Morgunblaðið - 19.08.2003, Side 31

Morgunblaðið - 19.08.2003, Side 31
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. ÁGÚST 2003 31 síðast þegar ég sofna fer sitji Guðs englar yfir mér. (Hallgr. Pét.) Góð og mæt kona hefur kvatt. Ég er þakklátur fyrir að hafa kynnst Öddu og eiga um hana góð- ar minningar sem ég get sagt Gló- eyju minni frá. Ég votta Siggu, Hrólfi og Sæma mína dýpstu sam- úð. Blessuð sé minning Andreu Eyglóar Benediktsdóttur. Jón Gunnar Þórðarson. Andrea Eygló systurdóttir mín er látin. Hennar er sárt saknað. Adda, eins og hún var kölluð í fjöl- skyldunni og af vinum hennar, varð ekki nema rúmlega fimmtug að aldri. Ég fylgdist með Öddu frá því hún var í vöggu, fylgdist með henni og tvíburabróður hennar Guð- mundi, vaxa upp ásamt systrum þeirra Jónínu og Ásdísi við mikið ástríki foreldra þeirra á Selfossi. Minningarnar koma upp í hug- ann frá því. þegar þau systkinin frá Selfossi komu í heimsókn og þá var oft reynt að gera eitthvað skemmti- legt, fara í bíó, bíltúra eða eitthvað annað. Ekki var síður gaman að koma til Regínu og Benna og krakkanna á Selfoss. Höfðinglegar móttökur eins og þeirra var von og vísa. Regína spilaði kannski á pí- anóið og jafnvel var tekið lagið. Systkinin öll eru mjög músíkölsk og hafa gaman af að taka lagið í góðra vina hópi. Það var alltaf gott að hitta Öddu, hún bar með sér hlýleika og tryggð sem aldrei bar skugga á þó oft væri langt milli funda. Ástvinum öllum, Sæmundi, börn- unum, barnabörnunum og þeim Regínu og Benedikt og öðrum vin- um og ættingjum votta ég innilega samúð á þessari sorgarstund. Sigurborg Guðmundsdóttir. Bítlalag á fóninum, mikið stendur til, varalitur við spegilinn í horninu. Stutt svart pils, hvít skyrta með stórum blúndukraga, svo flott. Árið var kannski 1968 eða 1969 og ég barn sem mændi á stóra frænku sem talaði við mig eins og jafn- öldru. Ég, að reyna að hlaupa upp stigann eins og hún. Reyna að ná sama hraða, sama stíl. Man enn baksvipinn á leiðinni upp tröppurn- ar í Nesi. Adda að búa til karamellur í Nesi. Jólin á næsta leiti. Rautt sellófan utanum hvern mola og ég fékk að hjálpa til og spjalla. Adda svo létt í lund, svo fínleg og hlý, svo áhugasöm um hagi síns fólks og sérstaklega barnanna. Sá gleðina og húmorinn í því smáa. Setti á sig tilsvör og svipbrigði og kryddaði þannig frásagnirnar. Hún hafði lag á því að gera hversdags- legt atvik að söguefni. Öll börnin í stórfjölskyldunni hafa laðast að Öddu. Enda hafði hún áhuga á hverju og einu. Fannst þau svo sniðug og ólík og merkileg. Manneskjur. Hún sagði sögur af börnum, fylgdist með þeim og lék við þau. Eins og félagi og jafningi en líka eins og sá sem skoðar og veltir vöngum og fylgist með sér- hverri breytingu og framför. Adda svo fljót að hugsa, svo leift- ursnögg til svars. Hraðar og fum- lausar hreyfingar við hvaðeina. Svo lifandi og snör, vakandi og skörp. Adda sem eldaði með lyktarskyn- inu dásamlegan mat. Næm, fljót og sniðug. Stórfjölskylda er eins og vefur. Okkar er litríkur, þéttur og þykk- ur. Einn þráðurinn er þráðurinn hennar Öddu. Við munum Öddu, rifjum upp af henni sögur, svipbrigði og hún er þar. Ég loka augunum og sé hana fyrir mér á leiðinni á ball, bítlalag á fóninum. Sæmi, Hrólfur, Guðný, Andri, Kolbeinn, Sigga og Glóey, ég hugsa til ykkar allra í sorginni. Guð veri með ykkur. Svandís Svavarsdóttir. Við sitjum hér og minnumst góðrar vinkonu, rifjum upp liðna tíð; okkar góðu bernsku; unglings- árin með ýmsum uppátækjum og skemmtun; fullorðnar í gleði og sorg. Við kveðjum Öddu, elskulega vin- konu okkar, með broti úr Sóleyj- arkvæði sem við sungum svo oft saman. Sóley sólu fegri situr við hafið á kóralskóm, leikur við linda lykill frá Róm, augun blá eins og stjörnur, varirnar rauðar sem blóm. Djúpsæir, dularfullir dagarnir hennar líða, tíbrá varpar titrandi bliki á silkið síða og eitt er víst; að óskirnar fljúga víða. (Jóhannes úr Kötlum.) Eftirlifandi ættingjum sendum við dýpstu samúðarkveðjur; þeirra er missirinn mestur. Minningar um elskulega vinkonu lifa í hjarta okkar. Ólöf, Ingunn, Jarþrúður, Sigurbjörg og Vilborg. Kær vinkona mín Andrea Bene- diktsdóttir er látin. Við kynntumst fyrst fyrir alvöru er við unnum saman á skrifstofu Dagsbrúnar á Lindargötu 9. Starf okkar var fólg- ið í símsvörun og enn fremur að greiða úr vanda og/eða svara spurningum þeirra sem komu á skrifstofuna. Andrea var alveg sér- staklega róleg og yfirveguð hvað sem á gekk. Hún var ötul í útreikn- ingum kauptaxta, kurteis við allan þann fjölda sem kom þarna til að fá leiðbeiningar eða álit félagsins á hinum ýmsu málum. Það eru góðar minningar af samveru okkar þarna og við náðum einstaklega vel saman þrátt fyrir mikinn aldursmun. Síðar, miklu síðar, óskaði hún eftir vinnu á dagheimili, sem ég veitti forstöðu. Það tók mig ekki langan tíma að taka hana inn í hóp annarra góðra starfsmanna. Var hún þar með yngstu börnin, sinnti hverju einu þeirra af alúð og ein- stakri ábyrgð. Við Andrea hittumst líka utan vinnustaða og alltaf var gaman að fá hana í kaffi, tala við hana á götu og heimsækja hana á Seljaveginn. Hennar verður sárt saknað. Ég sendi innilegar samúðar- kveðjur til Sæmundar, barnanna og allrar fjölskyldu hennar. Elín Torfadóttir. Þegar tvíburarnir fæddust 1951 komu þau Benedikt Franklínsson og Regína Guðmundsdóttir á Sel- fossi upp þremur nöfnum foreldra sinna; Guðmundur Franklín og Andrea. Andrea fékk svo nafnið Eygló; Andrea Eygló. Í dag er hún kvödd á ungum aldri eftir hart stríð við þann sem sjaldan vægir fyrr en í fulla hnefana. Eftir stendur í sorginni sterk og samhent fjöl- skylda – af hverju, af hverju? Ég kynntist Öddu þegar ég kom í fjölskylduna í Nesi við Ölfusána þar sem niður árinnar er svo sjálf- sagður að hann verður að hljóði innan í manni sem er þar alla ævi, líka þegar maður hugsar til Öddu jafnvel þegar maður er staddur í Sri Lanka. Við þessa hljómlist ár- innar eru myndir; til dæmis af tví- burunum sem settu Íslandsmet í stærð og þyngd þegar þau fæddust, Gummi og Adda voru þau alltaf kölluð. Nú kveðja Öddu börnin hennar, Hrólfur og Sigga, eigin- maðurinn Sæmundur og barna- börnin. En líka þau hin sem bjuggu í Nesi við Ölfusá; foreldrar og systkini: Benedikt og Regína á háum aldri, og svo Nína og Ásdís og Gummi, allt þeirra fólk nær og líka fjær. Þau stóðu öll saman hlið við hlið þegar stríðið harðnaði að lokum og þegar yfir lauk. Það var högg sem þau munu þó öll standast af því að þau eru samhent, ekki síst þegar erfiðleikar steðja að. Við Adda vorum samferða í til- verunni lengi; fyrst í nærri 30 ár nokkuð þétt, og svo sjaldnar. En vissum alltaf vel hvort af öðru; það voru alltaf vinafundir á hverju sem gekk. Adda mágkona mín lærði hár- greiðslu á ungum aldri. Hún fékkst síðar um ævina við margvísleg verkefni; vann til dæmis hjá Verka- mannafélaginu Dagsbrún í Lind- arbæ og síðasta sprettinn hjá Sigl- ingastofnun. Hún fylgdi manni sínum, Sæmundi lækni, til Noregs þar sem hann var við nám og störf. Hún var alltaf boðin og búin til að rétta hjálparhönd á heimili; það þekktum við vel í mínum fyrri bú- skap og börnin mín nutu hennar sérstaklega. Síðast hittumst við við Fríkirkjuna í Hafnarfirði í fyrra. Það var verið að skíra Baldur. Hún kom akandi með foreldra sína að kirkjunni á einstaklega björtum og fallegum degi. Þar hitti ég hana síðast. Það var gaman að hitta hana þar; hún var jákvæð, ljúf og falleg kona. Hún var vinmörg og stundum hálfgerð ærslastelpa á ungum aldri. Skemmtileg. Eygló. Þessum línum fylgja samúðar- kveðjur og líka spurningar: Hvað á þetta eiginlega að þýða? Heitar kveðjur til alls þess góða fólks sem að henni stendur nær og fjær. Svavar Gestsson. Frábær starfsmaður og vinur hefur kvatt þessa veröld. Andrea Benediktsdóttir var einstök per- sóna, full af jákvæðni, gleði og orku. Þegar við mættum til vinnu á morgnana þá varst þú löngu komin í móttökuna og heilsaðir okkur með þínu einstaka og jákvæða viðmóti. Morgungleðina gafst þú okkur og dagurinn byrjaði með þrótti, bjart- sýni og innsæi. Elsku Andrea. Þín er sárt saknað okkar á meðal. Það vantar kaffiilm- inn snemma á morgnana, glaðværð- ina, snerpuna, pilsaþytinn, ljósrit- unarvélarnar eru í ólagi, skipaskráningin á hálfum hraða og svo mætti lengi telja. Við viljum þakka þér samfylgd- ina, sum okkar allar götur frá Hringbrautinni og aðrir úr Vest- urvörinni. Andi þinn svífur hér enn yfir Voginum. Við vitum að þú svífur um á englasviði núna laus við þrautir heimsins um leið og þú und- irbýrð þig fyrir næsta verkefni. Verkefni sem þú munt efalaust leysa af jafnmiklum dugnaði og þú gerðir á meðal okkar. Að lokum færum við eiginmanni þínum, börnum og barnabörnum svo og öðrum ættingjum okkar ein- lægu samúðarkveðjur. Starfsfólk Siglinga- stofnunar Íslands. Það er oft sagt móttaka og síma- varsla sé andlit hverrar stofnunar. Andrea Benediktsdóttir sem sá um þessi verk á Siglingamálastofnun ríkisins til margra ára var góður fulltrúi stofnunarinnar, og gerði sitt til að gestir og gangandi fengju af- greiðslu sinna mála. Veröldin fyrir aftan móttökuna hjá Andreu var hins vegar heimur útaf fyrir sig þar sem starfsfólk gerði oft stuttan stans til að spjalla um menn og málefni. Það gat verið skemmtilegt að kíkja þangað og eftirtektarvert hvað Andrea var umræðugóð og já- kvæð til samferðarmannana og lífs- ins almennt. Eins fór ekki framhjá neinum að fjölskyldan var í fyr- irrúmi og velferð hennar var það sem skipti hana mestu. Hin síðari ár, eftir að Mengunar- varnadeild Siglingamálastofnunar var flutt yfir til Hollustuverndar, strjáluðust eðlilega samskiptin . Það var hins vegar ávallt gaman að hitta Andreu á götu, rifja upp kynnin og njóta þeirra jákvæðu við- horfa sem hún hafði til lífsins. Við gömlu Mengunarvarnarefirnir sendum fjölskyldu og aðstandend- um Andreu okkar dýpstu samúðar- kveðjur vegna ótímabærs andláts hennar. Fyrrverandi starfsmenn Mengunarvarnadeildar Siglingamálastofnunar.  Fleiri minningargreinar um Andreu Benediktsdóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, INGA P. SÓLNES, sem andaðist á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri mánudaginn 11. ágúst síðastliðinn, verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju miðviku- daginn 20. ágúst kl. 13.30. Júlíus Sólnes, Sigríður María Sólnes, Gunnar Sólnes, Margrét Kristinsdóttir, Jón Kr. Sólnes, Halla Baldursdóttir, Inga Sólnes, Jón Sigurjónsson, Páll Sólnes, María Árnadóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær faðir minn, tengdafaðir, afi og langafi, GUNNLAUGUR HANNESSON, Krummahólum 10, Reykjavík, sem lést þriðjudaginn 5. ágúst, verður jarðsunginn frá Fella- og Hólakirkju miðviku- daginn 20. ágúst kl. 15.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim, sem vildu minnast hans, er bent á heimahlynningu Karíts, Krabba- meinsfélagið eða önnur líknarfélög. Þrúður Ólöf Gunnlaugsdóttir, Óskar Smith Grímsson, Hanna Þrúður Þórðardóttir, Guðmundur Guðmundsson, Gunnþór Tandri Guðmundsson. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir og afi, HREGGVIÐUR SKÚLASON, Heiðargerði 53, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju, miðvikudaginn 20. ágúst kl. 13.30. Björg Karlsdóttir, Skúli Hreggviðsson, Ingibjörg Ólafsdóttir, Marta Sjöfn Hreggviðsdóttir, Jóhann Hreggviðsson, Kristín Lára Hjartardóttir og barnabörn. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og langamma, GUNNLAUG MAÍDÍS REYNIS, Víðihlíð, Grindavík, áður til heimilis á Sunnubraut 4, Grindavík, lést á hjúkrunarheimilinu Víðihlíð, Grindavík, föstudaginn 15. ágúst. Jarðarförin fer fram frá Grindavikurkirkju fimmtudaginn 21. ágúst kl. 14.00. Ólafur V. Sverrisson, Guðmundur Sv. Ólafsson, Guðmunda Jónsdóttir, Arþrúður S. Ólafsdóttir, Tryggvi Leóson, Einar Jón Ólafsson, Jósef Kr. Ólafsson, Hildur Guðmundsdóttir, Sigurður Ólafsson, Sigríður Ágústsdóttir, Arnar Ólafsson, Kolbrún Pálsdóttir, Valborg Anna Ólafsdóttir, Elías Pétursson, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir og afi, HARALDUR KR. JENSSON skipstjóri, Álftamýri 6, lést á Landspítalanum við Hringbraut að morgni mánudagsins 18. ágúst. Hulda Guðmundsdóttir, Svava Haraldsdóttir, Guðmundur Jens Þorvarðarson, Guðmundur Haraldsson, Rakel Kristjánsdóttir, Erna Haraldsdóttir, Karl Þórðarson, Bjarni Óli Haraldsson, Árný Davíðsdóttir og afabörnin.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.