Morgunblaðið - 19.08.2003, Page 41
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. ÁGÚST 2003 41
Morgunblaðið/Árni Torfason
Páll Einarson, fyrirliði Þróttar, fagnar marki sínu gegn Fylki og fimmta marki sinna manna ásamt
Eysteini Lárussyni, Gesti Pálssyni og Björgólfi Takefusa, í Árbænum í gærkvöld.
Sextán leikmenn léku fyrir Ís-lands hönd á mótinu. Flestir
þeirra eru með talsverða reynslu
þrátt fyrir ungan
aldur og sex strák-
anna eiga þegar að
baki þrjú ár í
meistaraflokkum
sinna félagsliða. Sumir eru jafnvel
orðnir lykilmenn eins og þeir Arn-
ór Atlason, Ásgeir Örn Hallgríms-
son og Árni Þór Sigtryggsson, og
margir aðrir eiga fjölda 1. deildar
leikja að baki, eins og sjá má hér
fyrir neðan.
„Ég tel að við höfum teflt fram
einu reyndasta liðinu á þessu móti,
enda hafa sumir strákanna þegar
orðið Íslands- eða bikarmeistarar í
meistaraflokki. Fyrir úrslitaleikinn
við Þjóðverjana sagði ég við þá að
þeir þyrftu ekkert að óttast, þeir
væru mun reyndari en þýsku
strákarnir, enda kom það í ljós
þegar á hólminn var komið að
þarna voru engir nýliðar á ferð,“
sagði Heimir Ríkarðsson, þjálfari
piltalandsliðsins, við Morgunblaðið
í gær.
Evrópumeistararnir
Evrópumeistaralið Íslands skip-
uðu eftirtaldir piltar:
Andri Stefan, fæddur 27. jan-
úar 1984, miðjumaður úr Haukum.
Þrjú ár í meistaraflokki, 56 leikir
og 53 mörk í 1. deild.
Arnór Atlason, fæddur 23.
júlí 1984, rétthent skytta úr KA.
Þrjú ár í meistaraflokki, 55 leikir
og 232 mörk í 1. deild.
Árni Þór Sigtryggsson, fædd-
ur 3. janúar 1985, örvhent skytta
úr Þór. Þrjú ár í meistaraflokki, 48
leikir og 149 mörk í 1. deild, 3 leik-
ir í 2. deild.
Árni Björn Þórarinsson,
fæddur 5. júlí 1984, rétthentur
hornamaður eða miðjumaður úr
KA. Tvö ár í meistaraflokki, 38
leikir og 11 mörk í 1. deild.
Ásgeir Örn Hallgrímsson,
fæddur 17. febrúar 1984, örvhent
skytta úr Haukum. Þrjú ár í
meistaraflokki, 70 leikir og 164
mörk í 1. deild.
Björgvin Páll Gústavsson,
fæddur 24. maí 1985, markvörður
úr HK. Tvö ár í meistaraflokki, 29
leikir í 1. deild.
Einar Ingi Hrafnsson, fæddur
16. september 1984, línumaður úr
Aftureldingu. Eitt ár í meistara-
flokki, 22 leikir og 11 mörk í 1.
deild.
Hrafn Ingvarsson, fæddur 14.
mars 1985, rétthent skytta úr Aft-
ureldingu. Tvö ár í meistaraflokki,
32 leikir og 18 mörk í 1. deild.
Ingvar Árnason, fæddur 15.
júlí 1986, línumaður úr Val. Ekki
leikið með meistaraflokki.
Ívar Grétarsson, fæddur 23.
mars 1984, rétthentur hornamaður
frá Selfossi. Þrjú ár í meistara-
flokki, 48 leikir og 75 mörk í 1.
deild, 16 leikir og 9 mörk í 2. deild.
Jóhann Gunnar Einarsson,
fæddur 13. september 1985, örv-
hentur hornamaður úr Fram. Ekki
leikið með meistaraflokki.
Kári Kristján Kristjánsson,
fæddur 28. október 1984, línumað-
ur eða rétthentur hornamaður úr
ÍBV. Þrjú ár í meistaraflokki, 60
leikir og 85 mörk í 1. deild.
Pálmar Pétursson, fæddur
22. nóvember 1984, markvörður úr
Val. Tvö ár í meistaraflokki, 50
leikir í 1. deild.
Ragnar Hjaltested, fæddur
12. apríl 1984, örvhentur horna-
maður úr Víkingi. Tvö ár í meist-
araflokki, 40 leikir og 84 mörk í 1.
deild.
Sigfús Páll Sigfússon, fæddur
1. febrúar 1986, rétthentur horna-
maður eða miðjumaður úr Fram.
Ekki leikið með meistaraflokki.
Þórður H. Þórðarson, fæddur
4. júní 1985, markvörður úr Hauk-
um. Tvö ár í meistaraflokki, 11
leikir í 1. deild.
Þjálfarinn
Heimir Ríkharðsson, fæddur
15. maí 1962. Hóf þjálfun yngri
flokka hjá Fram 1982, var aðstoð-
arþjálfari meistaraflokks karla í
fjögur ár og hefur þjálfað meist-
araflokkslið Fram undanfarin tvö
ár. Aðstoðarþjálfari yngri lands-
liða frá 1987 og aðalþjálfari pilta-
landsliðs frá 1994. Heimir tók við
þessum hópi beint úr handbolta-
skóla HSÍ fyrir fjórum árum og
hefur stjórnað honum síðan.
Mikil reynsla í Evrópu-
meistaraliði Íslands
FYRSTU Evrópumeistarar Íslands í handknattleik komu til landsins
í gærkvöld eftir mikla frægðarför til Slóvakíu – strákarnir í pilta-
landsliðinu. Þeir sigruðu Þjóðverja sannfærandi í úrslitaleik á
sunnudaginn, 27:23, og höfðu áður lagt að velli lið Ungverjalands,
Slóvakíu, Rússlands, Slóveníu og Svíþjóðar.
Morgunblaðið/Golli
Heimir Ríkharðsson
Víðir
Sigurðsson
skrifar
SKAGAMENN hafa óskað
eftir því að undanúrslita-
leikur þeirra gegn KA í bik-
arkeppni KSÍ verði færður til
en gert var ráð fyrir að hann
færi fram á Laugardalsvell-
inum þriðjudaginn 9. sept-
ember. Á þeim tíma verður
einn lykilmanna þeirra, Juli-
an Johnsson, upptekinn með
færeyska landsliðinu sem
mætir Litháum á heimavelli
degi síðar.
Að sögn Birkis Sveins-
sonar, mótastjóra KSÍ, hefur
ekki verið tekin afstaða til
erindis Skagamanna en
ákvörðun mun liggja fyrir
síðar í vikunni.
Frestað
vegna
Julians? FÓLK HELGI Valur Daníelsson gat ekki
leikið með Fylkismönnum í gær
frekar en í Evrópuleiknum á móti
AIK í síðustu viku en Helgi meiddist
á síðustu æfingu Fylkisliðsins fyrir
leikinn í Stokkhólmi.
VALUR Fannar Gíslason kom inn
í hóp Fylkis á nýjan leik en hann hef-
ur ekkert leikið síðan hann meiddist í
leik Árbæjarliðsins á móti Val í 9.
umferð deildarinnar.
ÓLAFUR Gíslason, handknatt-
leiksmarkvörður úr Aftureldingu,
hefur að undanförnu æft með ÍR-ing-
um og hefur fullan hug á að skipta
um félag. Ekki hefur þó verið gengið
frá félagaskiptum.
ÓLAFUR Sigurjónsson, sem leikið
hefur með ÍR-ingum hefur ákveðið
að hætta í handknattleik og verður
ekki með ÍR í vetur. Ólafur lék alla
26 leiki ÍR í 1. deildinni síðasta vetur
og var annar markahæsti leikmaður
liðsins með 113 mörk.
PAUL Williams, fyrrum leikmað-
ur með Southampton og Coventry í
ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu,
gekk í morgun til liðs við Stoke City,
sem nú trónir á toppi 1. deildar.
Williams er reyndur varnarmaður
en Stoke fékk hann frá Southampt-
on án greiðslu.
CHRISTOPH Dugarry, Frakkinn
skæði í liði Birmingham, þarf að
gangast undir aðgerð á hné og verð-
ur hann frá af þeim sökum næsta
mánuðinn. Dugarry, sem var sérlega
drjúgur í liði Birmingham á síðustu
leiktíð, þurfti að fara af velli undir
lok leiksins við Tottenham í fyrstu
umferðinni þar sem Birmingham fór
með sigur af hólmi.
SPÆNSKIR fjölmiðlar greindu frá
því í gær að Newcastle og Celtic hafi
sett sig í samband við Real Madrid
með það fyrir augum að fá Steve
McManaman til liðs við sig en dagar
þessa fyrrverandi landsliðsmanns
Englendinga virðast nú vera taldir
hjá stórliðinu. McManaman hefur
verið í herbúðum Madridarliðsins í
fjögur ár en hefur ekki fengið mörg
tækifæri til að láta ljós sitt skína og
fyrir vikið hefur hann ekki verið inni
í myndinni hjá Sven Göran Eriks-
son, landsliðseinvaldi Englendinga.
LEIKMENN Athletic Bilbao á
Spáni ákváðu í gær að 15% af árs-
launum þeirra sl. keppnistímabil
renni til félagsins. Það gera þeir til
að leggja sitt af mörkum til að
styrkja fjárhag liðsins, sem er í fjár-
hagserfiðleikum.
ÞÝSKI landsliðsmaðurinn Michael
Ballack, leikmaður Bayern Münch-
en, sagði í gær að landslið Þýska-
lands væri ekki nægilega sterkt um
þessar mundir til að fagna sigri á EM
í Portúgal næsta sumar. Þjóðverjar
leika í riðli með Íslandi í undan-
keppni EM og leika á Laugardals-
vellinum 6. september og síðan mæt-
ir íslenska liðið til Hamborgar í
seinni leikinn 11. október.
RÚNAR Alexandersson, fim-
leikamaður úr Gerplu, er kominn
með farseðilinn á Ólympíuleikana
í Aþenu á næsta ári. Árangur
Rúnars á Heimsmeistaramótinu,
sem stendur yfir í Bandaríkjum,
tryggir honum keppnisrétt í
Aþenu að ári.
Rúnar komst ekki inn í úrslit í
fjölþraut eins og vonir stóðu til
eftir að hann lauk keppni í fyrri-
nótt, en þá var hann í 18. sæti og
nokkrar þjóðir áttu eftir að ljúka
keppni. Talið var að 32 kæmust
áfram en þeir urðu síðan aðeins
24 og lenti Rúnar í 26. sæti, er
sem sagt annar varamaður inn í
úrslitakeppnina í fjölþraut. Þrátt
fyrir að komast ekki inn er þetta
langbesti árangur íslensks fim-
leikamanns og virðist sem Rúnar
sé að breytast úr því að vera frá-
bær fimleikamaður á einu áhaldi,
bogahesti, yfir í að verða mjög
frambærilegur á öllum áhöld-
unum.
Rúnar æfir nú með landsliði
Letta undir stjórn Artur Mick-
evich, sem hefur náð mjög góðum
árangri með fimleikafólk und-
anfarin ár.
Einkunnir Rúnars bera með sér
að honum hefur farið mikið fram
á ýmsum áhöldum.
Rúnar fer á
Ólympíuleikana