðill:
Freyr – Leiknir R......................................0.5
Árborg – Ægir ...........................................5:3
Reynir S. – Hamar ....................................4:0
Staðan:
Leiknir R. 7 6 1 0 33:4 19
Reynir S. 7 5 2 0 27:3 17
Árborg 7 3 2 2 21:12 11
ÍH 6 3 1 2 12:11 10
Freyr 7 3 0 4 10:17 9
Hamar 7 2 1 4 7:19 7
Afríka 6 1 0 5 4:23 3
Ægir 7 0 1 6 7:32 1
3. deild, C-riðill:
Vaskur – Neisti H......................................5.3
Magni – Reynir Á. .....................................0:2
Staðan:
Vaskur 6 5 0 1 17:5 15
Magni 6 3 2 1 13:6 11
Reynir Á 6 3 2 1 8:7 11
Hvöt 6 1 2 3 6:8 5
Neisti H. 6 1 2 3 8:12 5
Snörtur 6 0 2 4 6:20 2
3. deild, D-riðill:
Einherji – Fjarðabyggð............................0:1
Staðan:
Fjarðabyggð 7 5 0 2 18:8 15
Höttur 7 4 1 2 13:7 13
Neisti D. 6 3 1 2 7:10 10
Huginn 7 3 0 4 14:15 9
Einherji 6 2 0 4 7:11 6
Leiknir F. 7 2 0 5 9:17 6
1. deild kvenna, A-riðill:
HSH – Þróttur/Haukar2 ..........................1:3
Staðan:
Breiðablik 2 5 5 0 0 37:6 15
Fjölnir 6 4 0 2 18:14 12
HK/Víkingur 5 3 1 1 15:5 10
RKV 6 3 1 2 17:17 10
ÍR 6 3 0 3 26:14 9
Þróttur/Haukar 2 6 1 0 5 7:30 3
HSH 6 0 0 6 8:42 0
Patrekur var dæmdur í keppnis-bann eftir síðasta leik sinn með
Tusem Essen í þýsku 1. deildinni í
handknattleik en þá varð honum það
á að hrækja í átt að dómara í kapp-
leik. Bannið kom í veg fyrir að Pat-
rekur gæti gengið til liðs við Bidasoa
nú í sumar, en hann gerði samning
við félagið skömmu eftir áramót með
það í huga að leika með því frá og
með haustinu. Þýska handknatt-
leikssambandið neitaði að skrifa upp
á félagsskiptin sökum bannsins sem
gilti til 24. nóvember. Patrekur og
umboðsmaður hans Wolfgang
Gutschow freistuðu þess að fá bann-
inu hnekkt með því að fara með mál-
ið fyrir vinnuréttardómstól Þýska-
lands þar sem þeir töldu leikbannið
stríða gegn lögum ESB um frjálst
flæði vinnuafls.
„Í stuttu máli þá tók dómstóllinn
undir rök okkar í málinu, dæmdi
bannið ógilt og skyldaði þýska hand-
knattleikssambandið að skrifa undir
félagsskipti Patreks til Spánar. Það
getur því ekkert komið í veg fyrir að
Patrekur fái félagsskipti og verði
orðinn leikmaður Bidasoa áður en
langt um líður. Þannig getur hann
staðið við sinn hluta samkomulags-
ins við spænska félagið,“ sagði
Gutschow þegar Morgunblaðið tal-
aði við hann í gær.
Hefði niðurstaðan orðið á hinn
veginn gat Bidasoa sagt upp samn-
ingi sínum við Patrek sem þar með
hefði staðið uppi atvinnulaus.
„Það er að sjálfsögðu þungu fargi
af mér létt nú þegar þetta er í höfn
enda varðaði þetta ekki bara mig og
atvinnu mína heldur fjölskyldu mína
einnig,“ sagði Patrekur sem er
staddur í sumarleyfi hér á landi en
segist fara til Spánar 19. júlí en æf-
ingar hjá Bidasoa hefjast tíu dögum
síðar.
Gutschow segist hafa strax og nið-
urstaðan lá fyrir talað við forsvars-
menn Bidasoa og þeir séu eins og
fleiri í sjöunda himni með að málið
skuli vera til lykta leitt á þennan já-
kvæða hátt. Þeir gangi nú í málið og
óski eftir að þýska sambandið undir-
riti nauðsynlega pappíra sem varða
félagsskiptin.
Patrekur segist alltaf hafa verið
viss um sigur í málinu og því hafi
hann fyrir nokkru flutt búslóð sína
frá Essen til Spánar þar sem hann
hefur tryggt sér og fjölskyldu sinni
húsnæði, en Patrekur gerði tveggja
ára samning við Bidasoa. Patrekur
sagðist vera þakklátur fyrir þann
stuðning sem hann hefði fengið í
málinu, ekki síst frá fyrrverandi
vinnuveitendum sínum í Tusem Ess-
en. „Þeir hjá Essen studdu fullkom-
lega við bakið á mér frá fyrsta degi
og greiddu götu mína eins og þeim
var mögulegt þótt þeim bæri engin
skylda til þess þar sem ég var ekki
lengur á þeirra snærum. Það sýnir
kannski öðru fremur að ég hef komið
félaginu að ég skil eftir mig góðar
minningar hjá þeim sem stýra félag-
inu og það er gott til þess að vita.
Hins vegar ollu viðbrögð HSÍ mér
nokkrum vonbrigðum. Eftir að hafa
leikið 210 landsleiki með íslenska
landsliðinu átti ég ekki von á hiki á
þeim bænum og þar væri sagt að
skoða yrði málið,“ segir Patrekur
sem m.a. var settur út úr íslenska
landsliðinu sem lék nokkra lands-
leiki í lok maí og byrjun júní sl. „Ég
ætla hins vegar ekki að erfa þetta við
nokkurn mann. Nú er þetta að baki
og ég get haldið áfram að leika hand-
knattleik og einbeitt mér að því að
standa mig sem best með nýju liði,“
sagði Patrekur Jóhannesson, at-
vinnumaður í handknattleik.
Patrekur Jóhannesson vann mál fyrir vinnuréttardómstóli Þýskalands
gegn þýska handknattleikssambandinu vegna hálfs árs keppnisbanns
Fær félagaskipti
Morgunblaðið/Golli
Patrekur Jóhannesson handknattleiksmaður leikur með Bidasoa á Spáni næstu tvö árin.
„ÉG er mjög ánægður með
þessa niðurstöðu enda tryggir
hún að ég geti sinnt mínu starfi
óhindrað hér eftir sem hingað
til, þetta er algjör draumur,“
sagði Patrekur Jóhannesson,
handknattleiksmaður, sem í
gær vann dómsmál sem hann
rak fyrir vinnuréttardómstóli
Þýskalands gegn þýska hand-
knattleikssambandinu, en sam-
bandið hafði meinað honum um
félagaskipti til Bidasoa á Spáni
á grundvelli þess að hann hefði
ekki lokið við að taka út sex
mánaða keppnisbann sem hann
var dæmdur í á vormánuðum.
Stefán
Stefánsson
skrifar
FH stóð lengi í KR