Morgunblaðið - 12.08.2003, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 12.08.2003, Blaðsíða 39
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. ÁGÚST 2003 39 Morgunblaðið/Kristinn Björgólfur Takefusa tekur boltann niður á brjóstið en til varnar er Kristinn Lárusson. Matthías opnaði þar meðmarkareikning sinn í sumar en þessi eldfljóti kantmaður hefur leikið alla 13 leiki Hlíðarendaliðsins í sumar. „Við litum á leik- inn sem algjöran úrslitaleik og við lögðumst allir á eitt við að berjast til síðasta blóð- dropa. Við ætlum ekki niður og með sömu baráttu og vilja veit ég að það verður ekki,“ sagði Matth- ías þar sem hann lá á sjúkrabör- unum og fylgdist með síðustu mín- útum leiksins utan vallar eftir að hafa meiðst á hné. „Sumarið hefur verið mér frekar erfitt en það var gaman að ná loks að brjóta ísinn. Ég var mikið í bolt- anum í byrjun leiksins og það gaf mér gott sjálfstraust sem ég nýtti mér en það hefur skort upp á það í sumar hjá mér. Ég var klaufi að skora ekki fleiri mörk en þreytan var farin að segja til sín,“ sagði Matthías sem borinn var af velli skömmu fyrir leikslok meiddur í hné. Ólíklegt er að Matthías verði búinn að ná sér fyrir leikinn við Ís- landsmeistara KR á fimmtudag en hné útherjans leit ekki vel út þegar hann kom af velli. „Ég lenti illa og það kom einhver slinkur á hnéð og ég gat ekki haldið áfram að leika.“ Ásgeir Elíasson, þjálfari Þrótt- ar, var fremur niðurlútur þegar Morgunblaðið tók hann tali eftir leikinn en lærisveinar hans töpuðu fjórða leiknum í röð og eru komnir í fallslaginn eftir að hafa trónað á toppnum í deildinni um tíma. „Þetta var bara mjög erfitt. Við fengum á okkur hálfgert aulamark í byrjun og þrátt fyrir að við höf- um náð að skapa okkur fín færi, sérstaklega í fyrri hálfleiknum, féll þetta ekki með okkur. Í seinni hálfleik reyndum við að sækja en Valsmennirnir bökkuðu vel til baka og við fengum nánast engin færi að ráði. Vörnin hjá Val hélt vel en við vorum ekki nógu klókir gegn þeim og misstum trú á okkur sjálfum. Eftir þessi úrslit er fallbarátta okkar hlutskipti,“ sagði Ásgeir. Þú sagðir þegar allt lék í lyndi hjá ykkur Þrótturum að þið þyrft- uð að fá 22 stig til að vera öruggir með að halda sæti ykkar. Ert þú enn sama sinnis? „Það hefur ekkert breyst. Ég tel að að við þurfum að ná þessum stigafjölda til að vera öruggir. Við misstum af tækifæri til að berjast á öðrum vígstöðvum en í fallslagn- um með þessu tapi í kvöld og verð- um bara að taka því. Við erum búnir að tapa fjórum leikjum í röð og það getur oft verið erfitt að rífa sig upp úr svona taphrinu. Við eig- um erfiðan leik í Árbænum gegn Fylki í næstu umferð en vonandi kemur að því að við komust á sig- urbraut á nýjan leik.“ „Þessi leikur var upp á líf eða dauða fyrir okkur og hann bar þess merki hjá mínum mönnum. Baráttan var feikilega góð en kannski á kostnað gæðanna,“ sagði Þorlákur Árnason, þjálfari Vals, við Morgunblaðið eftir sigur á Þrótti. Þorlákur hrósaði varnarmönnum sínum og Ólafi markverði sérstak- lega fyrir frammistöðuna en hann sagði sitt lið oft hafa leikið betur þó svo að það hafi ekki dugað til sigurs. „Mér fannst leikurinn kafla- skiptur. Við byrjuðum vel en Þróttararnir efldust og voru betri í fyrri hálfleik en í þeim síðari fannst mér við vera sterkari. Mér fannst vanta að við héldum bolt- anum betur innan liðsins sem hef- ur verið okkar aðal en við vörð- umst vel og Óli bjargaði vel nokkrum sinnum í fyrri hálfleik. Maður var auðvitað stressaður þegar á leikinn leið og sérstaklega þar sem við náðum að nýta góð færi til að gera endanlega út leik- inn. Þrátt fyrir sigurinn erum við enn í fallsæti en það er mikill hug- ur í okkur og ef við fáum jafngóðan stuðning frá stuðningsmönnum okkur í komandi leikjum þá kvíði ég engu um framhaldið. Við tökum á móti KR á fimmtudaginn og sá leikur leggst mjög vel í mig.“ Það stefnir í æsispennandi fall- baráttu en hvað telur þú að þið þurfið mörg stig til þess að tryggja veru ykkar í deildinni? „Eins og deildin hefur spilast held ég að við þurfum 22–23 stig til að vera öruggir. Við ætlum að berjast með kjafti og klóm til að ná þessum stigafjölda og halda sæti okkar meðal þeirra bestu.“ Lengi búinn að bíða eftir þessu marki ÉG VAR búinn að bíða lengi eftir markinu og að það skyldi tryggja okkur sigurinn var sérlega ánægjulegt,“ sagði Valsmaðurinn Matthías Guðmundsson við Morgunblaðið eftir sigur Vals á Þrótti í Laugardalnum í gærkvöld. Matthías stýrði knettinum snyrtilega í netið á 6. mínútu leiksins eftir sendingu Kristins Lárussonar og það mark skildi Reykavíkurliðin að. Eftir Guðmund Hilmarsson  AUÐUN Helgason lék allan leik- inn með Landskrona gegn Öster í sænsku úrvalsdeildinni í knatt- spyrnu í gærkvöld. Landskrona tap- aði 3:0 á útivelli.  MOLDE tapaði 0:2 á heimavelli fyrir Bodø/Glimt í norsku úrvals- deildinni í gær. Ólafur Stígsson var á varamannabekk Molde en kom ekk- ert inn á.  PÉTUR Marteinsson fékk mjög góða dóma fyrir frammistöðu sína með Stoke sem sigraði Derby, 3:0, í fyrstu umferð ensku 1. deildarinnar á laugardaginn. Pétur fékk 9 í ein- kunn á Oatcake, stuðningsmanna- síðu Stoke, og fékk hæstu einkunn ásamt John Eustace, sem valinn var maður leiksins.  JAN Zelezny, margfaldur heims- og ólympíumeistari í spjótkasti, mun taka ákvörðun einhvern næstu daga um hvort hann tekur þátt í heims- meistaramótinu í frjálsum íþróttum sem fram fer í París og hefst 23. þessa mánaðar. Zelezny var í gær valinn í tékkneska liðið sem keppir á mótinu en hann ætlar að ákveða eftir gullmótið sem haldið verður í Zürich á föstudag hvort hann verður með í París.  JUUP Heynckes, þjálfari Schalke, er mjög óhress með byrjun sinna manna í þýsku Bundesligunni en Schalke hefur gert jafntefli í tveimur fyrstu umferðunum, gegn Dortmund og 1860 München. „Úrslitin á móti 1860 München voru að mínu mati al- gjör skandall. Við eigum að vinna svona lið og ég trúi ekki öðru en að mínir menn hafi lært sína lexíu,“ seg- ir Heynckes.  IGOR Stepanovs, varnarmaður Arsenal frá Lettlandi, hefur verið lánaður til belgíska liðsins Beveren. Hann lék aðeins fjóra leiki með Ars- enal sl. keppnistímabil.  PAOLO di Canio er harðorður í garð Glenn Roeders, knattspyrnu- stjóra West Ham, í viðtali við breska blaðið Sun. „Eftir að Harry Red- knapp var rekinn og Roeder tók við spáði ég að slæmir hlutir myndu ger- ast hjá félaginu og það hefur gerst. West Ham er að hrynja og það er Roeder að kenna. Það er mjög erfitt að horfa upp á félagið í þessum að- stæðum því mér þykir mjög vænt um stuðningsmenn liðsins.“  Di Canio segir einnig í viðtalinu að West Ham hefði haldið sæti sínu í ensku úrvalsdeildinni ef Roeder hefði látið sig leika meira. „Ef hann hefði ekki tekið mig úr byrjunarlið- inu hefði West Ham haldið sæti sínu í deildinni. Hvernig getur einhverjum dottið í hug að það hafi verið betra fyrir liðið að hafa mig fyrir utan byrj- unarliðið? Roeder lét persónulegan ágreining okkar ganga fyrir hags- munum félagsins,“ sagði Di Canio. FÓLK  PETER Reid, knattspyrnustjóri Leeds United, vill að leikmenn liðs- ins hætti að vorkenna sjálfum sér og byrji að axla ábyrgð. „Við erum með leikmenn sem hafa mikla hæfi- leika en þeir verða að fara að hætta að vorkenna sjálfum sér. Okkur hef- ur ekki gengið vel á undirbúnings- tímabilinu en við verðum bara að leggja okkur enn harðar fram á æf- ingum,“ sagði Reid en Leeds tapaði 2:0 fyrir Shelbourne á sunnudaginn í vináttuleik.  MARCELLO Lippi, þjálfari Juv- entus, er bjartsýnn á gengi liðsins í vetur en Juventus hefur leikið mjög vel á undirbúningstímabilinu. „Ég vissi að við værum með mjög gott lið en að undanförnu hafa leikmenn- irnir sannfært mig enn betur um að við verðum öflugir í vetur,“ sagði Lippi.  BRASILÍSKI landsliðsmaðurinn Kleberson fékk atvinnuleyfi í Eng- landi í gærkvöldi og því er ekkert því til fyrirstöðu að hann skrifi und- ir samning við Manchester United. Ensku meistararnir þurfa að greiða Atletico Paranaense um sex millj- ónir breskra punda fyrir hann.  DENNIS Bergkamp, sóknarmað- ur Arsenal, hefði hætt knattspyrnu- iðkun ef hann hefði ekki fengið nýj- an eins árs samning hjá félaginu í sumar. Bergkamp hefur verið í her- búðum Arsenal síðustu átta ár og hefur átt mikinn þátt í velgengni liðsins í ensku úrvalsdeildinni. „Ef ég hefði ekki fengið nýjan samning hefði ég hætt að spila en það hefði verið synd þar sem ég tel mig enn geta skilað góðu hlutverki fyrir Ars- enal,“ sagði Hollendingurinn Berg- kamp. FÓLK CRISTIANO Ronaldo mun skrifa undir fimm ára samning við Manchester United í vik- unni, samkvæmt fréttum portúgalska ríkissjónvarpsins. Ronaldo er 18 ára gamall portúgalskur sóknarmaður og hefur leikið með Sporting Lissabon í Portúgal en hann er talinn vera einn efnilegasti knattspyrnumaður í Evrópu. Hann lék frábærlega í vináttu- leik gegn United síðasta mið- vikudag og það er talið að Sir Alex Ferguson, knattspyrnu- stjóri United, hafi þá sann- færst um að Ronaldo væri rétti maðurinn fyrir United. Ronaldo til United BANDARÍSKI kylfingurinn Davis Love III skaust um helgina upp fyr- ir Tiger Woods á lista tekjuhæstu kylfinga bandarísku mótarað- arinnar. Love sigraði nokkuð örugglega á PGA-punktamótinu í Castle Rock í Colorado um helgina og fékk fyrir sigurinn sem svarar til 70 milljóna íslenskra króna. Hann hefur því fengið tæpar 400 milljónir í verðlaunafé það sem af er þessu keppnistímabili en Woods, sem nú er í öðru sæti, hefur fengið um 390 milljónir króna fyrir að standa sig vel á mótum þessa tíma- bils. Þessar upphæðir eru aðeins það verðlaunafé sem kapparnir hafa fengið, en báðir eru þeir auk þessa með margra milljarða auglýs- ingasamninga. Love hefur keppt á 15 mótum en Woods á 12 þannig að Woods hefur betri meðallaun. Fyrir þetta mót var Woods í fyrsta sæit, Jim Furyk í næsta og Mike Weir í því þriðja en Love var fjórði og Vijay Singh fimmti. Núna er Love fyrstur, Woods næstur, Singh þriðji og þá koma Furyk og Weir. Þó svo að þetta séu miklir pen- ingar eru menn neðar á listanum sem hafa varla í sig og á miðað við það verðlaunafé sem þeir hafa fengið á keppnistímabilinu. Þannig hefur til dæmis Richard Zokol, sem er í 237. sæti listans, tekið þátt í tíu mótum og fengið sem nemur 840 þúsundum króna fyrir þannig að það er ekki bara dans á rósum að geta eitthvað í golfi. Love III kominn upp fyrir Tiger Woods

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.