Morgunblaðið - 19.08.2003, Síða 39

Morgunblaðið - 19.08.2003, Síða 39
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. ÁGÚST 2003 39  VEIGAR Páll Gunnarsson úr KR var valinn besti leikmaðurinn í um- ferðum 7–12 í efstu deild karla, Landsbankadeild. Bjarni Jóhanns- son, Grindavík, var valinn besti þjálfarinn á sama tímabili og Krist- inn Jakobsson var valinn besti dóm- arinn.  ÚRVALSLIÐ deildarinnar í 7.–12. umferð er þannig skipað: Markvörð- ur er Kristján Finnbogason, KR, varnarmenn eru Kristján Örn Sig- urðsson, KR, Helgi Valur Daníels- son, Fylki, Ólafur Örn Bjarnason og Sinisa Kekic, Grindavík, miðjumenn eru Jón Þorgrímur Stefánsson, FH, Dean Martin, KA og Fylkismenn- irnir Ólafur Ingi Skúlason og Finn- ur Kolbeinsson. Framherjar eru Allan Borgvardt, FH, og Veigar Páll Gunnarsson, KR.  KVENNALIÐ Breiðabliks í knattspyrnu tapaði fyrir karlaliði Snartar frá Kópaskeri, 4:2, í leik sem var liður í hátíðahöldum á Kópaskeri á laugardaginn. Elín Anna Steinarsdóttir og Margrét Ólafsdóttir skoruðu fyrir Blika- stúlkur í leiknum.  KVENNASVEIT Keilis varð um helgina Íslandsmeistari í sveita- keppni í golfi, lagði Akureyrarstúlk- ur í úrslitaleiknum á Garðavelli í gær.  SVEITIR Odds og Setbergs falla í aðra deild en upp koma tvær efstu sveitirnar, Sauðárkrókur og Leynir.  MARCUS Fraser sigraði á Opna rússneska BMW golfmótinu um helgina. Hann hafði betur í umspili við Martin Wiegeler og sigraði á annarri holu en báðir voru á 19 höggum undir pari.  BAKVÖRÐURINN Anthony Peeler hefur skrifað undir samning við Sacramento Kings í NBA-deild- inni í körfubolta. Peeler er 33 ára gamall og hefur leikið síðustu sex tímabil með Minnesota. Hann skor- aði að meðaltali 7,7 stig í leik á síð- asta tímabili. FÓLK en þeir gerðu í Reykjavík í vor. Þá vorum við slakir í fyrri hálfleik en sýndum það í þeim síðari að við getum alveg staðið íslenska lands- liðinu á sporði þrátt fyrir að því hafi tekist þá að knýja fram sigur í blálokin á leiknum. Sama gerðist á móti Skotum og Þjóðverjum, þá fengum við á okkur mörk undir leikslok. Nú vona ég að mínir menn hafi lært sína lexíu af þeim leikjum og falli því ekki í sömu gryfju nú á heimavelli gegn Ís- landi. Þú vonast til að þínir menn „VIÐ erum brattir og tilbúnir að mæta Íslendingum af fullum krafti,“ sagði Henrik Larsen, landsliðsþjálfari Færeyinga, eftir fyrstu æfingu færeyska landsliðs- ins í Þórshöffn. „Allir leikmenn mínir eru frískir og klæjar í lófana eftir leiknum þannig að ég er bjartsýnn þrátt fyrir að ljóst sé að við söknum Jákups á Borg og Fróða Benjaminsen sem taka út leikbann að þessu sinni.“ Larsen segir að nú verði hans menn á heimavelli og því vænti hann þess að þeir geti leikið betur standist pressu betur en áður? „Það geri ég um leið og ég vona og ætla að okkur lánist að búa til fleiri marktækifæri en áður. Það var eitt þeirra atriða sem ég var óánægður með í Reykjavík í vor að okkur tókst ekki að skapa fleiri marktækifæri en raun varð á. Tak- ist það er ég viss um að við getum veitt íslenska liðinu verðuga keppni og máske komið því lít- illega á óvart.“ Þannig að þú ert bjartsýnn? „Það er ég svo sannarlega þrátt fyrir að okkur vanti sterka leik- menn sem voru í byrjunarliðinu gegn Íslandi í vor og ég hef áður nefnt. Fjarvera þeirra gerir að verkum að ég verð aðeins að breyta til á miðjunni og í sókninni. Íslenska liðið er sterkt og skipað nærri því sömu mönnum í síðasta leik. Það ætlar sér sigur og kom- ast upp í efsta sæti riðilisins það veit ég, en við ætlum líka að leggja okkur fram og freista þess að vinna þannig að ég reikna með skemmtilegum og spennandi leik,“ segir Henrik Larsen, landsliðs- þjálfari Færeyinga í knattspyrnu. Mætum Íslendingum af fullum krafti Þórður segist vera í mun betriæfingu nú en á sama tíma í fyrra þegar hann hafði nýlega geng- ið til liðs við Boch- um. Hann leggur mikla áherslu á að leikmenn geri sér grein fyrir mikil- vægi leiksins á morgun. „Menn gera sér vel grein fyrir því hvað sigur í þessum leik þýðir fyrir okkur og í mínum huga kemur ekkert annað en sigur til greina.“ Þórður segir ennfremur að nú séu menn í betra formi en í vor þegar þjóðirnar áttust við á Laugardals- velli og það eigi að koma landsliðinu til góða. „Í vor voru liðnar þjár vik- ur frá því að deildakeppni í Evrópu lauk og þar til að landsleikjunum kom, þá var ekkert óeðlilegt við að menn væri þreyttir og að detta úr æfingu. Nú er annað upp á teningn- um, við erum að hefja okkar tímabil og menn hungrar í að spila. Sem dæmi má nefna að í júní þá byrjuðum við vel í leiknum við Fær- eyinga en duttum síðan út úr takti við leikinn. Slíkt á ekki að henda að þessu sinni, við eigum að vera í góðu standi til að geta keyrt af fullum krafti á Færeyingana í níutíu mín- útur og reyna þannig að knýja fram sigur.“ Finnið þið eitthvað fyrir þeirri pressu sem á ykkur hvílir vegna þeirrar staðreyndar að sigur færir ykkur efsta sætið í riðlinum? „Stefnan er að vinna og komast í efsta sæti riðilsins. Pressa og álag fylgir því að vera í knattspyrnu og það er nokkuð sem menn verða að lifa við og reyna að standast hana. Ég hef ekki trú á öðru en okkur tak- ist að standa undir væntingum að þessu sinni. Við ætlum okkur að vinna Færeyinga og mæta Þjóðverj- um í haust í efsta sæti fimmta rið- ils,“ segir Þórður Guðjónsson, landsliðsmaður í knattspyrnu og maðurinn sem lagði upp sigurmark- ið fyrir Tryggva Guðmundsson á Laugardalsvelli í vor þegar Ísland lagði Færeyjar, 2:1, í fyrri viðureign þjóðanna í undankeppni EM. Tryggvi leikur ekki í Færeyjum með vegna meiðsla. Staðráðnir í að fagna sigri hér í Þórshöfn „MÉR líst mjög vel á leikinn og hlakka til hans enda eru allir leik- menn komnir á fulla ferð með sínum félagsliðum og eiga þar af leið- andi að vera í betra formi en þeir voru í þegar þjóðirnar áttust við í vor,“ sagði Þórður Guðjónsson, landsliðsmaður í knattspyrnu og leikmaður Bochum í Þýskalandi um leikinn við Færeyinga á morg- un. Þórður skoraði sigurmarkið þegar Íslendingar mættu Fær- eyingum síðast í Færeyjum, 1:0, en fjögur ár eru liðin frá þeirri við- ureign í Þórshöfn, sem var vígsluleikur á nýja grasvellinum. Morgunblaðið/Kristinn Þórður Guðjónsson skoraði sigurmark Íslands síðast í Færeyjum, 1:0. Ívar Benediktsson skrifar frá Þórshöfn ÁSGEIR Sigurvinsson, landsliðsþjálfari í knattspyrnu, er nú í annað sinn á ævinni í Færeyjum, hvar hann stýrir íslenska landsliðinu gegn heimamönnum á mið- vikudaginn. Ásgeir lék aldrei í Færeyjum þegar hann á sínum tíma og er hann var spurður sagðist hann hafa komið fyrst til Færeyja með íslenska landsliðinu fyrir fjórum árum, 18. ágúst 1999, þegar þjóð- irnar áttust við í vígsluleik knatt- spyrnuvallarins í Þórshöfn þar sem þjóð- irnar eigast við á miðvikudag. Þá vann Ísland 1:0 með marki Þórðar Guðjóns- sonar beint úr aukaspyrnu snemma leiks. Birkir Kristinsson varði síðan vítaspyrnu í síðari hálfleik. Báðir eru þeir í íslenska landsliðinu að þessu sinni. „Við áttum í töluverðum vandræðum með Færeyingana í þessum tiltekna leik ef ég man rétt,“ sagði Ásgeir sem vonast til að svo verði ekki upp á teningnum að þessu sinni. Ásgeir í annað sinn í Færeyjum EIÐUR Smári Guðjohnsen, fyr- irliði landsliðsins, og Pétur Hafliði Marteinsson komu síðastir ís- lensku leikmannanna til Þórs- hafnar í gærkvöldi um hálfum sól- arhring síðar en reiknað hafði verið með. Þeir áttu að koma ásamt Hermanni Hreiðarssyni frá London í gegnum Kaupmannahöfn til Vága í gær, en þeir Eiður og Pétur misstu af vélinni frá Stan- sted, norðan við London, til Kaup- mannahafnar. Hermann náði hins vegar vélinni. Þá var brugðið á það ráð að senda þá Eið og Pétur með flugvél frá Heathrow til Aberdeen í Skotlandi í gær, en frá Aberdeen er beint flug til Vága í Færeyjum, þar sem alþjóða- flugvöllur landsmanna er. Sá böggull fylgdi hins vegar skamm- rifi að ekki flogið á milli Aber- deen og Vága nema á kvöldin og komu þeir félagar á tíunda tím- anum í gærkvöldi til Þórshafnar. Misstu þeir því af æfingu íslenska landsliðsins í Tóftum síðdegis. Eina æfing íslenska landsliðsins með fullskipuðu liði verður því í dag og er vonast til að hún verði á Tórsvelli þar sem landsleikurinn fer fram á morgun. Eiður Smári og Pétur seint á ferð ANDREA Gaines, bandarísk körfuknattleikskona, hefur verið ráðin þjálfari 1. deildar liðs Njarðvíkur fyrir komandi keppnistímabil og leikur jafn- framt með liðinu. Samkvæmt frétt á heimasíðu Njarðvík- inga er hún 1,75 m á hæð og kemur frá Clemson-háskóla, sama skóla og Krystal Scott, sem lék með Njarðvíkurliðinu síðasta vetur. Gaines er vænt- anleg til Njarðvíkur skömmu áður en tímabilið hefst, eða í lok september. Gaines þjálf- ar Njarðvík

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.