Morgunblaðið - 19.08.2003, Page 38
ÍÞRÓTTIR
38 ÞRIÐJUDAGUR 19. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ
SPÆNSKIR dómarar verða á við-
ureign Íslendinga og Færeyinga í 5.
riðli undankeppni EM í knattspyrnu
í Þórshöfn á morgun. Dómarinn
heitir Gonzalez Iturralde og aðstoð-
ardómarar verða þeir Villate Lopez
og Alonso Guerrero. Fjórði dómari
verður Omar Losantos.
EFTIRLITSMAÐUR Knatt-
spyrnusambands Evrópu, UEFA,
verður Svíinn Khennet Tallinger.
ÍSLENSKA landsliðið leikur í að-
albúningi sínum, bláum peysum,
hvítum buxum og bláum sokkum og
það færeyska í hvítum teyjum,
bláum buxum og hvítum sokkum.
MIKIL veisla til heiðurs Sepp
Blatter, forseta Alþjóðaknatt-
spyrnusambandsins FIFA, verður
haldin Ráðhúsi Þórshafnar á morg-
un, en Blatter kemur þá til landsins
vegna vígslu nýrra höfuðstöðva fær-
eyska knattspyrnusambandsins.
Veislan verður í boði bæjarstjórnar
Þórshafnar, Tórshavnar Býráð.
FIFA styrkti færeyska knatt-
spyrnusambandið við bygginguna.
Þetta verður í fyrsta sinn sem Blatt-
er heimsækir Færeyjar, sem forseti
FIFA. Eggert Magnússon, formað-
ur KSÍ, verður á meðal gesta en
hann kom til Þórshafnar í morgun.
MARK Halsey, sem dæmdi leik
Arsenal og Everton í ensku úrvals-
deildinni í knattspyrnu á laugardag-
inn, hefur sent enska knattspyrnu-
sambandinu skýrslu vegna fagnaðar
Thierrys Henrys hjá Arsenal þegar
hann kom liði sínu í 1:0 í leiknum.
HENRY reif sig úr treyjunni, hljóp
í áttina að stuðningsmönnum
Everton og sendi fingurkoss í áttina
til þeirra. Viðbrögðin í þeim hópi
voru ekki góð og plastmálum og leik-
skrám var kastað í áttina að franska
sóknarmanninum.
HALSEY sagði við Daily Mail í
gær að fögnuður Henrys hefði valdið
ólátum meðal áhorfenda og þess
vegna hefði hann sent skýrsluna til
sambandsins. „Lögreglan sagði mér
eftir leikinn að Henry hefði sent
fingurkossinn í þessa átt vegna þess
að fjölskylda hans sæti alltaf fyrir of-
an svæðið þar sem stuðningsmenn
Everton voru. Kannski fjölskyldan
ætti að færa sig um set á vellinum.“
DAVID Beckham, fyrirliði enska
landsliðsins í knattspyrnu, segist
geta leikið með í vináttulandsleikn-
um gegn Króatíu sem fram fer á
Portman Road í Ipswich annað
kvöld. Beckham fór af velli eftir
klukkutíma leik á sunnudaginn þeg-
ar Real Madrid gerði jafntefli, 0:0,
við Valencia þar sem hann kenndi til
meiðsla í baki.
REAL Madrid náði að vinna Val-
encia, 6:5, í vítaspyrnukeppni að leik
loknum en stjörnuliðið þótti ekki
sýna mikla takta. Margir vildu
kenna því um að miðjumaðurinn
vinnusami Makelele lék ekki með en
hann á í launadeilum við félagið.
FÓLK
Sigurinn var líka eftirminnilegurþví þegar hann og Chad Camp-
bell, sem lék með honum síðasta
hringinn, komu á síðustu holuna átti
Micheel eitt högg. Upphafshöggið
var fínt og hann átti um 160 metra
eftir að holunni. Hann tók sjö-járnið
sitt. „Ég hugsaði bara um að sveifla
eðlilega og vonaði að ég kæmi bolt-
anum inn á flötina þannig að ég ætti
möguleika á að tvípútta og fá þannig
par,“ sagði Micheel.
Sveiflan var fín og boltinn lenti inn
á flöt, hoppaði þrisvar og rúllaði í átt
að holunni – og stöðvaðist tvo senti-
metra frá henni. Sigurinn var í höfn
– fyrsti sigur kappans og að auki 80
milljónir króna.
„Þegar ég kom á flötina og sá
hversu nálægt ég var fóru ýmsar
hugsanir í gegnum höfuðið á mér.
Ég vissi að ég gæti ekki klikkað á
púttinu og mér var létt,“ sagði
Micheel.
„Annað höggið á síð-
ustu holu var stórkost-
legt – trúlega besta
högg sem ég hef séð
mann leika undir jafn
mikilli pressu og hann
var undir. Ég vissi ekki
hversu nærri hann var
en taldi mig þurfa að
komast það nærri holu
að ég næði fugli. Það
tókst ekki en hann
þurfti ekki einu sinni að
pútta,“ sagði Campbell
um höggið góða.
Tiger Woods varð í
43. sæti og lýkur keppn-
istímabilinu án þess að
vinna í það minnsta eitt
af risamótunum fjórum,
en það hefur ekki gerst
síðustu árin, eða síðan 1998.
Tim Clark varð í þriðja sæti á einu
undir pari og þar með eru upptaldir
þeir kylfingar sem léku hringina
fjóra undir pari. Alex Cejka var
fjórði á parinu.
Micheel stal senunni
ENN og aftur nær svo til óþekkt-
ur kylfingur að sigra á einu af
risamótunum fjórum. Að þessu
sinni var það Shaun Micheel
sem stal senunni á PGA meist-
aramótinu og sigraði en hann
hafði áður keppt á 163 mótum á
mótaröðinni án þess að sigra.
Shaun Micheel kom sá og sigraði.
Reuters
Birkir sagðist vita að menn værutilbúnir að fórna miklu til þess
að knýja fram sigur og komast í
efsta sæti riðilsins.
„Möguleikinn er í
okkar höndum.“
Birkir segir að leik-
menn íslenska liðs-
ins eigi að vera orðnir það sjóaðir
að þeir láti það ekki taka sig á
taugum að eiga þann möguleika að
komast í efsta sæti riðilsins. „Menn
sem hafa spilað marga þýðingar-
mikla leiki eiga að vita að þetta er
bara einn af þeim mikilvægu og
verða að haga undirbúningi í sam-
ræmi við það. Hins vegar er ekki
loku fyrir það skotið að það verði
eitthvert stress á mannskapnum í
upphafi leiks. Það þýðir ekki að
velta sér of mikið upp úr stöðunni,
leikurinn verður bara að vinnast,
það er það eina sem kemur til
greina, hver sem staðan er í riðl-
inum.“
„Verðum að vera þolinmóðir“
Færeyingar hafa sýnt það á
heimavelli að þeir eru erfiðir heim
að sækja. Því mun reyna á þol-
inmæði ykkar, ekki satt?
„Það er ljóst að við verðum að
vera þolinmóðir, láta ekki hugfallast
þótt ekki gangi að skora snemma
leiks. Við vitum að hingað erum við
ekki komnir til að vinna stórsigur
með mörgum mörkum. Það getur
alveg farið svo að okkur takist ekki
að skora fyrr en á síðustu mínútu
eins og raunin varð á í heimaleikn-
um við Færeyjar í júní síðastliðn-
um. Við verðum að vera undir það
búnir enda hafa Færeyingar ekki
fengið mörg mörk á sig í síðustu
heimaleikjum. Ég hef hins vegar
enga trú á því að Færeyingar skori
mörg mörk á okkur, það hlýtur að
vera okkar markmið í upphafi að
halda hreinu. Um leið og það tekst
þá getur eitt mark dugað okkur til
sigurs. Voðinn gæti verið vís ef
Færeyingum tekst að skora því þá
tvíeflast þeir, staðráðnir í að halda
fengnum hlut og okkur gæti reynst
þrautin þyngri að jafna metin.
Erfiður leikur
Í vor komst íslenska liðið einu
marki yfir gegn Færeyingum sem
jöfnuðu metin skömmu síðar, það er
því ekkert sjálfgefið að eitt mark
dugi?
„Það sýndi sig fyrst og fremst að
Færeyingar eru með reynslumeira
lið en oft áður, slíkt hefði ekki gerst
fyrir nokkrum árum. Nú er staðan
önnur, leikmenn færeyska liðsins
eru reyndari og hafa gengið í gegn-
um keppni sem þessa áður. Sama
er upp á teningnum hjá okkur, þar
eru flestir leikmenn atvinnumenn í
knattspyrnu, hafa öðlast mikla
reynslu og eiga þar af leiðandi að
vera tilbúnir að takast á við erfið
verkefni sem þessi leikur við Fær-
eyinga tvímælalaust er,“ segir Birk-
ir Kristinsson landsliðsmarkvörður.
Birkir Kristinsson markvörður og Heiðar Helguson.
Birkir Kristinsson varði vítaspyrnu
síðast þegar Ísland lék í Færeyjum
Tilbúnir að
fórna miklu
fyrir sigur
„SPENNAN á eftir að myndast í hópnum enda er um mikilvægan leik
að ræða, mikið þýðingarmeiri leik en síðast þegar ég kom hingað til
Færeyja og lék með landsliðinu fyrir fjórum árum í vináttulands-
leik,“ segir Birkir Kristinsson, annar tveggja markvarða íslenska
landsliðsins, sem mætir Færeyingum í Evrópuleik í Þórshöfn á
morgun. „Þá unnu við 1:0 og það yrði ágætt ef það tækist að end-
urtaka leikinn að þessu sinni. Í þeim leikjum sem ég hef tekið þátt í
gegn Færeyingum höfum við átt í mesta basli með þá og það gæti
alveg eins orðið ofan á að þessu sinni.“
Ívar
Benediktsson
skrifar frá
Þórshöfn
„HUGARFAR leikmanna var að mínu
mati mjög gott í þeim tveimur leikjum
sem við Logi [Ólafsson] höfum stjórn-
að liðinu og eru að baki. Um leið held
ég að menn geri sér grein fyrir því að
það yrði nokkuð sögulegt ef við ynn-
um hér í Færeyjum og næðum þar
með efsta sæti riðilsins,“ segir Ásgeir
Sigurvinsson, landsliðsþjálfari í knatt-
spyrnu. „Það er nokkur pressa á okk-
ur núna að vinna og ná þessum til-
tekna áfanga að eiga möguleika á
öðru sæti riðilsins þegar upp verður
staðið. Í gegnum tíðina hefur íslenska
liðið oft brotnað þegar það hefur
komist í þessa stöðu, en þá ber þess
að geta að þá hefur andstæðingurinn
oft verið sterkari en nú er.
Við verðum að halda okkar styrk-
leikaflokki, það er algjört frumskil-
yrði. Síðan verðum við
að sýna það á miðviku-
daginn að við eigum eitt-
hvert erindi ofar á töfl-
una. Nú þarf að sýna
jafnvægi og kænsku,
með réttu hugarfari,
hafa sjálfstraust og
leggja sig fullkomlega
fram í leikinn, annars
fjara möguleikarnir út,“
segir Ásgeir sem lengi
lék í Þýskalandi á sínum
farsæla ferli sem knatt-
spyrnumaður á áttunda
og níunda áratugnum og
langar að vera með sitt lið nú sem
landsliðsþjálfari í efsta sæti þegar að
leikjunum við Þjóðverja í keppninni
kemur 6. september.
„Við lítum að sjálf-
sögðu leikinn við Fær-
eyjar alvarlegum augum,
ef okkur tekst að vinna
hann þá verður gaman að
fást við Þjóðverjana,“
sagði Ásgeir sem vonast
til að verði staðan í riðl-
inum hagstæð þegar að
leiknum við Þjóðverjum
kemur verði hægt að
gera óvænta hluti. „Í
hverri keppni hefur það
yfirleitt gerst að okkur
hefur tekist að ná óvænt-
um úrslitum gegn sterk-
ari þjóðum. Takist okkur að vinna hér
í Færeyjum eins og stefnt er að þá
vonast ég til að óvænti bitinn verði
eftir.“
Ásgeir
„Vonast til að óvænti bitinn sé eftir“
FÆRA varð æfingu íslenska landsliðsins í gær frá
Tórsvelli í Þórshöfn, þar sem viðureign Íslands og
Færeyja fer fram á miðvikudag, yfir á völlinn í Tóft-
um. Ástæðan var sú að mikið hefur rignt í Færeyjum
síðustu daga og úrhelli var í fyrrinótt. Því þótti ekki
að æfa á aðalleikvanginum. Vonast er til að það verði
hægt í dag.
Vegna þessa varð íslenska landsliðið, og reyndar það
færeyska líka, að æfa í Tóftum, en þangað er einna
klukkustundar ferð frá Þórshöfn. Vegna þessa mikla
tíma sem fer í ferðir á milli Þórshafnar og Tófta æfði
íslenska liðið aðeins einu sinni þar í gær en því stóð
einnig til boða að æfa í Tóftum í gærmorgun. Þá var
tekin létt æfing í rigningu og þoku á gervisgrasvelli
HB í Þórshöfn. „Það kom ekki til greina að eyða fjór-
um tímum í rútuferðir á einum degi,“ sagði Logi Ólafs-
son landsliðsþjálfari.
Færeyska landsliðið varð einnig að sætta sig við að
taka létta æfingu á gervigrasvelli í gærmorgun og æfa
síðan síðdegis í Tóftum.
Æft í Tóftum