Morgunblaðið - 19.08.2003, Síða 23

Morgunblaðið - 19.08.2003, Síða 23
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. ÁGÚST 2003 23 EINHVERN tíma, þegar út verð- ur komin íslenzk tónlistarsaga, þurfa áhugamenn um sígilda tónlist væntanlega ekki lengur fara í enda- lausar grafgötur um hvenær þetta eða hitt höfuðverk tónbókmennta var fyrst flutt hér á landi. Sem kunnugt hófst guðsgjafaflóðið fyrst fyrir alvöru eftir tilkomu Þjóðleik- hússins og Sinfóníuhljómsveitarinn- ar um 1950, stundum meira en öld á eftir nágrannaþjóðunum í landsuðri. Ekki er það þarfa rit þó komið enn, og því verður meðan að reiða sig á mannlegt minni og munnlega geymd. Hvað Krýningu Poppeu varðar þykir þó næsta víst að hið aðeins ársgamla kompaní, Sumaróperan í Reykjavík, hafi orðið manna fyrst til að flytja hana á Íslandi í Nýjum sal Borgarleikhússins á föstudaginn var, þó a.m.k. einu sinni áður hafi legið við að hún kæmist í konsert- uppfærslu. Óperan var síðasta stór- verk hins mikla frumkvöðuls Monte- verdis. Hún var frumflutt 1642 í heimaborg hans á efri árum, Fen- eyjum, sem á 17. og 18. öld gegndi ekki ósvipuðu hlutverki í skemmt- analífi Evrópubúa og Las Vegas gerði síðar í Vesturheimi. Prent- og skoðanafrelsi var þá óvíða meira annars staðar í álfunni, enda hefði jafnósiðlegt efni, þar sem segja má að „syndin sigri“ að lokum, varla komizt á fjalir nema einmitt þar, meðan enn geisaði lengsta og síð- asta trúarbragðastríð í okkar heimshluta. Claudio Monteverdi (1567–1643) var meðal fremstu nýjungamanna í tónsköpun um sinn dag, og hafa sumir tónsöguritarar m.a.s. gengið svo langt að staðhæfa að nútíma- tónlist hefjist með honum. Í því ljósi, og að eldra verki hans Orfeo (1607) nýupplifðu í uppsetningu Gunnsteins Ólafssonar í Salnum í vor, sló það mann óneitanlega hvað tónlistin verkaði samt undarlega gamaldags. Það var eins og tón- skáldið hefði á 35 árum varla færzt feti nær því er flestir skynja sem barokktónlist, á tilurðartíma þegar hilla fer undir miðbarokkið og tón- greinar eins og concerto grosso og fiðlukonsertinn eru senn á næsta leiti. Þvert á móti fannst manni tjá- brigði tónmáls enn standa meira en öðrum fæti á fegurðargrunni end- urreisnar, með fimmradda rithætti madrígals í hljómsveitinni og tíðum hemíóluðum „tripla“ (3/4) innskot- um. Og vel að merkja án þess að hljómsveit Sumaróperunnar fylgdi neinum strangtrúarformerkjum sögulega upplýsts flutningsmáta ut- an þess að nota þjorbu (langhálsa erkilútu sem gegndi miklu hlutverki í framúrskarandi góðum höndum Arngeirs Haukssonar) og sembal er hinn ungi velski stjórnandi Edward Elwyn Jones sló af smekkvísri fimi. Flestöll hljóðfæri strengjakvintetts- ins (2 fiðlur, 2 víólur og selló – þó enginn violone (fornkontrabassi)) voru stálstrengd, og engin blásturs- hljóðfæri komu við sögu þar sem Monteverdi hafði nær örugglega viðhaft einhverja samsetningu á blokkflautum, bjúghornum, zinkum, serpentum og álíka. Á hitt ber þó að líta, að varð- veittar frumnótur verksins eru í miklu skötulíki þar sem allar upp- lýsingar vantar um hljóðfæraáhöfn, og því í raun næsta vonlítið að nálg- ast upphaflegan flutning á öruggum sagnfræðigrunni. Ekki er einu sinni öll tónlistin (lengur) alfarið talin eft- ir Monteverdi sjálfan, þ.á m. hið eft- irminnilega lokaatriði „Pur ti miro“, dúett Nerones og Poppeu undir rit- hætti frjálslegrar fjórtóna passac- aglíu, sem lauslega getur minnt á harmsöng Didoar hjá Purcell þótt hér sé í glaðlegum dúr (do tí la so). Miðað við hvað tónlistarstjórinn hafði þannig mikið frítt spil um nán- ari útfærslu, má óhætt segja að hon- um hafi tekizt smekklega upp, enda þótt hljómsveitin hafi í heild verið furðusparlega notuð og minnst und- ir söng, en ávallt á fáguðum lágvær- um nótum með hverfandi víbratói við hæfi. Langmest mæddi á fylgi- bassaundirspili sembals og/eða þjorbu í sönglesum og aríósóum, oftast við fínlegan barokksellómeð- leik Hönnu Loftsdóttur. Það gerði söngvurunum reyndar auðveldara fyrir að syngja með léttari tóni en menn eiga að venjast hjá lærðum óperusöngvurum í dag, enda til- heyrir bel canto stíllinn meir stærri hljómsveitum og sölum seinni tíma. Söngtilsögn Jones hefur og efalítið haft sín hagnýtu áhrif á téðan létt- leika. A.m.k. var ekki óþarfa kröft- um eytt í vandnáanleg stílbrigði á við geitartrillur er teknar voru á mjög einfaldaðan hátt með örfáum stakkatónótum, að ekki sé minnzt á annan flúrsöng sem ugglaust hefði orðið skýrari í vönduðu hljóðriti. Að vísu hafði stjórnandinn greini- lega úr góðu raddefni að moða, því segja má að varla hafi nokkurs stað- ar fundizt veikur hlekkur í tólf manna söngliði uppfærslunnar. Öðru nær; allt niður í smæstu hlut- verk var skipað efnilegum söngv- urum er höfðu þegar náð eftirtekt- arverðri færni í bæði söngrænni og sviðsrænni tjáningu þrátt fyrir oft ungan aldur. Það er því erfitt og raunar tilgangslítið að gera upp á milli einstakra söngvara, þó að meira hafi eðlilega farið fyrir sum- um hlutverkum en öðrum. Valgerð- ur G. Guðnadóttir söng ísmeygilegt titilhlutverkið með óþvinguðum bravúr, og sama gilti um Hrólf Sæ- mundsson óperustjóra í hlutverki hins gíruga einvaldskeisara. Hinn kokkálaði Ottone var í fagmannleg- um höndum hins brezka Owens Willetts er enn stundar nám í Royal Academy of Music en opinberaði samt þétta og örugga kontratenór- rödd. Nanna Hovmand frá Dan- mörku hafði auðheyranlega mesta sviðsreynslu allra að baki og söng hina óöfundarverðu Ottaviu af göf- ugmannlegri mýkt og sterkri tján- ingu. Seneca spekingur kvað upp- haflega hafa verið háttlægt geldingssópranhlutverk en var hér í „basso profondo“ meðförum Stefáns Arngrímssonar er söng af tigullegri en ögn stirðbusalegri reisn. Her- mennirnir tveir, Ólafur Rúnarsson tenór (Liberto) og Stefán Helgi Stefánsson bassi (Lucano), sungu skítverksrudda Nerones af skemmtilegri óskammfeilni, og Inga Stefánsdóttir var óborganleg í kómísku hvíldarhlutverki fóstrunn- ar Arnöltu. Önnur hlutverk voru sem fyrr segir í prýðisgóðum hönd- um og oft mun betri en maður átti von á. L’incoronazione di Poppea var fyrsta óperan sem færði sig úr heimi grísk-rómverskra goðsagna og tónsetti sögulegan atburð, og hann af miður uppbyggilegu tagi en síðar þótti hæfa á einvaldstímum þegar landsdrottinn var gjarnan sýndur sem fyrirmynd guðlegs rétt- lætis, eins og La clemenza di Tito eftir Mozart er seint dæmi um. En í kaupmannalýðveldi Feneyinga ríktu aðrar aðstæður, og Krýning Poppeu var að auki fyrsta óperan sem hugs- uð var fyrir almenna áhorfendur, ekki fyrirmenn. Sagan gerist á valdatímum Nerós Rómverjakeis- ara (54–68), er gekk að eiga ástmey sína Poppaeu Sabínu 62 og sendi um leið Octavíu keisaraynju í útlegð þar sem hún var myrt af flugumanni Nerós. Jafnframt sá hann til þess að ráðgjafi hans Seneca, fremsti stóu- spekingur Rómverja, stytti sér ald- ur, og boðaði það ógnarstjórn síð- asta valdaskeiðs Nerós þegar brjálæðið keyrði um þverbak. Sjónræn útfærsla þessa langa og óárennilega fornverks var kapítuli út af fyrir sig, og eiginlega ekki minna afrek en tónræni flutning- urinn. Í samræmi við yfirlýst mark- mið Sumaróperunnar – „að bjóða upp á nýjung í óperulífi Íslendinga, leita að nýjum áhorfendum og höfða til þeirra með nýjum hætti“ – var mikið lagt upp úr sjónleik, mímík og hreyfingum, enda þótt „leiktjöldin“ (tveir þríhæða vinnupallsturnar á hjólum) fengjust vart spartneskari. Mætti þar kalla að hafi verið gerð dyggð úr nauðsyn, því leikræn nýt- ing ferlíkjanna var hin hugvitssam- asta. Heildarsvipur leikræna þátt- arins, ásamt kinnroðalaust ótímabundnum búningum, bar einna mest keim af léttúrkynjuðum Berl- ínarkabarett kreppuáranna með dá- góðum skammti af nærri sirkusleg- um trúðsuppákomum, þar sem t.a.m. snaggaraleg „útför“ Senecu var meðal skondnustu uppátækja. Dansinnslögin minntu oft frekar á söngleikjaklissjur Broadways en hofferðuga hirðdansa endurreisnar, og í það heila tekið var býsna fátt auðtengjanlegt við tilurðartíma tón- verksins, hvað þá söguþráðarins. En viti menn. Dæmið gekk upp! Þó manni sé annars hulið hvers vegna, því „helgispjöll“ og hefðarrof blöstu við hvert sem augum var lit- ið. Engu að síður tókst aðstandend- um tvímælalaust að lífga hressilega upp á forngrip sem fáir treysta sér orðið til að færa nútímahlustendum í óstyttri gerð. Hvað þá án texta- vélar eins og hér, þar sem söngv- arar í staðinn skutu einstaka ís- lenzkri setningu inn á stangli, líkt og óþekktur ritari Fóstbræðru „klausum“ sínum forðum. Hefði það svosem mátt gerast oftar – þó að e.t.v. hefði það dregið úr spauggildi þess arna. Hversu frumleg umrædd efnistök voru skal hins vegar ósagt látið. Enda ku annað eins og svæsnara hafa riðið leikhúsum ytra í áraraðir. Nægir að minna á Niflungahrings- uppfærslu Cherauds í Krupp-verk- smiðjuramma og „roaring twenties“ bannáraútfærslu á Macbeth Verdis í umgjörð nýjórvískra mafíubófa. En hvað sem öllu líður stóð samt eftir svo heillandi og sprelllifandi skemmtun, að jafnvel laglausasti maður í heimi gat fundið margt við sitt hæfi – án þess að fórnað væri músíklegum gæðakröfum svo neinu skipti. Og það var kannski mesta afrek kvöldsins. Fornópera í fullu fjöri TÓNLIST Borgarleikhúsið Monteverdi: Krýning Poppeu í uppsetn- ingu Sumaróperu Reykjavíkur. Valgerður G. Guðnadóttir (Poppea), Hrólfur Sæ- mundsson (Nerone), Owen Willetts (Ottone), Nanna Hovmand (Ottavia), Inga Stefánsdóttir (Arnalta) Stefán Arn- grímsson (Seneca), Ólafur Rúnarsson (Liberto hermaður), Stefán Helgi Stef- ánsson (Lucano hermaður), Ólafía Lín- berg Jensdóttir (Drusilla), Hrafnhildur Björnsdóttir (Fortuna/Damigella), Dóra Steinunn Ármannsdóttir (Amor), Árni Gunnarsson (Littore). Hirðmeyjar: Ásdís Ingvadóttir/Sigyn Blöndal, Inga Maren Rúnarsdóttir & Þórdís Schram. Hljóm- sveitarstjórn/semball/orgel: Edward Elwyn Jones. Arngeir Hauksson, þjorba/ barokkgítar, Ágústa María Jónsdóttir & Sigurlaug Eðvaldsdóttir fiðlur, Eyjólfur B. Alfreðsson & Kathryn Harrison víólur, Hanna Loftsdóttir selló. Leikstjórn: Magnús Geir Þórðarson. Búningar: María Ólafsdóttir. Lýsing: Þórður Orri Pét- ursson. Dramatúrg: Gréta María Bergs- dóttir. Dansar: Katrín Ingvadóttir. Föstu- daginn 15. ágúst kl. 20. ÓPERA Ríkarður Ö. Pálsson Morgunblaðið/Kristinn Dísirnar Dyggð og Gæfa. Sigurlaug Knudsen og Hrafnhildur Björnsdóttir í hlutverkum sínum. ÞAÐ er auðvitað draumur allra íslenskra orgelleikara að fá að spreyta sig á orgeltröllinu í Hall- grímskirkju og nú um síðustu helgi lék ungur orgelleikari, Steingrím- ur Þórhallsson sína fyrstu tónleika á Klais-orgelið í Hallgrímskirkju og valdi sér til meðferðar þrjú verk, tvö eftir lítt þekkta ítalska orgelleikara, Arturo Clementoni (1894–1984) og Felice Moretti (1791–1863) og 5. orgelsinfónínu sem er eitt af stórverkum franska orgelsnillingsins Charles-Marie Widor (1844–1937). Fyrsta verk tónleikanna var sinfónískur kórall, eftir Clementoni, sem ber nafnið „Christo ris- usciti“ og er þessi endur- lífgun Krists túlkuð með tveimur megintónhug- myndum, fjörlegu tón- ferli, þar sem mikið er um notkun stækkaðra hljóma á móti rómantísk- um kóral, sem mjög minnti á kóraltónskipanina hjá Cesari Frank. Verkið var lipurlega flutt af Steingrími og var strax ljóst af leik hans, að hér er á ferð- inni sérlega leikinn og efnilegur orgelleikari. Fáir íslenskir orgel- leikarar, ef nokkrir, hafa flutt í heild einhverja af tíu orgelsinfóníum Wid- ors en nú gat að heyra þá fimmtu flutta í heild, sem er stórbrotið sinfón- ískt verk í fimm löngum þáttum. Af þeim eru þrír nokkuð frægir og oft fluttir sér, en það er sá fyrsti, sem er skemmtilega unnin tilbrigði, hinn lagræni adagio-þátt- ur og lokaþátturinn, tokkatan fræga. Í heild var leikur Stein- gríms sérlega skýrt mótaður, bæði í leik og raddskipan en það var helst í lokakaflanum að aðeins vantaði punktinn yfir i-ið, að flutn- ingur þessarar stóru orgelsinfóníu væri í alla staði frábær. Felice Moretti, tók prestvígslu og kallaði sig eftir það Patre Dav- ide, frá Bergamao. Moretti samdi um 2.400 tónverk, sem ef marka má af Sinfóníu í D-dúr, sem Stein- grímur lék eftir hann, er nær því að vera óperutónlist en trúartón- list og minnti tónmálið mjög á Donizetti, en sagt er að þeir hafi verið vinir. Hvað sem líður létt- ferðugu tónmáli Morellis í þessu verki, var leikur Steingríms mjög vel útærður og leikandi fjörugur. Það fer ekki á milli mála að Steingrímur Þórhallsson er frábær orgelleikari og verður fróðlegt að fylgjast með honum, hversu hon- um tekst til að halda sínu á erfiðri göngu sinni sem einleikari, því þar er hver stundin dýrmæt og af stórum viðfangsefnum verða menn stórir, eins og heyra mátti í stór- verki Widors, sem naut sín sérlega vel í stórbrotnum hljómkastala Klais-orgelsins í Hallgrímskirkju og var í heild frábærlega vel flutt af hinum unga og efnilega orgel- leikara, Steingrími Þórhallssyni, sem með þessum tónleikum hefur tekið sér stöðu meðal bestu orgel- leikara okkar Íslendinga. TÓNLIST Hallgrímskirkja Steingrímur Þórhallsson flutti verk eftir Arturo Clementoni, Charles-Marie Widor og Felice Moretti. Sunnudagurinn 17. ágúst. 2003. ORGELTÓNLEIKAR Stórbrotinn hljómkastali Jón Ásgeirsson Steingrímur Þórhallsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.