Morgunblaðið - 28.07.2003, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 28.07.2003, Blaðsíða 15
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. JÚLÍ 2003 15 LISTIR FYRIRSÖGNIN er skilgreining á orðinu mannrétt- indi. Afhverju er ég ræða mannréttindi á Íslandi? Er ekki allt í lagi á Íslandi í dag? Nei, mér finnst það ekki og þolinmæði mín er frekar takmörk- uð. Ég sem hommi vil ekki bíða kurt- eislega lengur eftir næsta mannrétt- indaskammti sem hæstvirt Alþingi kýs að framreiða. Ég á skýlausan rétt til að finna hamingjuna á mínum forsendum. Stjórnarskrá Íslands fjallar um rétt- indi okkar og skyldur sem Íslendinga. Þar kemur m.a. fram í 65. gr. 7. kafla, „ Allir skulu vera jafnir fyrir lögum og njóta mann- réttinda án tillits til kynferðis, trúarbragða, skoðana, þjóðernisuppruna, kynþáttar, litarháttar, efnahags, ætternis og stöðu að öðru leyti.“ Í samþykktum breytingum frá 17. maí 2000 er enn í lögum um staðfesta samvist, að ákvæði ættleiðing- arlaga um hjón gilda ekki. Einnig að lög um tækni- frjóvgun gilda heldur ekki um fólk í staðfestri sam- vist. Mér sem homma er enn ekki heimilt að skrá sambúð mína með öðrum manni hjá Hagstofu Íslands. Sem er stórfurðulegt þar sem það er minni skuldbinding en staðfest samvist. Á sínum tíma (1996) man ég að haft var að orði „þau gætu svindlað“! En talið var líklegt að gagnkynhneigð pör ættu það hugsanlega til að svindla varðandi skráða sambúð. Ég sem hommi mátti sem sagt ekki svindla. Alþingi á að afmá misrétti gagnvart lögum ekki taka réttindi eða ábyrgð frá fólki. Ekki misskilja mig. Ég er mjög þakklátur fyrir allar breytingar sem hafa orðið á réttindum lesbía og homma sl. ár. Það er gaman á Gay pride og ég er stoltur af því sem hefur verið gert til að leiðrétta mis- réttið fram að þessu. Gleðin og frelsið er að koma smátt og smátt og einmitt þess vegna er núverandi skortur á fullum mannréttindum óþolandi. Það sem mér finnst furðulegast og óskiljanlegt er afhverju ekki er búið að afmá skipulega allt misrétti vegna kynhneigðar í íslenskum lögum. Breyta sérskil- greindum rétti gagnkynhneigðra í að vera almenn mannréttindi án tillits til kynhneigðar? Og bæta við í 65. gr. Stjórnarskrárinnar, njóta mannréttinda án til- lits til kynhneigðar, kynferðis“ o.s.frv. Eftir hverju er verið að bíða? Mér finnst ótrúlegt að þessar smáleiðréttingar í lögum skuli standa í okkur. Við sem erum svo rétthugsandi, frjáls og fordómalaus. Nokkrar þjóðir eru komnar fram úr okkur í þessum málum. Alþingi ber að vera eins og gott foreldri sem leiðir okkur af öryggi og skilning inn í nýjan réttlátari heim með breyttar áherslur. Það á ekki að hugsa mínútu lengur! Heldur leggja á hausti komanda fram frumvarp til laga um þessi mál. Ég vil ekki lengur þakklátur og auðmjúkur taka á móti fleiri smáskömmtum af mannréttindum. Skömmt- un af mannréttindum frá þeim er skerðingarlaus mannréttindi hafa. Það vantar svo lítið í viðbót! En þetta „litla“ sem eftir stendur er svo gífurlega, ótrú- lega stórt fyrir mig sem manneskju. Góðir alþingismenn, ég hef enga biðlund lengur. Drífið í þessu! Það er okkur til skammar sem þjóð að með lögum frá Alþingi séu mannréttindi eins hóps í samfélaginu skert. Ég vildi svo gjarnan að þið skilduð hvað þetta er mikilvægt. Hvað þetta skiptir miklu máli fyrir tugþúsundir Íslendinga. Að þessar hálfleiðrétt- ingar hafa því miður ekki bara jákvæðar hliðar. Þær benda líka á hvað eftir stendur, hvað er ógert varð- andi bein mannréttindabrot gagnvart lesbíum og hommum í íslenskum lögum. Enn eimir eftir af fordómum, ótta og þekkingarleysi varðandi þessi mál. Það tekur nefnilega eina kynslóð ef ekki meir að breyta almenningsálitinu og fá fólk til að treysta því að þetta sé allt í lagi. Lögum er breytt og ný sett til að móta framtíð okk- ar og leiða okkur áfram inn í bjartari og réttlátari framtíð. Alþingis er að móta þessa framtíð. Á þessu augnabliki er kærleikurinn lykillinn, að hálflokuðum dyrum framtíðarinnar fyrir lesbíur og homma. Notum þennan lykil, uns allar dyr hafa verið opnaðar. Opnið dyrnar og gerið Stjórnarskrá Íslands, að mannréttindaskrá fyrir alla Íslendinga án nokk- urra skilyrða. Sýnið í verki að kærleikur og umburð- arlyndi eiga sér engin landamæri. Við eigum öll sama réttinn til að vera Íslendingar, göngum alla leið næst- komandi vetur og afmáum allt misrétti í lögum. Ég óska okkur öllum til hamingju með það sem komið er. En eins og áður segir vantar enn upp á að baráttunni sé lokið. En 9. ágúst nk. er Gay pride- dagurinn og þá ræður gleðin og gamanið ríkjum og við skemmtum okkur öll saman þennan hátíðisdag lesbía og homma. Réttur manna til frelsis, öryggis og jafnræðis Eftir Percy B. Stefánsson Höfundur er áfengis- og vímuefnaráðgjafi. DRAUMUR á Jónsmessunótt hefur verið settur upp 12 sinnum á Íslandi ef taldar eru saman sýningar atvinnuleikhúsa og áhugaleikhópa, og þessi sýning meðtalin. Ég efast um að nokkur hinna ellefu sýning- anna komist í hálfkvisti við þessa þegar litið er til „leikmyndar“ og umgjarðar. Að setja Drauminn upp í Elliðaárdalnum, sem skartar hinum ágætasta skógi, er svo frábær hug- mynd að fyrir hana eina og sér ber Leikfélaginu Sýnum mikið lof. En fleira má lofa í þessari sýningu sem var í alla staði frábær skemmtun í góðviðri síðastliðins laugardags. Varla þarf að fara mörgum orðum um þetta verk Shakespeares, það er eitt af hans vinsælustu leikritum, verk þar sem skil veruleika og draums eru þurrkuð út og ímynd- unaraflið fær að leika lausum hala. Öðrum þræði er verkið kannski ein- mitt um ímyndunaraflið og leik- listina sjálfa; um „brjálað fólk, einnig elskendur og skáld“ sem gert er úr „tómri ímyndun,“ eins og Þeseifur orðar það svo skemmtilega í síðasta þætti verksins og hann heldur áfram: Svo brellugjarnt er ímyndunaraflið, að hvenær sem það rennir grun í gleði, getur það fundið þann sem veitir hana; og þegar nóttin hræðir heimsins börn, er hríslan orðin dimmur skógarbjörn. Leikurinn hófst aftan við gamla fallega hvíta rafstöðvarhúsið í miðjum dalnum sem þjónaði vel hlut- verki sínu sem höll Þeseifs, barst síð- an víða um dalinn og fór að mestu leyti fram í miðjum skógi umlukt laufskrúði og árniði. Það var ótrú- lega skemmtilegt að sjá glitta í álfa og aðrar furðuverur hér og hvar um skóginn og heyra söng þeirra og hljóðfæraslátt meðan gengið var til næsta áfangastaðs. Hið náttúrulega umhverfi jók mjög hina listrænu upplifun áhorfandans. Leikstjóri sýningarinnar er Þor- geir Tryggvason og hugmyndin um að setja verkið upp í Elliðaárdalnum er gamall draumur hans. Hugmynd- ir á borð við þessa eru gulls ígildi og eflaust ekki á færi annarra en ólæknandi hugsjónamanna og „áhugafólks“ í leikhúsheiminum að hrinda slíkri hugmynd í fram- kvæmd. Því hér er ekki um neitt auðhlaupaverk að ræða. Leikararnir sem taka þátt í sýningunni eru 24 talsins og margir þeirra eru að stíga sín fyrstu spor með Sýnum, þótt allir hafi tekið þátt í áhugaleiksýningum áður. Þegar þetta er haft í huga er það aðdáunarvert hversu lítill „amatörbragur“ er á sýningunni í heild. Margir leikaranna eru reynd- ar þrælreyndir eftir áralanga þjálf- un hjá Hugleik (Hulda B. Hákonar- dóttir, Ármann Guðmundsson og Silja Björk Huldudóttir, svo ein- hverjir séu nefndir) og þegar litið er á reynslu sjálfs leikstjórans fara mörk áhugamennsku og atvinnu- mennsku að riðlast dálítið… ekki síður en mörk draums og veruleika í verkinu. Hér gefst ekki færi á að nefna nöfn allra þeirra sem taka þátt í þessari einstöku sýningu, enda er það heildarútkoman sem skiptir mestu máli. Þau Snorri Engilberts, Aldís G. Davíðsdóttir, Stefán Bene- dikt Vilhelmsson og Lilja Nótt Þór- arinsdóttir voru öll falleg ungmenni og léku af innlifun. Lilja Nótt átti samúð áhorfenda og kallaði fram margt brosið þar sem hún elti sinn Demetríus af hundslegri tryggð, full aðdáunar. Halldór Magnússon lék Jón Spóla af miklum krafti og húmor og uppskar margan hláturinn. Hulda B. Hákonardóttir var skopleg í að- dáun sinni á þeim hinum sama Spóla og Ármann Guðmundsson brilleraði í litlu hlutverki sem Hrói Sultur (í hlutverki tunglsins). „Leikritið í leikritinu“ var sá gleðigjafi sem því er ætlað og álfaskarinn eins og hann lagði sig var heillandi. Hvorki fleiri né færri en fjórir leikarar brugðu sér í gervi Bokka og fór vel á því, þar sem hlutverkið er viðamikið og svo skemmtilegt að ekki er nema sann- gjarnt að leyfa fleirum en einum að spreyta sig á því. Fjórmenningarnir Ástþór Ágústsson, Guðmundur L. Þorvaldsson, Hjalti S. Kristjánsson og Nanna Vilhelmsdóttir nutu sín vel í hlutverki þessa hrekkjótta sendi- sveins Óberóns. Silja Björk Huldu- dóttir og Einar Þór Einarsson voru falleg sem álfadrottningin Titanía og álfakóngurinn Óberon og reisn yfir þeim og þeirra fríða föruneyti. Ekki er hægt að skilja við þessa sýningu án þess að nefna búningana sem ásamt með „leikmyndinni“ settu afar sterkan svip á sýninguna. Heið- urinn af þeim eiga Þórunn Eva Hall- dóttir og Þórey Björk Halldórsdóttir sem hafa nokkra reynslu í hönnun leikbúninga enda fagmennskan aug- ljós. Útsjónarsemi og listrænt innsæi einkennir búningahönnun þeirra stallna og skemmtilegt hvern- ig hver hópur innan verksins hefur sinn eigin stíl. Aþeningarnir voru hvítklæddir, í fötum sem virtust hvítmáluð og höfðu mjög „smart“ áferð. Álfarnir klæddust rauðum, appelsínugulum og gulum fötum og báru skemmtilegt litríkt hárskart. Handverksmennirnir voru í „raunsæislegum“ vinnufötum fram- an af en síðan auðvitað skemmtilega „leikhúslega“ klæddir þegar þeir sýndu verk sitt við hlátur og aðhlát- ur Aþeninga og annarra áhorfenda. Allir sem tóku þátt í þessari sýn- ingu lögðu sig fram og skemmtu sér vel ekki síður en áhorfendur. Það er synd að sýningar verði ekki fleiri en þær tvær sem þegar hafa farið fram, ef svo væri ekki myndi undirrituð hvetja alla til að sjá verkið og taka börnin með, því hér er skemmtun við hæfi allrar fjölskyldunnar. Morgunblaðið/Árni Sæberg Eflaust ekki á færi annarra en ólæknandi hugsjónamanna og „áhugafólks“ að hrinda slíkri hugmynd í framkvæmd, segir Soffía Auður Birgisdóttir. Draumasýning í draumaumhverfi LEIKLIST Leikfélagið Sýnir Höfundur: William Shakespeare. Íslensk þýðing: Helgi Hálfdanarson. Leikstjóri: Þorgeir Tryggvason. Aðstoðarleikstjóri: Hörður Sigurðarson. Leikarar: Aldís G. Davíðsdóttir, Ágústa Eva Erlendsdóttir, Ármann Guðmundsson, Ástþór Ágústs- son, Bjarki Ingason, Einar Þór Einarsson, Guðmundur L. Þorvaldsson, Gunnar Björn Guðmundsson, Halldór Magnússon, Helgi Róbert Þórisson, Hjalti S. Krist- jánsson, Hrefna Friðriksdóttir, Hulda B. Hákonardóttir, Jón Stefán Sigurðsson, Kjartan Hearn, Lilja Nótt Þórarinsdóttir, Nanna Vilhelmsdóttir, Oddur Bjarni Þor- kelsson, Ragnar Elías Valsson, Rúnar Lund, Sara Blandon, Silja Björk Huldu- dóttir, Snorri Engilberts, Stefán Benedikt Vilhelmsson. Tónlist: Björn Thorarensen. Búningar: Þórunn Eva Hallsdóttir og Þór- ey Björk Halldórsdóttir. Elliðaárdalur 26. júlí 2003. DRAUMUR Á JÓNSMESSUNÓTT Soffía Auður Birgisdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.