Morgunblaðið - 12.08.2003, Side 6

Morgunblaðið - 12.08.2003, Side 6
FRÉTTIR 6 ÞRIÐJUDAGUR 12. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ JÓN Eiríksson, bóndi í Fagranesi á Reykjaströnd, hefur lengi tengst Drangey. Fyrst fór hann „fram“ eins og og sagt er þegar farið er út í eyjuna, þegar hann var tólf ára gamall, og þá var farið þangað í þeim tilgangi einum að sækja egg og fugl eins og Skagfirðingar höfðu gert frá ómunatíð. Síðar, þegar eggin og fuglarnir voru ekki eins afdráttarlaus björg sem áður var, er nýmetið úr björg- unum varð mörgum til lífs þegar loks sást fram úr harðindum ísa og frostavetra, – þá fór Jón að nytja eyjuna á annan hátt. Eftir sem áður sigu þeir Fagra- nessmenn eftir eggjum og háfuðu fugl við bjargbrúnir en á seinni ár- um hefur Jón látið aðra um þessa þætti en fæst nú aðallega við að flytja ferðamenn, íslenska og er- lenda, fram til Drangeyjar, þess- arar drottningar Skagafjarðar, sem gnæfir tignarleg á miðjum firði, jafnfögur hvort sem er í glampandi sól eða á úrsvölum rigningardegi þar sem þoka hnyklast um hamra- eggjar. Jón hefur um árabil verið með ferðir frá Sauðárkróki til Drang- eyjar, en með allverulegri fjölgun ferðamanna tekur siglingin frá Sauðárkróki of mikinn tíma og því hefur Jón gert góðan viðlegukant, þó að lítill sé á Reykjum og þangað sækir hann líka farþega, enda það- an aðeins 15–20 mínútna sigling til eyjarinnar. Á Reykjum hefur hann einnig byggt upp tvö gömul hús og eru þar m.a. ágætar snyrtingar enda gestkvæmt á Reykjum þegar ferðamann skreppa og fá sér heitt bað í Grettislauginni, en hana hlóð Jón upp fyrir allmörgum árum. Þá var ógert það sem erfiðast var, en það var að fá sæmilega land- göngu í Drangey, og vissulega hafði Jón gert nokkrar tilraunir til þess að lagfæra aðkomuna í Upp- gönguvíkinni, en vetrarbrimið lék þær framkvæmdir grátt og oftast var það svo að vinna þurfti allt upp á nýtt á hverju vori. Steypuvinnan gekk vel Því var það að nú í vor réðst Jón í það að steypa bryggjukant milli nokkurra steindranga sem komu í veg fyrir að unnt væri að leggja bát að landföstum björgum og kanna hvort þessar framkvæmdir yrðu ekki meira en „einnota“. Síðastliðinn fimmtudag var lokið við að steypa Drangeyjarbryggj- una, en á Reykjum fékk Jón tvo rúmmetra af steypumöl frá Steypu- stöðinni í bátinn og nægilegt sem- ent og vatn um leið og hann skilaði í land Val Ingólfs fjölbrautaskóla- kennara, Rögnvaldi kirkjuorgan- ista, Ársæli sveitarstjóra og dóttur hans Margréti, en þau ásamt Viggó sjónvarpstökumanni höfðu verið við steypuvinnu frá því um níu um morguninn. Þegar báturinn var lestaður var siglt til eyjar og þegar hafist handa við síðustu framkvæmdirnar að sinni. Verkið gekk vel enda verk- menn þeir Birgir Friðriksson skot- veiðimaður, Arnar Halldórsson raf- eindavirki og Kolbeinn Jónsson frá Fagranesi sem löguðu steypuna, en þeir Jón Eiríksson og Baldur Sig- fússon krabbameinslæknir tóku á móti enda fór því svo að hrærivélin gaf sig en þá var Jón með aðra til vara í bátnum og með henni var verki lokið um kl. níu um kvöldið. Á heimleiðinni sagði Jón að nú væri gott að leggja sig eftir gott dagsverk, en þessi 74 ára eldhugi slær hvergi af og vinnur lengstum einn og hálfan vinnudag löngu eftir að lögum samkvæmt ætti hann að vera sestur í helgan stein. Hann sagði að þetta væri búin að vera mikil törn og fjölmargir hefðu komið að verkinu til aðstoðar, og taldist sér til að um 200 tonn af steypu hefðu farið í framkvæmd- irnar, en nú vænti hann þess að bryggjan biði eftir sér í Uppgöngu- víkinni næsta vor. Ný bryggja steypt í Drangey Jón Eiríksson þreyttur að loknu góðu dagsverki. Þeir Jón Eiríksson og Baldur lækn- ir tilbúnir að taka á móti síðustu hrærunum til að fylla mótin. Morgunblaðið/Björn Björnsson Bryggjan hans Jóns. Lónið innan garðsins á Jón von á að fyllist með tímanum vegna hruns úr bjarginu. Sauðárkróki. Morgunblaðið. SKÓGARELDAR hafa blossað upp í vesturhluta Algarve-héraðs í Portúgal í kjölfar þurrka og mikillar hitabylgju í landinu. Að sögn Maríu Júlíu Alfreðsdóttur, fararstjóra hjá Terra Nova Sól í Albufera í Algarve, eru upptök eldanna langt frá þeim slóðum þar sem Íslendingar dvelja og amar ekkert að þeim. Ófremdarástand við Monchique-fjall Í fyrradag loguðu eldar í Monch- ique-fjalli, hæsta fjalli Algarve sem er í vesturhluta héraðsins og er skógi vaxið. „Það er sem betur fer ekkert nálægt okkur en ég sá í sjón- varpsfréttunum í morgun [gær- morgun] að þar er ófremdarástand.“ María var stödd í bíl rétt hjá Faro um miðjan dag í gær og sýndi mæl- irinn í bifreið hennar 37,5 gráða hita. „Ég sé að það er rosa mikið mistur en hvort það er hitamistur og blanda af reyk frá skógareldur- unum frá vestur Algarve veit ég ekki.“ Hún segir að hitinn hafi í verið í kringum 40 gráður að undanförnu en hann sé frekar í rénun og dregið hafi úr raka. Um 130 Íslendingar dvelja á vegum ferðaskrifstofunnar í Albufera en ferðaskrifstofurnar Plúsferðir og Úrval-Útsýn eru einn- ig með hótel þar. Lítil hætta í Albufera Að sögn Maríu er gróður tiltölu- lega lágvaxinn og lítil hætta á að eldarnir berist þangað. „Það er búið að vera mikið talað um skógareld- ana fyrir norðan og í kringum Lissa- bon í fjölmiðlum, þeir voru á fimm stöðum held ég. Þeir voru búnir að ná tökum á eldunum snemma í síð- ustu viku en misstu aftur tökin fyrir helgi. Hér er fullt af sjálfboðaliðum, bæði herinn og mér skilst að Spán- verjar séu farnir að aðstoða þá. Maður er mjög hissa á að þetta skuli vera komið niður í Algarve-hérað,“ segir hún. Að sögn Ingu Kristjánsdóttur, sölustjóra hjá Terra Nova Sól hf., hefur enginn afbókað flug til Alg- arve í sumar vegna skógareldanna. Hins vegar hefur verið heldur rólegt í bókunum þangað að undanförnu, að hennar sögn. Skógareldar loga í vesturhluta Algarve „Sem bet- ur fer ekk- ert nálægt okkur“ JÚLÍA Guðmundsdóttir sigraði í flokki eldri stúlkna á barnaskákmóti Hróksins sem haldið var í Fjöl- skyldu- og húsdýragarðinum um helgina en á myndinni má sjá Júlíu etja kappi við Daníel Óskarsson sem keppti í eldri flokki drengja. Júlía sigraði einnig á barnaskákmóti Nb.is sem fram fór um hvítasunn- una. Fjörutíu börn tóku þátt í mótinu sem fram fór í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum um helgina. Tefldar voru fimm umferðir í eldri og yngri flokki stelpna og stráka. Í flokki eldri drengja sigraði Helgi Brynjarsson, fékk fullt hús vinninga, en hann sigraði einnig í sínum flokki á barnaskákmóti Nb.is. Í flokki yngri drengja sigraði Ragnar Kjartansson. Hann var að ljúka fyrsta bekk í vetur og keppti því við sér eldri andstæðinga. Í yngri flokki stelpna sigraði Brynja Vignisdóttir. Mikill kraftur hefur verið í barna- starfi Hróksins í sumar og hefur fé- lagið staðið fyrir æfingum á laugar- dögum í samvinnu við Fjölskyldu- og húsdýragarðinn og meðal annars fengið stórmeistara í heimsókn til að tefla fjöltefli við krakkana. Barnaskákmót Hróksins Morgunblaðið/Halldór Kolbeins TIL stendur að hækka gjaldskrár Orkuveitu Reykjavíkur á stjórnar- fundi nú í dag. Alfreð Þorsteinsson, stjórnarformaður OR, segir að hækk- unin muni nema um 5% á heitu vatni og rúmlega 1% á rafmagni. „Ástæð- urnar eru þær að það hefur dregið verulega saman í sölu á heitu vatni í tvö ár þannig að það er óhjákvæmi- legt að fyrirtækið grípi til einhverra ráðstafana til þess að bæta sér þenn- an tekjumissi,“ segir hann. Alfreð segir að ástæða hækkunar á verði heita vatnsins sé fyrst og fremst hækkað hitastig. „Hækkun á raf- magninu kemur til af því að heildsölu- verð á rafmagni frá Landsvirkjun hækkaði um 2% 1. ágúst. Það þýðir að við verðum að hækka um rúmt pró- sent til að ná því upp,“ segir hann. Alfreð segir að í raun hafi verðlag OR ekki hækkað umfram verð- lagsþróun á undanförnum árum. Hann segir að á hverju ári hafi vísi- töluhækkanir verið samþykktar. „Þessi hækkun á heita vatninu er fyrsta hækkunin í langan tíma sem er umfram vísitöluhækkun.“ Á stjórnarfundi í dag verður lagt fram sex mánaða uppgjör. Alfreð seg- ir að uppgjörið sé verra en búast mætti við vegna minni notkunar á heitu vatni. Hækkunin, sem sam- þykkt verður í dag, mun skila OR um sjötíu milljónum króna það sem eftir er ársins en Alfreð segir að tekjutap vegna minni notkunar heits vatns sé um fjögur hundruð milljónir á þessu ári. Telja hækkun ekki réttlætanlega Guðlaugur Þór Þórðarson, alþing- ismaður og borgarfulltrúi, á sæti í stjórn OR. Hann segir að fulltrúar minnihlutans muni greiða atkvæði gegn hækkun gjaldskrár OR. „Það er bara komið að skuldadögum. Það seg- ir sig sjálft þegar menn eru búnir að standa í þessum fjárfestingum eins og Línu-net-ævintýrinu, höfuðstöðvun- um og Gagnaveitunni, sem þegar er farin að skila tapi, að þá kemur þetta með einum eða öðrum hætti niður á borgarbúum,“ segir hann. Hann segir að fram hafi komið í ársreikningi síð- asta árs, í skýrslu endurskoðanda, að afkoman væri ekki nægilega góð til að viðhalda eiginfjárstöðu félagsins. „Það hafa verið hagstæð skilyrði fyrir OR á síðustu misserum. Fjármagns- tekjur voru 2,5 milljarðar króna og nú í ár lækkar fjármagnskostnaður um 425 milljónir króna vegna áhrifa gengisbreytinga,“ segir Guðlaugur Þór. Hann segir að þetta sé svipuð tala og sem nemur tekjutapi vegna minnkandi sölu. „Við teljum að það beri að skoða aðrar leiðir; til dæmis að losa um eignir sem Orkuveitan á,“ segir Guð- laugur Þór. Orkuveita Reykjavíkur hækkar gjaldskrár Heitt vatn hækkar um 5% og rafmagn um rúmt 1%

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.