Morgunblaðið - 12.08.2003, Page 1
Gæðadjass
íHöllinni
Tónleikar Diönu Krall fá afar
lofsamlega dóma Listir 22
Bjarni á Bræðrabrekku kaupir
ætíð nýjustu tækin 19
Föggurnar
í tunnu
Dirk Westphal geymir
farangurinn í sorptunnu 16
STOFNAÐ 1913 215. TBL. 91. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 12. ÁGÚST 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
GÜNTHER Wallraff, einn kunnasti
rannsóknarblaðamaður í Þýskalandi,
var óformlegur uppljóstrari fyrir
Stasi, austur-þýsku
leyniþjónustuna.
Kom það fram í
þýska dagblaðinu
Die Welt í gær.
Wallraff, sem
varð frægur fyrir
rannsóknarblaða-
mennsku á níunda
áratugnum, hefur
alltaf neitað því að
hafa starfað fyrir Stasi en í skjölunum,
sem blaðið vitnar í, segir að hann hafi
verið skráður hjá Stasi í maí 1968. Í
Stasi-skýrslu frá 1976 segir að fram til
1971 hafi Wallraff fyrst og fremst unn-
ið að því að dreifa villandi upplýsing-
um á Vesturlöndum. Í fjórum skjölum
segir frá þeim upplýsingum, sem hann
aflaði fyrir Stasi. Þær voru meðal ann-
ars um lífefna- og efnavopn í Vestur-
Þýskalandi og um námsefni í þjálfun-
arbúðum vestur-þýska hersins.
Í einni Stasi-skýrslunni segir, að
upplýsingarnar frá Wallraff séu held-
ur lítilfjörlegar en honum er hins veg-
ar hrósað fyrir þátt sinn í að fá náms-
mannahreyfingar til að mótmæla efna-
og lífefnavopnum.
Wallraff sagði í viðtali við Die Welt,
að hann hefði ekki vitandi vits starfað
með Stasi. Þeir Austur-Þjóðverjar,
sem hann hefði á sínum hitt, hefðu ver-
ið fræðimenn að því er hann best vissi.
Wallraff varð frægur 1985 fyrir bók
um reynslu sína sem ólöglegur inn-
flytjandi frá Tyrklandi en það þóttist
hann vera í nokkurn tíma og var þá
dulbúinn sem slíkur.
Wallraff
á mála
hjá Stasi
Berlín. AFP.
Günther Wallraff
NATO, Atlantshafsbandalagið, tók í gær
við stjórn alþjóðlegs 5.300 manna friðar-
gæsluliðs (ISAF) í Kabúl, höfuðborg Afgan-
istans. Þetta er í fyrsta sinn í 54 ára sögu
NATO sem bandalagið vinnur annars stað-
ar en í Evrópu.
NATO tók við stjórnartaumunum úr
höndum Þjóðverja og Hollendinga en þeir
hafa stýrt friðargæsluliðinu frá 10. febrúar
sl. Þýski hershöfðinginn Norbert van Heyst
afhenti Götz Gliemeroth, hershöfðingja
NATO, sem einnig er Þjóðverji, stjórn frið-
argæsluliðsins við formlega athöfn. „Það að
NATO taki við stjórn friðargæslunnar sýnir
langvarandi skuldbindingu þjóða okkar við
að stuðla að þróun til framtíðar, stöðugleika
og öryggi meðal afgönsku þjóðarinnar,“
sagði Gliemeroth við athöfnina.
Hamid Karzai, forseti Afganistans, og
Peter Struck, varnarmálaráðherra Þýska-
lands, voru viðstaddir athöfnina ásamt 300
hermönnum og embættismönnum Samein-
uðu þjóðanna, NATO og Afganistans.
„Verkefnið framundan er áframhaldandi
uppbygging lýðræðisins,“ sagði Struck af
þessu tilefni. Til merkis um breytinguna
rétti Van Heyst Gliemeroth grænan fána.
NATO við
stjórn í Kabúl
Kabúl. AFP.
CHARLES Taylor lét í gær af embætti forseta
Líberíu og hélt í útlegð til Nígeríu. Hann
hvatti önnur ríki til þess að bregðast ekki Líb-
eríu sem nú þyrfti nauðsynlega á aðstoð að
halda. Skömmu áður en Taylor hélt úr landi
tók varaforseti landsins, Moses Blah, formlega
við forsetaembættinu.
Bandaríkjastjórn, sem ítrekað hefur krafist
afsagnar Taylors, fagnaði afsögn og brottför
hans sem forsendu þess að friður gæti komist
á í Líberíu, þar sem blóðugir bardagar hafa
geisað milli stjórnarhersins og uppreisnar-
manna undanfarna tvo mánuði þar sem hinir
síðarnefndu hafa reynt að ná höfuðborginni,
Monróvíu, á sitt vald. Borgarastyrjöld hefur
staðið með hléum í landinu í fjórtán ár.
Margir óbreyttir borgarar fögnuðu brottför
Taylors, og jafnvel ýmsir stuðningsmanna
hans sögðu á flugvellinum er hann kvaddi:
„Við elskum þig, en biðjum þig samt að fara.“
Fyrrverandi ráðherra í stjórn Taylors sagði
aftur á móti að afsögn hans væri „misþyrming
á lýðræðinu“. Sjálfur kvaðst Taylor fara nauð-
ugur viljugur en fullyrti að hann myndi hljóta
jákvæðan dóm sögunnar. „Ég hef gert skyldu
mína.“
Við höfnina í Monróvíu fagnaði fólk þegar
sjá mátti þrjú bandarísk herskip í fjarska.
„Við höfum beðið þess að Bandaríkjamenn
komi og bjargi okkur. Þeir eru Sam frændi
okkar, stóri bróðir okkar. Taylor var vanda-
málið, en nú þegar hann er farinn geta Banda-
ríkjamenn skorist í leikinn,“ sagði Arthur
Charles, 23 ára stærðfræðinemi.
Um borð í skipunum eru 2.200 landgöngu-
liðar og á einu þeirra eru þyrlur en ekki var
ljóst í gær hvort koma þeirra væri til marks
um að Bandaríkjamenn ætluðu að taka þátt í
friðargæslu í landinu þar sem nígerískir
gæsluliðar eru fyrir. Haft var eftir embættis-
manni í bandaríska varnarmálaráðuneytinu
að skipin þrjú ættu að vera „afdráttarlaus
skilaboð“ til stríðandi fylkinga í Líberíu en
ekki væri áformað að senda hermenn á land.
Brottför Taylors fagnað
Monróvíu, Washington. AFP.
AP
Charles Taylor hverfur á braut eftir að hafa
formlega látið af völdum í gær.
Nýjunga-
gjarn bóndi
BANASLYS varð á þjóðveginum
um Öræfi um miðjan dag í gær er
jeppi með sex spænskum ferða-
mönnum, öllum úr sömu fjöl-
skyldu, valt skammt frá brúnni yfir
Hrútá milli Kvískerja og Jökulsár.
Ung kona, 22 ára að aldri, beið
bana og fimm voru fluttir slasaðir
til Reykjavíkur, þar af tveir með al-
varleg meiðsl, með þyrlu Land-
helgisgæslunnar, TF-LÍF.
Í jeppanum voru hjón á sextugs-
aldri ásamt tveimur börnum sínum
og tveimur tengdabörnum. Sú er
lést var tengdadóttir hjónanna. Að
sögn læknis á Landspítalanum í
Fossvogi í gærkvöldi var líðan
hinna slösuðu eftir atvikum. Hjón-
in hlutu mestu áverkana og voru
lögð inn á gjörgæsludeild.
Jeppinn var á austurleið eftir
beinum og breiðum malbikuðum
vegi. Hafnaði hann á hvolfi um 30
metra frá veginum. Rigning var er
slysið átti sér stað en tildrög þess
eru óljós og í rannsókn.
Lögreglan á Höfn í Hornafirði
fékk tilkynningu um slysið kl.
13:43. Sjö mínútum síðar lét Neyð-
arlínan stjórnstöð Landhelgis-
gæslunnar vita af slysinu og þyrlan
var farin í loftið kl. 14:24. Rúmri
klukkustund síðar var hún komin á
slysstað og lenti við Landspítalann
í Fossvogi með hina slösuðu um
hálfsexleytið síðdegis.
Þetta er annað banaslysið á
fimm dögum og í báðum tilvikum
hefur verið um ferðamenn frá
Spáni að ræða. Kona á miðjum
aldri lést sl. fimmtudag er bíll valt
skammt frá Fellabæ á Héraði.
Samkvæmt upplýsingum Umferð-
arstofu hafa 12 erlendir ferðamenn
látist í umferðinni frá árinu 1998,
þar af fimm á síðasta ári og tveir á
þessu ári.
Banaslys í Öræfum í gær er jeppi valt með spænska sex manna fjölskyldu
Ung kona beið bana og
tveir slösuðust alvarlega
Ljósmynd/Einar Björn Einarsson
Jeppabifreiðin er af gerðinni Isuzu Trooper og er hún gjörónýt.
Tólf útlendingar
hafa látist í um-
ferðinni frá 1998
GÍFURLEGT álag hefur verið á
slysa- og bráðadeildum Landspít-
ala – háskólasjúkrahúss í Foss-
vogi vegna alvarlegra slysa og
óhappa á landinu undanfarna
daga. Þannig voru þyrlur Land-
helgisgæslunnar tíðir gestir á lóð
spítalans fyrir helgi og aftur í
gær þegar þær komu með sjö
manns í þremur útköllum.
Guðjón Baldursson, sérfræð-
ingur á slysadeild, sagði við
Morgunblaðið í gærkvöld að fjöldi
slysanna væri við það að verða
óviðráðanlegur. Þó hefði ekki
þurft að grípa til sérstakra ráð-
stafana því að með góðri skipu-
lagningu og undirbúningi hefði
þetta tekist. „Þetta útheimtir
mikinn mannafla og mikla krafta.
Við erum samstillt og höfum búið
okkur undir hvaða ástand sem er.
Ágústmánuður hefur líka alltaf
verið erfiður þar sem þá eru
margir á ferðinni um landið, jafnt
útlendingar sem Íslendingar.“
Gífurlegt álag á slysadeild