Morgunblaðið - 21.08.2003, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 21.08.2003, Blaðsíða 2
FRÉTTIR 2 FIMMTUDAGUR 21. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ HEFJA RANNSÓKN Bandaríska viðskiptaráðuneytið hefur ákveðið að hrinda af stað form- legri rannsókn á því hvort beita eigi Íslendinga viðskiptaþvingunum vegna hvalveiða. Var ákvörðunin um rannsóknina tekin um leið og stað- fest var að Íslendingar hefðu skotið fyrstu hrefnuna. Minna etið af lambinu Sala á lambakjöti hefur dregist saman um 8,4% á síðustu tólf mán- uðum en sala á kjúklingum og svína- kjöti hefur hins vegar aukist mjög. Vantar nú lítið á að svínakjöt sé mest selda kjöt á Íslandi en lambakjöt hef- ur skipað þann sess frá upphafi. Lax sleppur í Neskaupstað Um 2.800 eldislaxar sluppu úr sjókví við höfnina í Neskaupstað í gærmorgun en gat kom á kvína sem olli því að laxinn slapp. Sjókvíar eru aðeins leyfilegar á fáum stöðum við Ísland. Hætta er talin á að lax sem slapp geti blandast villtum laxastofn- um og raskað þannig lífríki ánna. Vitað um yfirvofandi árás Íraska framkvæmdaráðið bjó yfir vitneskju um að árás á einhver sam- tök, hugsanlega SÞ, væri yfirvofandi í Bagdad. Ekki er ljóst hvort upplýs- ingar þess efnis hafi borist samtök- unum. Kofi Annan, framkvæmda- stjóri SÞ, sagði í gær að mistök hefðu átt sér stað í öryggismálum í Írak. Hann gagnrýndi Bandaríkjaher enn fremur fyrir að hafa ekki gætt nægi- lega vel öryggis alþjóðlegs liðs sem starfar að mannúðarmálum í landinu. Grunur leikur á að samtök sem tengjast al-Qaeda beri ábyrgð á árás- inni. 21. ágúst 2003 SKIP og bátar skráð með heimahöfn á Norðurlandi eystra, alls 235, skiluðu mestum aflaverð- mætum á land á síðasta ári, eða 16,7 milljörðum króna. Aflinn að baki því magni var tæplega 460.000 tonn. Heildaraflaverðmæti á árinu var 77 milljarðar króna og aflinn alls 2.133.327 tonn. Hlutur þessara skipa í aflaverðmætum er því tæp 22% og í aflanum er hlutur þeirra nánast sá sami. Hlutur annarra landshluta í verðmætum er nokkru minni, en Austurland var með meiri afla. Í Reykjavík lönduðu 160 skip og bátar 175.000 tonnum að verðmæti 9,5 milljarðar króna. Það eru um 8% aflans og 12,3% verðmætanna. Á Suðurnesjum lönduðu 203 skip og bátar 198.000 tonnum að verð- mæti 9,7 milljarðar króna. Það er 9,3% aflans og 12,6% verðmæt- anna. 291 skip og bátur lönduðu 153.000 tonnum á Vesturlandi að verðmæti 10,9 milljarðar. Það er 11,9% aflans og 14% verðmæt- anna. Flest skip og báta eru skráð á Vestfjörðum eða 305. Þau lönduðu alls 53.000 tonnum að verðmæti 6,4 milljarðar. Það er 2,5% aflans en 8,3% verðmætanna. Aðeins 69 skip og bátar voru skráð á Norðurlandi vestra. Þau lönduðu 31.000 tonnum að verðmæti 3,4 milljarðar króna. Það er 1,5% aflans og 4,4% verð- mætanna. Mestur afli kom að landi frá skipum og bátum skráðum á Aust- urlandi. 222 bátar og skip lönduðu 538.000 tonnum að verðmæti 9,7 milljörðum króna, sem er 25,2% aflans en 12,6% verðmætanna. Á Suðurlandi komu til sögunnar 121 skip og bátur. Aflinn var 428.000 tonn að verðmæti 10,7 milljarðar króna, sem er 20% aflans og 13,9% verðmætanna. Meðalverð hæst fyrir vestan Meðalverð aflans var langhæst á Vestfjörðum, 121 króna á kíló, og Norðurlandi vestra, 110,50 krónur. Skýrist það af því að skip og bátar í þessum landsfjórðungum stunda nær eingöngu veiðar á botnfiski eða rækju, sem mun hærra verð fæst fyrir en uppsjávarfiskinn. Meðalverð yfir landið var ríflega 36 krónur á hvert kíló og sama verð fá skip og bátar frá Norður- landi eystra. Meðalverðið er á bilinu 43 krónur til 54 á Suður- nesjum, höfuðborgarsvæðinu og Vestfjörðum, hæst á höfuðborgar- svæðinu. Lægst er það á Aust- fjörðum, 18 krónur enda uppsjáv- arfiskur uppistaðan í afla þeirra skipa. Loks var meðalverð á Suð- urlandi 25 krónur. Mest verðmæti á land á Norðurlandi eystra Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson UM 170 danskar útgerðir, þar af 50 á Borgundarhólmi hafa fengið um 200 milljónir króna í bætur vegna banns við þorskveiðum í Eystrasalti. Helmingur fjárins kem- ur frá dönskum stjórnvöldum, hitt frá Evrópusambandinu. Fá bætur VÍSITALA stofnstærðar úthafs- rækju samkvæmt fyrstu útreikn- ingum Hafrannsóknastofnunar að loknum nýafstöðnu rannsóknarleið- angri er um 20% lægri í ár miðað við árið 2002 ef litið er á svæðið í heild, en um 6% hærri en árið 1999 sem var lakasta árið á níunda áratugn- um. Vísitala lækkaði á flestum mið- unum fyrir norðan og austan land, en hækkaði nokkuð við Grímsey, við Sléttugrunn og í Héraðsdjúpi miðað við árið 2002. Þorskur var mjög víða og fékkst jafnmikið af þorski nú og árið 1997 þegar þorskgengd var sem mest á tíunda áratugnum. En í kjöl- far þess minnkaði rækjustofninn til muna. Í fyrsta sinn varð einnig vart við verulegt magn af kolmunna. Rækjan stærri Miðað við stofnmælinguna árið 2002 hefur meðalstærð rækju stækkað á öllum svæðum norðan og austan lands nema við Kolbeinsey og í Eyja- fjarðarál. Smæst var rækjan við Sléttugrunn 356 stk/kg. Nýliðun var yfir meðaltali á öllum svæðum nema í Bakkaflóadjúpi og í Héraðsdjúpi og svipuð og árið 2002. Af þorski fékkst nú fimm sinnum meira en í stofnmælingu rækju árið 2002. Hafrannsóknastofnunin hefur lagt til að upphafsafli úthafsrækju verði 20 þús. tonn fyrir næsta fisk- veiðiár. Enn á eftir að vinna úr ýmsum gögnum sem safnað hefur verið í stofnmælingu úthafsrækju. Einnig verður farið yfir öll gögn sem safnað er um úthafsrækju, svo sem afla á togtíma frá rækjuskipum ásamt upplýsingum um göngur þorsks og þau lögð til grundvallar endanlegum tillögum um hámarksafla úthafs- rækju fyrir fiskveiðiárið 2003/2004. Stofnvísitala rækju 20% lægri en í fyrra Spjaldadælur Einfaldar, tvöfaldar, þrefaldar Stærðir: 6 - 227 cm3/sn. T6 240 bar, T7 300 bar Spilverk ehf. Skemmuvegi 8, 200 Kópavogi, sími. 544 5600, fax. 544 5301 Netaróður á Faxaflóa með Hring HF, leiðsögn um lagafrumskóginn og umhverfismerkingar á fiskafurðir. Landiðogmiðin Sérblað um sjávarútveg úrverinu PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS FIMMTUDAGUR 21. ÁGÚST 2003 Á netinu mbl.is/vidskipti BLAÐ B  ÍSLENSKA úrvalsvísitalan, ICEX-15, hefur hækkað um rúman fimmtung, eða 20,86%, frá áramótum og 27% síðustu tólf mánuði. Það er nokkuð hátt á alþjóðlega vísu, en hækkanir á hlutabréfum hafa þó verið töluverðar, sérstaklega í Bandaríkjunum og Asíu. Jónas Friðþjófsson, sérfræð- ingur hjá greiningardeild Landsbankans, segir að flest hálfsársuppgjörin liggi nú fyrir og hafi í heild ekki valdið von- brigðum. „Í raun má segja að Pharmaco hafi leitt þessar hækkanir, auk bankanna, en uppgjör allra þessara fyrir- tækja voru góð,“ segir hann. Jónas segir að uppgjör Pharmaco hafi verið umfram væntingar, uppgjör Landsbank- ans hafi að mörgu leyti verið betra en menn hafi átt von á, Íslandsbanka sömuleiðis og Kaupþings Búnaðarbanka. Fjárfestingavæntingar „Svo eru byggðar töluverðar væntingar inn í hlutabréfaverð þessara fyrirtækja. Menn vita að fyrirtæki á borð við Bakka- vör og Pharmaco eru með ým- islegt á prjónunum og munu vafalaust tilkynna um einhverj- ar fjárfestingar á næstunni. Sömuleiðis eru bankarnir í út- rás. Ákveðin mettun hefur orðið hér á heimamarkaðinum, þann- ig að vaxtarmöguleikarnir eru erlendis,“ segir Jónas. Hann segir að einnig skipti máli að mikil einkavæðing hafi átt sér stað í bankakerfinu og því tvímælalaust hagræðingar- kostir í náinni framtíð. Samein- ingu Kaupþings og Búnaðar- banka hafi fylgt hagræðing sem eigi eftir að koma fram og hafi að hluta til þegar komið fram, eins og t.a.m. í lægri fjármögn- unarkostnaði. „Einnig er talið að hagræðingarmöguleikar séu hjá Landsbanka, með nýjum stjórnendum og hluthöfum.“ Þá segir hann að við stjórn- völinn hjá flestum þessum fyr- irtækjum séu tiltölulega ungir en reyndir stjórnendur. „Fjár- festar virðast hafa trú á þeim,“ segir Jónas. Pharmaco sér á báti Pharmaco er sér á báti, að sögn Jónasar. „Fyrirtækið er kannski ekki ósvipað og Kaup- þing var; með hröðum innri og ytri vexti og mikilli arðsemi. Félagið hefur staðið undir væntingum og jafnvel gert bet- ur en menn áttu von á,“ segir hann. Jónas segir að gengislækkun krónunnar að undanförnu hafi hjálpað útflutningsfyrirtækjum. „Svo má ekki gleyma því að margt þykir benda til þess að efnahagsástand sé að batna í Bandaríkjunum, en þau hafa auðvitað mikil áhrif á efnahags- líf í heiminum.“ Í Bandaríkjunum hafa vísitöl- ur verið á mikilli uppleið. Nasd- aq-vísitalan, sem mælir gengi tæknifyrirtækja, hefur hækkað um tæp 32%, S&P um 14% og Dow Jones-vísitalan hefur hækkað um 13%. Nikkei-vísital- an í Japan hefur hækkað um 20%. Svolítið aðra sögu er að segja af Evrópu, en breska FTSE-vísitalan hefur „aðeins“ hækkað um 8% og CAC í Frakklandi um 8% einnig. Hægist á hækkunum Í Markaðsyfirliti Greiningar Ís- landsbanka, um erlenda mark- aði, segir að nokkuð hafi dregið úr hækkunum á verði hluta- bréfa að undanförnu. „Í júlí hækkuðu hlutabréf á heimsvísu þó fjórða mánuðinn í röð. Heimsvísitala Morgan Stanley hækkaði um 1,9% í mánuðinum sem er nokkru meiri hækkun en í júní. Hlutabréfaverð í Bandaríkjunum, Evrópu og As- íu hækkaði í mánuðinum. Í Bandaríkjunum hefur hluta- bréfaverð sveiflast á þröngu bili síðustu vikur en birting upp- gjöra, hagvísar og hræringar á skuldabréfamarkaði hafa verið stærstu áhrifaþættirnir,“ segir í samantektinni. Þá segir að uppgjör vestra hafi almennt verið yfir vænt- ingum markaðarins. „Alls hafa 87% uppgjöra verið í takt við eða yfir væntingum og 65% hafa verið yfir væntingum. Vöxtur hagnaðar hjá fyrirtækj- um í [S&P 500] vísitölunni sam- anborið við fyrra ár nemur nú um 8,8% en í upphafi fjórðungs- ins höfðu greiningaraðilar gert ráð fyrir 7% vexti.“ Úrvalsvísitalan fimmt- ungi hærri en um áramót Pharmaco og bankarnir leiða hækkunina. Góð hálfsársuppgjör og væntingar um aukna útrás eru meðal þess sem veldur hækkun verðs á hlutabréfum um þessar mundir                     ! "#$ $%& ' $ ( ()(*+ ' ( ()(*+ ' , ( - (  $ $&  & ,+ & ,+& *(  .  .   .    .   . VIÐSKIPTABLAÐ MORGUNBLAÐSINS TRYGGINGAMIÐSTÖÐIN hf. (TM) keypti í gær hlutabréf í Eimskipafélagi Íslands fyrir 100 milljónir króna að nafn- verði. Miðað við verð á hlut í Eimskipa- félaginu í Kauphöll Íslands í gær má ætla að gengi í viðskiptunum hafi verið 6,20 krónur á hlut og markaðsvirðið því 620 milljónir króna. Eftir viðskiptin er eignarhlutur TM í Eimskipafélaginu 5,56% eða að nafnvirði 286.346.406 krónur. Markaðsvirði hlut- arins TM nemur alls 1.775 milljónum króna, miðað við gengið 6,20 krónur á hlut. Áður átti félagið 186.346.406 krónur eða 3,62% af útgefnu hlutafé. V I Ð S K I P T I TM með yfir 5% í Eimskipa- félaginu Markaðsvirði eignar TM í Eim- skip 1.775 milljónir króna S É R B L A Ð U M V I Ð S K I P T I , E F N A H A G S M Á L O G A T V I N N U L Í F Á S A M T S J Á V A R Ú T V E G S B L A Ð I Hagstæð ytri skilyrði Rýnt í milliuppgjör bankanna 3 Marksjóðir fyrir fjárfesta Möguleikar fagfjárfesta 6 FRÁ FJÖLSKYLDUM TIL FJÁRFESTA SAMRÆMD vísitala neysluverðs í EES-ríkjum lækkaði um 0,2% milli júní og júlí. Vísitalan var 112,9 stig (1996=100) í júlí, samkvæmt upplýs- ingum frá Hagstofunni. Í sama mánuði var samræmda vísitalan fyrir Ísland 125,0 stig og hafði lækkað um sömu pró- sentu frá því í júní síðastliðnum. Miðað við samræmdu vísitöluna var verðbólgan í EES-ríkjunum að meðaltali 1,8% á tímabilinu frá júlí 2002 sama mánaðar þessa árs. Verðbólgan nam 1,9% á evrusvæðinu og 0,9% á Íslandi. Mest verðbólga á evrópska efnahags- svæðinu á þessu tólf mánaða tímabili var 3,9% í Írlandi og 3,5% í Grikklandi. Minnst var hún 0,8% í Þýskalandi og 0,9% á Íslandi. Minnst verðbólga á Íslandi og í Þýskalandi Yf ir l i t Í dag Sigmund 8 Viðhorf 30 Erlent 12/15 Minningar 30/34 Höfuðborgin 16 Skák 45 Akureyri 16/17 Bréf 36 Suðurnes 17 Kirkjustarf 39 Landið 21 Dagbók 38/39 Neytendur 22 Fólk 44/49 Listir 23/24 Bíó 46/49 Umræðan 25 Ljósvakamiðlar 50 Forystugrein 26 Veður 51 * * * Morgunblaðinu í dag fylgir auglýs- ingablaðið Sparimagazín. Blaðinu er dreift um allt land. FJÁRMÁLAEFTIRLITIÐ hefur sent frá sér tilkynningu þar sem vakin er athygli á því að fyrirtækin Team Marketing International og World Wide Autobank hafi ekki heimild til stofnunar útibús fjár- málafyrirtækis eða til að veita þjón- ustu fjármálafyrirtækis án stofnun- ar útibús. „Við höfum haft ástæðu til að ætla að þessi fyrirtæki hafi ætlað að hefja starfsemi hér á landi, okk- ur er kunnugt um að þau hafi verið að kynna starfsemi sína hér,“ sagði Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Fjár- málaeftirlitsins, í samtali við Morg- unblaðið. Samkvæmt upplýsingum um fyr- irtækið Team Marketing Internat- ional sem fást á Netinu á slóðinni www.gmbs.no, sem vistuð er í Nor- egi og skrifuð á norsku, er hér um nokkurs konar píramídafyrirtæki að ræða, þ.e. fyrirtæki sem byggir á sölu á ákveðnum vörum í gegnum net seljenda. Þeir seljendur aðrir, sem hver seljandi fær til að ganga til liðs við fyrirtækið og selja vörur þess, borga honum þóknun af seld- um vörum og svo koll af kolli. Því ofar í píramídanum sem seljandinn er þeim mun hærri ágóði á að vera mögulegur. Norskt fyrirtæki Samkvæmt upplýsingunum er Team Marketing International skráð í Noregi en World Wide Autobank, sem samkvæmt sömu upplýsingum er eigandi hugmynd- arinnar, er skráð á Bresku Jóm- frúareyjum. Á heimasíðu FME segir að fyr- irtæki sem skortir heimildir til stofnunar útibús fjármálafyrirtækis eða til að veita þjónustu fjármála- fyrirtækis án stofnunar útibús hafi m.a. ekki heimild til móttöku end- urgreiðanlegra fjármuna frá al- menningi (innlán), útgáfu og um- sýslu greiðslukorta eða viðskipta og þjónustu með fjármálagerninga samkvæmt lögum um verðbréfavið- skipti. Páll Gunnar segir að Fjármála- eftirlitinu sé heimilt að gefa út op- inbera viðvörun þegar ástæða er til að ætla að verið sé að bjóða upp á fjármálaþjónustu þegar þess hafi ekki verið gætt að afla leyfa fyrir henni. Neytendavernd gæti skort „Við erum ekki að leggja dóm á starfsemina að öðru leyti. Því er ekki að neita að við erum að skoða nokkur tilfelli til viðbótar þar sem um er að ræða eftirlitsskylda fjár- málaþjónustu sem viðkomandi hafa ekki aflað sér leyfis til að stunda. Ástæða er til að vekja athygli á slíku því þar gæti verið að ekki væri um að ræða þá neytendavernd sem ætti að vera fyrir hendi hjá fyrirtækjum sem starfsleyfi hafa,“ sagði Páll Gunnar að lokum. Varað við píramídafyrir- tækjum í fjármálastarfsemi STARFSMENN Jarðborana hf. eru byrjaðir að bora rann- sóknaholu fyrir Landsvirkjun í Hágöngum. Að sögn Sturlu Fann- dals Birkissonar, verkefnisstjóra Jarðborana, fer verkið vel af stað. Borinn Jötunn er kominn rúma 300 metra niður í jörðina og hefur öryggisfóðringu verið komið fyr- ir. Bora á beint niður allt að 2.200 metra og vonast Sturla til að því verði lokið um miðjan september. Jarðboranir fá greiddar ríflega 230 milljónir króna fyrir bor- unina. Inni í þeirri tölu er einnig vatnsöflun og forborun. Jötunn kom á svæðið fyrir rúmri viku eft- ir að borinn Saga hafði unnið for- boranir um nokkurn tíma og farið 100 metra niður. Sturla segir eng- ar hita- og þrýstingsmælingar hafa farið fram, borinn þurfi að fara lengra niður til þess. Næsti áfangi sé að fara niður á 800 metra dýpi, koma þá fyrir vinnslu- fóðringu og steypa hana. Eftir það sé boraður vinnsluhluti hol- unnar niður á endanlegt dýpi. „Það er þá sem sést hvort árangur verður af þessum borunum. Eftir að borun lýkur, sem ég vona að verði um miðjan september, taka við alls konar mælingar sem geta tekið frá þremur og upp í tíu daga,“ segir Sturla. Vísbendingar um 300 gráða hita Landsvirkjun hefur uppi áform um að reisa orkuver á þessu svæði. Hágöngur eru um 40 km norðaustur af Þórisvatni. Sam- kvæmt upplýsingum á vef Orku- stofnunar er þetta lítt þekkt há- hitasvæði sem að hluta til lenti undir Hágöngulóni. Yfirborðshiti er aðallega á þremur stöðum og tveir þeirra lentu undir vatni er Hágöngulón var fyllt. Þriðji stað- urinn er vestast í Sveðjuhrauni. Viðnámsmælingar hafa bent til að jarðhitasvæðið sé 28 til 50 ferkíló- metrar að stærð og efnafræði guf- unnar sem upp streymir bendir að mati Orkustofnunar til um 300 gráða hita í djúpkerfinu. Borun hafin í Hágöngum Ljósmynd/Andrés Þorgeirsson Áður en Jötunn fór að athafna sig við Hágöngur boraði borinn Saga forborun niður að 100 metrum. Sveinbjörn Þórisson, starfsmaður Jarðborana, er hér að störfum við Sögu og í baksýn er fjallið Syðri-Hágöngur. KRISTJÁN Gunnarsson, varafor- maður Starfsgreinasambands Ís- lands, segir að félög sambandsins leggi í komandi kjaraviðræðum helst áherslu á aukinn kaupmátt, áfram- haldandi stöðugleika og hækkun lægstu launa umfram önnur laun. Framkvæmdastjórn sambandsins fundaði í gær og segir Kristján að þar hafi m.a. verið farið yfir undir- búning og aðdraganda væntanlegra kjarasamninga. „Við höfum að und- anförnu verið að draga saman áherslur félaganna og setja saman viðræðuáætlun.“ Hann segir að „hjörtu félaganna slái nokkuð í takt“ þegar farið sé yfir helstu áherslur þeirra í komandi samningum en tek- ur þó fram að nákvæmari kröfur, s.s. kaupkröfur, liggi enn ekki fyrir. „Við ætlum að meta árangurinn af síðustu kjarasamningum og sjá hvernig til hefur tekist. Síðan er ætlunin að meta hvort ástæða sé til að endur- taka aðferðafræðina sem þá var við- höfð eða hvort ástæða sé til að fara aðrar leiðir.“ Kjarasamningur sem Verka- mannasamband Íslands gerði á sín- um tíma og Starfsgreinasambandið yfirtók við stofnun þess rennur út um áramótin. Samningur Flóa- bandalagsins svonefnda átti upphaf- lega að renna út 15. september nk. en hann var framlengdur með nýrri viðræðuáætlun fram til áramóta. Efling hefur ákveðið að gera við- horfskönnun meðal félagsmanna sinna. Niðurstaðna er að vænta um næstu mánaðamót. Tilgangurinn er að afla upplýsinga um áhersluatriði fyrir næstu kjarasamninga. Samningar Starfsgreinasambandsins Áhersla á stöðugleika og aukinn kaupmátt

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.