Morgunblaðið - 19.08.2003, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 19.08.2003, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 222. TBL. 91. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 19. ÁGÚST 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is Reimt á ritstjórn Gera stuttmynd um afturgöngu sem vill koma að grein Fólk 42 Óvænt úrslit Sigur Þróttar setur strik í meist- arareikning Fylkis Íþróttir 40 Efnilegur orgelleikari Steingrímur Þórhallsson er kom- inn í fremstu röð Listir 23 STJÓRNENDUR á skrifstofu brezka forsætisráðherrans Tonys Blairs heimiluðu „talsverða endur- ritun“ á umdeildri skýrslu sem stjórnin sendi frá sér um Íraksmál áður en hernaðurinn þar hófst í vor. Þetta kom fram í gögnum sem lögð voru fyrir sérskipaða nefnd sem rannsakar tildrög dauða efnavopna- sérfræðingsins dr. Davids Kellys í gær. Í tölvupóstskeyti frá Alastair Campbell, upplýsingafulltrúa Blairs, til Jonathans Powells, starfsmanna- stjóra skrifstofu forsætisráðherrans, dagsettu 5. september í fyrra, kemur fram að skýrslan hafi verið umrituð að verulegu leyti fyrir birtingu henn- ar 24. september. Campbell, sem var aðalskotspónn gagnrýni á vinnubrögð stjórnarinn- ar í frétt BBC, á að bera vitni í dag. Heimiluðu „talsverða endurritun“ Íraksskýrslu Lundúnum. AFP.  Afskipti/16 TALSMENN alþjóðlegra samtaka blaða- manna fóru í gær fram á að ýtarleg rann- sókn yrði gerð á tildrögum þess að mynda- tökumaður Reuters-fréttastofunnar var skotinn til bana af bandarískum hermönn- um í Bagdad á sunnudag. Talsmenn Banda- ríkjahers sögðust harma atvikið en að her- mennirnir hefðu ekki verið í aðstöðu til að hleypa af viðvörunarskotum. Dauði myndatökumannsins, sem hét Mazen Dana og var einn reyndasti frétta- maður Reuters á átakasvæðum, olli ótta í röðum þeirra hundraða frétta- og blaða- manna sem fylgjast með ástandinu í Írak á vettvangi. „Það hryggir mig mjög að þurfa að tilkynna dauða annars fréttamanns Reu- ters í Írak – enn og aftur fyrir tilstilli banda- rískra hermanna,“ sagði Tom Glocer, aðal- framkvæmdastjóri Reuters, í frétta- tilkynningu. Alþjóðasamtök blaðamanna, IFJ, sem hafa bækistöðvar í Brussel, sögðu í yfirlýs- ingu að dauði Danas væri „enn einn sorg- legur vitnisburðurinn um það sem sýnist vera kæruleysisleg vanvirðing herstjórn- enda við öryggi blaðamanna“. Fleiri samtök blaðamanna kröfðust þess að bandarísk stjórnvöld rannsökuðu atvikið rækilega. Dana var annar myndatökumaður Reut- ers – og sautjándi starfsmaður erlendra fréttastofa – sem lætur lífið í Írak frá því hernaðarátök hófust þar 20. marz sl. Saka hermennina um gáleysi Blaðamenn í Bagdad saka hermennina sem skutu Dana um að hafa sýnt vítavert gáleysi. Dana var skotinn er hann var við tökur utan við fangelsi sem Bandaríkja- menn reka í útjaðri Bagdad. Á laugardag höfðu ókunnir árásarmenn varpað sprengj- um á fangelsið. Kváðust hermennirnir hafa haldið að myndatökuvélin sem Dana bar á öxlinni hefði verið sprengjuvarpa. „Þeir vissu að við værum blaðamenn,“ sagði Stephan Breitner, sem starfar fyrir franska sjónvarpsstöð og varð vitni að atvikinu. Rannsóknar krafizt á dauða frétta- manns Bagdad, París. AP, AFP. Reuters Þessi mynd af bandarískum skriðdreka var það síðasta, sem Mazen Dana, myndatökumaður Reuters, myndaði. NJÖRÐUR KÓ veiddi fyrstu hrefnuna, lítið karldýr, á Breiða- firði um fimmleytið í gær, eða um fimm tímum eftir að hvalaskoð- unarbátnum Eldingu II var snúið til lands en hann hafði fylgt Nirði með erlenda blaða- og mynda- tökumenn innanborðs. Fjöldi tölvuskeyta sem borist hafa íslenska sendiráðinu í Wash- ington hefur stigmagnast og losar nú á annað þúsund. Guðni Braga- son sendifulltrúi segir að búast megi við að efnt verði til mótmæla gegn veiðunum í Washington í dag, sendiráðið hafi fengið símtal þess efnis. „Aflífun dýrsins með hinum nýja sprengiskutli gekk hratt og vel fyrir sig. Krufning og sýna- taka fer fram á hafi úti,“ sagði í fréttatilkynningu frá Hafrann- sóknastofnun. Félag hrefnuveiðimanna eign- ast dýrið að lokinni sýnatöku og hafa Ferskar kjötvörur í Reykja- vík keypt alla hrefnuna fyrirfram „en við náttúrlega tökum okkur í matinn,“ sagði Guðmundur Har- aldsson, skipstjóri á Nirði. „Þetta var lítið karldýr. Hann mældist 5,20 metrar og virtist sæmilega haldinn. Sýnatökunni er að fullu lokið en við eigum síðan alveg eftir að vinna úr þeim,“ sagði Droplaug Ólafsdóttir leið- angursstjóri en hún lauk sýnatöku seint í gærkvöld. Guðmundur skipstjóri sagði að skipverjar hefðu ákveðið að að- hafast ekkert fyrr en erlendir fréttamenn, sem fylgdu þeim eft- ir, væru farnir enda hafi slíkt ver- ið lagt fyrir þá. Forstjóri Hafrannsóknastofn- unar, segir það vera öryggisatriði að skjóta ekki hrefnur með aðra báta á sveimi í kring. Njörður kom til hafnar í Ólafs- vík í gærkvöld en stefnt er að því að halda aftur til veiða í dag. Auk Njarðar voru hvalveiðiskipin Hall- dór Sigurðsson og Sigurbjörg á sjó. Sigurbjörgin kom til hafnar í Vestmannaeyjum í gær með smá- vægilega vélarbilun en stefnt var að því að halda út í dag. Báturinn Nökkvi, sem fylgt hafði Halldóri eftir, hélt til lands síðdegis í gær og elta því engin skip hvalveiðibátana, í bili a.m.k. Að sögn Sverris Halldórssonar, leiðangursstjóra á Halldóri, sáu skipverjar nokkuð af hrefnu á meðan Nökkvi fylgdi þeim eftir en enga eftir að hann hætti eftirför. Fyrsta hrefn- an skotin Morgunblaðið/Alfons  Öryggissjónarmiðin/4 Guðmundur Haraldsson, skipstjóri á Nirði, heldur á hjarta hrefnunnar sem veidd var í gær á meðan siglt var til hafnar í Ólafsvík með fenginn. LEIÐTOGAR uppreisnarhreyf- inga og ríkisstjórnar Líberíu skrif- uðu í gær undir friðarsamning sem binda á enda á yfir þriggja ára upp- reisnarstríð gegn stjórn einræðis- herrans Charles Taylors, sem nú hefur hrakizt í útlegð. Samningur- inn miðast að því að skipta völdum milli stríðandi fylkinga í landinu og hefur að markmiði að binda enda á ófrið sem staðið hefur í landinu með litlum hléum allan fjórtán ára valdatíma stríðsherrans Taylors. Samkomulagið var undirritað í Accra, höfuðborg grannríkisins Ghana, réttri viku eftir að Taylor fór frá Líberíu til Nígeríu, þar sem hann hefur fengið hæli. Í sam- komulaginu er kveðið á um að þjóð- stjórn verði mynduð sem næstu tvö og hálft ár muni búa þjóðina undir lýðræðislegar kosningar. „Það er von mín að með undirrit- un þessa samkomulags í dag muni Líbería aldrei aftur steypast í glöt- un ofbeldis vegna valdaþorsta eða undir því yfirskini að frelsa eigi þjóðina,“ sagði Abdulsalami Abub- akar, fyrrverandi hershöfðingi í Nígeríuher, sem stýrði milligöngu- ferlinu sem stóð vel á þriðja mánuð. Fulltrúar beggja helztu upp- reisnarhreyfinganna í Líberíu, LURD og Líberísku lýðræðis- hreyfingarinnar (MODEL), skrif- uðu undir, ásamt fulltrúa bráða- birgðastjórnarinnar sem formlega hefur haldið í valdataumana frá því Taylor hvarf af vettvangi. Í viðtali sem Hvíta húsið birti í gær segir George W. Bush Banda- ríkjaforseti að bandarískir liðsmenn friðargæzluliðsins í Líberíu muni hverfa þaðan í seinasta lagi 1. októ- ber. Ætlunin er að nýtt friðargæzlu- lið á vegum Sameinuðu þjóðanna taki þá við. Um 200 bandarískir landgönguliðar eru nú í Líberíu. Skrifað undir samkomu- lag um frið í Líberíu Accra, Monróvíu. AFP, AP. Þjóðstjórn ætlað að undirbúa kosningar fyrir janúar 2006

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.