Morgunblaðið - 12.08.2003, Qupperneq 42

Morgunblaðið - 12.08.2003, Qupperneq 42
42 ÞRIÐJUDAGUR 12. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ Sýnd kl. 6. Ísl. tal. Sýnd kl. 8. YFIR 24.000 GESTIR!  Kvikmyndir.com SV. MBL HK. DV Sýnd kl. 6, 8 og 10. Ef þú gætir verið Guð í eina viku, hvað myndir þú gera? Sýnd kl. 10. B.i. 14 ára. J I M C A R R E Y Frábær teiknimynd með íslensku tali fyrir alla fjölskylduna t i i í l t li f i ll fj l l Miðaverð 500 kr. HUGSAÐU STÓRTMiðasala opnar kl. 15.30 YFIR 30.000 GESTIR! Sýnd kl. 8 og 10.30. B.i. 14 YFIR 24.000 GESTIR!  Kvikmyndir.com SV. MBL HK. DV Sýnd kl. 3.30. Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.15. EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS Ef þú gætir verið Guð í eina viku, hvað myndir þú gera? Framhaldið af hinni frábæru Legally Blond sem sló í gegn! Sýnd kl. 3.30, 5.40, 8 og 10.20. kl. 3.30, 5.40, 8 og 10.20. Sýnd kl. 4 og 6. Ísl. tal. Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 14. J I M C A R R E Y Frábær teiknimynd með íslensku tali fyrir alla fjölskylduna B R U C E Miðaverð 500 kr. ÞESSI spóluvika er áberandi hryllileg. Þó ekki vegna þess að úr- valið væri slæmt – þvert á móti koma margar prýðisgóðar myndir á leigurnar en hryllingsmyndir eru þar áberandi margar. Í byrjun vikunnar kemur Enda- lokin 2 (Final Destination 2). Þetta er framhald samnefndrar myndar frá árinu 2000 og ekta unglinga- hrollvekja. Eins og í fyrri myndinni vitjar einnar sögupersónunnar vitneskja um yfirvofandi hörmu- legt slys sem myndi kosta fjölda fólks lífið. Hún breytir atburða- rásinni og bjargar um leið nokkr- um manneskjum frá hörmulegum dauðdaga. En maðurinn með ljáinn lætur ekki að sér hæða og eltir á röndum þá sem undan honum sluppu. Hringurinn 0 (Ringu 0: Baasudei) er þriðja myndin um Sadako sem í fyrri myndunum tveimur myrti mann og annan. Hér er sögð for- saga hinna tveggja myndanna og er sögusviðið Japan á sjöunda ára- tugnum. Dularfull andlát verða í fjölleikahóp Sadako og blaðamað- urinn Aikiko kemur á staðinn til að rannsaka hryllinginn. Þeir (They) er þriðja hryllings- mynd vikunnar. Framleiðandi er sjálfur Wes Craven og segir sagan frá Juliu (Laura Regan) sem hefur haft hryllilegar martraðir allt frá barnæsku um skrímsl sem nema hana á brott. Hún er að ljúka sál- fræðinámi þegar kærasti hennar, sem einmitt hafði líka fengið slíkar martraðir frá barnæsku, hringir í hana frávita af hræðslu, og finnst síðan látinn. Síðan fara fleiri að týna tölunni, sem einmitt líka hafa fengið þessar martraðir. Júlía fer á stúfana og reynir að komast til botns í málinu. Spennuna vantar heldur ekki í vikunni. Allir 24 þættirnir af þátta- röðinni 24 með Kiefer Sutherland koma á spólu í byrjun vikunnar. Þættirnir eru margverðlaunaðir og eiga sér stóran aðdáendahóp. Kjarnorkusprengja er á flugvell- inum í Los Angeles og Jack Bauer er fenginn til að leysa málið. Gamli refurinn Tommy Lee Jon- es og pilturinn með alvörugefna andlitið, Benicio Del Toro, leggja hvor til annars með hnífum í mynd- inni Veiðin (The Hunted). Bencio leikur vitstola sérsveitarmann og Tommy er sjóaður skógarbúi sem er fenginn til að leita hinn morðóða hermann uppi. Hefst þá æsilegur eltingaleikur í skóginum og víðar, og er merkilegt hvað jaxlinn Tommy er liðtækur í slagsmála- atriðunum. Þeir sem vilja frí frá spennunni og hryllingnum ættu að geta slapp- að af yfir rólegri mynd- um vikunnar. Angelina Jolie er alltaf jafngóð, og sýnir gamansama takta í mynd með annars ógn- vænlegan undirtón. Í Líf, eða þvíumlíkt (Life or something like it) hittir fréttakonan Lanie fyrir útigangsmann með spá- dómsgáfu sem segir hana bara eiga viku eftir ólifaða. Hún endur- skoðar allt líf sitt og á endanum er öllu snúið á hvolf. Hvað myndi maður jú ekki gera ef maður vissi að maður ætti aðeins viku ólifaða? Gamanmyndin Frank McClusky kemur um miðja vikuna. Myndin er úr smiðju Dave Sheridan sem stýr- ir þáttunum Buzzkill á MTV. Sagt er frá klaufalegum tryggingarann- sóknarmanni sem lendir í ævintýr- um. Húsið mitt í Umbria (My House in Umbria) skartar sjálfri Maggie Smith. Myndin er eftir samnefndri skáldsögu Williams Trevors og seg- ir frá atburðarás sem verður í kjöl- far banvænnar sprengingar um borð í lest. Samsara (The Samsara) er sér- stök mynd úr smiðju Indverjans Pams Nelins og segir frá búdda- munki sem hefur í þrjú ár stundað íhugun í þögn og undirbýr sig til að takast á við lífið aftur þegar ástin knýr dyra. Loks kemur seinni part vikunnar barnagrínmyndin Þrumubrækur (Thunderpants). Eins og nafnið gefur til kynna er hér á ferð prumpumynd sem þó skartar Ru- pert Grint (sem leikur Ron í Harry Potter-myndunum) og sjálfum snillingnum Stephen Fry. Hér er því mynd sem nær að sameina aðdáendur prumpubrandara og aðdáendur meistara Fry sem alltof, alltof sjaldan sést á hvíta tjaldinu. Hrollvekjur áberandi í vikunni og Stephen Fry leikur í prumpumynd Hryllileg vika Verður dauðinn flúinn? A.J. Cook og Ali Larter í myndinni Endalokin 2.                                                               !" #    !"   !" #  #   $  % # #   $   $    !" #  #    !" #  #    !"   !"   !" &   &   &   &   ' &   ' (  &   )  * &   ' ' &   ' ' (  &   &   &                    !    "   # $  !  %& &  %    #  &  $!     ## '"  ( (   ( )*+, -./-0 ( )*+, .1/-2 ( )*+, .3/.4     Lögregluspennumyndin S.W.A.T. fór beint á toppinn í Bandaríkjun- um um helgina en hún var best sótta mynd helgarinnar vestra. Myndin, sem er byggð á sjónvarpsþáttum frá átt- unda áratug síðustu ald- ar, skartar Colin Farr- ell, Samuel L. Jackson og Michelle Rodriguez í aðalhlutverkum en Clark Johnson leikstýr- ir. Jackson leikur lög- regluvarðstjóra hjá S.W.A.T., sem er sérstök deild lög- reglunnar í Los Angeles, sem er köll- uð út til að handsama eiturlyfjabar- ón á flótta. Myndin fékk misjafnar viðtökur gagnrýnenda, samkvæmt tímaritinu Screen Daily, og voru 54% áhorf- enda karlkyns og svipað hlutfall yngri en 25 ára. Búist er við því að myndin fari yfir 100 milljóna dala markið (7,8 milljarðar króna) á næstu vikum. Hin nýja myndin á topp tíu-listan- um þessa vikuna er endurgerð á Fjörugum föstudegi (Freaky Friday) en hún fór beint í annað sæt- ið. Jamie Lee Curtis og Lindsay Lohan fara með hlutverk mæðgn- anna sem Barbara Harris og Jodie Foster léku árið 1976. Mark Waters leikstýrir þessari fjölskyldumynd, sem þegar er búin að ná inn fyrir kostnaðinum, sem var um 1,6 millj- arðar króna, og meira til. Gagnrýn- endur voru hrifnir af myndinni og ef vikið er aftur að tölfræðihliðinni voru áhorfendur myndarinnar um helgina um 30% táningar og 70% kvenkyns. Í heildina var bíóaðsókn ekki mikil um síðustu helgi ef miðað er við 12 aðsóknarmestu myndirnar og í raun sú minnsta frá því í lok júní. Bandarískt brúðkaup féll um tvö sæti en hún fór af toppnum í það þriðja. Myndin, sem er sú þriðja í Bandarísku böku-syrpunni er vænt- anleg í kvikmyndahús hérlendis 29. ágúst. Sjóræningjarnir eru enn á fullri siglingu í Bandaríkjunum en Sjóræningjar Karíbahafsins: Bölvun svörtu perlunnar er í fjórða sæti sína fimmtu viku á lista. Myndin var frumsýnd um síðustu helgi hérlendis en hún hefur hvarvetna fengið góðar viðtökur og dóma. Leitin að Nemo gengur mjög vel í kvikmyndahúsum og er hún í níunda sæti eftir ellefu vikur á lista. Ekki er langt í það að myndin verði mest sótta teiknimynd alla tíma og slái Konungi ljónanna við. Þess má geta að mynd Jennifer Lopez og Bens Afflecks, Gigli, gekk ekkert betur sína aðra viku á lista. Aðsóknin minnkaði um 82% og fór hún í 17. sætið enda fékk hún hræði- lega útreið gagnrýnenda í Banda- ríkjunum. Colin Farrell og Samuel L. Jackson á toppnum Samuel L. Jackson vígalegur í hlutverki sínu í löggumyndinni S.W.A.T. Löggur og fjöl- skylduævintýri ingarun@mbl.is                                    ! ! ! ! ! ! ! ! ! !  ! ! ! ! ! ! ! ! ! !                          !"# $% & &'' (   )       *      )  +             ,-. //- 01-0 0 -0 00-2 0.-0 3-. 1-/ /-1 0-3 ,-. -/ 34-2 / /-5 32-1 5,-4 0/ -0 1 -, /4-2 043-.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.