Morgunblaðið - 19.08.2003, Síða 20
AUSTURLAND
20 ÞRIÐJUDAGUR 19. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ
lif
u
n
Auglýsendur!
Hafðu samband í síma 569 1111 eða
í gegnum netfangið lifunaugl@mbl.is
Tímaritið Lifun fylgir Morgunblaðinu
miðvikudaginn 27. ágúst
SÍLDARVINNSLAN hf. var rekin
með 395 milljóna króna hagnaði á
fyrstu sex mánuðum ársins 2003.
Hagnaður fyrir afskriftir og fjár-
magnsliði, EBITDA, er 1.058
milljónir króna eða 21,9% af
rekstrartekjum.
Rekstrartekjur samstæðunnar á
tímabilinu námu 4.828 milljónum
króna en rekstrargjöld 3.770 millj-
ónum króna.
Hagnaður fyrir afskriftir og
fjármagnsliði nam 1.058 milljónum
króna, eða sem svarar til 22% af
rekstrartekjum.
Heildareignir samstæðunnar í
júnílok 2003 voru bókfærðar á
18.860 milljónir króna og var bók-
fært eigið fé samstæðunnar í júní-
lok 4.768 milljónir króna. Skuldir
og skuldbindingar samstæðunnar
námu 13.634 milljónum króna.
Gerðu ráð fyrir
meiri loðnukvóta
Síldarvinnslan hf. og SR-mjöl hf.
voru sameinuð hinn 1. janúar sl.
og var sameiningin staðfest á aðal-
fundum félaganna í byrjun mars
sl. Þá hefur verið ákveðið að
leggja niður verksmiðjurnar á
Reyðarfirði og Sandgerði og er
unnið að niðurrifi þeirra og sölu
eigna. Björgólfur Jóhannsson, for-
stjóri Síldarvinnslunnar, segir
áætlanir hafa gert ráð fyrir mun
meiri kvótaúthlutun í loðnu á vetr-
arvertíðinni en raun varð á. Þann-
ig var tekið á móti tæpum 200 þús-
und tonnum til vinnslu en áætluð
höfðu verið ríflega 300 þúsund
tonn.
„Aukning á kolmunnakvótanum
hefur veruleg áhrif á reksturinn
og gefur væntingar um að rekstur
síðari hluta ársins verði góður en
yfirleitt er síðari helmingur ársins
í rekstri félagsins lakari en sá
fyrri,“ segir Björgólfur.
Hann segir kvótastöðu góða og
horfur á að rekstur félagsins muni
ganga vel á síðari hluta ársins.
Dótturfélög Síldarvinnslunnar
hf. eru; Garðar Guðmundsson hf.,
SR-mjöl hf., Seley ehf., Laxá hf.
og Eignarhaldsfélag Austurlands
hf. Hlutdeild í Garðari Guðmunds-
syni hf. var aukin á tímabilinu úr
um 59% í um 66%.
Hlutdeildarfélög Síldarvinnsl-
unnar hf. eru Sæsilfur hf., Huginn
ehf., Langanes hf., Runólfur Hall-
freðsson ehf., Sæblikinn ehf., East
Greenland Codfish A.A, SR-véla-
verkstæði hf., G. Skúlason hf., Út-
hafssjávarfang ehf. og Þingey ehf.
Ljósmynd/ÁÓSíldarvinnslan á Neskaupstað skilaði góðum hagnaði á fyrri helmingi ársins.
Bjartsýnir á seinni helming ársins
vegna góðrar kvótastöðu
Eignir Síldar-
vinnslunnar metn-
ar á tæpar nítján
þúsund milljónir
Neskaupstaður
MEÐAL dagskrárliða á Ormsteiti,
sem nú stendur á Fljótsdalshér-
aði, var sérstakur skógardagur á
sunnudaginn. Gestir voru leiddir
upp í gegnum skóginn, þar sem
Þór Þorfinnsson skógarvörður og
hans menn sýndu í verki hvernig
tré eru aldursgreind og hæð-
armæld og máttu gestir geta sér
til um stærð og aldur áður en sag-
irnar voru mundaðar og komist
að hinu sanna. Mátti sjá snör
handtök skógarhöggsmanna við
að fella tré á nákvæmlega fyr-
irfram ákveðinn stað og greina-
hreinsum þar sem vélsagirnar ösl-
uðu gegnum greinaflækjurnar.
Skógarhöggsmenn sögðu svo kóf-
sveittir í þverhandarþykkum ör-
yggisklæðum frá störfum sínum
og búnaði og kom fram að best
væri að vinna í 15 stiga frosti mið-
að við umfang klæðnaðarins.
Þá voru menn lóðsaðir í stórt
rjóður sem nefnist Atlavíkur-
stekkur og var þar frumflutt
ákaflega sérstætt tónverk eftir
tónlistarsnillinginn Charles Ross,
sem þekktur er fyrir tónverk sín
og tónlistarkennslu.
Tónverkið er skrifað fyrir fjór-
ar keðjusagir, stóra bassatrommu
og fjórar járntunnur og reyndist
vera einkar hávaðasamt og takt-
fast, en áheyrendur voru í reynd
steinhissa að heyra hvað þó mátti
ná af músík út úr öðrum eins
hljóðfærum og þarna komu við
sögu.
Skógarmenn buðu upp á ketil-
kaffi í tónleikalok og spókuðu
menn sig svo í veðurblíðunni um
skóginn fram undir kvöld.
Það var fjölmennt í Atlavíkurstekknum þegar tónverk Charles Ross fyrir 4 keðjusagir, bassatrommu og 4 járntunnur var frumflutt um helgina. Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Skógarhöggsmönnum margt til lista lagt annað en að fella tré
Frumfluttu tónverk fyrir fjórar keðjusagir og bassatrommu
Hallormsstaðarskógur