Morgunblaðið - 19.08.2003, Side 36

Morgunblaðið - 19.08.2003, Side 36
DAGBÓK 36 ÞRIÐJUDAGUR 19. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM- AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug- lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Skipin Reykjavíkurhöfn: Vyt- autas og Arnarfell koma í dag. Þerney fer í dag. Hafnarfjarðarhöfn: Arklow Dusk og Svava Hill koma í dag. Fréttir Mæðrastyrksnefnd Kópavogs, Fannborg 5. Fataúthlutun þriðju- daga kl. 16–18. Mannamót Aflagrandi 40. Kl. 9 bað, vinnustofa, kl. 13 vinnustofa. Árskógar 4. Kl. 9–12 bað. Smíðastofan er lokuð til 11. ágúst. Handavinnustofan op- in, kl. 9.30 dans, kl. 10.30 leikfimi, Kl. 13.30 létt ganga. Pútt- völlur opinn mánudag til föstudags kl. 9– 16.30. . Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8–13 hárgreiðsla, kl. 8.30–14.30 bað, kl. 9– 16 handavinna, kl. 9– 17 fótaaðgerð. Félagsstarfið, Dal- braut 18–20. Kl. 9 að- stoð við böðun, hár- greiðslustofan opin, kl. 10 samverustund. Félagsstarfið Dal- braut 27. Kl. 8–16 opin handavinnustofan, kl. 9–16 vefnaður, kl. 10– 13 opin verslunin, kl. 13.30 myndband. Félagsstarfið, Hæð- argarði 31. Kl. 9–16 opin vinnustofa, leik- fimi byrjar aftur 2. sept., kl. 12.40 versl- unarferð í Bónus, kl. 12 hárgreiðsla. Bóka- bíllinn er í fríi til 9. sept. Félagsstarfið, Löngu- hlíð 3. Kl. 8 bað, kl. 10 hárgreiðsla, kl. 11 leik- fimi, kl. 13 föndur og handavinna. Félag eldri borgara, Hafnarfirði, Hraunseli, Flatahrauni 3. Brids kl. 13 biljard kl. 13.30 Púttæfingar á Hrafn- istuvelli kl. 14–16. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði. Miðvikudagur: Göngu- Hrólfar ganga frá Glæsibæ kl. 10. S. 588 2111. Gerðuberg, fé- lagsstarf. Kl. 9–16.30 vinnustofur opnar, frá hádegi spilasalur op- inn, kl. 13 boccia, s. 575 7720. Gjábakki, Fannborg 8. Handavinnustofan op- in, leiðbeinandi á staðnum kl. frá kl. 9– 17, kl. 14 ganga. Gullsmári, Gullsmára 13. Félagsþjónustan er opin frá kl. 9–17 virka daga, heitt á könnunni. Hraunbær 105. Kl. 9 kaffi, spjall, dagblöðin, kl. 10 boccia, kl. 12.15 verslunarferð, kl. 13 hárgreiðsla. Hvassaleiti 56–58. Kl. 9 boccia. Fótaaðgerðir, hársnyrting. Norðurbrún 1. Kl. 9– 16.45 opin vinnustofa, kl. 10–11 boccia. Vesturgata 7. Kl. 9–16 fótaaðgerð og hár- greiðsla, kl. 9.15–15.30 handavinna, kl. 13–16 frjáls spil. Vitatorg. Kl. 9 hár- greiðsla, kl. 9.30 morg- unstund, kl. 10 fótaað- gerð, kl. 14 félagsvist. Félag ábyrgra feðra. Fundur í Shell-húsinu, Skerjafirði, á mið- vikudögum kl. 20, svarað í s. 552 6644 á fundartíma. Minningarkort Minningarkort Krabbameinsfélags Hafnarfjarðar (K.H.), er hægt að fá í Bóka- búð Böðvars, Reykja- víkurvegi 64, 220 Hafnarfirði s. 565-1630 og á skrifstofu K.H., Suðurgötu 44, II. hæð, sími á skrifstofu 544- 5959. Krabbameinsfélagið. Minningarkort félags- ins eru afgreidd í síma 540 1990 og á skrifstof- unni í Skógarhlíð 8. Hægt er að senda upp- lýsingar í tölvupósti (minning@krabb.is). Minningarkort Sjálfs- bjargar, félags fatl- aðra á höfuðborg- arsvæðinu, eru afgreidd í síma 551- 7868 á skrifstofutíma og í öllum helstu apó- tekum. Gíró- og kred- itkortagreiðslur. Minningarkort For- eldra- og vinafélags Kópavogshælis fást á skrifstofu endurhæf- ingardeildar Landspít- alans Kópavogi (fyrr- verandi Kópavogshæli), síma 560-2700 og skrifstofu Styrktarfélags vangef- inna, s. 551-5941 gegn heimsendingu gíróseð- ils. Félag MND-sjúklinga selur minningarkort á skrifstofu félagsins á Norðurbraut 41, Hafn- arfirði. Hægt er að hringja í síma 565- 5727. Allur ágóði renn- ur til starfsemi félags- ins. Landssamtökin Þroskahjálp. Minning- arsjóður Jóhanns Guð- mundssonar læknis. Tekið á móti minning- argjöfum í síma 588- 9390. Hranfkelssjóður (stofnaður 1931) minn- ingarkort afgreidd í símum 551-4156 og 864-0427. Í dag er þriðjudagur 19. ágúst, 231. dagur ársins 2003. Orð dagsins: Drottinn er hlut- skipti mitt og minn afmældi bik- ar; þú heldur uppi hlut mínum. (Sálm. 16, 5.)     Svo virðist sem deilurum forystuhlutverk í Samfylkingunni nálgist nú yfirborðið. Eftir þing- kosningar í vor mátti skilja á helstu for- ystumönnum Samfylking- arinnar að einhugur væri um að Össur Skarphéð- insson héldi áfram sem formaður flokksins. Nú, eftir að gerð hefur verið netkönnun um fylgi Ingi- bjargar Sólrúnar Gísla- dóttur, virðist sem sú sátt ætli skammt að standa.     Vefmiðillinn Sellan.is ervettvangur skoðana hóps ungs fólks í Sam- fylkingunni. Í grein sem birtist þar í gær fjallar Haukur Agnarsson um stöðu Ingibjargar Sól- rúnar innan flokksins. „Allt frá síðustu kosn- ingum til Alþingis, sem fram fóru 10. maí síðast- liðinn, hefur almenn- ingur og fjölmiðlar velt því fyrir sér hver verði næsti formaður Samfylk- ingarinnar. Ætlar Össur Skarphéðinsson að sitja áfram eða er hann tilbú- inn að hleypa forsætis- ráðherraefninu, Ingi- björgu Sólrúnu Gísladóttur, að? Össur svaraði þessu sjálfur strax morguninn eftir kosningar á þann veg að hann hefði stuðning flokkssystkina sinna til að sitja áfram og ætlaði sér það. Hann myndi ekki víkja fyrir Ingi- björgu Sólrúnu,“ segir Haukur.     Hann heldur áfram ogsegir: „Viðbrögð við yfirlýsingu Össurar létu ekki á sér standa og var sem sprengju hefði verið varpað. Í stað þess að njóta augnabliksins sem sigurvegari nýafstaðinna kosninga tókst honum á undraverðan hátt að láta fréttaflutning næstu vikna og mánaða snúast um innri baráttu innan flokksins. Á þessu augna- bliki var ekki útséð með hvort Samfylkingin færi í ríkisstjórn en Össur blés á allar slíkar vangaveltur með því að láta um- ræðuna snúast um valda- baráttu og sjálfan sig, hvort hans staða innan flokksins væri ekki tryggð.“     Haukur skýtur föstumskotum að Össuri og fullyrðir að Ingibjörg Sólrún sé heppilegri leið- togi fyrir Samfylkinguna. Hann endar pistil sinn með áskorun á Össur: „Það er vonandi að Össur Skarphéðinsson sjái að sér og endurskoði af- stöðu sína til formennsku Samfylkingarinnar og að Ingibjörg Sólrún bjóði sig fram. Saman myndu þau mynda sterka for- ystu líkt og þau gerðu í aðdraganda síðustu al- þingiskosninga.“     Það er því ljóst að víðaí Samfylkingunni eru menn farnir að gíra sig upp í bardaga milli þeirra Össurar og Ingi- bjargar. STAKSTEINAR Titringur hjá Samfylkingunni Víkverji skrifar... KEPPNI í ensku úrvalsdeildinni íknattspyrnu hófst með látum um liðna helgi. Liðin voru upp til hópa í sóknarhug og gerð voru 36 mörk í leikjunum tíu. Það lofar góðu fyrir veturinn í þessari skemmtileg- ustu deild í heimi. Sjónvarpsstöðvarnar Stöð 2 og Sýn munu sem fyrr taka beinar út- sendingar föstum tökum og var tónninn gefinn um helgina með út- sendingum frá fjórum leikjum. Þessi þjónusta við sparkþyrsta verður seint þökkuð til fulls. Önnur umfjöllun um ensku knatt- spyrnuna verður heldur ekki af skornum skammti hjá stöðvunum, einkum Sýn. Heldur viðameiri en áður ef eitthvað er. Munar þar mest um nýjan þátt sem fór í loftið í hádeginu á sunnu- dag, Boltann með Guðna Bergs. Það er snjöll hugmynd hjá Sýnendum að fá Guðna Bergsson, fyrrverandi leikmann Tottenham og Bolton, til liðs við sig. Hann gjörþekkir ensku knattspyrnuna og á vonandi eftir að auðga sparkið með persónulegri og faglegri sýn. Í það minnsta lofar fyrsti þátturinn góðu. Meðstjórn- andi Guðna er Heimir Karlsson en gaman var að sjá hann aftur á skján- um eftir langa fjarveru. Sparkfróður maður og þægilegur í sjónvarpi. Heimir og Guðni náðu vel saman í þessum fyrsta þætti, fóru vítt og breitt um völl ásamt gesti sínum, Guðmundi Torfasyni. Þekking Guðna fékk strax að njóta sín og far- ið var út í persónuleg kynni hans af ýmsum mönnum. Þeirra á meðal Graeme Souness, knattspyrnustjóra Blackburn Rovers, frægum skap- hundi. Heimir spurði hvort það væri rétt að Souness hefði einu sinni reynt að fá Guðna til liðs við sig. Guðni staðfesti það en ekkert hefði orðið úr. Kannski eins gott, taldi hann, því Souness væri þannig skapi farinn að þeir hefðu örugglega lent upp á kant á endanum, „út af ferða- tilhögunum eða einhverju svoleiðis“. Glettinn maður, Guðni. Áfram á sömu braut! x x x ÞAÐ var átján ára unglingur fráPortúgal, Ronaldo að nafni, sem stal senunni í úrvalsdeildinni þessa upphafshelgi í sínum fyrsta leik með Manchester United. Mikið efni þar á ferð. Víkverji sá þennan mann í fyrsta sinn á dögunum í æfingaleik með Sporting Lissabon gegn Man- chester United á Eurosport- sjónvarpsstöðinni. Þar lék hann á als oddi, sólaði írska undrið, John O’Shea, út úr liðinu. Bókstaflega. Sir Alex Ferguson á skaps síns vegna vont með að kyngja útreið af þessu tagi og keypti því manninn nokkrum dögum síðar. Úthlutaði honum meira að segja gamla núm- erinu hans Davids Beckhams, 7. Fróðlegt verður að fylgjast með framhaldinu. Action Images Guðni Bergsson: Áfram í ensku knattspyrnunni. ÉG og unnusti minn vor- um að hugsa um að fá okkur gönguferð um Reykjanesið og enda dag- inn á því að fara í Bláa lónið. Við höfum nú farið áður og er yndislegt að vera í lóninu. Ég ákvað að athuga hvenær væri opið áður en við lögðum af stað og rak augun í verðlistann, 1.200 kr fyrir einn fullorðinn eða 2.400 kr fyrir parið. Þetta er bara fáránlega dýrt. Þegar við fórum áður vorum við að borga ca 7- 800 kr. á mann og fannst manni það vera dýrt, en lét sig hafa það. En þegar verðið er komið í 1.200 kr. þá hugsar maður sig um tvisvar og sparar sér 2.000 kr og fer frekar í venju- lega sundlaug. Þessar 2.000 krónur duga fyrir ca 10 miðum (10 miðar á 1.500 kr í sundlaugar Rvk.) í venjulega sund- laug. Mér þykir þetta mjög leiðinlegt að geta ekki lengur notið þess að fara í Bláa lónið. Maður þyrfti að vera með tekjur á við framkvæmdastjóra til að geta leyft sér sund í lón- inu. Ég þakka fyrir viðskipt- in í gegnum árin en mun ekki stíga fæti í Bláa lónið fyrr en eigendur sjá að sér og lækka verðið! Kveðja, Björg Ýr Jóhannsdóttir. Tapað/fundið Peningur týndist í Íslandsbanka MIÐVIKUDAGINN 13. ágúst sl. var ég stödd í húsi Íslandsbanka á Laug- arvegi og tapaði þar 3000 krónum. Um leið og ég tók eftir því fór ég að spyrjast fyrir um peninginn í bank- anum. Í millitíðinni hafði komið inn maður sem hafði fundið peningana en þjónustufulltrúar ekki kannast við að einhver hefði tapað þessu. Ég sakna þessara peninga sárt. Sá sem fann pening- inn er beðinn að hafa sam- band í síma 697 6243. Blár strigaskór týndist BLÁR Timberland striga- skór án reima (einn skór) tapaðist. Skórinn er á vinstri fót. Þetta er barna- skór nr. ca 33. Skórinn gæti hafa týnst á stóru svæði, líklega verið settur upp þak á bíl, sem fór frá Grímsnesi inn að Garða- bæ. Skilvís finnandi hafi samband í síma 897 6701 eða 897 6700. Sími glataðist FÖSTUDAGINN 8. ágúst glataðist blár NOKIA 3310 sími. Líklegt er að hann hafi lent í götunni í miðbæ Reykjavíkur, nánar tiltekið á Laugaveginum eða Hverfisgötunni. Sím- inn hefur að geyma dýr- mæt númer frá frændfólki og vinum í útlöndum sem verða ekki endurheimt. Finnandi er vinsamlegast beðinn að hafa samband við í síma 551 7701 eða 824 5215. Úr í Gervidal ÚR fannst við heita pott- inn í Gervidal í Ísafirði í júní. Upplýsingar í síma 846 4946. Gullfallegt lítið hálsmen týndist GULLFALLEGT lítið hálsmen týndist í búnings- klefa kvenna í Laugar- dalslaug miðvikudaginn 13. ágúst. Menið er frekar lítið, úr gulli með litlum hvítum steini á flatri plötu. Skilvís finnandi vinsam- legast hafi samband við síma 820 2927 eða skili meninu í miðasölu sund- lauganna. Fundarlaunum heitið. Svartur fatapoki týndist í Hvalfirði SVARTUR fatapoki týnd- ist á leiðinni um Hvalfjörð sl. laugardag. Skilvís finn- andi hafi samband í síma 565 7835. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15  Netfang velvakandi@mbl.is Dýrt í Bláa lónið Ljósmynd/Garðar P Vignisson LÁRÉTT 1 vitur, 4 beitir tönnum, 7 skips, 8 mynnið, 9 haf, 11 gort, 13 gufusjóða, 14 í vafa, 15 brytjað kjöt, 17 himna, 20 á bitjárni, 22 konungur, 23 tölur, 24 byggingu, 25 meiða. LÓÐRÉTT 1 buxur, 2 fugls, 3 valdi, 4 skinn, 5 gleðskapur, 6 stokkur, 10 þjálfun, 12 lítill maður, 13 bók- stafur, 15 vopn, 16 erf- ingjar, 18 veslast upp, 19 híma, 20 geðvonska, 21 afkvæmi. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU Lárétt: 1 snarráður, 8 skylt, 9 andar, 10 inn, 11 afann, 13 nýrað, 15 svaðs, 18 galli, 21 kær, 22 ruddi, 23 öldur, 24 rigningur. Lóðrétt: 2 neyða, 3 ritin, 4 árann, 5 undar, 6 assa, 7 gráð, 12 nið, 14 ýsa, 15 sorg, 16 aldni, 17 skinn, 18 grönn, 19 lyddu, 20 iðra. Krossgáta 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.