Morgunblaðið - 09.07.2003, Page 4
FRÉTTIR
4 MIÐVIKUDAGUR 9. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
TVEIR breskir eldri borgarar
fögnuðu því að 100 ár eru liðin frá
fyrsta flugi Wright-bræðra á eftir-
minnilegan hátt þegar þeir flugu
heimasmíðaðri vél sinni yfir Atl-
antshafið frá Kanada til Skotlands,
með viðkomu á Grænlandi og Ís-
landi. Þeir fóru frá Reykjavík-
urflugvelli um hádegi í gær áleiðis
til Skotlands.
Dennis Wood, 68 ára, er fyrrum
flugstjóri hjá British Airways og
vinur hans, Jack Berkins, einnig
68 ára, er einkaflugmaður. „Flug-
vélin okkar er nokkurs konar nú-
tímaútgáfa af flugvél Wright-
bræðra sem var fyrsta flugvélin
sem flaug fyrir eigin vélarafli,“
segir Wood. „Hreyfillinn er aftan á
vélinni og stélið að framan, alveg
eins og á flugvél bræðranna.
Við keyptum flugvélina ósaman-
setta fyrir sex árum og fluttum
hana til Cannes á Suður-Frakk-
landi þar sem við settum hana
saman í flugskýli,“ segir hann.
Fyrir tveimur árum var svo
flugvélin flutt í gámum til Flórída
þar sem vélin og rafeindabúnaður
voru sett í vélina. Flugvélin, sem
ber nafnið Velocity, er fjögurra
sæta, en fyrir þetta flug voru tvö
sæti tekin úr til að búa til pláss
fyrir auka eldsneytisgeymi og far-
angur.
Flugið hingað til Ísland gekk
vel, en nokkrar tafir urðu á áætl-
un félaganna vegna slæms veðurs.
Frá Skotlandi reiknuðu þeir með
að fljúga á flugsýningu í Bretlandi
og svo síðar meir til Cannes í
Frakklandi.
Félagarnir lentu í vandræðum
þegar hjólin fóru ekki niður þegar
þeir voru að koma inn til lend-
ingar í Narsarssuaq á Grænlandi í
fyrradag, segir Wood. „Við vorum
báðir í flotgöllum og litum út eins
og Michelin-maðurinn. Þegar við
vorum að búa okkur undir það
versta sá ég að önnur buxna-
skálmin á flotgallanum var flækt í
handfang sem stoppaði hjólabún-
aðinn í að fara niður. Svo ég losaði
buxnaskálmina, færði handfangið
og þá fór hjólabúnaðurinn niður.
Það var óskaplegur léttir, við get-
um alveg hugsað okkur betri staði
til að nauðlenda en Grænland.“
Wood segir að svo sé ætlunin að
njóta þess að geta flogið frjáls eins
og fuglinn frá heimili hans í Suð-
ur-Frakklandi. „Það verður gaman
að geta flogið til eyja á Miðjarð-
arhafinu, til Bretlands og á flug-
sýningar út um alla Evrópu til að
sýna mönnum að Wright-bræður
hafi rambað á góða lausn þegar
þeir settu hreyfilinn aftast í flug-
vélina sína.“
Breskir eldri borgarar fljúga heimasmíðaðri flugvél yfir Atlantshafið
Vélin nú-
tímaútgáfa
af flugvél
Wright-
bræðra
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Denis Wood (t.v.) og Jack Berkin við vélina sína, Velocity, en þeir höfðu viðkomu á Reykjavíkurflugvelli í gær.
Sex ára
fangelsi fyr-
ir fíkniefna-
innflutning
Sendi 4,8 kíló af am-
fetamíni með pósti
KARLMAÐUR á þrítugsaldri,
Stefán Ingimar Koeppen Brynj-
arsson, var í gær dæmdur í sex
ára fangelsi í Héraðsdómi Reykja-
ness fyrir innflutning á tæplega
sex kílóum af amfetamíni og tæp-
lega einu kílói af kókaíni. Systir
mannsins, sem einnig er á þrítugs-
aldri, var dæmd í þriggja ára fang-
elsi fyrir aðild sína að málinu.
Fimm einstaklingar til viðbótar
hlutu frá tíu mánaða til tveggja
ára fangelsisvist.
Stefán Ingi, sem er 27 ára gam-
all, var dæmdur fyrir ýmis fíkni-
efnabrot á tímabilinu 1998–2002.
Árið 1998 stóð hann meðal annars
að því ásamt tveimur öðrum mönn-
um að flytja inn rúmlega 630
grömm af kókaíni frá Mexíkó.
Samstarfsmenn Stefáns Inga voru
dæmdir í tveggja og þriggja ára
fangelsi í júní 2000, en Stefán
hafði þá flúið land.
Í desember 2001 sendi Stefán
Ingi um 4,8 kíló af amfetamíni í
pósti frá Þýskalandi og ætlaði ís-
lenskum vitorðsmönnum sínum að
dreifa efninu og selja það. Meðal
þeirra sem aðstoðuðu við innflutn-
inginn var systir hans, Angela Ko-
eppen Brynjarsdóttir, sem fædd er
1979.
Stefán Ingi var handtekinn í
Hollandi í febrúar 2002. Hann var
síðan framseldur til Íslands í jan-
úar 2003.
Hafsteinn Ingimundarson hafði
sá um dreifingu og sölu amfeta-
mínsins sem sent var til Íslands
árið 2001. Hann hlaut tveggja ára
fangelsisdóm.
Barnaklámsmyndir fundust
við rannsókn málsins
Karlmaður á fimmtugsaldri var
dæmdur fyrir að geyma fíkniefnin.
Við rannsókn málsins fundust
einnig barnaklámsmyndir á tölvu
hans, alls meira en níu þúsund
ljósmyndir og 56 hreyfimyndir.
Hann hefur ekki áður hlotið refs-
ingu og hlaut nú samtals tíu mán-
aða fangelsisdóm.
Karlmaður á þrítugsaldri sá um
að flytja efnið milli staða innan-
lands. Hann hafði áður verið
dæmdur í þriggja mánaða fangelsi
fyrir fíkniefnabrot, og var að
brjóta skilorð með framferði sínu.
Hann hlaut 18 mánaða fangelsis-
dóm.
Jafnaldri hans, sem sá um að
geyma eina sendingu af fíkniefn-
um, og sem áður hefur verið
dæmdur fyrir ýmis afbrot, var
dæmdur í 12 mánaða fangelsi.
Loks var kona á sama aldri dæmd
í tíu mánaða fangelsisvist fyrir að
taka á móti og geyma amfetamín
og kókaín á heimili sínu. Hún hef-
ur ekki áður hlotið refsingu.
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
kvað upp þann úrskurð í gær að ís-
lensk stjórnvöld færi með lögsögu í
máli varnarliðsmanns sem ákærður
er fyrir tilraun til manndráps í Hafn-
arstræti og framlengdi jafnframt
gæsluvarðhald yfir honum til 3. sept-
ember næstkomandi. Með úrskurð-
inum tók dómurinn undir sjónarmið
ríkissaksóknara en hafnaði rökum
verjandans sem byggði á því að utan-
ríkisráðuneytið hefði samþykkt að
bandarísk hervöld færu með lögsögu
í málinu. Úrskurðurinn var kærður
til Hæstaréttar.
Ákæran gegn varnarliðsmannin-
um var gefin út í gærmorgun. Hann
er ákærður fyrir að hafa einn eða í
félagi með öðrum, veist að tæplega
tvítugum Keflvíkingi á gangstétt í
Hafnarstræti að morgni 1. júní sl. og
stungið hann fimm stungum. Mað-
urinn hefur játað að hafa beitt hnífi í
átökunum en ber því við að um nauð-
vörn hafi verið að ræða þar sem hann
óttaðist um líf sitt. Segist hann hafa
verið einn að verki. Að mati ríkissak-
sóknara bendir á hinn bóginn ým-
islegt til þess að fleiri geti hafa verið
að verki en þar sem lögregla hafi
ekki enn fengið heimild til að yfir-
heyra aftur nokkra liðsmenn í varn-
arliðinu sé ljóst að ekki verði komist
lengra í rannsókn málsins að svo
stöddu. Því hafi verið rétt að gefa út
ákæru áður en gæsluvarðhald rynni
út. Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglunni í Reykjvík var óskað eftir
því snemma í síðustu viku að lög-
regla fengi að yfirheyra mennina en
þeirri beiðni hefur varnarliðið ekki
svarað.
Verjandi varnarliðsmannsins,
Sveinn Andri Sveinsson hrl., krafðist
þess að ákærunni og gæsluvarð-
haldskröfunni yrði vísað frá dómi
enda hefðu hervöld Bandaríkjanna
lögsögu í málinu en ekki ríkissak-
sóknari. Hann sagði það vafalaust að
utanríkisráðuneytið færi með
ákvörðunarvald um framsal lögsögu
og lagði fram bréf frá ráðuneytis-
stjóra utanríkisráðuneytisins um að
ráðuneytið hefði fallist á beiðni
bandarískra stjórnvalda um framsal
lögsögu. Íslenskur dómstóll gæti því
ekki kveðið upp úrskurð í málinu og
það væri ekki ríkissaksóknara að
taka ákvörðun um ákæru. Þessu
mótmælti fulltrúi ríkissaksóknara,
Kolbrún Sævarsdóttir, og vísaði til
þess að ríkissaksóknari hefði eftir
„vinsamlega athugun“ ákveðið að
verða ekki við beiðni um framsal lög-
sögu. Í úrskurði héraðsdóms segir
að ríkissaksóknari sé æðsti handhafi
ákæruvalds á Íslandi. Þá hafi íslensk
stjórnvöld lögsögu yfir mönnum í liði
Bandaríkjanna ef þeir fremja refsi-
verð brot á Íslandi. Þar sem ríkis-
saksóknari hefði ekki orðið við beiðni
um framsal var það álit dómsins að
íslensk stjórnvöld hefðu lögsögu í
málinu.
Helgi I. Jónsson kvað upp úr-
skurðinn.
Héraðsdómur Reykjavíkur framlengir gæsluvarðhald yfir varnarliðsmanni
Íslensk stjórnvöld
hafa lögsögu í málinu
Lögregla ekki enn fengið heimild
til að yfirheyra varnarliðsmenn
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra
telur að það hafi verið óviðeigandi af
Gunnari Snorra Gunnarssyni, ráðu-
neytisstjóra utanríkisráðuneytisins,
að tengja saman mál varnarliðs-
mannsins sem í gær var ákærður fyr-
ir tilraun til manndráps í Hafnar-
stræti og viðræður um framtíð
varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli og
hefur hann látið þess getið við utan-
ríkisráðherra.
Í bréfi Gunnars Snorra til ráðu-
neytisstjóra forsætisráðuneytisins,
sem greint var frá í Morgunblaðinu í
gær, segir m.a. að ekki þurfi að minna
á að þetta mál komi upp „á viðkvæm-
um tíma í varnarsamstarfi ríkjanna,
þ.e. þegar erfiðar viðræður standa yf-
ir við bandarísk yfirvöld um varnar-
samninginn.“
Í viðtölum við blaða- og fréttamenn
í gær sagði Davíð að það væri merki-
legt að hann hefði frétt af bréfinu í
fjölmiðlum. Utanríkisráðherra hefði
tjáð sér að það hefði verið slys og
hefði ekki átt að gerast með þeim
hætti. Davíð kvaðst aðspurður ekki
hafa áhyggjur af því að mál varnar-
liðsmannsins hefði áhrif á viðræður
um varnarsamninginn og það væri
óviðeigandi að spyrða þessi tvö mál
saman. Hann kvaðst ekki hafa tekið
afstöðu til þess hvort ákvörðun um
lögsögu ætti að liggja hjá utanríkis-
ráðuneytinu eða ríkissaksóknara en
minnti á að sjálfstæði ríkissaksóknara
væri afar þýðingarmikið fyrir ís-
lenska stjórnskipun og íslenskt rétt-
arfar. Ráðuneyti gætu komið sjónar-
miðum sínum á framfæri en jafnvel
þó ráðuneytin sendu ríkissaksóknara
fyrirmæli væri honum ekki skylt að
fara eftir þeim.
Afstaða utanríkis-
ráðuneytisins skýr
Halldór Ásgrímsson utanríkisráð-
herra sagði afstöðu ráðuneytisins
koma skýrt fram í fyrrnefndu bréfi.
„Og það sem fer frá ráðuneytinu er á
mína ábyrgð sem ráðherra, það er al-
veg ljóst.“ Halldór minnti á að mann-
inum yrði refsað þó að Bandaríkja-
menn fengju lögsögu og hann mætti
jafnvel búast við þyngri refsingu,
enda yrði hann dæmdur eftir herlög-
um. Aðspurður sagðist hann ekki
halda að deilur um lögsögu yfir varn-
arliðsmanni hefðu áhrif á viðræður
um framtíð varnarliðsins. Á hinn bóg-
inn bæri íslenskum stjórnvöldum að
uppfylla skilyrði varnarsamningsins,
um það hefði verið samið hvort sem
mönnum líkaði það betur eða verr.
Vísar ásökunum á bug
Í fyrrnefndu bréfi gagnrýnir ráðu-
neytisstjóri utanríkisráðuneytisins
málsmeðferð dómsmálaráðuneytisins
og ríkissaksóknara í máli varnarliðs-
mannsins. Er ríkissaksóknari sagður
brjóta ákvæði varnarsamningsins
sem hefur lagagildi og gegn reglu-
gerð um verkaskiptingu ráðuneyta og
virði þar að auki að vettugi skuldbind-
ingar íslenskra stjórnvalda. Í samtali
við Morgunblaðið vísaði Bragi Stein-
arsson vararíkissaksóknari þessu al-
gjörlega á bug. Hann sagði afstöðu
embættisins skýra, lögsagan væri rík-
issaksóknara og við það yrði staðið.
Davíð Oddsson forsætisráðherra segir sjálfstæði ríkissaksóknara afar þýðingarmikið
Óviðeigandi að tengja mál-
ið viðræðum um varnarlið