Morgunblaðið - 12.08.2003, Side 2
FRÉTTIR
2 ÞRIÐJUDAGUR 12. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ
HVALVEIÐAR OG ESB
Franz Fischler og Árni M.
Mathiesen ræddu fyrirhugaðar hval-
veiðar Íslendinga um helgina. Að
sögn Árna kom Fischler ekki á
framfæri formlegum mótmælum en í
tilkynningu frá ESB kemur fram að
hvalveiðar og verslun með hvalkjöt
eru bannaðar innan ESB. Árni segir
því ljóst að Íslendingar geti ekki
stundað hvalveiðar gangi þeir í sam-
bandið.
Dúntekja undir meðallagi
Dúntekja hefur verið undir með-
allagi í ár á Norður- og Vesturlandi
sökum votviðris. Fyrir sunnan og
austan hefur verið meira þurrviðri
og nýtingin því betri á því svæði. Á
sumum stöðum hefur auk þess vant-
að fugl sem skýrist af litlu fæðu-
framboði.
Banaslys við Kvísker
Kona lést, þrír slösuðust alvarlega
og tveir minna í bílveltu sem varð
hjá Hrútá við Kvísker um tvöleytið í
gær. Tvö önnur alvarleg slys urðu í
gær, ökumaður vélhjóls hlaut opið
beinbrot eftir árekstur við jeppa á
Sprengisandsleið síðdegis og hesta-
maður slasaðist alvarlega í Borg-
arfirði á tíunda tímanum í gær-
kvöldi.
Taylor farinn
Charles Taylor lét í gær af for-
setaembættinu í Líberíu og hélt í út-
legð til Nígeríu. Margir landsmenn
fögnuðu brotthvarfi hans og Banda-
ríkjamenn sögðu það skref í frið-
arátt í landinu. Í gær sást til banda-
rískra herskipa úti fyrir strönd
Líberíu, en ekki var ljóst hvort það
var til marks um að Bandaríkja-
menn hygðust láta til sín taka við
friðargæslu þar.
NATO tekur við
Atlantshafsbandalagið, NATO,
tók í gær við stjórn alþjóðlegs 5.300
manna friðargæsluliðs í Kabúl, höf-
uðborg Afganistans. Er þetta í
fyrsta sinn í sögu bandalagsins sem
það lætur til sín taka utan Evrópu.
Viðbúnaður í London
Lögreglan í London hefur gert
umfangsmiklar ráðstafanir vegna
upplýsinga er borist hafa frá banda-
rísku alríkislögreglunni, FBI, um að
samtökin al-Qaeda ætli hugsanlega
að fremja hryðjuverk í borginni. Að
sögn FBI er fjöldi al-Qaeda-liða
saman kominn í London.
Y f i r l i t
Í dag
Sigmund 8 Forystugrein 24
Viðskipti 12 Þjónustan 27
Úr verinu 12 Viðhorf 28
Erlent 13/15 Hestar 33
Höfuðborgin 15 Minningar 28/30
Akureyri 16 Bréf 32
Suðurnes 17 Dagbók 34/35
Austurland 18 Íþróttir 36/39
Landið 19 Kvikmyndir 40
Neytendur 20 Fólk 40/45
Listir 21/22 Bíó 42/45
Umræðan 23 Ljósvakar 46
Skák 23 Veður 47
* * *
VALGERÐUR Sverrisdóttir við-
skiptaráðherra vill ekki útiloka að til
breytinga geti komið á samkeppnis-
lögum þótt hún telji að lagaramminn
sé fullnægjandi. Hún fundaði ásamt
fleirum með efnahags- og viðskipta-
nefnd Alþingis síðdegis í gær þar sem
fjallað var um samkeppnislögin og
feril mála hjá samkeppnisyfirvöldum.
Til fundarins var boðað að beiðni
Samfylkingarinnar.
Auk Valgerðar komu fyrir nefnd-
ina fulltrúar Samkeppnisstofnunar,
ríkissaksóknara, ríkislögreglustjóra
og nokkurra félagasamtaka. Fundur
nefndarinnar stóð í fjóra klukkutíma
og honum lauk um kvöldmatarleytið.
„Við fórum yfir þætti málsins að
því er varðar verklagsreglur og fjár-
hag Samkeppnisstofnunar og sam-
keppnislögin. Ég vil ekkert fullyrða
um það hvort ástæða sé til að breyta
lögunum. Lagaramminn er að mínu
mati fullnægjandi en núna eiga sér
stað viðræður milli samkeppnisyfir-
valda og lögreglunnar um verklags-
reglur. Ég vonast til að þar náist nið-
urstaða án þess að til breytinga komi
á lögunum. Þó er rétt að útiloka ekk-
ert í því sambandi,“ segir Valgerður.
Aðspurð hvort hún telji að ákvæði
vanti í lögunum um viðbrögð Sam-
keppnisstofnunar ef grunur vaknar
um lögbrot segir Valgerður að Sam-
keppnisstofnun hafi uppfyllt skyldur
sínar með því að gefa lögreglu upp-
lýsingar um mál sem verið hafa til
rannsóknar, sbr. rannsókn á olíufé-
lögunum. Hins vegar geti verið erfitt
fyrir samkeppnisyfirvöld að koma
með formlegar ábendingar á meðan
andmælaréttur málsaðila varir.
Áhersla á samkeppnismál
Varðandi umræðu um aukin fjár-
framlög til Samkeppnisstofnunar
bendir Valgerður á að þau hafi hækk-
að frá árinu 1999 um 50 milljónir
króna, séu nú um 152 milljónir sam-
kvæmt fjárlögum. Hún hafi í sinni tíð
sem viðskiptaráðherra lagt mikla
áherslu á samkeppnismál. Þannig
hafi Samkeppnisstofnun verið styrkt,
sjálfstæði hennar verið tryggt og
lagaheimildir auknar með nýjum
samkeppnislögum árið 2000, m.a.
bann við samkeppnishamlandi sam-
ráði fyrirtækja og markaðsráðandi
stöðu þeirra og ákvæði um samruna
verið styrkt. „Mikilvægast er að Sam-
keppnisstofnun starfi algjörlega
sjálfstætt og sé ekki undir hælnum á
ráðherra,“ segir Valgerður Sverris-
dóttir.
Viðskiptaráðherra fundaði með efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis í gær
Útilokar ekki að sam-
keppnislögum verði breytt
SEMENTSVERKSMIÐJAN
ætlar að byggja fjóra 40
metra háa sementstanka við
Reyðarfjarðarhöfn ásamt fyr-
irtækinu Nordsem.
Umsókn um leyfi fyrir
framkvæmdinni liggur nú inni
hjá umhverfisnefnd Fjarða-
byggðar, sem hefur óskað eft-
ir frekari upplýsingum um
hæð sementstankanna fjög-
urra áður en byggingarleyfi
verður gefið út.
Sementsverksmiðjan ætlar
að reisa tankana vegna auk-
inna umsvifa í kringum bygg-
ingu Kárahnjúkavirkjunar og
álvers sem fyrirhugað er að
rísi á Reyðarfirði. Einnig er
fyrirhugað að byggja allmörg
íbúðarhús í tengslum við allar
þessar framkvæmdir þannig
að búist er við mikilli sölu á
sementi í landsfjórðungnum á
næstu árum.
Reisa 40
metra
háa
tanka
Reyðarfirði. Morgunblaðið.
TÖKUR á myndinni Niceland í leik-
stjórn Friðriks Þórs Friðrikssonar
stóðu yfir við Suðurver á Kringlu-
mýrarbrautinni í gærkvöldi.
Að sögn Þóris Snæs Sigurjóns-
sonar hjá Zik-Zak-kvikmyndum,
sem framleiðir myndina, fjallar
Niceland í stuttu máli um ungan fatl-
aðan dreng og kærustu hans. Vegna
mikils harmleiks sem drengurinn
veldur í lífi stúlkunnar ákveður
hann að fara og leita að tilgangi lífs-
ins. Myndin er hvorki bundin tíma
né staðsetningu og söguþráðurinn
ekki sérstaklega miðaður við ís-
lenskar aðstæður, sögusviðið flakk-
ar milli ólíkra heimshluta, í sama at-
riðinu gengur söguhetjan t.d um
götur Reykjavíkur eina stundina en
þegar hann beygir inn næstu götu er
hann staddur í Þýskalandi.
Tökur á Niceland í fullum gangi
Morgunblaðið/Kristinn
MAÐUR um fertugt sem slas-
aðist alvarlega eftir tíu metra
fall í gljúfur Sandár sl. fimmtu-
dag er enn undir eftirliti lækna á
gjörgæsludeild Landspítalans í
Fossvogi.
Pilturinn sem slasaðist í
gömlu síldarbræðslunni í
Djúpuvík sl. fimmtudag hefur
verið útskrifaður af gjörgæslu
og er hann nú að sögn læknis úr
lífshættu. Pilturinn, sem var
gestkomandi á Djúpuvík, fór inn
í bræðsluna þar sem hann datt
niður um gat á gólfi á annarri
hæð hússins. Kom pilturinn nið-
ur á steinsteypt gólf eftir 4–5
metra fall.
Tékknesk kona, sem lá á gjör-
gæsludeild Landspítalans í
Fossvogi eftir rútuslysið á Geld-
ingadraga í Borgarfirði, var út-
skrifuð fyrir helgi. Þrír farþegar
slösuðust alvarlega í slysinu sem
varð 2. ágúst og hafa þeir nú all-
ir verið útskrifaðir.
Maðurinn
sem féll í
Sandá
enn á
gjörgæslu SÍÐUSTU daga er ryðlitur blær að
verða áberandi á birki og fjalldrapa
í Mývatnssveit og víðar í Þingeyj-
arsýslum. Við fyrstu sýn getur virst
svo sem haustlitur sé óvenju
snemma á ferð en svo er þó ekki.
Árni Einarsson á Náttúrurann-
sóknarstöðinni við Mývatn segir að
hér sé á ferðinni fiðrildalirfa sem
heitir birkifeti. Etur lirfan laufið
sem fyrst verður brúnt en mun síð-
an falla af greinum þegar rignir.
Má búast við að þær verði þá svart-
ar eftir.
„Þetta er enn ein birtingarmynd
þessa títtnefnda skordýrasumars,“
segir Erling Ólafsson skordýra-
fræðingur. „Það var mikið af birki-
feta í vor og mikið varp þar af leið-
andi, og góð afkoma.“ Birkifetinn
flýgur um mitt sumar og lirfurnar
vaxa upp fram á haust þegar þær
fara að púpa sig. Hann segir að
plönturnar muni ekki jafna sig aft-
ur í haust, en þær muni ná sér á
strik aftur næsta ár.
Efri myndin sýnir birkifeta, en
neðri myndin er af fjalldrapa í
Strandarholti í Mývatnssveit.
Birkifeti
á ferð við
Mývatn
Morgunblaðið/Birkir Fanndal
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Mývatnssveit. Morgunblaðið.