Morgunblaðið - 12.08.2003, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 12.08.2003, Blaðsíða 18
AUSTURLAND 18 ÞRIÐJUDAGUR 12. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ NÝLOKIÐ er framkvæmdum við sundlaugargarð á Djúpavogi. Í des- ember síðastliðnum var tekið í notk- un nýtt og glæsilegt sundlaugar- mannvirki á Djúpavogi, en sund- laugin var byggð við íþróttahús staðarins sem var reist árið 1994. Eftir að sundlaugin, sem er inni- laug með heitum pottum og barna- laug, var tekin í gagnið má með sanni segja að íbúar Djúpavogshrepps hafi þar með eignast fullkomna íþrótta- miðstöð þar sem fólk getur stundað alhliða líkamsrækt. Djúpavogsbúar sem og ferðamenn hafa tekið hinni nýju sundlaug fagnandi. Hinum end- anlegu framkvæmdum við sundlaug- armannvirkið lauk nú um mánaða- mót júlí – ágúst en þá var sund- laugargarðurinn opnaður. Í garð- inum er stór setlaug sem hefur verið sérstaklega vinsæl meðal sóldýrk- enda. Nýting á sundlauginni var með eindæmum góð á síðastliðnum vetri og nú í sumar hefur aðsókn verið með ágætum. Ljóst er að á viðtökum íbúa og ekki síður ferðamanna að sund- laugin á Djúpavogi á eftir að njóta sí- vaxandi vinsælda á komandi árum. Að sögn Andrésar Skúlasonar, for- stöðumanns Íþróttamiðstöðvarinn- ar, hafa ferðamenn íslenskir sem er- lendir í miklum mæli lýst aðdáun sinni á hinni nýju og glæsilegu sund- laug og þeir muni óhikað mæla með því við alla að hafa viðkomu í þessari laug. Ef tekið er tillit til stærðar sveitar- félagsins Djúpavogshrepps sem hef- ur í dag einungis um 500 íbúa, þá má leiða getum að því að hvergi á land- inu fyrirfinnist jafngóð og metnaðar- full aðstaða undir einu þaki og í Íþróttamiðstöð Djúpavogs. Nýr sundlaugar- garður á Djúpavogi Djúpivogur Ljósmynd/Sólný Pálsdóttir Andrés Skúlason, forstöðumaður Íþróttamiðstöðvar Djúpavogs, fylgist hér með ungu sundfólki í nýjum sundlaugargarði. SÉRA Jóhanna Ingibjörg Sigmars- dóttir, sóknarprestur á Eiðum, hafði samband við Morgunblaðið og benti á að Stórurð og Dyrfjöll upp á eggjar tilheyrðu jörðinni Hrafna- björgum í Hjaltastaðarþinghá. Athugasemdin er gerð vegna við- tals við göngufólk á Borgarfirði eystri, sem var þar í skipulagðri fimm daga gönguferð á dögunum. Lét einn göngumanna hafa eftir sér að Stórurðin virtist vera ákaflega vel varðveitt leyndarmál og sem Gullfoss og Geysir þeirra Borgfirðinga. En Stórurðin er sem sagt ekki á Borgarfirði, heldur í Hjaltastað- arþinghánni á Austur-Héraði og hafa skal það sem sannara reynist. Sr. Jóhanna segir að allir séu vel- komnir í Stórurð svo fremi sem þeir gangi vel um og sýni landinu virð- ingu. Eigendur Hrafnabjarga eru af- komendur hjónanna Guðríðar Guð- mundsdóttur og Sigmars Torfason- ar. Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir Undir Dyrfjöllum liggur Stórurðin, einstök náttúruperla sem fremur fáir þekkja. Stórurðin skal vera rétt feðruð Egilsstaðir BLÁKLUKKAN er einkennisjurt Austurlands og ekki að ástæðu- lausu því hún er afar fögur og fín- gerð. Blár litur hennar minnir á heiðríkjuna en stundum birtast litaafbrigði eins og hér þar sem bláklukkan er orðin næstum drif- hvít. Ljósmynd/Sólný Pálsdóttir Bláklukkuhvítingjar Djúpivogur HÖGGMYNDIN Síðasta lag fyrir fréttir: Fuglinn í fjör- unni, eftir Borgfirðinginn Eyjólf Skúlason sem kunnur er fyrir að galdra fram úr rekaviðardrumbum vætti, vanadísir og ára. Verkið stendur við fjöruna í Bakka- gerðisþorpi. Síðasta lag fyrir fréttir Borgarfjörður Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsd. Höggmyndin Síðasta lag fyrir fréttir: Fuglinn í fjörunni eftir Borgfirðinginn Eyjólf Skúla- son, sem kunnur er fyrir að galdra fram úr rekaviðar- drumbum vætti og ára. Verkið stendur við fjöruna í Bakka- gerðisþorpi. GÖMUL hús sem staðið hafa auð selj- ast nú eins og heitar lummur á Borg- arfirði eystra. Þeir sem eiga ættir að rekja til staðarins kaupa þessi hús gjarnan til að gera sér sumarbústaði. Pétur Reynir Björnsson og Anna Gústafsdóttir keyptu sér í vetur húsið Sæbakka sem stendur á Bökkunum í Bakkagerðisþorpi og var byggt árið 1942. Í því höfðu búið bræður sem ánöfnuðu Lestrarfélagi Borgfirðinga húsið eftir sinn dag, en staðsetningin hefur sjálfsagt valdið því að það var sett á sölu. Pétur segir marga hafa haft áhuga á eigninni, en hann fékk húsið á milljón og er nú að gera það upp. Hann segir það vera tveggja ára rólegheita verkefni að gera þarna gott sumarhús. „Við erum búin að mála og girða og erum núna að setja lista í kringum gluggana. Næst á að einangra að inn- an. Þetta á ekki að vera neitt stress- verkefni heldur ætlum við að hafa gaman af þessum endurbótum.“ Gömlu húsin seljast eins og heitar lummur Borgarfjörður Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir Pétur Reynir Björnsson og Anna Gústafsdóttir keyptu sér gamalt hús á Borgarfirði og eru að end- urbyggja það sem sumarbústað. SÆVAR Gunnarsson gerir út trillu frá Borgarfirði. Hann var síðasti bátur í land fyrir árlegt vikulangt vinnslustopp hjá fisk- verkuninni í Bakkagerði og kom inn með slatta af þorski. Nú er vinnslan komin í fullan gír aftur og fiskiríið slarkfært, svo að menn þurfa að hafa sig alla við að beita bjóðin. Sævar er raunar Egilsstaðabúi, en gerir út frá Borgarfirði. Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir Landað í kvöldsólinni Borgarfjörður

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.