Morgunblaðið - 12.08.2003, Síða 38
ÍÞRÓTTIR
38 ÞRIÐJUDAGUR 12. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Skíða-
landsliðið
LANDSLIÐ Íslands í alpa-
greinum á skíðum keppn-
istímabilið 2003–2004, er
þannig skipað:
KONUR:
Dagný Linda Kristjáns-
dóttir, Arna Arnardóttir,
Hrefna Dagbjartsdóttir og
Eva Dögg Ólafsdóttir, Ak-
ureyri, Emma Furuvik, Ár-
manni og Guðrún Jóna Ar-
inbjarnardóttir, Víkingi.
KARLAR:
Björgvin Björgvinsson og
Kristinn Ingi Valsson, Dal-
vík, Kristján Uni Óskarsson,
Ólafsfirði, Sindri Már Páls-
son, Breiðabliki og Steinn
Sigurðsson, Ármanni.
DI CANIO er fjórði nýi leikmaður-
inn sem Alan Curbishley, knatt-
spyrnustjóri Charlton, fær til liðsins
síðan síðasta tímabili lauk, en áður
höfðu þeir Hermann Hreiðarsson,
Matt Holland og Simon Royce geng-
ið til liðs við félagið.
Di Canio hefur leikið með liðum
eins og AC Milan, Juventus, Napoli,
Celtic, Sheffield Wednesday og síð-
ustu ár hefur hann leikið með West
Ham. Hann er í miklu uppáhaldi hjá
stuðningsmönnum West Ham en Di
Canio sýndi oft snilldartakta í bún-
ingi West Ham og gerði mörg glæsi-
leg mörk fyrir félagið. Alan Curb-
ishley er virkilega ánægður með að
hafa fengið Ítalann til liðs við sig og
telur að hann muni hjálpa ungu leik-
mönnunum hjá Charlton að ná fót-
festu í ensku úrvalsdeildinni.
„Ég er virkilega ánægður að hafa
fengið Di Canio til Charlton og ég
veit að hann á eftir að verða virkilega
vinsæll hjá stuðningsmönnum okk-
ar. Hann hefur mikla knattspyrnu-
hæfileika sem munu nýtast okkur vel
og ég held að hann muni einnig
hjálpa ungu leikmönnunum í liðinu
að ná fótfestu í deildinni,“ sagði Alan
Curbishley.
Di Canio hafði úr tilboðum að velja
um að leika á meginlandi Evrópu en
hann ákvað að vera áfram í ensku úr-
valsdeildinni eftir að hann hitti Alan
Curbishley og Richard Murray,
stjórnarformann Charlton. „Ég
hefði getað farið frá Englandi og ég
var með nokkur freistandi tilboð í
höndunum. Ég ákvað þó að fara til
Charlton eftir að ég hitti Alan og
Richard. Ég fann að þeir hafa mik-
inn metnað fyrir hönd félagsins og
að liðsandinn hjá félaginu er mjög
góður. Ég er spenntur fyrir að leika
aftur í ensku úrvalsdeildinni og get
ekki beðið eftir mínum fyrsta leik á
heimvelli Charlton,“ sagði Di Canio.
Di Canio leikur með Hermanni
KNATTSPYRNA
3. deild karla A
Tungubakki: Númi - Drangur...................19
3. deild karla B
Selfoss: Árborg - Hamar ...........................19
Sandgerði: Reynir S. - Afríka ...................19
Eyrarbakki: Freyr - Ægir.........................19
3. deild karla C
Hofsós: Neisti H. - Hvöt ............................19
Boginn: Vaskur - Magni ............................19
Dúddavöllur: Snörtur - Reynir Á..............19
3. deild karla D
Seyðisfj.: Huginn - Einherji ......................19
Fáskrúðsfj.: Leiknir F. - Neisti D. ...........19
LEIÐRÉTTING
Nafn manns leiksins í leik Leiftur/Dalvíkur
og Stjörnunnar 1. deild í knattspyrnu mis-
ritaðist í gær. Brynjar Sverrisson, Stjörn-
unni, var sagður Svavarsson, einnig sem
markaskorari í úrslitum.
Haraldur Guðmundsson skoraði fjórða
mark Keflvíkinga gegn Aftureldingu, 4:0,
en ekki Kristján Jóhannsson.
Beðist er velvirðingar á þessum mistökum.
Í KVÖLD
KNATTSPYRNA
Efsta deild karla,
Landsbankadeild
Þróttur – Valur.........................................0:1
Matthías Guðmundsson 6.
Staðan:
Fylkir 13 8 2 3 21:10 26
KR 13 8 2 3 20:16 26
ÍBV 13 6 1 6 19:19 19
Grindavík 13 6 1 6 17:20 19
FH 13 5 3 5 21:21 18
Þróttur R. 13 6 0 7 19:20 18
KA 13 5 2 6 22:19 17
ÍA 13 4 5 4 18:17 17
Valur 13 5 0 8 17:22 15
Fram 13 3 2 8 17:27 11
3. deild karla B
ÍH – Leiftur R. ..........................................2:9
Leiknir R. 13 12 1 0 64:10 37
Reynir S. 12 9 2 1 48:7 29
ÍH 13 7 1 5 32:28 22
Árborg 12 5 3 4 42:26 18
Freyr 12 5 0 7 18:42 15
Hamar 12 4 1 7 24:41 13
Afríka 12 1 1 10 11:44 4
Ægir 12 1 1 10 10:51 4
3. deild karla D
Höttur – Fjarðabyggð ..............................2:1
Staðan:
Fjarðabyggð 14 10 0 4 39:15 30
Höttur 14 9 2 3 33:14 29
Huginn 13 6 0 7 26:32 18
Leiknir F. 13 5 0 8 28:32 15
Einherji 13 4 1 8 19:31 13
Neisti D. 13 4 1 8 17:38 13
1. deild kvenna A
ÍR – Þróttur/Haukar 2..............................4:1
Noregur
Molde – Bodø/Glimt ................................. 0:2
Svíþjóð
Elfsborg – Örebro .....................................1:0
Øster – Landskrona ..................................3:0
HANDKNATTLEIKUR
Evrópumót ungmenna, 18 ára og yngri:
A-RIÐILL
Ungverjaland – Rússland.....................26:23
Slóvakía – Slóvenía................................21:33
Ísland – Þýskaland................................30:31
Þýskaland 3 3 0 0 96:86 6
Slóvenía 3 2 0 1 97:77 4
Ísland 3 2 0 1 86:81 4
Ungverjaland 3 1 0 2 78:85 2
Slóvakía 3 1 0 2 75:86 2
Rússland 3 0 0 3 73:88 0
Tvö efstu liðin komast í undanúrslit.
ÚRSLIT
Þrátt fyrir sigurinn eru Valsmennenn í fallsæti, en þeir nálguðust
þó næstu lið þar fyrir ofan með stig-
unum þremur í gær-
kvöldi. Þróttarar,
sem voru í efsta sæti
deildarinnar um tíma
í sumar með 18 stig
eftir fyrri umferðina, níu leiki, eru
enn með 18 stig og nú í sjötta sæti,
þremur stigum á undan Val.
Ásgeir Elíasson, þjálfari Þróttar,
sagði af sinni alkunnu hógværð þegar
Þróttarar skutust í efsta sætið með
átján stig, að enn væru mörg stig eftir
í pottinum og að markmið félagsins
væri að tryggja sætið í deildinni og til
þess gæti vel þurft ein 22 stig. Verði
síðustu umferðirnar á svipuðum nót-
um og verið hefur í sumar, að allir
vinni alla, gætu þessi orð Ásgeirs vel
reynst orð að sönnu.
Fyrri hálfleikur í gær var nokkuð
fjörugur. Gestirnir frá Hlíðarenda
mættu mjög öflugir til leiks, börðust
vel um allan völl og gáfu heimamönn-
um engin grið og engan frið til að
leika knettinum stutt og hratt sín á
milli eins og liðið hefur gert oft í sum-
ar. Vörn Þróttar var mjög óörugg og
hvað eftir annað komust Valsmenn
inn í sendingar öftustu manna og
sköpuðu sér færi þó svo ekki yrði mik-
ið úr þeim, til þess voru skot þeirra
ekki nægilega markviss.
Matthías Guðmundsson skoraði
eina mark leiksins strax á sjöundu
mínútu, en hann var gríðarlega öfl-
ugur á hægri vængnum í gærkvöldi.
Fljótur, með miklar hraðabreytingar
og gerði mikinn usla í vörn Þróttar.
Eftir fína byrjun gestanna tóku
Þróttarar smátt og smátt betur við
sér og náðu á stundum upp fínum,
hröðum samleik, en þess á milli komu
langir kaflar þar sem mest var reynt
að senda háar og langar sendingar
fram miðjuna og sterk vörn Vals átti
ekki í nokkrum vandræðum með slík-
ar sendingar enda leikmenn þar tölu-
vert hávaxnari en sóknarmenn Þrótt-
ar sem vilja skiljanlega fá knöttinn til
sín með jörðinni.
Sóknir Þróttar urðu lengri og
þyngri og ef þeir komust í góð færi,
sem þeir gerðu í tvígang undir lok
fyrri hálfleiks, var Ólafur Þór Gunn-
arsson markvörður þeim erfiður ljár í
þúfu. Hann átti fínan dag í markinu
og varði í þrígang meistaralega í fyrri
hálfleik, tvisvar frá Sören Hermansen
og einu sinni frá Björgólfi Takefusa.
Síðari hálfleikur var langt frá því að
vera eins fjörugur og sá fyrri. Vals-
menn áttu fyrsta færið þegar Sigur-
björn fyrirliði Hreiðarsson átti fínt
skot frá vítateigshorni en Fjalar Þor-
geirsson varði. Síðan bökkuðu Vals-
menn.
Þróttarar sóttu nú linnulítið en áttu
ekki mörg opin færi, vörn Vals stóð
fyrir sínu. Valur bakkaði þó fullmikið
og stundum var aðeins einn blá-
klæddur, því Valsmenn voru í bláum
treyjum í gær, við miðlínu og allir fé-
lagar hans inni í eigin vítateig. Björg-
ólfur átti flott skot úr miðjum vítateig
en Ólafur var vandanum vaxinn og
varði enn og aftur.
Fleiri færi fengu Þróttarar ekki
þrátt fyrir að sækja mikið. Valsmenn
fengu svo sem engin færi heldur ef
undan eru skilin þau þrjú sem Hálf-
dán Gíslason fékk á síðustu mínútum
leiksins, skaut yfir í því fyrsta, síðan
skaut hann í varnarmann og í horn og
loks skallaði hann laust að marki.
Guðfinnur Ómarsson var spræk-
astur Þróttara, en hann kom inn á
sem varamaður á 61. mínútu og lífg-
aði verulega upp á leik liðsins. Vörnin
var slök og framlínan mátti sín lítils
gegn sterkri og skipulagðri vörn Vals.
Hjá Val var Ólafur markvörður
bestur, vörnin traust og á miðjunni
átti Stefán Helgi Jónsson fínan leik,
fyrirliðinn barðist vel og frammi var
gaman að fylgjast með Matthíasi og
Hálfdán var mjög duglegur.
Valsmenn
eygja von
VALSMENN eygja enn von um að halda sér í Landsbankadeildinni
eftir að liðið lagði Þrótt 1:0 á Laugardalsvelli í gærkvöldi. Raunar
segja traustir Valsarar að liðið eigi enn möguleika á Íslandsmeist-
aratitlinum og er það í sjálfu sér rétt því enn eru 15 stig eftir í pott-
inum og Valur gæti því fengið 30 stig en efstu liðin Fylkir og KR eru
með 26 stig. Þróttarar eru nú um miðja deild með 18 stig, hafa tap-
að fjórum leikjum í röð.
Skúli Unnar
Sveinsson
skrifar
Þróttur R. 0:1 Valur
Leikskipulag: 3-5-2 Landsbankadeildin,
13. umferð.
Laugardalsvöllur.
Mánudaginn 11. ágúst
2003.
Aðstæður:
Fínar, lygnt og þurrt.
Áhorfendur: 1.334.
Dómari:
Egill Már Markússon,
Grótta, 3.
Aðstoðardómarar:
Einar Sigurðsson,
Einar Guðmundsson.
Skot á mark: 13(7) - 12(3)
Hornspyrnur: 8 - 5
Rangstöður: 2 - 3
Leikskipulag: 4-3-3
Fjalar Þorgeirsson
Eysteinn P. Lárusson
Jens Sævarsson
Hilmar Ingi Rúnarsson
Ingvi Sveinsson M
Gestur Pálsson
(Hallur Hallsson 87.)
Páll Einarsson M
Halldór A. Hilmisson
Ólafur Tryggvason
(Guðfinnur Þ. Ómarsson 61.) M
Sören Hermansen
Björgólfur Takefusa
(Vignir Þór Sverrisson 87.)
Ólafur Þór Gunnarsson MM
Sigurður Sæberg Þorsteinsson
Guðni Rúnar Helgason M
Ármann Smári Björnsson M
Kristinn Ingi Lárusson M
Stefán Helgi Jónsson M
Sigurbjörn Hreiðarsson
Jóhann H. Hreiðarsson
Matthías Guðmundsson M
(Thomas Maale 84.)
Hálfdán Gíslason
Ellert Jón Björnsson
(Hjalti Þór Vignisson 89.)
0:1 (7.) Kristinn Lárusson átti hnitmiðaða sendingu af vinstri kantinum inn á
markteig Þróttar þar sem boltinn lenti á milli varnarmanna heimaliðs-
ins og þar var Matthías Guðmundsson á réttum stað og lagði knöttinn
innanfótar í hægra markhornið.
Gul spjöld: Kristinn Ingi Lárusson, Valur (23.), fyrir mótmæli. Guðfinnur Þ. Ómarsson,
Þróttur R. (65.), fyrir brot. Ingvi Sveinsson, Þróttur R. (69.), fyrir brot.
Rauð spjöld: Engin.
ÍSLENSKA unglingalandsliðið skip-
að leikmönnum 18 ára og yngri tap-
aði í gærkvöld fyrir Þjóðverjum,
31:30, í úrslitakeppni Evrópumóts
landsliða í handknattleik. Þjóðverjar
skoruðu sigurmark leiksins úr víta-
kasti á lokasekúndu leiksins en Ís-
lendingar misstu boltann þegar
fimm sekúndur voru eftir, Þjóð-
verjar fóru þá í hraðaupphlaup og
fengu vítakast. Þetta var fyrsta tap
íslensku strákanna á mótinu en áður
höfðu þeir lagt Slóvakíu og Ung-
verjaland að velli. Ísland er í þriðja
sæti í riðlinum með fjögur stig eins
og Slóvenía en Þýskaland er í efsta
sæti með sex stig. Íslensku strák-
arnir byrjuðu ekki vel gegn Þýska-
landi og lentu fljótlega nokkrum
mörkum undir en Ísland var aldrei
með forystu í leiknum. Þjóðverjar
höfðu fjögurra marka forystu í hálf-
leik, 17:13, og náðu níu marka for-
ystu, 24:15, þegar 22 mínútur voru
eftir af leiknum. Þá tóku íslensku
strákarnir aldeilis við sér. Þeir
minnkuðu forskot Þjóðverja hægt
og bítandi og náðu að jafna metin,
28:28. Ísland fékk boltann í stöðunni
30:30 þegar rúm hálf mínúta var eft-
ir af leiknum. Slæm sending varð til
þess að Þjóðverjar náðu boltanum í
lokin og fóru í hraðaupphlaup og
tryggðu sér sigurinn. Arnór Atlason
var markahæstur í liði Íslands með
sjö mörk og Ásgeir Örn Hall-
grímsson gerði sex mörk.
Þurfum sigur í tveimur leikjum
Heimir Ríkharðsson, þjálfari ís-
lensku strákanna, var svekktur eftir
leikinn en sagði að hann væri mjög
ánægður með karakterinn í liðinu.
„Þetta var rosalega svekkjandi þar
sem við vorum svo nálægt því að
sigra. Við byrjuðum leikinn ekki
nægilega vel og strákarnir virtust
ekki vera tilbúnir í leikinn. Síðari
hálfleikurinn byrjaði svo hörmulega
hjá okkur. Við lentum níu mörkum
undir og við lékum sóknarleikinn
mjög illa. Markvörður Þjóðverja
varði frábærlega en við skutum illa
á hann. Við klúðruðum 13 dauðafær-
um og þeir skoruðu mörg ódýr mörk
eftir hraðaupphlaup. Þegar um tutt-
ugu mínútur voru eftir af leiknum
small vörnin saman hjá okkur og við
fengum mörg mörk eftir hraða-
upphlaup. Strákarnir sýndu vel
hvað í þeim býr og náðu að vinna sig
aftur inn í leikinn. Ég er mjög
ánægður með baráttuna í liðinu og
þeir gefast aldrei upp. Riðillinn er
afskaplega jafn; við verðum að sigra
í síðustu tveimur leikjunum til þess
að komast í undanúrslitin og nú
stefnum við á að gera það,“ sagði
Heimir í samtali við Morgunblaðið.
Íslensku strákarnir klaufar í lokin
ÍTALINN snjalli Paolo Di Canio er genginn til liðs við Hermann Hreið-
arsson og félaga í Charlton í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Di
Canio, sem er þekktur skaphundur, er 35 ára gamall og gerði eins
árs samning við Charlton en félagið þarf ekkert að greiða fyrir hann
þar sem hann var samningslaus.