Morgunblaðið - 12.08.2003, Qupperneq 21
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. ÁGÚST 2003 21
Margrét Kaldalóns
veitir ráðgjöf í Heilsuhúsinu
Margrét Kaldalóns, betur þekkt sem Lína, hefur starfað
í Heilsuhúsinu frá byrjun. Hún er mikil áhugakona um
náttúrulækningar og heilbrigt mataræði og hefur aflað
sér hagnýtrar reynslu á löngum ferli.
Lína veitir
ráðgjöf í
Kringlunni
alla virka daga
frá kl. 13:30
til 17:30.
LEIKHÓPURINN
Origen’s Scream (Ösk-
ur Origens) frumsýndi
í gærkvöld Hamletvél-
ina (Die Hamletmasch-
ine) eftir þýska leik-
skáldið Heiner Müller
á Edinborgarhátíðinni
í pend fringe @ gate-
way-leikhúsinu og mun
sýna daglega fram til
23. ágúst nk. Annar
stofnfélagi leikhópsins
og einn leikari sýning-
arinnar er Guðjón Þor-
steinn Pálmarsson, en
hann útskrifaðist úr
Arts Educational
Schools London, eða
ArtsEd eins og hann kallast í dag-
legu tali, nú í vor.
„Við Terje Naudeer, bekkjarbróð-
ir minn í ArtsEd og leikstjóri
Hamletvélarinnar, stofnuðum Öskur
Origens sumarið 2001, þannig að
þetta er sjötta uppfærslan okkar á
aðeins tveimur árum. Í raun má
segja að við höfum rutt brautina fyr-
ir aðra nemendaleikhópa innan skól-
ans því þegar við byrjuðum þekktist
það ekki að nemendur starfræktu
sjálfstæða leikhópa í frítíma sínum,
en í dag eru þónokkrir slíkir hópar,“
segir Guðjón.
Nafnið á leikhópnum vísar að sögn
Guðjóns til munks sem uppi var á
annarri öld og stundaði hreinlífi af
svo miklu kappi að
hann gelti sjálfan sig.
„Ástæða þess að við
veljum þetta nafn er að
við álítum okkur vera
jafntrúa leiklistinni og
Origen var kirkjunni.
Við erum í raun búnir
að fórna öllum okkar
frítíma, meirihlutann
af náminu, í þennan
litla leikhóp og höfum
ekki átt neitt annað líf
á meðan á skólanum
hefur staðið.“
Að sögn Guðjóns er
texti Müllers afar
drungalegur. „Það er
bara dauði og djöfull og
engin von,“ segir Guðjón og brosir
út í annað. „Müller var svo heltekinn
af Hamlet Shakespeares að hann
langaði að skrifa risastórt epískt
leikverk, en endaði með fimm blað-
síður. En þó leiktextinn sé ekki
nema fimm blaðsíður þá tekur hann
yfirleitt 3–5 tíma í leik, enda eru
þetta mjög mergjaðar fimm blaðsíð-
ur.
Í raun er ekki um neitt plott að
ræða í verkinu, því það byggist
fremur á því að skapa ákveðna
stemningu og bjóða áhorfendum
með okkur í þessa dimmu ferð. Þetta
er ofsalega þungur texti og í raun
nær óskiljanlegur. En markmiðið er
ekki að áhorfendur skilji sýninguna
vitrænt heldur gefi sig upplifuninni á
vald. Fólk verður einfaldlega að taka
sýningunni eins og hún kemur fyrir,
því það leiðinlegasta sem maður ger-
ir er að tala um sýninguna á vitræn-
um nótum og reyna að útskýra
hana,“ segir Guðjón sem leikur sjálf-
ur vondan trúð í sýningunni er rýkur
inn á sviðið og fremur voðaverk.
Aðspurður segir Guðjón enn óljóst
hvað taki við í haust. „Mig langar til
að vinna meira með Öskur Origens
og draumurinn er að leikhópurinn
geti ferðast um Evrópu og sýnt. Ég
hefði mikinn áhuga á að koma með
hópinn hingað til lands, því það væri
mjög gaman að sjá hvernig íslenskir
áhorfendur myndu taka sýningunni.
Í augnablikinu er ég svo að vinna í
því að finna mér umboðsmann, en
það væri náttúrlega frábært að geta
unnið að listinni úti,“ segir Guðjón,
en hann var einn af fáum útskrift-
arnemum sem fékk að takast á við
tvö aðalhlutverk á lokaárinu í Arts-
Ed.
„Annars vegar lék ég sjötugan
sígauna með drykkjuvandamál í
verki sem heitir Live like Pigs eftir
John Arden og hins vegar valda-
gráðugan bankamann í verkinu Ser-
ious Money eftir Caryl Churchill. Ég
verð að viðurkenna að það var mér
gífurleg áskorun að þurfa í verki
Ardens að leika tæplega fimmtíu ár
upp fyrir mig, en það tókst vonum
framar,“ segir Guðjón.
Hamletvélin
á Edinborgar-
hátíðinni
Atriði úr Hamletvélinni sem frumsýnd var á Edinborgarhátíðinni í gær.Guðjón Þorsteinn
Pálmarsson
ÞAÐ er talað um þriðju kynslóð-
ina í þróun símtækja og tölva og
má til sanns vegar færa, að það
unga tónlistarfólk, sem stóð að
flutningi á „Litlu hátíðarmessunni“
eftir Rossini í Seltjarnarneskirkju
fimmtudaginn 7. ágúst sl., sé
fulltrúar þeirrar kynslóðar, sem er
að komast af höndum þeirra, sem
um árabil hafa staðið fremstir í
flokki kennara og flytjenda og
tóku í arf kunnáttu og reynslu
frumkvöðlanna.
Stjórnandinn Bragi Þór Valsson
stundar nám í kórstjórn í Banda-
ríkjunum. Hljóðfæraleikur var í
höndum Júlíönu Rúnar Indriða-
dóttur, sem hefur nýlokið námi í
píanóleik frá tónlistarskólanum í
Bloomington, og á harmoníum lék
Jón Bjarnason, sem stundar nám í
orgelleik við Tónskóla þjóðkirkj-
unnar, en hann lék og m.a. einleik í
Offertoríum-þættinum. Þrátt fyrir
truflun vegna innsetningalesturs
prestsins, var töluvert nýnæmi í að
heyra þýðan hljóm harmoníum-
hljóðfærisins, sem fyrrum var hér
á landi aðal heimilis- og kirkju-
hljóðfærið. Einsöngvararnir voru
Anna Jónsdóttir, sem hyggur á
framhaldsnám í Búkarest, Jóhanna
Ósk Valsdóttir, sem lokið hefur
framhaldsnámi frá tónlistarháskól-
anum í Stuttgart, Garðar Thor
Cortes, sem hefur þegar haslað sér
völl sem einsöngvari og vakið verð-
skuldaða athygli, og Valdimar
Haukur Hilmarsson, sem nýlokið
hefur námi frá Guildhall-skólanum
í London. Kór átta söngvara sem
voru Elma Atladóttir, Þórunn Elfa
Stefánsdóttir, Ása Fanney Gests-
dóttir, Gréta Jónsdóttir, Bjartur
Logi Guðnason, Hugi Guðmunds-
son, Finnbogi Óskarsson og Garð-
ar Guðnason, eru allt sönglært og
þjálfað söngfólk.
Sitthvað mætti tilgreina varð-
andi flutninginn, t.d. of langar
þagnir á milli atriða í sama þætti,
en Rossini endar mörg atriðin á
tóntegundaskiptum (Modulations),
sem ætluð eru til að tengja atriðin
saman og án þess, er eins og atrið-
in endi í lausu lofti. Form verksins
er byggt að mestu á samsöng en
eiginlegir einsöngsþættir eru að-
eins fjórir, Dominus Deus sem
Garðar Thor Cortes söng mjög vel,
Quoniam tu solus sanctus sem
Valdimar Haukur Hilmarsson söng
af öryggi en hann á enn nokkuð
eftir í að jafna hljómgun radd-
arinnar, og tvær sópranaríur,
Crucifixus og O salutaris Hostia,
er Anna Jónsdóttir söng af öryggi
og sérstaklega vel þá seinni. Alt-
söngkonan Jóhanna Ósk Valsdóttir
tók þátt í nokkrum samsöngsatrið-
um og sýndi í þeim, að þar fer góð-
ur söngvari og þó sérstaklega í
lokakafla verksins, Agnus Dei, þar
sem söngur hennar var hreint
glæsilegur.
Kórinn átti góða spretti, þó
merkja mætti að fleiri æfingar
hefðu trúlega haft góð áhrif sam-
stillingu söngvaranna. Í nokkrum
lokaatriðum, eins t.d. Í Gloria
(Cum sancto spiritu), Credo (Et
resurrexit og Et vitam venturi) og
í Agnus Dei, var söngur kórsins oft
áhrifamikill en þó sérstaklega í
Agnus Dei, sem var bæði af hálfu
kórs og einsöngvara hápunktur
tónleikanna.
Þeim sem hér voru að hefja
göngu sína um refilstigu listarinn-
ar er hægt að spá góðu gengi í
framtíðinni, þó vert sé að minna
hina ungu listamenn á, að það tek-
ur daga og nætur að feta sig upp
þrepin að Parnassum og þar þarf
hver og einn saman að yfirvinna
stóru þrautina, sem er vægðarlaus
sjálfsgagnrýni og sjálfsögun og
þar má engu undan að skjóta en
samkvæmt frammistöðu unga
fólksins er engu að kvíða í þessu
efni.
TÓNLIST
Seltjarnarneskirkja
Flutt var Missa Solennelle eftir Rossini,
af ungu tónlistarfólki undir stjórn Braga
Þórs Valssonar. Fimmtudagurinn 7.
ágúst, 2003.
Söngmessa
Þriðja kynslóðin
Jón Ásgeirsson
ÓLI G. Jóhannsson myndlist-
armaður sýnir hjá Commit-
ment í Kaupmannahöfn þessa
dagana. Á sýningunni eru 27
akrýlmálverk sem unnin voru
árin 2001 og 2002.
Óli sagði að stórfyrirtæki í
Kaupmannahöfn sæktu í æ rík-
ari mæli í að fjárfesta í mynd-
list þar sem listaverkakaup
væru frádráttarbær til skatts,
samkvæmt nýjum lögum. Áður
sýndi Óli hjá Velux í Lyngby og
Kromann Reumert í Kaup-
mannahöfn.
Óli G. í
Kaup-
mannahöfn
Á ÞRIÐJUDAGSTÓNLEIKUM í
Listasafni Sigurjóns Ólafssonar kl.
20:30 leika þau Hlíf Sigurjónsdóttir
fiðluleikari, Robert La Rue selló-
leikari og Adrienne Kim píanóleik-
ari.
Fyrst á efnisskrá er verk eftir Jón-
as Tómasson, Nocturno fyrir fiðlu
og píanó, sem tónskáldið samdi fyr-
ir Hlíf og David Tutt á sumarmán-
uðum 1989. Næst á efnisskrá er Pí-
anótríó í e-moll eftir Shostakovich,
samið árið 1944. Að lokum leika
þremenningarnir verkið Café
Music, samið 1986 af bandaríska
tónskáldinu Paul Schoenfeld. Þetta
er frumflutningur þess á Íslandi.
Tónleikarnir eru styrktir af sendi-
ráði Bandaríkjanna á Íslandi.
Í DAG
Sjá einnig Staður og stund á mbl.is