Morgunblaðið - 19.08.2003, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. ÁGÚST 2003 37
DAGBÓK
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
LJÓN
Afmælisbörn dagsins:
Atburðir sem þeyta þér
áfram um lífið eiga oft rót
sína í fortíðinni. Þú ert ótta-
laus þegar þú stendur and-
spænis eigin leyndarmálum.
Þú býrð yfir miklu ímynd-
unarafli sem nýtist þér í list-
um og viðskiptum.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Dagurinn í dag er sérlega góður
til sköpunar og ásta. Sumir
hrútar munu finna ástina í dag.
Nú er líka góður tími til að verja
með börnum við leiki. Góðir
straumar leika um þig í dag og
næstu daga.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Nú er tilvalið að fást við fast-
eignamál eða fást við hluti sem
auka við ættartengsl þín eða
heimilið. Kauptu eitthvað fallegt
fyrir heimilið eða fjölskyldu-
meðlimi. Þú sérð ekki eftir því.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Um þessar mundir einkennast
samskipti þín við aðra af glað-
værð og bjartsýni. Njóttu þess
að spjalla við félaga og ættingja.
Farðu úr húsi og njóttu lífsins.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Nú er rétti tíminn til að hagnast.
Þetta er líka rétti tíminn til að
eyða peningum. Þú átt varla eft-
ir að sjá eftir fjárfestingum sem
þú gerir í dag.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljónið er óvenju hjartahlýtt í
garð annarra í dag. Því reynist
auðvelt að tala við aðra og nýtur
félagsskapsins.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Dagurinn í dag er allsérstakur
en þó á hógværan máta. Þér líð-
ur betur en oft áður og það er
eins og þér þyki óhætt að ætlast
til meira frá lífinu.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Dagurinn í dag hentar mjög vel
til að styrkja tengsl við aðra,
hvort sem það er í atvinnu eða
einkalífi. Boð og samkomur
munu skila miklu.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Tilvalinn dagur til að stunda við-
skipti. Þér reynist auðvelt að
kynna mikilvægu fólki hug-
myndir þínar því þú sérð strax
að þeim lýst vel á það sem þú
hefur að segja.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Ferðalög í dag munu gleðja þig,
sama hvert þú ferð. Ef þú getur
ekki ferðast í eigin persónu, get-
urðu látið hugann reika í stað-
inn, í gegnum bækur, kvik-
myndir eða samtöl.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Fólkið í kringum þig er reiðubú-
ið að rétta þér hjálparhönd í
dag. Þú mátt eiga von á gjöf eða
aðstoð sem kemur sér vel í dag.
Nú er rétti tíminn til að biðja um
lán.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Nú er frábær dagur til að gifta
sig. Raunar er þetta tilvalinn
dagur fyrir hverskonar tengsl
og vensl. Það er sannarlega
sælla að gefa en að þiggja í dag.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Samstarfsfélagar þínir eru
óvenju stuðningsríkir og vin-
samlegir í dag. Létt lund þín
smitar út frá sér og þú gætir átt
von á veðrabrigðum sem gleðja
þig.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
ÚTILEGUMAÐURINN
Öxlin er sigin, bakið bogið
af byrði þungri – tómum mal.
Leggmerginn hefur sultur sogið
og sauðaleit um Skuggadal.
Þú gengur hljótt og hlustar við;
en höndin kreppist fast um stafinn –
þú heyrir vatna næturnið
og náhljóð kynleg saman vafin.
Ég sé þig elta heim í hreysið
við hraunið – máni’ að baki skín –
þinn eiginn skugga, auðnuleysið,
sem eitt hélt tryggð við sporin þín.
Svo fangasnauð var næðingsnótt
ei nokkur fyrr, sem tókst að hjara.
Þú hlustar aftur..., allt er hljótt,
nema’ elfan stynur milli skara.
Sigurður Sigurðsson frá Arnarholti.
LJÓÐABROT
HLUTAVELTA
ÞESSIR duglegu drengir, Fannar Freyr Gunnarsson,
Björn Andri Björnsson, Örn Ingibergsson og Elmar Örn
Gunnarsson, héldu tombólu til styrktar Rauða krossi Ís-
lands og söfnuðu þeir kr. 666.
TROMPÚTSPIL eru
góð og gild þegar tilgang-
urinn er að hindra stungur
sagnhafa í borði. En það er
nánast alltaf rangt að
trompa út „af því bara“.
Hér er gott dæmi um mis-
ráðið trompútspil frá bik-
arleik Strengs og Guð-
mundar Sv.
Hermannssonar í síðustu
viku:
Suður gefur; AV á
hættu.
Norður
♠ D652
♥ D976
♦ ÁD
♣G85
Vestur Austur
♠ KG107 ♠ 943
♥ 84 ♥ ÁG2
♦ 8653 ♦ 972
♣K94 ♣D732
Suður
♠ Á8
♥ K1053
♦ KG104
♣Á106
Vestur Norður Austur Suður
– – – 1 grand
Pass 2 lauf Pass 2 hjörtu
Pass 4 hjörtu Allir pass
Sagnir voru eins á báð-
um borðum, en niðurstaðan
gjörólík. Á öðru borðinu
var greinarhöfndur í vest-
ur og braut eigin reglu
með því að trompa út á
þeirri forsendu að ekkert
annað útspil væri álitlegt.
Hinar slæmu afleiðingar
létu ekki á sér standa:
Hugsanlegur slagur aust-
urs á hjartagosann fór fyr-
ir lítið og Hrólfur Hjalta-
son í sæti sagnhafa var
fljótur að innbyrða tíu
slagi.
Á hinu borðinu kom út
lauf gegn Guðmundi Her-
mannssyni. Hann drap
drottningu austurs og spil-
aði trompi á drottninguna
og ás austurs. Vörnin tók á
laufkónginn og spilaði
þriðja laufinu. Spilið vinnst
ef sagnhafi svínar fyrir
hjartagosann, en Guð-
mundur sá aðra leið sem
hann taldi betri. Hann tók
á hjartakóng, spilaði svo
tígli fjórum sinnum og
henti tveimur spöðum úr
borði. Austur trompaði
ekki, en var sendur inn á
hjartagosann í næsta slag.
Hann spilaði vandræða-
laust spaða og samning-
urinn fór því einn niður.
Hugmynd Guðmundar
með því að svína ekki í
trompinu var þessi:
Hjartagosinn gat fallið
annar, en ef ekki, var spilið
öruggt í 3-2 legunni í
trompi ef mótherjinn með
hjartagosann var líka með
spaðakóng. Góð hugmynd,
út af fyrir sig, þótt hún
gæfi lítið af sér í þetta
sinn. En niðurstaðan er
skýr: Það borgar sig ekki
að trompa út bara af
hræðslu við að hreyfa ann-
an lit. Gamla reglan um
trompútspil er í fullu gildi:
Það á aðeins að trompa út
þegar það er rétt!
Sveit Guðmundar vann
leikinn með 103 IMPum
gegn 79.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson
ÞESSIR duglegu og hressu krakkar, Ragna Karen Víðis-
dóttir, Tómas Örn Víðisson og Konný Arna Hákonardóttir,
héldu hlutaveltu og söfnuðu kr. 2.922 til styrktar Rauða
krossi Íslands.
1. e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. d4 cxd4
4. Rxd4 e5 5. Rb5 d6 6. c4
Be7 7. b3 f5 8. exf5 Bxf5 9.
Bd3 e4 10. Be2 a6 11. R5c3
Bf6 12. O-O Rge7 13. a3 O-O
14. Ha2 Da5 15. b4 De5 16.
He1 b5 17. cxb5 axb5 18.
Bxb5 Rd4 19. Bf1 d5 20. Hd2
Be6 21. f4 Dxf4 22. Hf2
Staðan kom upp á of-
urmóti sem lauk fyrir
skömmu í Dortmund.
Teimour Radjabov
(2648) hafði svart
gegn Viswanathan
Anand (2774).
22...Dxf2+! Með
þessari drottning-
arfórn fær svartur
mikið spil og reynd-
ist það hvítum of-
viða í framhaldinu
að halda jafnvæg-
inu.. 23. Kxf2 Rb5
24. Kg1 Hvítur yrði
mát eftir 24. Rxb5
Bd4+ 25. Ke2
Hf2#. 24...Rxc3 25.
Rxc3 Bxc3 26. Bb5
Bxe1 27. Dxe1 Rf5
28. Bb2 Hac8 29. Ba4 Hf7
30. h3 h5 31. b5 h4 32. Be5
d4 33. b6 e3 34. Kh2 d3 35.
Db4 e2 36. Bc3 Hxc3 37.
Dxc3 Rg3 38. b7 Hxb7 39.
Da5 Hb8 og hvítur gafst upp.
Lokastaða mótsins varð
þessi: 1. Viktor Bologan
(2650) 6½ vinning af 10
mögulegum. 2.-3. Visw-
anathan Anand (2774) og
Vladimir Kramnik (2785) 5½
v. 4. Teimour Radjabov
(2648) 5 v. 5. Peter Leko
(2739) 4 v. 6. Arkadji Naid-
itsch (2574) 3½ v.
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Svartur á leik.
Gleymdu svo ekki að
slökkva þegar ég er sofnuð!
FRÉTTIR
Á MÆRUDÖGUNUM sem haldnir
voru fyrir skömmu voru í fyrsta
skipti veittar umhverfisviðurkenn-
ingar. Byggingarnefnd Húsavík-
urbæjar stóð fyrir afhendingunni,
og fékk nefndin þau Atla Vigfús-
son, Hilmar Dúa Björgvinsson og
Bryndísi Torfadóttur til liðs við sig
og sáu þau um valið að þessu sinni.
Veittar voru viðurkenningar í
þremum flokkum, í flokknum
„Snyrtilegt umhverfi hjá fyrirtæki“
varð fyrir valinu Vallholtsvegur 3
þar sem Jón Helgi Gestsson er með
umboð fyrir Sjóvá-Almennar og
Heimsferðir. Í flokknum „Snyrti-
legasta umhverfi við stofnun“ varð
fyrir valinu Safnahúsið á Húsavík. Í
flokknum „Fallegur garður“ urðu
tveir garðar fyrir valinu, garðurinn
við Hágerði 13 þar sem Jóhanna
Antonía Jónsdóttir og Jón Ásberg
Salómonsson búa og garðurinn við
Holtagerði 1 þar sem Guðrún Þórs-
dóttir og Ívar Geirsson búa.
Bryndís Torfadóttir sagði við
þetta tækifæri að þessar við-
urkenningar væru fyrsta skrefið í
umhverfisviðurkenningum sem
Húsavíkurbær mun veita. Stefnt
verði að því að á Mærudögum að
ári verði „Gata ársins“ valin og
skilti verði komið upp við þá götu
sem hlýtur viðurkenningu hverju
sinni. Bryndís sagði að lokum að
þessar umhverfisviðurkenningar
væru komnar til að vera og yrðu
bæjarbúum vonandi hvatning til að
gera enn betur í umhverfismálum
bæjarins.
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson.
Safnahúsið á Húsavík þykir hafa „snyrtilegasta umhverfi við stofnun“.
Umhverfisviðurkenning-
ar veittar í fyrsta skipti
Húsavík. Morgunblaðið.
ÁRLEGT knattspyrnumót Heklu
var haldið laugardaginn 16. ágúst á
Víðisvellinum í Garði. Þátttak-
endur voru fulltrúar 6. flokks sjö
knattspyrnuliða sem flest eru af
Suðurnesjum. Liðin sem mættust
voru Víðir í Garði, Reynir í Sand-
gerði, Keflavík, Njarðvík, Grinda-
vík, Vogar og Haukar úr Hafn-
arfirði en heildarfjöldi keppenda
var í kringum 150.
Eyjólfur Sverrisson, fyrrverandi
landsliðsmaður og atvinnumaður í
knattspyrnu, afhenti sigurliðinu
veglegan bikar auk þess að allir
þátttakendur fengu verðlaunapen-
ing og bikar.
Að auki var boðið upp á keppni
fyrir leikmenn og foreldra þeirra
þar sem hægt var að vinna ferð fyr-
ir sjö á síðari landsleik Íslands og
Þýskalands í Hamborg í október.
Eyjólfur Sverrisson fyrrverandi landsliðsmaður og atvinnumaður í knatt-
spyrnu afhenti Njarðvíkingum bikarinn.
Ungir knattspyrnu-
kappar á Heklumóti