Morgunblaðið - 12.08.2003, Blaðsíða 37
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. ÁGÚST 2003 37
SPARKSPEKINGAR spænsku fjöl-
miðlanna eru sammála um að David
Beckham, fyrirliði enska landsliðsins
og fyrrverandi leikmaður Manchest-
er United, hafi tryggt sér sæti í byrj-
unarliði draumaliðsins Real Madrid
á komandi vertíð með frammistöðu
sinni í Asíuferð Madridarliðsins.
Liðsmenn Real Madrid komu í gær
til Spánar eftir 18 daga æfinga- og
keppnisferð til Asíu þar sem þeir
léku fjóra leiki og unnu þá alla. Beck-
ham lék alla leikina og spilaði flestar
mínútur allra leikmanna í ferðinni,
301 af 360 mögulegum.
Beckham skoraði eitt mark í leikj-
um Real Madrid í Asíu, lagði upp tvö
og þótti afar duglegur við að byggja
upp sóknir og verjast vel þegar á
þurfti. Beckham lék flesta leikina á
miðri miðjunni en ekki í sinni vana-
legu stöðu úti á hægri væng en þar
spilaði Portúgalinn Luis Figo.
Beckham
stóð undir
væntingum
Eins og venjulega átti að leika þrjáhringi en vegna veðurs var hætt
við að leika tvo hringi á laugardeg-
inum og þess í stað aðeins leikinn einn
og annar á sunnudeginum. Hjá körl-
unum voru Birgir Leifur, Heiðar
Davíð og Ólafur Már Sigurðsson í síð-
asta ráshóp, Birgir Leifur setti vall-
armet í fyrri hringnum er hann lék á
67 höggum, bætti þriggja ára gamalt
met Tryggva Péturssonar um eitt
högg. Heiðar Davíð var á 69 höggum
og Ólafur Már 71.
Þegar komið var á síðustu holuna
átti Birgir Leifur þrjú högg á Heiðar
Davíð, en báðir fengu þeir fugl á
sautjándu holunni. Ólafur Már fékk
hins vegar par þar og var þremur
höggum á eftir Heiðari Davíð. Birgir
Leifur þrípúttaði á síðustu flötinni og
lék á 70 höggum, samtals fimm högg-
um undir pari, en Heiðar Davíð fékk
fugl og lauk leik á 69 höggum, rétt
eins og daginn áður og samtals á fjór-
um höggum undir pari. Ólafur Már
fékk fugl og lauk leik á 70 höggum,
einu undir pari í heildina og þeir þrír
voru þeir einu sem luku leik undir
pari í heildina.
Heiðar Davíð styrkti stöðu sína í
efsta sæti mótaraðarinnar en eitt mót
er nú eftir. Helstu keppinautar hans
um titilinn eru Örn Ævar Hjartarson,
GS og Sigurjón Arnarsson, GR. Þeir
náðu sér ekki á strik að þessu sinni,
Sigurjón lék á 5 höggum yfir pari og
Örn Ævar var á 7 höggum yfir parinu.
Komið hjá Ragnhildi
Ragnhildur var öruggur sigurveg-
ari í kvennaflokki, lék á 145 höggum
eða á þremur höggum yfir pari. Hún
lék mjög jafnt golf, fékk þrjá skolla í
fyrri hring en á sunnudaginn fékk
hún einn skolla og einn fugl og var á
parinu. Ragnhildur hafði nokkuð
örugga forystu á mótaröðinni og jók
hana um helgina þar sem Þórdís
Geirsdóttir, GK, varð í þriðja sæti á
158 höggum (79-79).
Nína Björk Geirsdóttir úr GKj
varð önnur um helgina, lék á 156
höggum, fyrri hringinn á 74 höggum
en þann síðari á 82 þannig að Ragn-
hildi var ekki ógnað.
Morgunblaðið/Sigfús Gunnar Guðmundsson
Ragnhildur Sigurðardóttir, GR, hefur staðið sig vel að undanförnu.
Heiðar Davíð
styrkir stöðuna
RAGNHILDUR Sigurðardóttir úr GR er svo gott sem búin að tryggja
sér sigur á Toyota-mótaröðinni – stigamótum Golfsambands Ís-
lands, sigraði á fimmta og næstsíðasta mótinu um helgina og hefur
örugga forystu. Birgir Leifur Hafþórsson úr GKG sigraði í karla-
flokki og Heiðar Davíð Bragason, GKj, varð annar og styrkti stöðu
sína í karlaflokki þar sem hann er með forystu.
EIRÍKUR Jónsson, formaður
Kennarasambands Íslands, gerði
sér lítið fyrir og fór holu í höggi á
Bakkakotsvelli og er hann fimmti
kylfingurinn til þess í sumar. Eiríkur
notaði fleygjárn til að fara 9. holuna í
einu höggi laugardaginn 9. ágúst.
ÚRVALSDEILDARLIÐ Breiða-
bliks í körfubolta er með leikmann
frá Serbíu og Svartfjallalandi til
reynslu nú í ágúst. Leikmaðurinn,
Uros Pilipovic er 23 ára gamall skot-
bakvörður. Fyrir hjá Breiðabliki er
landi hans Mirko Virijevic.
BJARTUR Máni Sigurðsson er
genginn til liðs við handknattleikslið
KA. Bjartur er hornamaður sem lék
með ÍR en var á mála hjá svissneska
liðinu Endingen á síðasta keppnis-
tímabili.
DAVÍÐ Ólafsson handknattleiks-
maður leikur með Víkingi á komandi
tímabili en hann hefur ákveðið að
gera tveggja ára samning við liðið.
Davíð, sem er hornamaður og á
nokkra leiki að baki með íslenska
landsliðinu, hefur leikið með liði
Gróttu/KR undanfarin ár en þar áð-
ur var hann í herbúðum Valsmanna.
BRYNJAR Björn Gunnarsson,
leikmaður enska 1. deildarliðsins
Nottingham Forest þurfti að fara
meiddur af leikvelli í sigurleik gegn
Sunderland á laugardag. Meiðsli
Brynjars eru sögð minniháttar en
ekki er búist við að hann geti leikið
gegn Port Vale í kvöld í deildarbik-
arnum.
MARCEL Desailly fyrirliði
Chelsea hefur framlengt samning
sinn við Lundúnarliðið um eitt ár og
þar með er ljóst að Frakkinn öflugi
verður í herbúðum Chelsea til ársins
2005.
DESAILLY, sem er 34 ára gamall,
gekk í raðir Chelsea frá AC Milan
fyrir fimm árum. Hann hugðist ljúka
ferli sínum á næsta ári en eftir átölur
Chelsea-manna ákvað hann að fram-
lengja samning sinn við liðið.
ENSKA knattspyrnusambandið
ætlar ekki að aðhafast neitt vegna
þeirrar staðreyndar að leikmenn
Arsenal hafa 50 sinnum fengið að
fjúka útaf frá því Arsene Wenger tók
við stjórn liðsins fyrir sjö árum.
Francis Jeffers var rekinn útaf í
leiknum við Manchester United í
fyrradag, réttilega að mati Wengers.
AGANEFND enska knattspyrnu-
sambandins bíður hins vegar eftir
skýrslu Steve Bennetts, dómara,
vegna tveggja atvika þar sem Sol
Campbell og Ashley Cole komu við
sögu.
LAUSU sætin í leiknum um sam-
félagsskjöldinn sem fram fór í Car-
diff voru öll Arsenal-megin. Tals-
maður frá Arsenal sagði að ástæðan
fyrir lausu sætunum hefði verið hit-
inn og að stuðningsmenn hefðu ekki
treyst sér til að ferðast.
FÓLKANDREAS Andersson, skær-
asta stjarna sænska liðsins
AIK, verður fjarri góðu
gamni þegar Fylkismenn
glíma við AIK í 1. umferð
undankeppni UEFA-
keppninnar í knattspyrnu í
Stokkhólmi á fimmtudaginn.
Andersson, sem um tíma lék
með Newcastle á Englandi
og AC Milan á Ítalíu, meidd-
ist illa í leik á móti Gauta-
borg á dögunum og er talið
að hann verði frá vegna
þeirra næsta hálfa árið.
Andersson sneri til AIK
árið 1999 frá Newcastle eftir
að hafa skorað 4 mörk í 27
leikjum í ensku úrvalsdeild-
inni en þessi lipri framherji
á að baki 41 landsleik fyrir
Svía.
Til að fylla skarð And-
erssons hefur AIK fengið
Kwame Quansah, framherja
frá Ghana, til liðs við sig en
hann hefur leikið með Ajax í
Hollandi og vonast Svíarnir
eftir því að hann nái að
finna netmöskvana en AIK
hefur gengið illa að skora í
undanförnum leikjum.
Quansah skoraði í fyrsta leik
sínum með AIK í granna-
slagnum á móti Hammarby
hinn 4. ágúst en þeim leik
tapaði AIK á heimavelli, 3:1.
Andersson
ekki með
gegn Fylki
„ÉG þurfti að koma
heim til Íslands fyrir
helgina vegna fjöl-
skyldumála en ég veit
ekki annað en að
Real Betis og Dort-
mund eigi enn í við-
ræðum um kaup,“
sagði Jóhannes Karl
Guðjónsson, landsliðs-
maður í knattspyrnu,
í samtali við Morgun-
blaðið í gær en hann
hélt utan til Real Bet-
is í lok síðasta mán-
aðar til æfinga.
Eins og fram hefur
komið hefur Dort-
mund sýnt áhuga á að
fá Jóhannes í sínar raðir en hann
var hjá liðinu til reynslu á dög-
unum og lék æfingaleik með því
á móti Bochum.
Jóhannes hélt utan til Spánar í
morgun en hann er samnings-
bundinn Real Betis
til ársins 2007.
Að sögn Jóhann-
esar stendur upp-
hæðin sem Real Bet-
is vill fá fyrir sig í
vegi fyrir því að
samningar á milli
spænska liðsins og
Dortmund hafi náðst
en forráðamenn Real
Betis vilja fá 2 millj-
ónir evra sem jafn-
gildir um 180 millj-
ónum íslenskra
króna.
„Ég trúi bara ekki
öðru en að Real Bet-
is fari að gefa sig.
Það er komið fram í miðjan ágúst
og það er ótrúlegt hversu stífir
þeir eru ennþá. Ég veit ekki hvað
Dortmund er tilbúið til að borga
en vonandi fara málin að skýr-
ast.“
Real Betis vill fá 180 milljónir
Jóhannes Karl
Guðjónsson