Morgunblaðið - 21.08.2003, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 21.08.2003, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. ÁGÚST 2003 39 DAGBÓK STJÖRNUSPÁ Frances Drake LJÓN Afmælisbörn dagsins: Þú sem átt afmæli í dag býrð yfir óvenjulegri blöndu af ímyndunarafli og raunsæi. Árið framundan virðist ætla að verða eitt þitt besta. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Dagurinn í dag hentar mjög vel til skemmtanahalds. Þér finnst þú vera heillandi og að- laðandi og ekki er laust við að daðrið sé ríkt í þér. Naut (20. apríl - 20. maí)  Tilvalið er að sinna fasteigna- viðskiptum í dag. Dagurinn hentar líka vel til innkaupa fyrir heimilið. Allt mun það auka þinn hag. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Þú munt njóta þess að læra nýja hluti í dag sem víkka huga þinn. Heimspekilegar vangaveltur og trúarlegar eða kenningar í læknisfræði og fé- lagsfræði vekja áhuga. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Einkar gott er að sinna við- skiptum og fjármálum í dag. Hvað sem þú hleypir af stað mun verða þér til hagsbóta. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Nú er mjög jákvæður dagur sem getur stuðlað að miklum vexti í framtíðinni. Þig þyrstir í nýja upplifun og finnur fyrir hvöt til að stækka þann heim sem þú býrð í. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Orkan umhverfis þig í dag minnir á að þú getur ekki hundsað skilaboð þíns við- kvæma hjarta. Það er meira spunnið í lífið en það sem sést á yfirborðinu. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Hverskonar félagsleg sam- skipti við vini, hópa eða sam- tök ganga sérlega vel í dag. Þú býrð yfir skipulagshæfileikum og leiðtogahæfileikum í dag. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Ef þú vilt auka starfsframa þinn þá er núna rétti dag- urinn. Gæfan er með þér og því nauðsynlegt að grípa gæs- ina núna. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Möguleiki á ferðalagi gæti hægt á þér í dag. Allt sem við kemur útgáfumálum, fjöl- miððlun eða menntamálum eykur við tækifæri þín. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Enn og aftur nýturðu góðs af auði og greiðvikni annarra. Dagurinn í dag er tilvalinn til að biðja um hluti eins og lán, leyfi, eða hvaðeina annað. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Þú átt hægt um vik með að sýna öðrum góðvild og örlæti í dag. Hvað sem þú gerir mun verða til þess að þú vex í áliti hjá félögum og vinum. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Framundan er ákaflega góður dagur í vinnunni. Hlutirnir ganga smurt fyrir sig því lukkan er þér hliðholl. Fjár- mál eru ábatasöm í dag, og til langframa. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. VAKRI SKJÓNI Hér er fækkað hófaljóni, – heiminn kvaddi vakri Skjóni. Enginn honum frárri fannst. Bæði mér að gamni og gagni góðum ók ég beizlavagni, til á meðan tíminn vannst. Á undan var ég eins og fluga, – oft mér dettur það í huga, af öðrum nú þá eftir verð. Héðan af mun ég hánni ríða, – hún skal mína fætur prýða, einnig þeirra flýta ferð. Lukkan ef mig lætur hljóta líkan honum fararskjóta, sem mig ber um torg og tún, vakri Skjóni hann skal heita, honum mun ég nafnið veita, þó að meri það sé brún. Jón Þorláksson LJÓÐABROT ÁRNAÐ HEILLA 85ÁRA afmæli. ÓlafurKristinn Þórðarson, kennari frá Innri Múla á Barðaströnd, Maríubakka 2, Reykjavík, er 85 ára í dag, fimmtudaginn 21. ágúst. Eiginkona hans er Helga Vigfúsdóttir. Þau verða að heiman í dag. 50ÁRA afmæli. Nk.mánudag 25. ágúst verður fimmtugur Guð- steinn Frosti Hermundsson, Egilsstöðum II, Vill- ingaholtshreppi. Af því til- efni tekur hann og fjölskylda hans á móti gestum í Þjórs- árveri laugardagskvöldið 23. ágúst frá kl. 20.30. ÞUNNAR slemmur eru miklir örlagavaldar í sveitakeppni, enda skapa þær iðulega stórar sveiflur á hvorn veginn sem þær fara. Fyrir nokkrum dög- um birtist í þættinum hörð slemma frá leik Suður- nesjamanna og Norðan- garra í Bikarkeppninni, þar sem legan var á bandi þeirra fyrrnefndu. Við lesturinn rifjaðist upp fyr- ir keppendum önnur slemma úr leiknum, öllu harðari, sem einnig lá til Sunnanmanna. Suður gefur. Norður ♠ 9654 ♥ ÁK32 ♦ K ♣ÁK84 Vestur Austur ♠ -- ♠ 1072 ♥ DG109 ♥ 75 ♦ 10852 ♦ ÁDG974 ♣DG965 ♣103 Suður ♠ ÁKDG83 ♥ 864 ♦ 63 ♣72 Þar sem Norðanmenn í sveit Frímanns Stef- ánssonar voru í NS var samningurinn fjórir spað- ar í NS. Suðurnesjamenn lögðu meira á spilin á hinu borðinu. Þar voru í NS sveitarforinginn Kristján Örn Kristjánsson og Valur Símonarson, en þeir eru núverandi Íslandsmeist- arar í svokölluðum öld- ungaflokki (þá er sam- anlagður aldur spilaranna minnst 110 ár, en báðir þó komnir á sextugsaldur). Kristján Örn vakti á ein- um spaða á sexlitinn og Valur keyrði í slemmu, enda vanur ökumaður: Vestur Norður Austur Suður -- -- -- 1 spaði Pass 2 lauf 3 tíglar Pass Pass 4 grönd Pass 5 spaðar Pass 6 spaðar Allir pass Eins og í fyrri slemm- unni voru fórnarlömbin í AV Björn Þorláksson og Reynir Helgason. Útspil vesturs var tígull og aust- ur fékk þar fyrsta og eina slag varnarinnar. Sagnhafi sér reyndar aðeins 11 örugga slagi til að byrja með, en sá tólfti kemur fyrirhafnarlaust með þvingun á vestur í hjarta og laufi. Besta spila- mennskan er að taka ÁK í laufi og trompa lauf áður en lagt er upp í þving- unarleiðangurinn. Tilgang- urinn með því er að ein- angra laufvaldið við vestur ef hann hefur byrjað með fjórlit. Í þessu spili er það þó ekki nauðsynlegt, því vestur á fimmlit í laufi til hliðar við hjartað. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson 1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 a6 6. f3 Db6 7. Rb3 e6 8. g4 Rc6 9. De2 Dc7 10. Be3 b5 11. O-O-O Rd7 12. Kb1 Rb6 13. Df2 Hb8 14. f4 b4 15. Re2 e5 16. f5 a5 17. Rg3 a4 18. Rd2 a3 19. Bxb6 Hxb6 20. Rc4 Hb8 21. b3 Be7 22. Rh5 g6 23. Rg7+ Kf8 24. Re6+ Bxe6 25. fxe6 Rd8 26. exf7 Re6 27. Re3 Dc3 28. Rc4 Rf4 29. Dg3 Kxf7 30. Dxc3 bxc3 31. Hg1 h5 32. g5 h4 33. He1 Kg7 34. He3 Staðan kom upp í atskákeinvígi Visw- anathan Anand (2774) og Judit Polgar (2718) sem lauk fyrir skömmu í Mainz í Þýskalandi. Ungverska skák- drottningin hafði svart og sneri laglega á Ind- verjann. 34...d5! Við þetta tapar hvítur óumflýjanlega skipta- mun og þrátt fyrir hetjulega baráttu varð hann að lúta í lægra haldi rúmlega tuttugu leikjum síðar. 35. exd5 Bc5 36. Hg4 Bxe3 37. Rxe3 Hhf8 38. Bc4 Hbd8 39. Hg1 Rh3 40. Hd1 Rf2 41. He1 Re4 42. Kc1 Rd6 43. Be2 Hf2 44. Rg4 Hf5 45. Bd1 e4 46. Re3 Hxg5 47. Bg4 Rf5 48. h3 Rxe3 49. Hxe3 Hxg4 50. hxg4 Hh8 51. Kd1 Kf6 52. Hxe4 h3 53. He1 Kg5 54. Hh1 Kxg4 55. Ke2 g5 56. d6 h2 57. Kf2 Kh3 og hvítur gafst upp. Framan af hafði Judit undirtökin í einvíginu en töp í síðustu þrem skákunum leiddi til þess að Anand vann einvígið 5-3. SKÁK Helgi Áss Grétarsson Svartur á leik. Þessar ungu dömur á Akureyri héldu tombólu þar sem þær söfnuðu 2.900 kr., sem þær afhentu Rauða kross- inum. F.v. Álfheiður Þórhallsdóttir, Guðrún Ösp Ólafs- dóttir og Sóley Hulda Þórhallsdóttir. HLUTAVELTA Hallgrímskirkja. Hádegistónleikar kl. 12. Veronika Ostenhammer, sópran og Friðrik Vignir Stefánsson, orgel. Háteigskirkja. Taize-messa kl. 20. Landspítali háskólasjúkrahús. Grens- ás: Guðsþjónusta kl. 20. Sr. Sigfinnur Þorleifsson. Laugarneskirkja. Kyrrðarstundir kl. 12 á hádegi. Gunnar Gunnarsson leikur á orgelið frá kl. 12. Þjónustu annast sr. Bjarni Karlsson. Kl. 12.30 er léttur málsverður í boði í safnaðarheimilinu. Fella- og Hólakirkja. Biblíulestur og helgistund í Gerðubergi kl. 10.30-12. Vídalínskirkja. Bæna- og kyrrðarstund í kirkjunni kl. 22. Gott er að ljúka deg- inum og undirbúa nóttina í kyrrð kirkj- unnar og ber þar fram áhyggjur sínar og gleði. Bænarefni eru skrá í bæna- bók kirkjunnar af prestum og djákna. Boðið er upp á molasopa og djús að lokinni stundinni í kirkjunni. Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús fyrir ung börn og foreldra þeirra í Vonarhöfn, safnaðarheimili Strandbergs, kl. 10- 12. Opið hús fyrir 8-9 ára börn í safn- aðarheimilinu Strandbergi, Vonarhöfn, frá kl. 17-18.30. Þorlákskirkja. Biblíupælingar í kvöld kl. 20. Landakirkja í Vestmannaeyjum. Kl. 10 mömmumorgunn/foreldramorgunn í safnaðarheimilinu. Foreldrar og börn velkomin, heimilisleg stemmning, kaffi á könnunni og djús handa krökk- unum. Kletturinn. Kl. 19 alfanámskeið. Allir velkomnir. Akureyrarkirkja. Kyrrðar- og fyrir- bænastund í kapellu kl. 12. Léttur há- degisverður á vægu verði í Safnaðar- heimili eftir stundina. Safnaðarstarf MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynningar um afmæli, brúðkaup, ættarmót og fleira lesendum sínum að kostnaðarlausu. Tilkynn- ingar þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyrirvara fyrir sunnudagsblað. Samþykki afmælisbarns þarf að fylgja afmælistilkynn- ingum og/eða nafn ábyrgðarmanns og síma- númer. Fólk getur hringt í síma 569-1100, sent í bréfsíma 569-1329, eða sent á netfangið ritstj @mbl.is. Einnig er hægt að skrifa: Árnað heilla, Morgunblaðinu, Kringlunni 1, 103Reykjavík ATVINNA mbl.is KIRKJUSTARF Verslun fyrir konur, Mjódd, sími 557 5900 HAUSTDAGAR Í MJÓDD! Nýju vörurnar streyma inn Sjón er sögu ríkari Verið velkomnar Stjórnun erfðavísinda David Winickoff, kennari við John F. Kennedy school of government, Harvard háskóla, heldur erindi um nýjar hugmyndir um hvernig standa megi að rannsóknum á erfðaefni manna. Fyrirlesturinn verður haldinn í sal 101 í Odda, Háskóla Íslands, fimmtudaginn 21. ágúst kl. 17.00 og er öllum opinn. Mannvernd Mörkinni 6 • Sími 588 5518 STÓRÚTSALA Síðustu dagar Yfirhafnir í úrvali Klassa stuttkápur 50% afsláttur Nýjar vetrarvörur 20% afsláttur Hattar og húfur Opnum kl. 10.00

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.