Morgunblaðið - 19.08.2003, Qupperneq 21
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. ÁGÚST 2003 21
Pantaðu Fríþjónustu Morgunblaðsins
í síma 569 1122, askrift@mbl.is
eða á
Þjónustan gildir fyrir þrjá daga að lágmarki
og hana þarf að panta fyrir kl.16 daginn áður.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
M
O
R
21
02
1
0
7/
20
03
Fáðu Morgunblaðið sent
Við sendum blaðið innpakkað og merkt
á sumardvalarstaði innanlands.
Morgunblaðið bíður þín
Við söfnum blaðinu fyrir þig á meðan þú ert
í fríi og sendum til þín þegar þú kemur
heim aftur.
Fríþjónusta
Ertu
að fa
ra
í frí?
Viltu vinna flugmiða?
Á mbl.is geta áskrifendur Morgunblaðsins
tekið þátt í léttum spurningaleik um
Fríþjónustuna. Heppnir þátttakendur eiga
möguleika á að vinna flug fyrir tvo til Prag
eða Budapest með Heimsferðum.
Taktu þátt!
Nuddsápan sem stinnir
og grennir líkamann
Viðurkennd virkni
BERJADGAR voru haldnir í
Ólafsfirði um helgina en það er
árleg tónlistarhátíð sem Örn
Magnússon píanóleikari á veg og
vanda af. Hófust þeir í Ólafsfjarð-
arkirkju á föstudagskvöld en
Baldvin Tryggvason, fyrrverandi
sparisjóðsstjóri í Reykjavík, heið-
ursgestur hátíðarinnar að þessu
sinni, setti Berjadaga við kerta-
ljós.
Flutt voru Dumki-tríóið eftir
Dvorák, auk verka eftir Schubert
og Britten. Ólafsfjarðarkirkja var
þétt setin á þessum upphafstón-
leikum.
Á laugardag voru tveir dag-
skrárliðir. Bræðralag í Ólafs-
fjarðarkirkju, klukkan 16, sem
var dagskrá með ljóðum og tón-
list Sveinbjörns og Tryggva M.
Baldvinssona. Um kvöldið var svo
frumsýning á nýju leikriti eftir
Guðmund Ólafsson, leikara og
rithöfund. Húsfyllir var í Tjarn-
arborg og gríðarleg stemning og
ætlaði fagnaðarlátum aldrei að
linna. Á sunnudag var gítartónlist í
gömlu kirkjunni á Kvíabekk þar
sem Kristinn H. Árnason lék perlur
gítarbókmenntanna í sveitasæl-
unni. Að vanda voru lokatón-
leikar í félagsheimilinu Tjarn-
arborg á sunnudagskvöld en
dagskrá kvöldsins nefndist
Berjablátt. Þátttakendur hátíð-
arinnar voru þar á björtu nót-
unum. Berjadagar tókust ein-
staklega vel að þessu sinni og
hefur aðsóknin aldrei verið
meiri.
Listamenn á Berjadögum ár-
ið 2003 voru: Kristinn H. Árna-
son gítarleikari, Sigurður Hall-
dórsson sellóleikari,
Hildigunnur Halldórsdóttir
fiðluleikari, Guðmundur Ólafs-
son sjónleikari og leikskáld,
Oddur Bjarni Þorkelsson leik-
stjóri, Tryggvi M. Baldvinsson
tónskáld, Sveinbjörn I. Bald-
vinsson rithöfundur, Sigrún
Valgerður Gestsdóttir söng-
kona, Sigursveinn Magnússon
tónlistarmaður, Marta Guðrún
Halldórsdóttir söngkona, Daníel
Þorsteinsson píanóleikari og
Örn Magnússon píanóleikari.
Heiðursgestur hátíðarinnar var
Baldvin Tryggvason.
Tónlist á Berjadögum
Ólafsfjörður
Baldvin Tryggvason setti Berjadaga í
Ólafsfjarðarkirkju á föstudagskvöld.
Morgunblaðið/Helgi Jónsson
ÞESSIR glöðu Parísarbúar komu
til landsins í gær með ferjunni og
hafa nú á tveim dögum hjólað
norður í Mývatnssveit. Þau ætla
sér 4 vikur til að hjóla hringveg-
inn. Í dag fóru þau um 60 km
vegalengd og náðu mest um 47 km
hraða. Þau fengu reyndar punkt-
eringu og skemmdu dekk. En með
bjartsýni sigrast allir erfiðleikar.
Hjólið þeirra er afar sérstakt en
þau keyptu það í Hollandi. Blettur
yfir auga mannsins er baksýnis-
spegillinn þeirra. Maðurinn er
kanadískur en konan frönsk og
þau búa í París. Ferðamáti þeirra
sýnist vera einhver sá vistvænasti
sem hugsast getur. Hann er til-
breyting frá bölsýnisspám um
hækkandi hitafar og sviðna jörð
vegna orkubruðls okkar jarð-
arbúa.
Morgunblaðið/Birkir Fanndal
Sérstakt reiðhjól
KENNARAR og starfsfólk grunn-
skólanna í Borgarbyggð byrjuðu
starfsárið með endurmenntunar-
námskeiðum sem haldin voru dag-
ana 12. 13. og 14. ágúst að Varma-
landi. Fyrsta námskeiðið stóð í tvo
daga og ber yfirskriftina „Litróf
kennsluaðferðanna“. Meginmark-
mið þess er að vekja þátttakendur
til umhugsunar um fjölbreytni
kennsluaðferða. Því er einnig ætlað
að veita innsýn í það mikla og fjöl-
breytta efni um kennslufræði sem
komið er á Netið. Þátttakendur
vinna í hópum, skila verkefnum og
ljúka námskeiðinu í desember. Um-
sjónarmenn þess eru Ingvar Sig-
urgeirsson frá Kennaraháskóla Ís-
lands og Lilja S. Ólafsdóttir
aðstoðarskólastjóri í Grunnskóla
Borgarness.
Síðasta daginn voru námskeiðin
tvö, skyndihjálparnámskeið og nám-
skeið um brunavarnir. Stefnir
Snorrason kenndi fólki fyrstu hjálp
og hvernig á að bregðast við á slys-
stað eða öðrum óvæntum atburðum
þar sem fólk gæti verið veikt eða
slasað. Jón Pétursson sá um að
fræða fólk um brunavarnir og mik-
ilvægi réttra viðbragða þegar eldur
kviknar. Hann kenndi meðferð
slökkvitækja og leyfði þátttakend-
um að spreyta sig á að slökkva eld.
Bæði Stefnir og Jón komu á vegum
LSS, Landsambands slökkviliðs-
manna og sjúkraflutningamanna.
Litrík og eldfim nám-
skeið í Borgarbyggð
Borgarnes
Stefnir Snorrason skyndihjálp-
arkennari sýnir Heimlich-takið
á Sigurjóni Þórðarsyni leið-
beinanda á Varmalandi.
Morgunblaðið/Guðrún Vala Elísdóttir
Katrín A. Magnúsdóttir, kennari í Borgarnesi, slekkur eld eins og ekkert sé.
Mývatnssveit