Morgunblaðið - 12.08.2003, Blaðsíða 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. ÁGÚST 2003 9
BÆNDASAMTÖKIN mæla, í um-
sögn sinni til umhverfisráðuneytis-
ins, gegn algjöru banni við rjúpna-
veiðum. Samtökin benda á að
rjúpnaveiðar séu hluti af atvinnu-
starfsemi á landsbyggðinni m.a.
vegna leigutekna og sem afþreying-
armöguleiki í tengslum við lengingu
nýtingartíma ferðaþjónustuaðstöðu.
„Algjör friðun rjúpunnar myndi
því hafa í för með sér tekjumissi
fyrir einhverjar fjölskyldur á lands-
byggðinni sem taka verður tillit til.
Við umfjöllun um hvernig standa
skuli að verndun og nýtingu rjúp-
unnar á komandi árum er rétt að
horfa til þess hvernig staðið hefur
verið að verndun og nýtingu laxa-
stofnsins í íslenskum laxveiðiðám.
Þar hefur lengi verið lögboðið að
landeigendur störfuðu saman að
verndun og nýtingu laxastofna
hvers veiðisvæðis og veiðiálag fyrir-
fram ákveðið og veiði og arði af
henni skipt. Má ætla að laxveiði
væri hér minni en nú er ef veiðarnar
hefðu verið eins frjálsar og þær
hafa verið á rjúpunni.“
Bændasamtökin taka fram að
tæpast leiki vafi á að rjúpnastofninn
sé í sögulegu lágmarki víðast um
landið, þótt staða hans sé eitthvað
mismunandi. Bent er á að auka
þurfi fjárframlög til refaveiða og
skipuleggja átak til fækkunar refa.
Auka þurfi veiðar á mink og stað-
festa að minkurinn er meindýr sem
eyða verður með öllum tiltækum
ráðum hvar og hvenær sem til hans
næst. Virkja þurfi bændur landsins
til gildruveiða á mink á þeim árs-
tímum sem slíkar veiðar eru væn-
legastar. Takmarka eigi sókn í
rjúpnastofninn og byggja þá tak-
mörkun á fjölda sóknardaga ásamt
því að setja skorður við þeirri tækni
sem beita má við veiðarnar. Þetta
megi gera með þeim hætti að banna
algjörlega í 5 ár rjúpnaveiðar á al-
menningum og afréttum, en heimila
bændum að leyfa rjúpnaveiðar í
heimalöndum og þá miðað við
ákveðinn fjölda veiðidaga og skil-
greindar veiðiaðferðir. Öll leyfi yrðu
skráð á nöfn veiðmanna og landeig-
andi væri ábyrgur fyrir skilum á
veiðiskýrslum og að sókn yrði innan
tilskilinna marka.
Bændasamtökin mæla
gegn algjöru banni
við rjúpnaveiðum
MAÐUR dró upp hníf þegar
lögreglumenn á Ísafirði voru
kallaðir út á sunnudagsmorg-
un. Lögreglan var kölluð í hús
vegna líkamsárásar, en er lög-
reglumenn komu á staðinn gaf
sá er ráðist var á sig fram við
lögregluna ásamt vitnum. Á
meðan á samtali þeirra stóð
kom árásarmaðurinn hlaup-
andi með eldhúshníf á lofti í
átt að þeim. Var hann það
ógnandi að lögreglumenn
drógu upp Mace-úða og skip-
uðu honum að leggja frá sér
hnífinn. Hlýddi maðurinn því
en flýði inn í húsið og þaðan út
um bakdyr. Formleg kæra
hefur verið lögð fram á hend-
ur árásarmanninum og er mál-
ið í rannsókn.
Ógnaði
með hnífi
Þri 12/8: Gadó-gadó=indónesískur
pottréttur m/fersku salati,
hrísgrjónum & meðlæti.
Mið. 13/8: Grænmetisflatbaka
m/brokkolí & fleiru, fersku
salati, hrísgrjónum &
meðlæti.
Fim. 14/8: Pakistanskur spínatréttur
m/fersku salati, hrísgrjónum
og meðlæti.
Fös. 15/8: Brokkolíbaka
m/sólþurkuðum tómötum,
fersku salati, hrísgrjónum
& meðlæti.
Helgin 16 & 17/8: Gestakokkur
frá Persíu.
Mán. 18/8:Pönnukaka &
hvítlaukskartöflur.
Matseðill
www.graennkostur.is
Síðu Signe-buxurnar
frá PAS eru komnar!
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
s. 557 1730 s. 554 7030
Opið mán.—fös. frá kl. 10—18
lau. kl. 10—16
Fix universal Umhverfisvænn hreinsimassi frá Þýskalandi
HREINT ÓTRÚLEGT EFNI VIÐ ERFIÐ ÞRIF
Hreinsar, pólerar og
verndar samtímis.
Messing • kopar • stáli • gulli • silfri
lökkuðum flötum • plasti • gleri
keramikhellum • emaleruðum flötum o.fl.
Ómissandi á heimilið, í bílinn, bátinn,
fellihýsið o.fl.
Smiðjuvegur 11,
gul gata, sími 568 2770
Laugavegi 4, sími 551 4473
• www.lifstykkjabudin.is
Aðhald án sauma
Þú minnkar
um 1 númer
Póstsendum
Neðst við Dunhaga, sími 562 2230 Opið mán.-fös. kl. 10-18 • lau. kl. 10-14.
Glæsilegar haustvörur
Álfheimum 74, Glæsibæ, Reykjavík, s. 553 2347
Nýjar vörur streyma inn
(Síðustu forvöð
að nýta útsöluna)Fataprýði
Verið velkomnar
BERGSTAÐASTRÆTI 37 • SÍMI: 552 5700
Tvíréttað í hádeginu
á aðeins 1.900 krónur
einnig þrírétta
matseðill
Ný og öflug vara-
enn meiri árangur
Thermo complete
Frábær árangur í
þyngdarstjórnun
Herbalife hágæðanæring
Hafðu samband,
Sandra, s. 845 6950
Kringlunni & Hamraborg
568 4900 552 3636
H
au
st
2
0
0
3
Bankastræti 14, sími 552 1555
20%
aukaafsláttur
af útsöluvörum
ÚTSÖLULOK
16. ágúst
undirfataverslun
Síðumúla 3, s. 553 7355
Opið virka daga kl. 11-18 • laugardag kl. 11-15
Laugavegi 63, sími 551 4422
Ú
T
S
Ö
L
U
L
O
K
Verðsprengja
50% afsl.
+ 2 flíkur á verði einnar
Kringlunni - sími 581 2300
OUTLET
DAGAR
70%
AFSLÁTTUR AF ALLRI SUMARVÖRU
Skyrtutilboð
Vandaðar herraskyrtur. Ein á 1500.- Tvær á 2000.-
LOKADAGUR