Morgunblaðið - 12.08.2003, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 12.08.2003, Blaðsíða 20
NEYTENDUR 20 ÞRIÐJUDAGUR 12. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ 30 ÁRA LÁNINNRÉTTINGAR EldaskálinnBrautarholti kostnaður frá 2.750 krónum fyrir fjögurra daga gæslu til 3.785 króna fyrir 7 daga gæslu. Fyrir 14 daga gæslu þarf að greiða 6.620 krónur og 9.455 krónur fyrir 21 dag.“ Leigubifreiðastöðvar eru með sérstakt tilboðsverð á leigubíl til og frá Leifsstöð, segir ennfremur, og kostar bíll fyrir 1–4 farþega 15.000 krónur og 19.000 krónur fyrir 5–9 farþega. Ferðavenjur Íslendinga Ferðum var skipt í styttri og lengri ferðir til einföldunar. Stuttar ferðir eru 1–7 daga og lengri ferðir 8–14 daga, eða 15–28 daga. Stystu ferðirn- ar eru yfirleitt borgar- eða viðskipta- ferðir og vikulangar sólarlandaferðir. Stuðst var við rit Hagstofunnar um ferðavenjur Íslendinga sem er frá 1996. Tekið er fram að fjöldi styttri ferða geti hafa vaxið á kostnað lengri ferða frá því gögn Hagstofunn- EINKABÍLLINN er ódýrasti ferða- mátinn til og frá Leifsstöð fyrir ferðir sem eru sjö dagar eða styttri, sam- kvæmt athugun sem Viðskiptaráð- gjöf IBM hefur unnið fyrir Securitas. Verkefnið fólst í því að bera saman þjónustu Securitas við aðra valkosti fyrir ferðamenn á leið til og frá Kefla- víkurflugvelli, en fyrirtækið býður gæslu á bifreiðum á stæði við Leifs- stöð. Þegar ferðamenn fara frá höfuð- borgarsvæðinu til Leifsstöðvar og til baka, stendur valið á milli flugrútu, einkabíls, leigubíls, flugtaxa eða aksturs fjölskyldumeðlims eða vinar. Engar tiltækar tölur eru fyrir hendi um tíðni og er einkum fjallað um þrjá fyrstu möguleikana, segir í greinar- gerð með athuguninni. „Gjald fyrir flugrútu er 1.000 krón- ur aðra leiðina fyrir fullorðna og 500 krónur fyrir börn 12–15 ára en frítt er fyrir börn undir 12 ára aldri. Auk þessa kostnaðar er reiknað með að taka þurfi leigubíl að og frá ökuleið flugrútunnar en sá kostnaður fer að sjálfsögðu eftir vegalengd og eftir því hvort um dag- eða næturtaxta er að ræða. Hér er gert ráð fyrir því að þessi kostnaður sé 1.250 krónur aðra leiðina. Miðað við þessar forsendur er þessi kostnaður 6.500 krónur fyrir 2 en fyrir fjögurra manna fjölskyldu er hann 7.000–7.500 krónur eftir aldri barna, nema bæði börnin séu undir 12 ára,“ segir í niðurstöðum. Kostnaður við gæslu á einkabíl fer eftir dvalartíma en hún kostar 450 krónur á dag fyrir 1–6 daga en 405 krónur á dag fyrir 7–30 daga. Þá má gera ráð fyrir að eldsneyti kosti 950 krónur, sem er áætluð eyðsla með- alfólksbíls til og frá Leifsstöð. Þessi kostnaður gæti sveiflast um fáein hundruð til eða frá eftir atvikum, seg- ir jafnframt. „Samkvæmt þessum forsendum er ar voru tekin saman, segir einnig. „Um 60% allra ferða fólks 25–64 ára eru af þessari lengd, en yngra fólk og börn fara mun sjaldnar í slíkar ferð- ir.“ Átta til 14 daga dvalartími á að- allega við dæmigerðar sólarlanda- ferðir og voru um 25% af ferðum allra aldurshópa af þessari lengd, að því er segir í niðurstöðum. „Lengstu ferð- irnar eru 15–28 dagar og er um helm- ingur ferða barna af þeirri lengd en 10–20% fullorðinna. Hér er því um dæmigerðar fjölskylduferðir að ræða,“ segir ennfremur. Í samanburðinum skiptir máli hversu langt ferðalagið er og hversu margir ferðast við samanburð á val- kostum. „Í ferðir sem taka 15–21 nótt er flugrútan ódýrust ef 3 eða færri ferðast saman eða ef börn undir 12 ára eru í ferðahópnum, sé gengið út frá þeim forsendum sem tilgreindar hafa verið,“ segir í samantekt Við- skiptaráðgjafar IBM. Segja einkabílinn hagkvæm- an vegna stuttra ferðalaga Athugun gerð á kostnaði við akstur til og frá Leifsstöð Morgunblaðið/Hilmar Bragi Einkabíllinn gæti verið hagkvæmastur ef ferðalagið er stutt en flugrútan vinnur á þegar dvalið er lengi erlendis eða þegar fáir úr fjölskyldunni fara. ÍSLENSKAR ágúrkur eru fáan- legar allan ársins hring. Þær eru hollar eins og allt annað grænmeti, innihalda aðallega C-vítamín, vökva- innihaldið er um 96% og því er orkuinnihaldið mjög lágt eða aðeins 12 he í hverjum 100 g, segir í sam- antekt frá grænmetisbændum. Elstu heimildir um agúrkurækt- un eru frá Indlandi; þaðan barst plantan út um allan heim en víðast hvar má rækta agúrkur. Frásagnir eru af hinum ýmsu konungum sem lögðu mikið upp úr ræktun agúrku í ríkjum sínum, kannski fyrir þær sakir hversu svalandi þær eru og því gjarnan notaðar, ferskar, á augu til að draga úr þrota og baugum. Gúrkur eru stór ber Rétt er að nefna áður en lengra er haldið að agúrkur eru ekki eiginlegt grænmeti heldur ávöxtur eða stórt ber, eða nánar tiltekið aldin klif- urjurtar af kúrbítsætt. Gúrkan vex ekki villt, ekki einu sinni erlendis, en hér á landi er hún ræktuð í gróð- urhúsum með góðum árangri. Ag- úrkur geta verið mjög mismunandi að stærð og lögun, bragðið er þó mjög líkt og frekar lítið, þó eru smærri gúrkurnar oft bragðbetri en þær sveru. Lagið á gúrkunni hefur ekkert með bragð eða hollustu að gera. Þegar velja skal agúrku skipt- ir lagið ekki svo ýkja miklu máli nema að nota eigi agúrkuna til dæmis í skreytingar, einnig er betra að skera agúrkur í sneiðar ef þær eru beinar. Aðalatriðið er að græni liturinn sé jafn og að þær séu stinn- ar, gott er að meta það með því að þrýsta létt á stilkendann því þar lin- ast þær gjarnan fyrst. Best er að geyma agúrkur ekki í of miklum kulda, heldur á svölum stað, til dæmis á þeim stað í ísskápn- um þar sem kuldinn er minnstur. Erlendis þekkist að húða agúrkur með vaxi til að auka geymsluþolið, en hérlendis er það aldrei gert. Ag- úrkur eru oftast notaðar sem álegg á brauð, til dæmis með osti, kota- sælu eða öðru grænmeti og súrar gúrkur ganga vel með roastbeef, steiktum lauk og örlitlu remúlaði. Agúrkur eru einnig frábærar í fersk salöt og gott meðlæti með til dæmis kjöti í ediklegi í sneiðum eða sem heilar smágúrkur. Agúrkur, eins og annað grænmeti, geta komið í stað fitumikils snakks ásamt léttri ídýfu til dæmis úr kotasælu eða jógúrt. Agúrkuréttir Tzatziki, sem er köld jógúrtídýfa ættuð frá austanverðu Miðjarð- arhafi, er gerð úr agúrkum, fersk- um hvítlauk og söxuðu dilli. Hún er borin fram með pítubrauði, ristuðu brauði eða hráu grænmeti og salöt- um, einnig með grilluðum fiski og kjöti. Að lokum má ekki gleyma gazpacho, sem er köld, spænsk grænmetissúpa sem inniheldur sax- aðar agúrkur og þykir hún hið mesta hnossgæti. Fleiri þjóðir en Spánverjar laga súpur þar sem ag- úrkur eru notaðar og má þar nefna Grikki með tarata, Tyrki og cacik og chlocnik sem er pólsk súpa. Á Indlandi eru agúrkur brytjaðar út í jógúrt, kallað raita og notað sem svalandi meðlæti með sterkum karrýréttum. Agúrkur má gufu- sjóða, ofnbaka, léttsteikja í smjöri eða djúpsteikja en æskilegast er, næringarlega séð, að borða þær ferskar þar sem næringarefnin tap- ast gjarnan við eldun. Agúrkur allan ársins hring Morgunblaðið/Þorkell Uppskrift fyrir fjóra Hráefni: 5 dl jógúrt, hrein 1¾ dl gúrka, afhýdd og skorin í teninga 2 msk. mynta, fínt söxuð 1 tsk. salt 1 tsk. edik (má sleppa) 1¼ stk. hvítlauksrif, press- uð Matreiðsla: Setjið allt hrá- efni í skál. Ef tzatziki er búið til með nokkrum fyrirvara, er gott að salta gúrkuna svo saf- inn úr henni þorni ekki. Meðlæti: Tzatziki er hægt að nota á pítubrauðið eða til að krydda kjöt og hrísgrjón. Í staðinn fyrir fersku myntuna má nota ferskt dill eða þurrk- aða myntu. Þessi uppskrift er best með þykkri jógúrt. Grísk tzatz- iki-sósa Heimild: Uppskriftir.is Uppskrift fyrir fjóra Hráefni: 2–3 dósir niðursoðnir tómat- ar í bitum 2 stk. hvítlauksgeirar 1 stk. rauðlaukur 1 stk. agúrka 1 stk. paprika, hreinsuð 4 msk. ólífuolía ½ dl rauðvínsedik, nýmalaður pipar og salt brauðstangir ½ dl sýrður rjómi Matreiðsla: Maukið hvítlauk, rauðlauk, agúrku og papriku í matvinnsluvél í 2 mínútur. Bætið þá niðursoðnu tómötun- um saman við og maukið í eina mínútu til viðbótar. Bragðbæt- ið með rauðvínsediki, pipar og salti. Súpuna má bera fram hvort sem er, heita eða kalda. Meðlæti: Brauðstangir og sýrður rjómi, sem hrærður er upp og 1–2 tsk. settar á hvern disk þegar súpan er borin fram. Spænsk gazpacho- súpa Heimild: Uppskriftavefur hagkaup.is AÐSÓKN í Kringluna í júlí jókst um 5,2% milli ára og sóttu um 25.000 fleiri viðskiptavinir verslunarmið- stöðina heim í júlí nú, en í fyrra. Þessi umtalsverða aukning er þrátt fyrir mjög gott veður í Reykja- vík í júlí, en yfirleitt hefur gott veður neikvæð áhrif á aðsókn í Kringluna, segir Örn Kjartansson, fram- kvæmdastjóri Kringlunnar. Hann segir hugsanlegar skýringar á góðu gengi í júlímánuði bæði góðar útsöl- ur og aukna aðsókn um helgar. „Sunnudagar í júlí hafa verið með frjálsum afgreiðslutíma og nú höfðu fleiri verslanir opið á sunnudögum en í fyrra.“ Örn segir að það stefni í að heildaraðsókn á árinu verði meiri en í fyrra, og er aðsóknin í ár um 2% meiri en í fyrra það sem af er árinu. Útsölum er nú lokið í Kringlunni og nýjar vörur komnar í flestar verslanir. Næsta sunnudag tekur gildi vetrarafgreiðslutími í Kringl- unni sem er eftirfarandi: mán.–mið. kl. 10 til 18.30 fimmtudaga kl. 10 til 21 föstudaga kl. 10 til 19 laugardaga kl. 10 til 18 sunnudaga kl. 13 til 17 Veitingastaðir og kvikmyndahús eru opin lengur. Aukinn fjöldi í Kringlunni RÚMLEGA 51.000 manns kom í Smáralind um síðustu helgi þegar útsölur kláruðust og er það rúmlega 17% aukning frá útsölulokum í fyrra. Veltuaukning verslana í Smáralind er um 20% á síðustu fjórum mán- uðum miðað við sama tíma í fyrra. Verslun í júlímánuði gekk mjög vel að sögn Helgu Thors, markaðs- stjóra Smáralindar: „Við erum mjög sátt við sumaraðsóknina. Það hangir þarna saman, góðar júlíútsölur og tívolíið.“ Helga segir að þó að heim- sóknir séu nálægt meðaltali sé veltan að aukast. Pálmi Kristinsson, framkvæmda- stjóri Smáralindar segir að verið sé að taka saman tölur yfir veltuaukn- ingu. Hann segir að lítil aukning hafi verið á veltu á fyrsta ársfjórðungi. Á öðrum ársfjórðungi, að viðbættum júlí, segir hann umtalsverða veltu- aukningu í Smáralind, þó mismikla milli verslana. Á þessu tímabili segir hann veltuaukningu verslanna að meðaltali um 20%. „Hægt og bítandi er Smáralind að verða partur af vana fólks, þetta er eitthvað sem tekur tíma. Við sjáum núna í hverju tilfellinu á fætur öðru allt að 100% söluaukningu í ein- stökum verslunum miðað við sama tíma í fyrra. Viðkomandi verslanir gera þá betur vart við sig og við- skiptavinir þeirra verslana venja komur sínar þangað.“ segir Páll. „Útölurnar gengu rosalega vel,“ segir Helga. „Kaupmenn eru afskap- lega ánægðir með þetta. Það var meira um söluborð á göngunum en áður svo það var meiri útsölu- stemmning en hefur verið.“ Núna streyma nýjar vörur í Smáralind og hausttískan er að verða allsráðandi. Áfram verður opið í Smáralind frá 11 til 19 virka daga, frá 11 til 18 laug- ardaga og frá 13 til 18 sunnudaga. Mikil veltuaukning í Smáralind

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.