Morgunblaðið - 12.08.2003, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 12.08.2003, Blaðsíða 17
SUÐURNES MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. ÁGÚST 2003 17 Heimsferðir bjóða borgarævintýri til fegurstu borga Evrópu á hreint frábærum kjörum með beinu flugi í haust. Alls staðar nýt- ur þú þjónustu reyndra fararstjóra okkar, sem eru á heimavelli á söguslóðum og bjóða spennandi kynnisferðir meðan á dvölinni stendur. Notaðu tækifærið og kynnstu mest spennandi borgum Evrópu, mannlífi og menningu og upplifðu ævintýri í haust. Fegurstu borgirnar í beinu flugi í haust frá kr. 28.550 Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is Munið Mastercard ferðaávísunina Róm 1.-5. okt. Heimsferðir bjóða nú einstakt tæki- færi til borgarinnar eilífu í beinu flugi þann 1. okt. frá Íslandi til Rómar. Nú getur þú kynnst þessari einstöku borg sem á engan sinn líka í fylgd farar- stjóra Heimsferða og upplifað árþús- undamenningu og andrúmsloft sem er einstakt í heiminum. Péturstorgið og Péturskirkjan, Vatíkanið, Spænsku tröppurnar, Colosseum, Forum Romanum og Pantheon hofið. Sjá www.heimsferðir.is Verð frá kr.65.850 Búdapest október fimmtud. og mánud., 3, 4 eða 7 nætur Stórkostleg borg í hjarta Evrópu, sem Íslendingum býðst nú að kynn- ast í beinu flugi frá Íslandi. Hér getur þú valið um góð 3 og 4 stjörnu hótel í hjarta Budapest og spennandi kynnisferðir með farar- stjórum Heimsferða. Verð kr. 28.550 Flugsæti til Budapest 20. okt. með 8.000 kr. afslætti. Skattar innifaldir. Gildir frá mánudegi til fimmtudags. Verona 17. sept., 5 nætur Fegursta borg Ítalíu, þar sem þú getur notið hins besta af ítalskri menningu um leið og þú gengur um gamla bæinn, skoðar svalir Júlíu og kynnist frægasta útileik- húsi Ítalíu, Arenunni í Verona eða ferðast um Gardavatn og Feneyjar. Verð kr. 29.950 Flugsæti með sköttum. Völ um 3 og 4 stjörnu hótel. Ekki innifalið: Forfalla- gjald, kr. 1.800 valkvætt. Ferðir til og frá flugvelli kr. 1.800. Prag Okt. og nóv. fimmtud. og mánud., 3, 4 eða 7 nætur Fegursta borg Evrópu og eftirlæti Íslendinga sem fara nú hingað í þúsundatali á hverju ári með Heims- ferðum. Fararstjórar Heimsferða gjör- þekkja borgina og kynna þér sögu hennar og heillandi menningu. Góð hótel í hjarta Prag. Verð kr. 29.950 Flug og hótel í 3 nætur. M.v. 2 í her- bergi á Quality Hotel, 3. nóv. með 8.000 kr. afslætti. Skattar innifaldir. Gildir frá mánudegi til fimmtudags. Ferðir til og frá flugvelli kr. 1.800. Barcelona 2. okt. 3 nætur 22./26./30. okt. 4 nætur Einn vinsælsti áfangastaður Íslend- inga í 11 ár. Heimsferðir bjóða nú bein flug í október, sem er einn skemmtilegasti tíminn til að heim- sækja borgina. Menningarlífið er í hápunkti og ótrúlegt úrval listsýn- inga og tónleika að heimsækja ásamt spennandi næturlífi og ótrú- legu úrvali verslana. Fararstjórar Heimsferða kynna þér borgina á nýjan hátt, enda hér á heimavelli. Verð kr. 49.950 Flug og hótel í 4 nætur. M.v. 2 í herbergi á Aragon, 22. okt. Skattar innifaldir. Ferðir til og frá flug- velli kr. 1.800. Sorrento 30. sept., 5 nætur Heimsferðir bjóða nú í fyrsta sinn á Íslandi beint flug til Napolí og dvöl í Sorrento, þessum frægasta sumar- leyfisstað Ítalíu. Hér kynnist þú hinni ótrúlega fögru Amalfi strönd, eyjunni Capri, Pompei og Napolí. Ótrúlega fallegt umhverfi og heill- andi andrúmsloft á þessum fagra stað. Völ um úrvalshótel í hjarta Sorrento. Verð kr. 63.650 Flug og hótel í 5 nætur. M.v. 2 í her- bergi á La Meridiana með morgunmat. Skattar innifaldir. Ferðir til og frá flug- velli kr. 1.800. Verð m.v. 2 í herbergi, Hotel Villa Torlonia, flug, gisting, skattar, íslensk fararstjórn. Ekki innifalið: Forfalla- gjald, kr. 1.800 valkvætt. Ferðir til og frá flugvelli kr. 1.800. ÁRLEGUR fjölskyldudagur var haldinn í Vogunum á laugardag. Að sögn Lenu Rósar Matthíasdóttur tóm- stundafulltrúa setti veðrið nokkurn svip á hátíðina sem aftraði því þó ekki að börn og fullorðnir skemmtu sér konunglega. Helst bar á að fullorðna fólkið vantaði á fjöl- skyldudaginn. Fjölmargt var í boði fyrir alla fjölskylduna og hófst dagskráin með dorgveiðikeppni. Á hátíðarsvæðinu í Ara- gerði voru leiktæki, íþróttaviðburðir og skemmtiatriði. Þá var keppt bæði í fótbolta og körfubolta. Lionsklúbb- urinn Keilir stóð fyrir húsmunauppboði og um kvöldið stóðu Lionsmenn og björgunarsveitin Skyggnir fyrir dansleik en allur ágóði rann óskiptur til líknarmála. Björgunarsveitin setti upp talíubraut, sem var vinsæl hjá unga fólkinu og slökkviliðið bauð bæjarbúum upp á útsýnisferð í körfubíl slökkviliðsins. Um kvöldið var öll- um unglingum, 15–17 ára, á Suðurnesjum boðið í sund- laugarpartí og haldið var félagsmiðstöðvarpartí fyrir 12– 14 ára ungmenni. Blautur fjöl- skyldudagur Ljósmynd/Hilmar Bragi Bárðarson Fólki gafst kostur á að njóta útsýnisins úr körfubíl slökkviliðsins og nýttu sér það fjölmargir. Regnhlífar komu í góðar þarfir á fjölskyldudeginum. Þessir ungu menn tókust á í Aragerði og hér er það jafnvægislistin ekki síður en úthaldið sem skiptir öllu máli. Vogar LÍNUSKIP Þorbjarnar-Fiska- ness hf. hafa undanfarna daga verið að hefja róðra að nýju eft- ir sumarfrí og er búist við að vinnsla í frystihúsinu fari í full- an gang í vikunni eða um leið og fyrsta skipið kemur inn til lönd- unar. Frá þessu er greint á heimasíðu Þorbjörns-Fiska- ness. Í hópi báta sem eru að hefja róðra er línu- og netaskip- ið Ágúst GK sem er farinn í sína fyrstu veiðiferð eftir breyt- ingar sem gerðar voru á hon- um. Ágúst GK kom til landsins í febrúar síðastliðnum frá Gdynia þar sem honum var breytt úr nóta- og togveiðiskipi. Landaði 405 tonnum Þá má geta þess að Gnúpur GK, frystitogari í eigu Þor- bjarnar-Fiskaness, landaði í síðustu viku 405 tonnum að verðmæti 48 m.kr. Veiðiferðin stóð í 28 daga. Róðrar hafnir að nýju hjá Þorbirni- Fiskanesi Vinnsla í fullan gang í vikunni Grindavík UPPLÝSINGAMIÐSTÖÐ Reykja- ness hefur undanfarnar vikur staðið fyrir gönguferðum undir leiðsögn í bæjarfélögum á Suðurnesjum og hef- ur mjög góð þátttaka verið í skoðun- arferðunum fram að þessu. Í kvöld verður gengið um Garðinn með Ás- geiri Hjálmarssyni og er mæting við Byggðasafnið í Garði kl. 20. Á fimmtudag mun Reynir Sveins- son ganga með fólki um Sandgerði og er mæting á veitingastaðnum Vitan- um kl. 20. Útilistaverk skoðuð í fylgd menningarfulltrúa Síðar í mánuðinum verður boðið upp á gönguferðir um Hafnir, Voga og umhverfi og skoðuð verða útilista- verk í eigu Reykjanesbæjar í fylgd menningarfulltrúa bæjarins. Áhuga- samir geta nálgast nánari upplýsing- ar á heimasíðum viðkomandi sveitar- félaga. Gönguferð um Garðinn í kvöld Morgunblaðið/Brynjar Gauti Garður

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.