Morgunblaðið - 21.07.2003, Page 1
STOFNAÐ 1913 . TBL. 91. ÁRG. MÁNUDAGUR 21. JÚLÍ 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Gjörningur
á bandi
Íslenskt myndlistarfólk á
Prag-tvíæringnum Listir 13
Bleikir
boxhanskar
Tinna Guðrún Lúðvíksdóttir
boxar með strákunum Fólk 29
1.200 fót-
boltastelpur
Metþátttaka á Gullmótinu í
Kópavogi Íþróttir 6
Í LANGRI sögu krikketíþrótt-
arinnar mun ekki hafa verið leik-
ið á jökli fyrr en í gær. Þá var
lagður krikketvöllur á Langjökli
og atti úrvalslið breska fjárfest-
ingarbankans EFG þar kappi við
nyrsta starfandi krikketklúbb
heims, ungmennafélagið Glaum.
Hugh Ellerton, liðsstjóri Bret-
anna, mundar hér kylfuna á jökl-
inum. Á föstudagskvöld var leik-
inn miðnæturkrikket á
Laugardalsvelli og þótti breska
liðinu sérstakt að geta leikið
krikkettinn nánast án þess að
taka hlé í heila nótt.
Jökulkrikket við nyrsta
krikketklúbb heims
Morgunblaðið/Jim Smart
KJELL Magne Bondevik, forsætis-
ráðherra Noregs, sagði í gær, að
flokkur hans, Kristilegi þjóðarflokk-
urinn, væri
reiðubúinn að
skoða hvort rétt
væri að Norð-
menn sæktu um
aðild að Evrópu-
sambandinu,
ESB. „Í þessu
máli geta menn
ekki ákveðið sig í
eitt skipti fyrir
öll,“ sagði Bonde-
vik en ítrekaði, að afstaða sín og
flokksins væri enn sú að hafna aðild
að ESB. Andstaðan við aðild hefur
verið langmest innan Kristilega
þjóðarflokksins en Bondevik sagði,
að stjórnin fylgdist grannt með því,
sem væri að gerast í Evrópu.
Skoðanakönnun, sem birt var í
gær, sýnir, að stuðningur kvenna við
aðild hefur aukist en hingað til hefur
meirihluti þeirra verið andsnúinn
henni. Nú eru 45,5% kvenna hlynnt
henni en 37,3% andvíg. Rétt tæp
60% karla vilja aðild en 30,5% ekki.
ESB og Noregur
Bondevik
að snúast
hugur?
Ósló. AFP.
Kjell Magne
Bondevik
ÍSLANDSFERÐ er ein af óvenju-
legustu gjöfunum sem ástralskir
þingmenn hafa fengið en þeim
bjóðast jafnan gjafir og hlunnindi
fyrir milljónir króna á ári hverju
frá fyrirtækjum og erlendum rík-
isstjórnum, samkvæmt fréttasíðu
The Courier-Mail. Dýr vín, miðar á
íþróttakappleiki og ferðir til út-
landa eru gjarnan í boði en þing-
menn mega nýta sér hlunnindin
með því skilyrði að þeir gefi þau
upp ef verðmæti gjafarinnar fer yf-
ir sem nemur tíu þúsund krónum.
Undarlegasti áfangastaður sem
þingmanni var boðið til að mati
blaðsins var Ísland, en þingmað-
urinn Laurie Ferguson þáði ferð
hingað í fyrra. Á meðal annarra
óvenjulegra gjafa var sverð sem er
nákvæm eftirlíking af sverði Alex-
anders mikla og lófaleikjatölvur.
Íslandsferð
óvenjuleg-
asta gjöfin
FIMM manna hópur hugrakkra
blaðamanna frá háðs-
ádeiluvefritinu The Rockall
Times hyggst freista þess að
klífa klettinn Rockall, sem er í
Atlantshafi um 380 km frá
ströndum Skotlands. Ferðin er
farin til styrktar börnum sem
eiga við námsörðugleika að
stríða. Það þykir nokkurt afrek,
nái fimmmenningarnir mark-
miði sínu, en talið er að færri en
10 manns hafi komið á eyjuna.
Klífa
Rockall
TONY Blair, forsætisráðherra Bret-
lands, segir útilokað að hann segi af
sér eða kalli sam-
an þing en segist
vera tilbúinn að
koma fyrir rann-
sóknarnefnd og
svara fyrirspurn-
um vegna dauða
dr. Davids Kellys,
efnavopnasér-
fræðings og ráð-
gjafa bresku
stjórnarinnar. Breska ríkisútvarpið
BBC staðfesti í gær að Kelly hefði
verið heimildarmaður fréttar um að
bresk stjórnvöld hefðu látið „lag-
færa“ skýrslu um vopnabúnað Íraka
til að réttlæta stríð gegn landinu.
Lík Kellys fannst í skóglendi
skammt frá heimili hans á föstudag,
og er talið að hann hafi fyrirfarið sér
með því að skera sig á púls.
BBC gaf út tilkynningu í gær þar
sem fram kom að undanfarið hefði
stöðin lagt kapp á að koma í veg fyrir
að upp kæmist að Kelly væri heim-
ildarmaðurinn. Mikilvægt hefði ver-
ið að halda trúnað við Kelly, en eftir
dauða hans hefði BBC talið rétt að
segja sannleikann.
Kelly neitaði að hann væri heim-
ildarmaður fréttarinnar, en viður-
kenndi að hafa rætt við höfund henn-
ar, fréttamanninn Andrew Gilligan.
Komið hefur fram að Kelly hafi þótt
stjórnin koma illa fram við sig með
því að opinbera nafn hans þegar deil-
urnar við BBC stóðu yfir.
Blair segist vera ákveðinn í að
sitja áfram í embætti þrátt fyrir at-
burðina undanfarið en háværar
raddir hafa verið um afsögn Blairs
eftir sjálfsvíg Davids Kellys.
Er hann var spurður beint hvort
hann vildi enn vera forsætisráðherra
svaraði hann: „Að sjálfsögðu.“
Málið hefur varpað skugga á As-
íuför Blairs sem fór til Suður-Kóreu í
gær. Þar hitti hann Roh Moo-Hyun,
forsætisráðherra landsins, og ræddu
þeir kjarnorkuáætlun N-Kóreu.
Blair reiðubúinn að koma
fyrir rannsóknarnefnd
Tony Blair
Staðfest að Kelly
hafi verið heim-
ildarmaður BBC
„Þar til niðurstaða liggur fyrir telj-
um við rétt að tjá okkur sem minnst
en það liggur þó fyrir að við munum
íhuga réttarstöðu okkar mjög vand-
lega ef olíufélögin verða fundin sek
um að hafa brotið gegn samkeppn-
islögum,“ segir Hrannar Pétursson,
upplýsingafulltrúi Alcan á Íslandi,
áður Íslenska álfélagsins.
Guðjón Arngrímsson, upplýsinga-
fulltrúi Flugleiða, segir fyrirtækið
vitaskuld fylgjast grannt með rann-
sókninni. „Við fylgjumst einfaldlega
með og tökum síðan ákvarðanir þeg-
ar niðurstaða samkeppnisyfirvalda
liggur fyrir,“ segir hann.
Sjöfn Kristjánsdóttir, forstjóri
Innkaupastofnunar Reykjavíkur-
borgar, segir stofnunina munu fylgj-
ast með framvindu mála. Menn muni
fara yfir málið þegar niðurstaða liggi
fyrir og hún útiloki ekki neitt í því
sambandi.
Kristján Ragnarsson, formaður
Landssambands íslenzkra útvegs-
manna, segist ekki telja tímabært að
ræða hvort eða hvernig útgerðar-
menn kynnu að sækja rétt sinn, fari
svo að olíufélögin verði sek fundin
um brot á samkeppnislögum. „Þetta
er fyrri frumathugunarskýrsla og ol-
íufélögin hafa ekki komið fram and-
svörum sínum þannig að mér finnst
ekki tímabært að tjá mig um það.“
„Munum íhuga
réttarstöðuna
vandlega“
Fyrirtæki sem buðu út olíukaup
fylgjast með rannsókn á olíufélögum
TALSMENN fyrirtækja, sem stóðu fyrir útboðum þar sem
Samkeppnisstofnun telur olíufélögin hafa haft með sér ólögmætt
samráð við tilboðsgerð, segjast munu fylgjast grannt með rannsókn
stofnunarinnar og skoða réttarstöðu fyrirtækjanna.
Útgerðarmönnum/10
FORSTJÓRUM innkaupastofnana
ríkis og Reykjavíkurborgar ber
saman um að tilboð olíufélaganna
hafi tekið breytingum á síðustu ár-
um.
Sjöfn Kristjánsdóttir, forstjóri
Innkaupastofnunar Reykjavíkur-
borgar, segir borgina síðast hafa
boðið út eldsneyti fyrir Vélamið-
stöðina og Strætó og að tilboð í
þau viðskipti hafi verið opnuð í
ársbyrjun í fyrra. Verulegur mun-
ur hafi þá verið á tilboðum olíufé-
laganna. „Menn voru mjög hissa;
Olís bauð best og um 20% lægra
verð en hinir.“
Júlíus S. Ólafsson, forstjóri
Ríkiskaupa, segir að stofnunin
hafi séð um fá útboð gagnvart ol-
íufélögunum á því tímabili sem
rannsókn Samkeppnisstofnunar
tekur einkum til. Stofnunin hafi
hins vegar verið með útboð á bif-
reiðabensíni og gasolíu fyrir ríkið
nú í vor. „Það kom alveg prýðilega
út. Það kom talsverður afsláttur út
úr því. Þarna var því eitthvað ann-
að uppi á teningnum,“ segir Júlíus.
Tilboð olíu-
félaga hafa
lækkað
BBC/12
Lundúnum. AFP.